
Pólskir, litháískir og moldóvskir starfsmenn voru á íslensku byggingarsvæði þar sem fram fór fyrsta sameiginlega vinnustaðaeftirlitið hér á landi með stuðningi Evrópsku vinnumálastofnunarinnar. Framkvæmdastjóri stofnunarinnar hefur fundað með ráðherra vinnumarkaðsmála, ASÍ og SA. Hann segir stéttarfélagsþátttöku á Íslandi vekja athygli út fyrir landsteinana.

„Hér eru erlendir verkamenn sem verða að fá greitt samkvæmt íslenskum reglum, og það þarf að ganga úr skugga um það. Þetta er ekki hægt að staðfesta einungis hér á landi. Það þarf einnig að athuga í upprunalandinu hvort fyrirtækin sem koma með fólkið virði raunverulega íslenska löggjöf.“
Þetta segir Cosmin Boiangiu, framkvæmdastjóri Evrópsku vinnumálastofnunarinnar, vera meðal þess sem stofnunin getur veitt aðstoð með þegar fyrirtæki í öðrum löndum senda starfsmenn til Íslands til að vinna. Miklar breytingar hafa orðið á íslenskum vinnumarkaði á skömmum tíma. Nú eru erlendir ríkisborgarar um fimmtungur vinnumarkaðarins, samanborið við um sjö prósent fyrir tveimur áratugum.
Evrópska vinnumálastofnunin, sem oftast er kölluð ELA eftir enska heitinu European Labour Authority, er ein yngsta stofnun Evrópusambandsins. Hún var sett á fót árið 2019 og hefur höfuðstöðvar í Slóvakíu. Hlutverk hennar er að standa vörð um réttindi launafólks þegar það flytur sig milli landa innan Evrópu, og styðja innlend yfirvöld við að framfylgja reglum þegar unnið er yfir landamæri.

„ELA hefur ekki valdheimildir til að sinna eftirliti heldur veitir stuðning. Við greiðum aðeins fyrir sameiginlegum aðgerðum milli landa,“ segir Boiangiu í samtali við Gímaldið. Sjálft eftirlitið liggur áfram hjá innlendum aðilum.
Boiangiu er hér á landi í sinni fyrstu heimsókn en Ísland gerðist formlega aðili að ELA 1. júní 2025 á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar. Á sama tíma gerðust Noregur og Liechtenstein einnig aðilar að stofnuninni. Þessi þrjú ríki standa öll utan ESB en fá aðgang að stofnuninn í gegnum EES-samninginn og geta nú tekið fullan þátt í starfi ELA. Eitt meginhlutverk ELA er að vinna gegn félagslegum undirboðum á vinnumarkaði.
Gissur Pétursson, sérfræðingur hjá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, á sæti í stjórn ELA en hann er fyrrverandi ráðuneytisstjóri og stýrði áður Vinnumálastofnun. „Við erum að læra hvert af öðru, stytta boðleiðir og þétta samstarf,“ segir hann. Gissur tekur sem dæmi að ef pólskur starfsmaður á Íslandi telur á sér brotið geti hann haft samband við tengilið Póllands hjá ELA sem síðan gæti þá rætt beint við tengilið Íslands. Þannig séu fulltrúar stofnunarinnar launafólki til halds og trausts.
Boiangiu tók í vikunni þátt í vinnustaðaeftirliti í Reykjavík þar sem aðbúnaður og kjör byggingaverkamanna voru til skoðunar. Þetta var fyrsta eftirlitið sem ELA tekur þátt í hér á landi, en með í för voru ekki aðeins íslenskir eftirlitsaðilar heldur einnig fulltrúar frá Noregi og aðilar vinnumarkaðarins frá fleiri Norðurlöndum. Þessi eftirlitsheimsókn var ekki síst táknræn fyrir samstarfið. Boiangiu bendir á að meðal byggingaverkamanna hafi verið menn frá Póllandi, Litháen og Moldóvu, en byggingariðnaðurinn er sá geiri þar sem hreyfanleiki vinnuafls er hvað mestur í Evrópu og þar eru miklar áskoranir við eftirfylgd reglna yfir landamæri.

Byggingariðnaðurinn kom víðar við sögu í heimsókn Boiangiu til Íslands en hann tók einnig þátt í fundi norrænna stéttarfélaga í byggingariðnaði um heilbrigði og öryggi á vinnustöðum, sem haldinn var í samstarfi við evrópsk regnhlífarsamtök stéttarfélaga í greininni.
Boiangiu lýsir ELA sem þjónustumiðaðri stofnun sem veitir aðildarríkjum og aðilum vinnumarkaðarins aðstoð, til að mynda þegar kemur að stuðningi við sameiginlegt eftirlit, upplýsingamiðlun milli ríkja, og að greiða fyrir samskiptum þegar fólk flytur réttindi á borð við lífeyri eða atvinnuleysisbætur milli landa.

