Hlaðvarp: Áhættan við verðtryggð lán eingöngu hjá þeim sem tekur lánið

Lestími: 3 mínútur

Óvissu um verðbólgu er dreift ójafnt á milli þeirra sem taka lán og veita lán á Íslandi. Í tilfelli verðtryggðra lána er óvissan alfarið sett á lántakandann en lánveitandinn er varinn. Einsdæmi er að verðtrygging sé jafn almenn og hér á landi og hún er sjaldan notuð við útlán til heimila erlendis. Benedikt Gíslason forstjóri Arion banka vill afnema verðtrygginguna. Hann er í viðtali við Gímaldið.

Þrálát verðbólga, hátt vaxtaumhverfi og stökkbreytt húsnæðislán hafa verið að sliga landsmenn undanfarið. Ljóst er að eftir að stýrivextir Seðlabankans sem í dag eru 8% fóru að hækka svo um munaði, flúðu margir lánþegar úr óverðtryggðum lánum í verðtryggð til að lækka mánaðarlega greiðslubyrði.

Ekki hafa verið gefnar út nákvæmar tölur um fjölda hjá bönkunum en samkvæmt upplýsingum sem Gímaldið fékk frá Arion banka er lauslega áætlað að í árslok 2020 hafi um helmingur íbúðalánasafns bankans verið verðtryggður og hinn óverðtryggður. Um mitt ár 2026 hafa hlutföllin breyst, um það bil tveir þriðju hlutar íbúðalána eru nú verðtryggðir en 1/3 hluti óverðtryggður. 

Í gegnum tíðina hafa verðtryggðu lánin sem bankarnir bjóða upp á oft verið umdeild og mikið í umræðunni, einhverjir hafa stigið fram og gagnrýnt hversu óhentug þau eru fyrir heimilin í landinu í óstöðugu efnahagsumhverfi en svo þegar betur árar og vextir hafa lækkað lognast sú umræða út jafnhratt. 

Bankastjórinn sem vill afnema verðtryggingu

Það var því merkilegur viðsnúningur og sætti hreinlega tíðindum þegar bankastjóri Arion banka, eins af þremur stærstu viðskiptabönkum landsins steig fram og vildi draga úr vægi verðtryggingar. Þann 7.október í fyrra skrifaði Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka grein á Vísi undir yfirskriftinni Hringekja verðtryggingar og hárra vaxta.  Þar sagði hann tímabært að ræða með opnum hug hvort rétt væri að draga úr vægi verðtryggingar í íslensku hagkerfi og laga hringekjuna sem fór í gang árið 1979 að breyttum tímum. Það myndi kalla á breytingar á uppbyggingu réttindakerfis lífeyrissjóðanna.

Jón Guðni Ómarsson bankastjóri Íslandsbanka tók undir orð hans skömmu seinna og sagði einnig tímabært að endurskoða verðtryggingu í ljósi breyttra tíma. 

Nú eru tæpir ellefu mánuðir liðnir frá því Benedikt skrifaði greinina, löngu áður en umræður um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB fóru af stað. Benedikt er enn á sömu skoðun og segir verðtrygginguna úrelta og barn síns. Hann ræðir verðtrygginguna, þráláta verðbólgu og ójafna skiptingu óvissu á milli lántakenda og lánveitenda á íslenskum húsnæðislánamarkaði í viðtali við Gímaldið.

Hægt er að hlusta á viðtalið á öllum helstu hlaðvarpsveitum og í spilara sem fylgir fréttinni.

Ljósmynd: Ari Magg

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 27. ágúst, 2026, 11:31

Helga Arnardóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link