
Plakat af Viktori Orbán hékk yfir rúmi Péters Magyar í æsku og þeir voru samherjar í ungverskri pólitík þar til fyrir tveimur árum að Magyar snérist gegn foringja sínum. Hann rústaði þingkosningum í Ungverjalandi um helgina og því vilja margir komast að því fyrir hvað hann stendur í pólitík. Það er hægara sagt en gert.

Erfiður, óþolinmóður, skapbráður og jafnvel uppstökkur; sú mynd sem dregin er upp af Péter Magyar, sigurvegara nýafstaðinna þingkosninga í Ungverjalandi, er æði misjöfn. Sumir lýsa aðdáun, aðrir andúð, eins og eðlilegt er. Sem stjórnmálamaður er Magyar sagður ástríðufullur, einlægur, kraftmikill og duglegur.
„Ég held að eins og allir stjórnmálamenn geti hann verið erfiður,“ hefur breska dagblaðið The Guardian eftir kvikmyndagerðarmanninum Tamás Topolánszky, í nærmynd blaðsins um Magyar, en Topolánszky fylgdi Magyar eftir í aðdraganda kosninganna. „Ég held að þetta sé eitthvað sem við Ungverjar sjáum nú að hafi verið nauðsynlegt til að koma okkur á þennan stað.“
Tisza, flokkur Magyar, hlaut 138 af 199 þingsætum og tryggði sér þannig nægilegan meirihluta á ungverska þinginu til að geta ráðist í breytingar á stjórnkerfi landsins, sem gegnsýrt er af áhrifum fráfarandi stjórnar.
Stjórnmálaskýrendur í Ungverjalandi hafa lýst skjótri velgengni Tisza sem ungversku hraðameti en fáir hafi séð fyrir hraðan á vexti þeirrar hreyfingar sem Magyar hefur byggt upp.
„Aldrei í sögu landsins höfum við séð flokk rísa svona hratt,“ segir ungverski stjórnmálafræðingurinn Gábor Györi í fyrrnefndri grein The Guardian.
Péter Magyar er 45 ára gamall lögfræðingur. Hann er fæddur og uppalinn í Búdapest, kominn af menntuðum, kristilegum demókrötum af efri millistétt með náin tengsl við valdastétt landsins. Magyar lærði bæði í Búdapest og við Humboldt-háskóla í Berlín. Magyar hóf stjórnmálaafskipti í kringum 25 ára aldur með þátttöku í starfi Fidesz, flokks Viktors Orbán. Flokkurinn var þá í stjórnarandstöðu. Hann hefur sjálfur sagt frá því að plakat af Viktori Orbán hafi hangið fyrir ofan rúmið hans í æsku.
Eftir að flokkurinn komst til valda í Ungverjalandi árið 2010 tók Magyar til starfa í utanríkisráðuneyti landsins og starfaði næstu fjórtán árin ýmist í Brussel eða í stjórnendastöðum hjá ríkisfyrirtækjum í Ungverjalandi. Þáverandi eiginkona hans, Judit Varga, var dómsmálaráðherra í einni af ríkisstjórnum Orbáns og einn nánasti vinur hans var starfsmannastjóri í forsætisráðuneytinu.
Magyar snérist hins vegar gegn flokki sínum og foringja vegna hneykslismáls sem skók stjórn Orbáns í febrúar 2024. Þá birti Magyar hljóðupptöku af eiginkonu sinni, dómsmálaráðherra landsins, þar sem hún heyrist lýsa því hvernig stjórnvöld hefðu náðað mann sem hafði verið sakfelldur fyrir að aðstoða við yfirhylmingu kynferðisofbeldis á barnaheimili. Forseti landsins, Katalin Novák, sem undirritaði náðunina, sagði af sér vegna málsins sem og Judit Varga, þáverandi eiginkona Magyar, sem undirritaði náðunarskjalið með forsetanum. Eftir afsögn eiginkonunnar tilkynnti Magyar opinberlega afsögn sína úr öllum stöðum tengdum ríkisstjórninni og sakaði embættismenn Fidesz um að gera konurnar tvær að blórabögglum.
Í færslu á Facebook sagði hann að hugmyndir Viktors Orbán um „þjóðlegt, fullvalda, borgaralegt Ungverjaland“ hefðu ekki önnur markmið en að hylma yfir gríðarlega spillingu og auðsöfnun þeirra sem hefðu réttu tengslin.
Viðsnúningur Magyar vakti mikla athygli í Ungverjalandi enda tímasetningin hárrétt. Óánægja ríkti með almenn lífskjör í landinu, dýrtíð og stöðnun í launakjörum. Í kjölfar fjölmenns mótmælafundar tók Magyar yfir einn af smáflokkum landsins, Tisza (Tisztelet és Szabadság) og varð fljótt áberandi leiðtogi stjórnarandstöðunnar, sem hafði ekki verið til stórræðna lengi. Nokkrum vikum eftir yfirtöku flokksins vann Magyer stórsigur í kosningum til Evrópuþingsins.
