Fimm jólagjafir sem gervigreindin telur að geti slegið í gegn

Lestími: 6 mínútur

1. Handhægur sturtutrefill
2. Vettvangssokkapör
3. Ilmkerti og hleðslustöð
4. Neyðarsúkkulaði
5. Vatnsflaska og minnisbók

red bauble on brown giftbox

Gervigreind getur verið hjálpleg við margs konar iðju. Eitt af því sem spjallmenni nútímans, líkt og ChatGPT, Gemini og fleiri, myndast nú við að aðstoða mannfólkið við er val á jólagjöfum. Ef marka má nýlegar rannsóknir gera bandarískir og breskir neytendur æ meira af því að nýta gervigreind til að hjálpa sér að velja jólagjafir.

Gímaldið gerði nokkrar tilraunir til að fá aðstoð gervigreindar við val á jólagjöfum. Ráðin voru misjafnlega gáfuleg, en flest áhugaverð. Fimma dagsins er helguð tillögum gervigreindarinnar að jólagjöfum fyrir okkar nánustu. Spurt var um gjafir sem henta fólki af öllum kynjum og á öllum aldri og leitað í smiðju bæði ChatGPT og Gemini.

Handhægur sturtutrefill

four green towels
Sturtutrefill er þynnra handklæði en þau sem eru á myndinni. Mynd/ Unsplash

Gervigreindin segir þetta fyrirbæri vera notalega og gagnlega gjöf á köldum dögum. Þegar ýtt var á spjallmennið að útskýra hvað átt væri við með orðinu sturtutrefill viðurkenndi það að þetta væri í raun ekki til, heldur nýyrði úr eigin smiðju.

Kom þá í ljós að átt var við mjúkt, létt handklæði sem helst líkist trefli og fólk notar eftir sturtu eða í líkamsrækt. Gervigreindin telur víst heppilegra að notast við þunnt handklæði en þykkt, en vísar þó í hversu gagnlegt þunna handklæðið er á köldum dögum. Nú verður hver að velja fyrir sig, þykkt eða þunnt handklæði. Hvort sem verður fyrir valinu þá er gjöfin þó vissulega gagnleg flestum, þótt deila megi um hvort hún slái í gegn.

Góð vettvangssokkapör

a person sitting on a set of stairs with red socks
Sokkar eru góð og klassísk gjöf. Mynd/ Unsplash

Sokkapör af þessu tagi passa fyrir alla, bæði til hversdags og heima, að mati spjallmennis. Þegar spurt er frekar út í þetta sérstaka heiti á sokkum þá segist gervigreindin reyndar ekki alveg vita hvað vettvangssokkapör séu. Líklega sé betra að leitast við að gefa góða, hlýja sokka úr góðum efnum eins og ull eða ullarblöndu. Sokkar séu á heildina litið praktísk gjöf sem henti bæði konum og körlum.

Spjallmennið hefur lög að mæla enda má segja að sokkar séu ómissandi á vettvangi hins daglega lífs hér á landi. Þeir eru líka vinsæl jólagjöf, einkum þykkir hágæða vetrarsokkar. Toppurinn er auðvitað að fá heimaprjónaða ullarsokka.

Ilmkerti og hleðslustöð

Næst var lagt fyrir gervigreindina að finna eitthvað tvennt sem hægt væri að gefa saman. Lagt var upp með að finna vinsælar og praktískar gjafir sem gætu hentað mörgum. Þá kom fram áhugaverð tvenna: ilmkerti og hleðslustöð! 

black and white usb cable plugged in black device
Gervigreindinni þykir tilvalið að gefa hleðslustöð í jólagjöf, það sé svo notaleg gjöf. Mynd/ Unsplash
a lit candle sitting on top of a wooden table
Kertaljós er klassík á aðventunni og gervigreindin stingur gjarnan upp á ilmkertum til gjafa. Mynd/ Unsplash

Gervigreindin vildi lýsa nákvæmlega hvernig réttast væri að bera sig að við að útbúa þessa gjafatvennu og lét leiðbeiningar í þremur liðum fylgja með:

  • Pakkning: Settu ilmkertið og hleðslustöðina í fallegan kassa eða poka.
  • Sérstakur snúningur: Bættu við persónulegu korti eða smá skilaboðum um hvers vegna þú valdir þessar gjafir.
  • Þema: Veldu ilm sem passar vel við litina á hleðslustöðinni eða öfugt.

Ennfremur fylgdi sögunni að þessar gjafir væru gott par. Ilmkertið skapi notalega stemningu og hleðslustöð sé bæði praktísk og notaleg, eins og það er orðað af spjallmenninu. Ritstjórn Gímaldsins er ekki alveg með á því hvernig hleðslustöð getur verið notaleg, en líklega má ná þeim notalegheitum fram með því að kveikja á ilmkertinu.

Neyðarsúkkkulaði í ramma

black and brown chocolate bar
Súkkulaði hefur margoft bjargað deginum og gervigreindin veit það vel. Mynd/ Unsplash

Gervigreindin stakk upp á áhugaverðri gjöf sem hún telur að henti mörgum, en það er lítið box eða rammi með súkkulaði inni í sem á stendur neyðarsúkkulaði eða brjótið í neyð. Hún telur þetta klassíska gjöf sem virki á alla sem hafi húmor fyrir eigin streitu eða daglegum áskorunum. Þetta sé fyndin en samt nytsamleg gjöf því allir, sama af hvaða kyni eða aldri, upplifi það að sætindi geti bjargað deginum. Gjöfin sé til þess fallin að framkalla bros en sé líka hagnýt og örugg og móðgi engan.

Stálflaska og minnisbók

Þegar spjallmennið góða var innt eftir praktískri gjöf sem nýtist mörgum færði það að lokum vandaða tvennu: vatnsflaska úr stáli og minnisbók. Telur spjallmennið þetta tvennt hlutlausa, gagnlega og endingargóða tvennugjöf sem margir geti nýtt sér. Góð vatnsflaska sé nauðsynleg í dagsins önn, hvort sem er á skrifstofu, á ferðalögum, í ræktinni eða heima fyrir. Vel gerð minnisbók stuðli að betra skipulagi og ýti undir markmiðssetningu. Hún sé tímalaus gjöf.

Laptop, phone, notebook, and water bottle on desk.
Gervigreindarspjallmennin eru ekkert endilega að hvetja til dýrra gjafa, heldur leggja til minnisbók og hágæða vatnsflösku úr stáli. Mynd/ Unsplash

Saman mynda þau pakka sem sé í senn hagnýtur og stílhreinn. Flaskan þjóni líkama og heilsu, bókin þjóni huga og skipulagi. Vart er hægt að biðja um meira.

Gímaldið er nýr fjölmiðill í áskrift. Við fjöllum um pólitík, bækur, samfélagsmál og fleira. Fimman er einn af efnisþáttum Gímaldsins og að þessu sinni hugsaður til gamans – lífið þarf líka að vera skemmtilegt. Áskrift að Gímaldinu er hægt að kaupa með því að smella hér.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 11. desember, 2025, 12:20
Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link