Fjölmiðlar styðja breytingar á fjölmiðlalögum en gagnrýna útfærslu

Lestími: 9 mínútur

Fjölmiðlar eru almennt fremur jákvæðir í garð breyttra fjölmiðlalaga og telja það að festa rekstrarstuðning í sessi til fimm ára auki fyrirsjáanleika. Hins vegar telja margir að frumvarpið festi í sessi kerfi sem ýti undir samþjöppun, mismuni minni miðlum og forðist að takast á við helstu áskoranir fjölmiðlamarkaðarins.

Frumvarp um breytingar á fjölmiðlalögum, sem felur í sér að festa rekstrarstuðning við einkarekna fjölmiðla í sessi til næstu fimm ára, fær almennt jákvæð viðbrögð í umsögnum sem borist hafa í samráðsgátt stjórnvalda. Alls bárust 19 umsagnir, þar af ein frá Gímaldinu. Flestar umsagnir eru frá fjölmiðlum en nokkur hagsmunasamtök rita einnig umsagnir um frumvarpið.

Flestir umsagnaraðilar fagna því að rekstrarstuðningur stjórnvalda verði gerður varanlegri, að umsóknar- og úthlutunarferli verði hraðað og að stuðningshæfur kostnaður taki betur mið af breyttum veruleika fjölmiðla, meðal annars með því að ná til fleiri þátta í rekstri stafrænna miðla. Áhersla er lögð á að aukinn fyrirsjáanleiki geti styrkt rekstrargrundvöll fjölmiðla.

Útfærsla rekstarstuðnings og möguleg áhrif frumvarpsins á samkeppni og fjölbreytni á fjölmiðlamarkaði er meðal þess sem gagnrýnt er í umsögnunum. Sérstaklega vekur athygli nýr viðbótarstuðningur sem ætlaður er fjölmiðlum sem sinna daglegri fréttaþjónustu í almannaþágu á landsvísu. Margir umsagnaraðilar telja að skilyrði fyrir þessum stuðningi séu of þröng og í reynd séu þau sniðin að tveimur stærstu fjölmiðlafyrirtækjum. Þar er einkum vísað til kröfu um að að minnsta kosti 25 starfsmenn starfi á ritstjórn, sem þykir ekki endurspegla raunveruleika íslensks fjölmiðlamarkaðar, þar sem margir miðlar starfa með mun færri starfsmenn.

Afleiðingin, að mati gagnrýnenda, er sú að frumvarpið geti styrkt stöðu markaðsráðandi aðila á kostnað smærri og vaxandi miðla. Bent er á að slík útfærsla geti skapað aðgangshindranir og dregið úr samkeppni, sem gangi gegn yfirlýstum markmiðum um fjölbreytt og öflugt fjölmiðlaumhverfi. Þetta sjónarmið kemur fram hjá ólíkum umsagnaraðilum, þar á meðal sérhæfðum miðlum, útgáfufélögum og hagsmunasamtökum, sem telja að frumvarpið taki ekki nægjanlegt tillit til mismunandi rekstrarforma og stærðar fjölmiðla.

Ekki tekist á við undirliggjandi vandamál

Samhliða þessu er bent á að frumvarpið styðji síður nýja og vaxandi fjölmiðla. Þar er meðal annars vísað til þess að styrkir byggi á rekstri fyrra árs, sem þýðir að miðlar í vexti fá hlutfallslega minni stuðning en þeir sem standa í stað eða dragast saman. Þá eru einnig gerðar athugasemdir við kröfur um lágmarksstarfsmannafjölda og umfang starfsemi, sem taldar eru of íþyngjandi fyrir smærri aðila og geti dregið úr nýsköpun í greininni.

