
1. Þegar ríkið spurði þjóðina hvernig mætti spara
2. Þegar hlutur ríkisins í Íslandsbanka var seldur
3. Þegar Framsókn sprengdi borgarstjórnina
4. Þegar stjórnarandstaðan fór í málþóf
5. Þegar samningur um réttindi fatlaðs fólks var lögfestur

Á fyrsta starfsdegi þessa árs efndi ríkisstjórnin til samráðs við almenning um hagræðingu í ríkisrekstri. Þjóðin var spurð hvar og hvernig henni fyndist helst mega hagræða í ríkisrekstri; hvar mætti stokka upp eða breyta forgangsröðun og hvort dæmi væru um sóun hjá hinu opinbera sem auðvelt væri að taka á. Mikil þátttaka var í samráðinu og bárust yfir 10.000 tillögur um hagræðingu í 3985 umsögnum. Forstöðumenn ríkisstofnana fengu sömu spurningar frá ríkisstjórninni með óskum um tillögur. Í stefnuræðu sinni við upphaf yfirstandandi haustþings fullyrti forsætisráðherra að samráðið myndi skila sér í yfir 100 milljarða hagræðingu á tíma nýrrar fjármálaáætlunar. Meðal hagræðingaraðgerða sem ráðist verður í á grundvelli samráðsins er afnám handhafalauna vegna forsetavalds en frumvarp þess efnis hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda.
Markaðssett útboð á hlutum ríkissjóðs í Íslandsbanka fór fram í maí síðastliðnum þar sem eftirstandandi 45,2 prósent eignarhlutur ríkisins var seldur. Úthlutað var til rúmlega 31 þúsund einstaklinga, sem fengu samanlagt 815,6 milljónir hluta. Söluferlið hófst haustið 2024 en var aflýst með stuttum fyrirvara og sagði þáverandi fjármálaráðuneytið af sér í kjölfarið. Eignarhluti ríkisins í bankanum var seldur í þremur sölum. Fyrri sölurnar tvær voru framkvæmdar af Bankasýslu ríkisins en sú síðasta af fjármála og efnahagsráðuneytinu. Maskína kannaði viðhorf almennings til sölunnar bæði síðasta vor og vorið 2022 og reyndust mun fleiri ánægðir með hvernig til tókst nú en árið 2022.
Það stefndi allt í að Samfylkingin missti völdin í Reykjavík þegar Einar Þorsteinsson þáverandi borgarstjóri og oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík, taldi sig á vormánuðum hafa náð samkomulagi við Sjálfstæðisflokkinn, Flokk fólksins og Viðreisn um nýjan meirihluta í Reykjavík. Komu þá mörg atvik saman í einu, sem ollu því að það slitnaði upp úr viðræðum.

Þykir þar hafa vegið þyngst að Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra nýtti sambönd sín við Ingu Sæland, félags og húsnæðismálaráðherra til að draga borgarfulltrúa Flokks fólksins út úr viðræðunum og úr varð nýr meirihluti myndaður til vinstri. Hægri flokkarnir sitja nú í minnihluta í borgarstjórn líkt og á Alþingi. Undantekningin er Viðreisn en fulltrúi þeirra er nú í minnihluta í borginni en flokkurinn á aðild að stjórnarmeirihlutanum á þingi.
Það var ekki bjart yfir ríkisstjórninni í sumar þegar stjórnarandstaðan efndi til lengsta málþófs sögunnar. Umræðuefnið var hækkun veiðigjalda og þurfti að grípa til örþrifaráða til að ljúka umræðum á Alþingi og var það gert með þeim fordæmalausa hætti að forseti þingsins batt endi á umræður samkvæmt heimild í þingsköpum. Þetta lagðist allt frekar þunglega í menn. Hins vegar kom síðar í ljós hve gott sumarið reyndist ríkisstjórninni. Stjórnarandstöðuflokkarnir töpuðu miklu fylgi á málþófinu og andstöðu við hærri veiðigjöld. En ríkisstjórnin hélt sjó og styrkti stöðu sína.

„Frú forseti, ég gæti næstum því farið að gráta. Ég er svo glöð að vera komin hingað,“ sagði Inga Sæland við atkvæðagreiðslu á Alþingi þegar samningurinn var lögfestur 12. nóvember síðastliðinn. Ísland undirritaði samninginn árið 2016 og er bundið af honum samkvæmt alþjóðalögum. Lögfestingin nú hefur hins vegar í för með sér að ákvæði samningsins fá lagagildi og geta einstaklingar byggt rétt sinn á ákvæðum hans fyrir dómstólum og öðrum úrskurðaraðilum. Lögfestingin hefur lengi verið baráttumál hjá Ingu sem lagði fjórum sinnum fram þingmál þess efnis þegar hún var þingmaður í stjórnarandstöðu.
Í umfjölluninni var ranglega sagt að Viðreisn ætti aðild að nýjum meirihluta í Reykjavík. Það hefur verið leiðrétt.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.