For­ystu­fólk í VG vilji fella Líf

Lestími: 12 mínútur

Finn­ur Ricart og Auð­ur Al­fífa hafa mik­inn vind í segl­um í for­vali VG í Reykja­vík. Þau hafa femínista með sér, unga fólk­ið og stór­an hluta for­yst­unn­ar. Stefán er þó talinn eiga mikið inni og reynsl­an kenn­ir að ekki beri að van­meta Líf í for­vali.

For­val Vinstri grænna í Reykja­vík fer fram um helg­ina. Ungt og upp­renn­andi fólk í flokkn­um vill steypa reynslu­bolt­um af stóli en segja má að for­val­ið sé keppni milli tveggja liða. Þau skipa ann­ars veg­ar Finn­ur Ricart Andra­son, sér­fræð­ing­ur í um­hverf­is­ og lofts­lags­mál­um og Auð­ur Al­fífa Ket­ils­dótt­ir, smíða­kenn­ari, og hins veg­ar Líf Magneu­dótt­ir, borg­ar­full­trúi og Stef­án Páls­son, vara­borg­ar­full­trú­i.

Sig­ur­veg­ar­ar for­vals­ins munu skipa annað og þriðja sæti á lista hins sam­eig­in­lega fram­boðs Vor til vinstri en þar mun borg­ar­full­trú­inn Sanna Magda­lena Mörtu­dótt­ur vera odd­vit­i. Við­ræð­ur standa einnig yf­ir um mögu­lega þátt­töku Rós­ar­inn­ar, eins af að­ild­ar­fé­lög­um Sam­fylk­ing­ar­inn­ar.

Dug­leg en stöðn­uð

Líf Magneu­dótt­ir borg­ar­full­trúi flokks­ins, hef­ur ver­ið í önd­vegi VG í lang­an tíma og borg­ar­full­trúi síð­an 2016. „Hún hef­ur eig­in­lega aldrei haft breið­an stuðn­ing for­yst­unn­ar og hef­ur oft­ast geng­ið á eig­in veg­um,“ seg­ir einn við­mæl­anda Gímalds­ins. Hún er sögð dug­leg­ur at­kvæðasmal­ari og hana megi aldrei van­meta í for­vali.

Það hef­ur ver­ið gerð tölu­verð að­för að henni í að­drag­anda þessa for­vals og hún þarf veru­lega að hafa fyr­ir sínu að þessu sinn­i, seg­ir flokks­fólk sem Gímald­ið ræddi við. „Hún á í vök að verj­ast og ef hún hef­ur þetta af verð­ur það mjög tæpt.”

„Hún á í vök að verj­ast og ef hún hef­ur þetta af verð­ur það mjög tæpt.”

Það sem vinn­ur helst gegn henni núna er í fyrsta lagi slakt fylgi í Reykja­vík um lang­an tíma, í öðru lagi ákall um breyt­ing­ar og nýtt upp­haf í flokkn­um og í þriðja lagi hóp­ar inn­an flokks­ins sem hafa haft horn í síðu henn­ar fyr­ir ýms­ar sak­ir.

Femínist­­arn­ir lang­rækn­ir

Til að mynda hafa femínist­ar í VG enn ekki fyr­ir­gef­ið Líf að hafa far­ið gegn Sól­eyju Tóm­as­dótt­ur í for­vali flokks­ins ár­ið 2014. Sól­ey vann það for­val með minnsta mögu­lega mun því að­eins einu at­kvæði mun­aði á þeim í odd­vita­sæt­ið. Femínist­ar í VG hafa ekki stað­ið með Líf síð­an og vinna bein­lín­is gegn henni nún­a, segja við­mæl­end­ur. „Hvort Líf er femínisti sjálf er allt ann­að mál en hún er alla­vega ekki þeirra femínist­i.“

Kreðs­ur tengd­ar verka­lýðs­fé­lög­um hafa líka unn­ið gegn henn­i. Þá er vert að minn­ast álykt­un­ar sem stjórn Reykja­vík­ur­fé­lags VG birti vegna leik­skóla­mála í borg­inni fyr­ir nokkru. En þá var ályktað gegn mál­um sem Líf hafði ver­ið í for­svari fyr­ir.