Öllum var þó ljóst að Magyer stefndi annað og hærra en til að ná alla leið þurfti hann að yfirstíga hindranir sem þekkjast ekki í öðrum Evrópuríkjum. Eftir sextán ára valdatíð hefur Fidesz, flokkur Orbáns, komið sér vel fyrir innan valdakerfis Ungverjalands með breytingum á kosningakerfinu og ítökum í dómskerfinu, allri stjórnsýslu og háskólum landsins. Fjölmiðlar landsins hafa flestir verið keyptir upp af velunnurum stjórnarinnar og mörg stærstu fyrirtæki landsins eru einnig gegnsýrð af áhrifum forsætisráðherrans fráfarandi, að ónefndu alþjóðlegu stuðningsneti mynduðu af helstu leiðtogum þeirra flokka á Vesturlöndum sem kenndir eru við öfgafulla hægristefnu.
Ólíkt því sem gerst hefur undir Trump i Bandaríkjunum hefur þróunin verið hægari í Ungverjalandi. „Hér er þetta meira eins og froskurinn sem byrjar að sjóða án þess að gera sér grein fyrir því,“ sagði Péter Krekó, forstöðumaður Political Capital stofnunnarinnar, í samtali við The Guardian fyrir tæpu ári síðan.
Hann sagði Ungverjaland hafa staðið nokkuð vel í kringum aldamótin og átt sterkar lýðræðislegar stofnanir. Landið standi nú veikast allra Evrópuríkja að þessu leyti og „ungversku áróðursvélinni“ hafi tekist að hamra boðskap stjórnvalda inn hjá almenningi: „Hann er út um allt land, á öllum auglýsingaskiltum, í útvarpsauglýsingum, í sjónvarpi,“ sagði Krekó og bætti því við að slíkar áróðursherferðir hafi að mörgu leyti gegnið mjög vel við mótun almenningsálitsins í landinu.
Andreas Kádár hjá ungversku Helsinki-nefndinni varaði við áhrifum sem þetta veldur, í fyrrnefndri grein í The Guardian. Það kunni kannski að vera freistandi að gera eina og eina málamiðlun í þeirri von að eitthvað lagist. „En ungverska dæmið sýnir að þeir ganga alltaf einu skrefi lengra; við náum alltaf nýjum botni. Það er mjög mikilvægt að berjast gegn hverri tommu og hverjum bita í þessu ferli.“
Hann bendir líka á að breytingarnar séu oftast kynntar og seldar almenningi í skjóli áróðurs og haturs, hvort sem það er gegn ESB eða minnihlutahópum eins og innflytjendum.
Magyar stóð því ekki aðeins frammi fyrir þeirri áskorun að telja kjósendur á að treysta sér þrátt fyrir fortíð sína heldur þurfti hann líka að finna leið til að koma málflutningi sínum á framfæri við fólk sem setið hefur undir áróðri Orbáns nánast gagnrýnislaust árum saman, eftir öðrum leiðum en stjórnmálamenn geta venjulega reitt sig á.
Magyar gat hvorki treyst á fjölmiðla né venjulegar vinnustaðaheimsóknir í baráttu sinni og ekki fékk hann aðgang að auglýsingaskiltum sem birt hafa áróður Orbáns. Í staðinn skipulagði hann fjöldafundi um land allt með slagorðinu „Nú eða aldrei!“ (Most vagy soha!).

Fjölmennir fundir í helstu borgum landsins vöktu athygli en það var ekki síst í dreifbýlinu sem Magyar náði árangri. Hann hefur ferðast um landið undanfarin tvö ár og heimsótt litla bæi og þorp, mörg þeirra oftar en einu sinni.
Á endaspretti kosningabaráttunnar hélt hann fimm til sex kosningafundi dag.
Afrek hans hefur vakið heimsathygli. Blaðamaðurinn virti, Anne Appelbaum, gengur svo langt að segja stjórnarandstöðuna í Ungverjalandi hafa breytt stjórnmálum um allan heim.
Appelbaum segir sigur Péters binda enda á hugmyndafræði MAGA-hreyfingarinnar og orðræðu Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta – þess efnis að ófrjálslyndum flokkum sé ætlað að halda völdum að eilífu af því þeir njóti stuðnings „hins raunverulega“ fólks. Sagan virki hins vegar ekki þannig því raunverulegt fólk verði þreytt á valdhöfum sínum, hugmyndirnar verði úreltar og yngra fólkið fari að efast um rétttrúnaðinn. Ófrjálslyndi leiði til spillingar. „Og ef Orbán getur tapað, þá geta rússneskir og bandarískir aðdáendur hans líka tapað.“
Þrátt fyrir stanslausa kosningabaráttu í tvö ár og 240 blaðsíðna stefnuskrá telja flestir enn óljóst hvað Magyar stendur í raun og veru fyrir. Það kann að vera meðvituð stefna hjá Magyar að einhverju leyti, til að gefa ekki andstæðingum sínum höggstað á sér í óvinveittu fjölmiðlaumhverfi.