Árleg framlög ríkisins til RÚV í fyrra námu um tólf sinnum þeirri upphæð sem sett var í rekstrarstuðning til 30 fjölmiðla samanlagt. Umsagnaraðilar telja lítið gert til að leiðrétta þennan mikla aðstöðumun. MYND/RÚV/Ragnar Visage

Önnur meginlína í umsögnum snýr að því að frumvarpið takist ekki á við undirliggjandi vandamál á fjölmiðlamarkaði. Þar er einkum vísað til stöðu RÚV, sem nýtur bæði opinbers stuðnings og keppir við aðra miðla á auglýsingamarkaði. Fjöldi umsagnaraðila telur að þessi tvíþætta staða skekki samkeppni verulega og að frumvarpið geri lítið til að bregðast við því. Bent er á vaxandi hlut erlendra tæknifyrirtækja á auglýsingamarkaði, sem hefur dregið úr tekjum innlendra fjölmiðla án þess að frumvarpið taki sérstaklega á þeirri þróun.

Í ljósi þessa leggja margir umsagnaraðilar til breytingar á útfærslu stuðningsins. Kallað er eftir hærra endurgreiðsluhlutfalli, til dæmis í átt að því sem tíðkast á Norðurlöndum, þar sem stuðningur nemur víða um 35 prósentum af rekstrarkostnaði en ekki 25 prósentum eins og frumvarpið miðar við.

Ekki ýtt undir áskriftir og hlutverk miðla á landsbyggðinni gleymist

Þá er einnig lagt til að tengja stuðning frekar við áskriftartekjur, til að styrkja sjálfbær viðskiptamódel fjölmiðla og auðvelda þeim að vera ekki háðir auglýsingatekjum. Einnig er bent á að lækka þurfi þröskulda fyrir aðgang að stuðningi, meðal annars með því að endurskoða kröfur um starfsmannafjölda, en krafa er um þrjá starfsmenn í fullu starfi.

Hlutverk fjölmiðla á landsbyggðinni er einnig tekið fyrir í umsögnum og bent á að rekstrarumhverfi þeirra hafi versnað á undanförnum árum, ekki síst vegna hækkandi dreifingarkostnaðar. Þrátt fyrir að frumvarpið geri ráð fyrir ákveðnum viðbótarstuðningi til staðbundinna miðla er gagnrýnt að það gangi ekki nægilega langt í að mæta þessum áskorunum. Bent er á að staðarmiðlar gegni mikilvægu hlutverki í upplýsingamiðlun, ekki síst í tengslum við náttúruvá og málefni sem snerta nærsamfélög. Þá séu þeir oft fyrstir á vettvang þegar stórir atburðir verði í heimabyggð og gegni því ekki síður hlutverki fyrir almennan fréttaflutning á landsvísu.

Samhljómur um nauðsyn stuðningskerfis

Þrátt fyrir gagnrýnina er þó samhljómur um að stuðningur við einkarekna fjölmiðla sé nauðsynlegur í einhverri mynd. Umsagnaraðilar leggja áherslu á að öflugt og sjálfstætt fjölmiðlaumhverfi sé grundvallarforsenda lýðræðislegrar umræðu og að aukin upplýsingaóreiða og skautun í samfélaginu geri það að verkum að þörfin fyrir vandaða blaðamennsku hafi sjaldan verið meiri. Frumvarpið er því almennt talið skref í rétta átt, en á sama tíma er því lýst sem tækifæri sem sé ekki fullnýtt.

Í heild gefa umsagnirnar til kynna að frumvarpið nái að hluta til markmiðum sínum um aukinn stöðugleika og fyrirsjáanleika, en að verulegir annmarkar séu á útfærslu þess. Sérstaklega er varað við því að stuðningskerfið, eins og það er lagt fram, geti ýtt undir samþjöppun á markaði, veikt stöðu smærri miðla og nái í heild ekki að takast á við helstu orsakir þeirra erfiðleika sem fjölmiðlar standi frammi fyrir. Útfærslan þurfi endurskoðun ef markmiðið er að efla fjölbreytni, samkeppni og sjálfstæði fjölmiðla í landinu til lengri tíma.