„Hún er mjög flokks­holl og dug­leg.“

„Líf er bú­in að vera með þrjú pró­sent fylgi úr kosn­ing­um og könn­un­um í lang­an tíma og ekki marg­ir sem líta á hana sem leið­toga sem trekk­ir at­kvæði að flokkn­um því hún er bú­in að af­sanna það,“ seg­ir einn við­mæl­anda Gímalds­ins. „En hún er mjög flokks­holl og dug­leg og kannski einna dug­leg­ust allra í flokkn­um á þessu tíma­bil­i.“

Stef­án gæti reynst leyni­vopn Líf­ar

Styrk­ur Líf­ar felst hins veg­ar í öfl­ugu stuðn­ings­liði sem hún hef­ur byggt upp á löng­um tíma og í lang­tíma holl­ustu henn­ar við flokk­inn. Fylgi flokks­ins í borg­inni er hins veg­ar henn­ar stærsti veik­leik­i. Þetta segja við­mæl­end­ur, að gæti fellt hana núna og ef­ast um að hún fái fleiri tæki­færi.

And­stæð­ing­ar Líf­ar eru þó varað­ir við því að hún hafi áð­ur kom­ið á óvart í for­vali og sé oft van­met­in. Hún er sögð mik­ill at­kvæða­smali og gríð­ar­lega öfl­ug í kosn­inga­bar­átt­um inn­an flokks­ins.

Stef­án Páls­son, vara­borg­ar­full­trú­i, styð­ur Líf í odd­vita­sæt­ið og gef­ur sjálf­ur kost á sér í 2. sæt­i. Stuðn­ing­ur hans við Líf kann að vera af illri nauð­syn því sam­kvæmt regl­um flokks­ins um fléttu­lista mega karlar ekki vera í tveim­ur sæt­um í röð. Þetta þýð­ir að nái Finn­ur odd­vita­sæti gæti Stef­án í besta falli feng­ið þriðja sæt­ið. Við­mæl­end­ur Gímalds­ins telja þó að Stef­án hafi styrkt sig veru­lega inn­an flokks­ins og vax­ið eft­ir að hann fór að starfa á vett­vangi borg­ar­mál­anna. Hann er sagð­ur eiga mik­inn stuðn­ing inni og gæti kom­ið á óvart í for­val­in­u. Vin­sæld­ir hans vinna vænt­an­lega með Líf.

Fersk­ur en bæði ung­ur og óreynd­ur

Finn­ur Ricart Andra­son er tal­inn njóta meiri stuðn­ings með­al áhrifa­fólks í flokkn­um en Líf, segja má að hann njóti þess að Líf eigi ekki leng­ur upp á pall­borð­ið og það séu ekki síð­ur óvin­sæld­ir henn­ar en vin­sæld­ir hans sem tryggi hon­um mik­inn stuðn­ing.

Finn­ur er 23 ára og hef­ur ver­ið nokk­uð áber­andi í þjóð­fé­lags­um­ræð­unni sem for­seti Ungra um­hverf­is­sinna. Hann er sagð­ur metn­að­ar­gjarn og ófeim­inn við að koma op­in­ber­lega fram.

Stuðn­ing­ur við hann kem­ur úr ýms­um átt­u­m; Frá áhrifa­fólki í flokkn­um sem vill end­ur­nýj­un og breyt­ing­ar, frá um­hverf­issinn­um og ungu fólki. Þá fær Finn­ur líka stuðn­ing frá fólki sem vill losna við Líf, eins og femínist­u­m.

Einum of metnaðargjarn

Efa­semd­ir um Finn lúta fyrst og fremst að ung­um aldri hans og reynslu­leysi í stjórn­mál­u­m. Hann þyk­ir mjög metn­að­ar­gjarn og reynd­ar svo mjög að sum­um blöskr­ar og þyk­ir nóg um. Svo er hann nán­ast óskrif­að blað í stjórn­mál­u­m. „Á móti kem­ur að þau sem eru virk­ust í póli­tík eru svo þreytt og pirruð út í alla sem þau þekkja að þau vilja miklu frek­ar ein­hverja sem þau þekkja ekki,“ seg­ir einn flokks­fé­laga við Gímald­ið.

Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, er gengin aftur í VG en hún sagði sig úr flokkn­um árið 2017 vegna myndunar ríkisstjórnar með Sjálf­stæð­is­flokknum. Drífa hef­ur lýst yf­ir stuðn­ingi við Auði Al­fífu í forvalinu. MYND/RÚV/Ragnar Visage

Talið er lík­legt að fram­boð hans og Auð­ar Al­fífu eigi stór­an þátt í tæp­lega 400 manna fjölg­un í Reyka­vík­ur­fé­lagi VG síð­ustu vik­ur. Vegna smöl­un­ar­inn­ar hef­ur fé­lag­ið stækk­að um 20 pró­sent og fé­lag­ar sem hafa munu kosn­inga­rétt í for­val­inu eru nú um 2.500.