Þá tekur hann dæmi um eftirlit sem hann tók sjálfur þátt í á meginlandinu, þar sem portúgalskt fyrirtæki starfaði samkvæmt verksamningi í Þýskalandi og sendi þangað starfsmenn til vinnu. „Við skoðuðum þetta bæði í Þýskalandi og Portúgal og komumst að því að það var misræmi. Fyrirtækið skráði eitt í Þýskalandi en greiddi starfsmönnunum í raun annað, og miklu lægra, heima í Portúgal,“ segir hann. Slíkt misræmi, milli þess sem fyrirtæki gefur upp í gistiríkinu og þess sem það raunverulega greiðir í heimalandinu, kemur ekki í ljós nema yfirvöld í báðum löndum beri saman bækur sínar. „Þetta er sú tegund mála sem þú getur ekki staðfest einungis í þínu eigin landi. Þú þarft að skoða líka í hinu landinu,“ segir Boiangiu.
Það sem Boiangiu nefnir endurtekið er hve stéttarfélagsaðild er útbreidd á Íslandi. Hún mældist 90,6 prósent árið 2023 samkvæmt OECD og er sú hæsta í heimi. Til samanburðar er meðaltal OECD-ríkja aðeins 15 prósent og hefur helmingast frá árinu 1985.
„Í mörgum löndum, sérstaklega á Norðurlöndum, er sérstakt módel þar sem stéttarfélögin hafa mjög sterkt vald og taka jafnvel þátt í eftirliti eða framkvæma það sjálf, eins og við sáum hér á Íslandi,“ segir Boiangiu. „Þetta er mjög skilvirkt módel og ég vil sjá að það sé eflt í öðrum löndum eins og hægt er.“

Hann nefnir einnig keðjur undirverktaka í byggingariðnaði sem dæmi um nokkuð sem Ísland gerir betur en mörg önnur ríki. „Þetta er vandamál víða, að menn missa yfirsýn yfir hversu margir undirverktakar eru í keðjunni, sérstaklega í stórum verkefnum. Þá er ekki alltaf raunin að reglur séu virtar þegar farið er neðar í keðjuna, með öllum þessum milliliðum. Ísland getur miðlað sinni reynslu til annarra landa.“
Aðilar vinnumarkaðarins, það er stéttarfélög og samtök atvinnurekenda, eru að sögn Boiangiu lykillinn að starfi ELA. „Þeir eru mjög áhrifaríkir í að ná til þeirra sem við viljum á endanum þjóna, einstaklinga og fyrirtækja. Þegar við hönnum fræðsluherferðir leitum við alltaf til þeirra.“
Auk byggingariðnaðar nefnir Boiangiu fleiri geira sem ELA hefur séð ástæðu til að fylgjast sérstaklega með, svo sem árstíðabundna vinnu í landbúnaði og ferðaþjónustu, flutninga á vegum, í lofti og á sjó, og umönnunargeirann.
ELA er með sérstaka herferð í gangi á þessu ári sem snýr að langtímaumönnun, til að mynda á hjúkrunarheimilum og í heimaþjónustu, og aðspurður segir Boiangiu að Ísland geti tekið þátt í henni ef áhugi er fyrir því hér á landi. „Við getum útbúið efni á íslensku, en einnig á hvaða öðru tungumáli sem skiptir máli, til að fræða starfsfólk um réttindi sín.“
Grundvallaratriðið, segir hann, sé að fólk sem komi annars staðar frá, hvort sem er innan eða utan Evrópu, njóti sömu kjara og réttinda og innlent starfsfólk. „Það er líka mikilvægt fyrir sanngjarna samkeppni,“ segir hann, en verja þurfi heiðarleg fyrirtæki gegn þeim sem ná forskoti með því að greiða undir töxtum.
Algengustu brotin sem ELA glímir við tengjast misnotkun á reglum um útsenda starfsmenn, skúffufyrirtækjum sem skrá starfsemi í einu landi til að komast hjá gjöldum í öðru, og almannatryggingasvikum. Þá nefnir stofnunin nauðungarvinnu sem vaxandi áhyggjuefni á síðustu árum.

Á meðan á heimsókninni stóð fundaði Boiangiu með Ragnari Þór Ingólfssyni, félags- og húsnæðismálaráðherra. „Þetta var mjög góður fundur,“ segir hann um fund sinn með ráðherra sem var nýlokið þegar Boiangiu ræddi við Gímaldið, og framundan voru fundir bæði með Alþýðusambandi Íslands og Samtökum atvinnulífsins. „Ég fór yfir hvað ELA getur gert fyrir Ísland. Við erum þjónustumiðuð stofnun, þannig að við þurfum að greina hverjar áskoranirnar eru og hverjar þarfir íslenskra stjórnvalda eru, og þá erum við tilbúin að veita aðstoð.“
Ísland hafði þegar tekið virkan þátt á evrópskum vettvangi gegn óskráðri vinnu áður en formleg aðild að ELA tók gildi. Með fullri aðild opnast hins vegar fyrir mun breiðara samstarf, að sögn Boiangiu, meðal annars um upptöku nýrrar tækni. „Við ræddum um gervigreind og hvernig hún hefur áhrif á vinnumarkaði alls staðar,“ segir hann: „Maður þarf vinnumarkaði sem eru aðlögunarhæfir og sveigjanlegir, og maður þarf að láta tæknina vinna með sér en ekki gegn sér.“
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.