Fjölmiðlanefnd getur ekki metið árangur fjölmiðlastuðnings

Gímaldið fjallaði um rekstrarstuðning fjölmiðla í febrúar síðastliðnum. Í þeirri umfjöllun var leitað svara hjá Fjölmiðlanefnd, sem hefur umsjón með rekstrarstuðningnum, og reynt að fá upplýsingar um stöðugildi á ritstjórnum þeirra fjölmiðla sem þegið hafa styrki. Rekstrarstuðningur við fjölmiðla, bæði í núverandi löggjöf og frumvarpinu sem fjallað er um að ofan, byggir á því að fjölmiðlar gefi upp stöðugildi á ritstjórn og launakostnað við þau stöðugildi. Þrátt fyrir að þessar tölur séu forsenda stuðnings segir Fjölmiðlanefnd að ekki sé hægt að taka saman fjölda stöðugilda á ritstjórnum.

Stuðningur við einkarekna fjölmiðla hefur verið veittur í sex ár samfleytt og nemur heildarupphæð 2,7 milljörðum króna. Reynsla er því komin á rekstrarstuðninginn og unnt ætti að vera að meta árangur. Eitt helsta markmið frá upphafi hefur verið að stuðla að því að störf haldist á ritstjórnum fjölmiðla.

Gímaldið sendi fyrirspurn í tveimur liðum til þess menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneytisins vegna svara Fjölmiðlanefndar um að ekki væri hægt að finna út vegna hve margra stöðugilda á ritstjórn stuðningur er veittur. 1. Telur ráðuneytið ásættanlegt að Fjölmiðlanefnd sjái sér ekki fært að veita upplýsingar um stöðugildi á fjölmiðlum? 2. Telur ráðuneytið að Fjölmiðlanefnd geri nóg til að safna gögnum um fjölmiðlamarkaðinn?

Í svari ráðuneytisins við fyrirspurn Gímaldsins segir að nefndin sé ekki undir yfirstjórn ráðherra heldur sé hún sjálfstæð, taki eigin ákvarðanir og forgangsraði verkefnum sínum sjálf.

Svar ráðuneytisins í heild sinni: „Fjölmiðlanefnd er sjálfstæð stjórnsýslunefnd sem er sjálfstæð og óháð í störfum sínum og þar með undanskilin yfirstjórn ráðherra. Nefndin fellur stjórnskipulega undir menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, sem þýðir að ráðherra fer með almennt eftirlit með starfrækslu, fjárreiðum og eignum á vegum fjölmiðlanefndar, sbr. 2. mgr. 13. gr. laga um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011 og 14. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.

Af framangreindu leiðir m.a. að nefndin tekur eigin ákvarðanir um að forgangsraða verkefnum sínum og að ákvarðanir nefndarinnar verða ekki bornar undir ráðherra með stjórnsýslukæru. Fyrirkomulaginu er ætlað að undirstrika sjálfstæði fjölmiðlanefndar í samræmi við aukna áherslu á sjálfstæði eftirlitsstofnana í tilskipun Evrópusambandsins um hljóð- og myndmiðlun nr. 2010/13/EB.

Nefndinni er skv. lögum ætlað að safna gögnum um stöðu og þróun á markaði – og gerir það með því að kalla eftir og taka við árlegum skýrslum fjölmiðla, sem eru svo afhentar Hagstofu Íslands.
Þar sem fjölmiðlanefnd er sjálfstæð stjórnsýslunefnd er hún ekki með þjónustusamning eða rekstrarsamning við ráðuneytið þar sem iðulega eru tiltekin ákveðin verkefni og áherslumál í starfi viðkomandi aðila.,“ segir í svari ráðuneytisins við fyrirspurn Gímaldsins.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 21. mars, 2026, 15:35

Eyrún Magnúsdóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link