Þau sem Gímald­ið ræddi við telja þó að það sé tölu­verð dreif­ing á nýj­um fé­lög­um en flest­ir telja að meiri­hluti þess muni frek­ar gagn­ast Finni og Auði Al­fífu en Líf og Stef­án­i. Þó er bent á að þeg­ar Finn­ur var gerð­ur að odd­vita í öðru kjör­dæm­inu í Reykja­vík fyr­ir síð­ustu þing­kosn­ing­ar, hve lít­ið af um­hverf­is­vernd­ar­sinn­um fylgdi hon­um. Von­ir hafi stað­ið til að ung­ur og efni­leg­ur mað­ur myndi draga með sér fjölda fólks inn í flokk­inn en það hafi brugð­ist.

Hann þyk­ir mjög metn­að­ar­gjarn og reynd­ar svo mjög að sum­um blöskr­ar

Finn­ur hef­ur ver­ið orð­að­ur við for­manns­fram­boð í flokkn­um en ný for­ysta verð­ur kjör­in á lands­fundi snemma í næsta mán­uð­i. Mörg­um þyk­ir Finn­ur þó held­ur ung­ur og óreynd­ur til að taka við for­ystu í flokkn­um. Það sé of stórt skref með­an hann er enn óskrif­að blað í póli­tík. Heim­ild­ir herma þó að tek­ist hafi að slá á metn­að hins unga stjórn­mála­manns og hann sé nú sjálf­ur að verða frá­hverf­ur for­manns­fram­boði að sinni en íhugi í stað­inn emb­ætti vara­for­manns.

Auð­ur er með BA próf í bók­mennt­um og kynja­fræði og MA í hag­nýtri menn­ing­ar­miðl­un. Hún hef­ur ver­ið fé­lagi í VG i tutt­ugu ár og ver­ið virk í Femínista­fé­lagi Ís­lands, að því er fram kem­ur í fram­boðskynn­ingu henn­ar.

Auð­ur Al­fífa Ket­ils­dótt­ir gef­ur kost á sér í annað sæti. Femínista­hóp­ur flokks­ins er sagð­ur styðja Auði Al­fífu al­veg sér­stak­lega og í raun Finn lík­a, vegna and­stöðu við Líf.

Með­al stuðn­ings­fólks Finns og Auðar eru, eins og fyrr seg­ir, áhrifa­fólk í flokkn­um, um­hverf­is­sinn­ar, auk stórs hluta unga fólks­ins í flokkn­um og femínista sem fyrr seg­ir.

Mik­ið ligg­ur við fyr­ir VG

Að sögn heim­ild­ar­manna Gímalds­ins er allt á mik­illi hreyf­ingu inn­an flokks­ins um þess­ar mund­ir eft­ir tölu­verð­an doða und­an­far­ið ár. Stemn­ing­in er tal­in velta á því, með­al ann­ar­s, hvern­ig for­val­ið fer. „Það væri áfall fyr­ir kjarnafólkið í flokkn­um ef Finn­ur tap­ar fyr­ir Líf,“ seg­ir einn flokks­manna.

„Það væri áfall fyr­ir kjarnafólkið í flokkn­um ef Finn­ur tap­ar fyr­ir Líf.“

Lands­fund­ur flokks­ins verð­ur hald­inn á Sel­fossi tveim­ur vik­um eft­ir for­val og mun hann líka hafa mik­il áhrif á upp­bygg­ing­ar­starf­ið sem fram und­an er í flokkn­um.

Þrátt fyr­ir að þess­um fjór­um fram­bjóð­end­um sé gjarn­an stillt upp sem tveim­ur lið­u­m, er ekki talið lík­legt að ann­að lið­ið vinni og hitt tapi. Nið­ur­stað­an verð­ur að öll­um lík­ind­um blönd­uð því lík­leg­ast er að þau Líf og Finn­ur raði sér í efstu tvö sæt­in. Sam­herj­ar ann­ars hvors þeirra fái þriðja sæt­ið og fléttu­regl­an gæti ráð­ið því ekki síð­ur en at­kvæð­in sem koma upp úr kjör­köss­un­um.

Fréttinni hefur verið breytt. Fullyrt var að Auður Alfífa geti ekki verið í öðru sæti á eftir Líf vegna fléttureglu flokksins. Þetta er rangt því fléttureglan heimilar að tvær konur séu í röð á listanum en ekki tveir karlar.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 11. júní, 2026, 07:31

Aðalheiður Ámundadóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link