Á Wikipedia-síðu hans er honum lýst sem íhaldssömum frjálslyndismanni, markaðssinnuðum efnahagslega með áherslu á borgaralega ábyrgð, réttarríki og þjóðmenningu.
Magyar hefur lýst yfir stuðningi við upptöku evru í Ungverjalandi, enda myndi það styrkja fjármálastöðugleika og stöðu Ungverjalands innan Evrópusambandsins. Hann er sagður vilja efla samstarf Ungverjalands innan ESB og aðlögun að vestrænum lýðræðisgildum. Hann hefur gagnrýnt harðlínustefnu ríkisstjórnar Orbáns gagnvart stofnunum ESB og náin tengsl hennar við Rússland.
Í ræðum sínum hefur Magyar einbeitt sér að efnahagsmálum, heilbrigðisþjónustu og skólum, auk endurreisnar lýðræðislegs aðhalds og valdajafnvægis. Hann hefur hins vegar forðast þau stefnumál sem Orbán lagði áherslu á: alþjóðastjórnmál, stríðið í Úkraínu og samsæriskenninguna um að Úkraína gæti tekið upp á að ráðast inn í Ungverjaland.
Hann hefur þó sagt að hann vilji bæta samskiptin við Evrópu, þótt hann sé andsnúinn því, eins og Orbán, að senda Úkraínumönnum vopn og styðji ekki flýtimeðferð umsóknar Úkraínu um aðild að ESB. Þó hefur verið bent á að tiltölulega lítil breyting geti skipt miklu í samskiptum Ungverjalands við Evrópusambandið. Það eitt að Ungverjaland hætti að beita neitunarvaldi í ráðherraráðinu sé stórt skref fram á við.
Á löngum blaðamannafundi í gær sagði Magyar Ungverja stolta af því að vera í ESB og NATO, þrátt fyrir gagnrýni á skrifræðið í Brussel. Hann sagðist viss um að hægt yrði að finna málamiðlun í þeim málum sem Ungverja og ESB greinir á um. Hann lýsti því einnig yfir að hann teldi Úkraínu vera þolandann í stríðinu og hvatti Rússa til að láta af árásum sínum.
Þótt Magyar hafi gagnrýnt Orbán fyrir náið samband við ráðamenn í Kreml og lýst yfir vilja til að gera Ungverja óháða Rússum í orkumálum hefur hann sagt að nálgast þurfi sambandið við Rússa af raunsæi.
Þótt Magyar hafi verið þögull um ýmis umdeild mál hefur verið varað við því að of mikið sé lesið í það. Hann hefur til dæmis ekki gefið sig upp í afstöðu til Pride-viðburða sem bannaðir hafa verið í Ungverjalandi undir stjórn Orbáns. Almennt sé gert ráð fyrir að Magyar verði „mun vinalegri“ en núverandi stjórnvöld í slíkum málum, þótt hann hafi ekki talað um það í kosningabaráttunni. Á blaðamannafundinum í gær sagði hann alla hafa rétt til að lifa lífi sínu í samræmi við sína samvisku svo fremi það stangist ekki á við lög. Þá sagðist hann virða fundafrelsi fólks sem talið er gefa fyrirheit um að hann muni ekki standa í vegi fyrir því að hægt verði að halda Pride-viðburði að nýju í landinu.
Það ríkir því töluverð óvissa um hvað fram undan er í ungverskum stjórnmálum. Ekki aðeins er margt á huldu um raunverulegar fyrirætlanir Magyars heldur er verkefnið fram undan gríðarlega krefjandi vegna þess hversu gegnsýrt allt samfélagið er af áhrifum Orbáns og stjórnar hans eftir 16 ára valdatíð.
Þó er ástæða til bjartsýni að mati Anne Appelbaum:
„En hvað sem gerist næst, þá tákna þessar kosningar raunveruleg tímamót. Fyrir flestar evrópskar ríkisstjórnir eru þessi úrslit léttir: Við getum ekki enn vitað hvers konar ríkisstjórn Tisza mun mynda, en það verður ekki stjórn sem virkar sem leikbrúða Rússlands í Evrópu, sem hindrar fjármögnun ESB til Úkraínu eða evrópskar refsiaðgerðir gegn Rússlandi. Né verður það stjórn sem þjónar sem fyrirmynd fyrir Bandaríkjamenn eða Evrópubúa sem vilja ná yfirráðum yfir eigin ríkjum, eða taka í sundur eigið aðhald og jafnvægi, eða þröngva eigin ófrjálslyndu hugmyndafræði upp á fólk sem samþykkir hana ekki.“
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.