
Tveir fyrrverandi prófessorar við Háskóla Íslands, hótuðu skaðabótakröfu og því að kvartað yrði til umboðsmanns Alþingis og stjórnar HÍ ef dr. Carl Baudenbacher fengi ekki að halda fyrirlestur í Hátíðarsal HÍ með stuðningi Áfram Ísland og Almenna bókafélagsins. Þetta kemur fram í tölvupóstum sem Hannes Hólmsteinn Gissurarson, Ragnar Árnason og lögmaður sendu rektor. Ýjað er að því í póstunum að ákvörðun rektors brjóti í bága við stjórnarskrá og varði við lög um meiðyrði.

„Ég áskil mér fyllsta rétt í þessu máli og minni á, að Háskólinn kann að vera skaðabótaskyldur og það er ekki um litlar fjárhæðir, ef unnið verður áfram af hans hálfu samkvæmt þessum misskilningi,“ segir í bréfi frá Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni prófessor emeritus til Magnúsar Diðriks Baldurssonar skrifstofustjóra rektorsskrifstofu Háskóla Íslands sem sent var rétt fyrir klukkan sex síðdegis þann 6. ágúst síðastliðinn.
Tilefni bréfsins var að viðburður með dr. Carl Baudenbacher, sem sagðist sjálfur hafa þekkst boð Áfram Ísland um að halda fyrirlestur um ESB hér á landi, fékk ekki að vera í Hátíðarsal HÍ heldur bauðst skipuleggjendum að færa hann í sal í Öskju eða annan sal innan skólans.
Gímaldið sendi Háskóla Íslands gagnabeiðni á grundvelli upplýsingalaga og fékk af bréfaskriftum sem fram fóru í tölvupósti vegna bókunar á Hátíðarsalnum. Fundurinn fór fram í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll þann 10. ágúst, eftir að skipuleggjendur höfnuðu því að færa fundinn í annan sal innan Háskóla Íslands.

Því hefur ítrekað verið haldið fram að fundurinn hafi verið á vegum Rannsóknarseturs um stjórnmál og efnahagsmál hjá Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands, sem Hannes Hólmsteinn Gissurarson stýrir. Salurinn var hins vegar skráður á norrænt verkefni undir stjórn Birgis Þórs Runólfssonar, eins og Gímaldið fékk staðfest. Hannes, Ragnar og Baudenbacher voru allir í samskiptum við rektor og rektorsskrifstofu vegna málsins, Ragnar þar að auki í gegnum lögmann.
Til upprifjunar þá hófst þetta mál á því að um miðjan júlí sótti Ragnar Árnason prófessor emeritus við HÍ um að fá Hátíðarsal Háskóla Íslands leigðan sal undir fyrirlestur dr. Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseta EFTA dómstólsins, um málefni ESB. Var bókun gerð í nafni Birgis Þórs Runólfssonar deildarforseta Hagfræðideildar og verkefnis á hans vegum. Í tölvupósti sagði Ragnar að fyrirlesturinn væri í samstarfi við Lagadeild og Hagfræðideild. Hannes Hólmsteinn hefur sagt að fyrirlesturinn hafi verið á vegum Rannsóknarseturs um stjórnmál og efnahagsmál hjá Félagsvísindastofnun.
Mál þetta hefur verið til umfjöllunar á Gímaldinu en sagan af aðdraganda þessa umtalaða fundar var rakin í ítarlegri fréttaskýringu. Þá hafði áður verið greint frá því að Félagsvísindastofnun hafði ekkert með fundinn að gera og kom ekki að skipulagningu hans, en aðstandendur hafa ítrekað notað nafn stofnunarinnar í tengslum við viðburðinn, bæði fyrir og eftir fundinn.
„Fyrirlesturinn var ekki á vegum Hagfræðideildar HÍ,“ segir í tölvupósti frá deildinni í svari við fyrirspurn Gímaldsins vegna málsins. Áður hafði fengist staðfest, og vitnað er til í fréttaskýringu að ofan, að Lagadeild kom ekki að fundinum. Þessar þrjár einingar innan Háskóla Íslands voru allar dregnar inn í bókun á sal fyrir einn fund, en engin þeirra hafði neitt með hann að gera.
Víkur þá að tölvupóstum sem Gímaldið fékk afrit af. Í þeim má sjá að Ragnar og Hannes sætta sig ekki við að fundurinn verði færður, heldur ganga langt í því að herja á rektor að leyfa fundinn í Hátíðarsal HÍ. Síðar hefur Hannes haldið því fram í ummælum á samfélagsmiðlum að þetta hafi engu skipt, það sé aukaatriði hvar fundur er haldinn, einnig hver bókaði salinn. Ekki var þó svo að skilja á póstunum sem hér fara á eftir.
„Það er rétt, að við Ragnar leituðum samstarfs við nokkra aðra aðila innan Háskólans, en okkur til nokkurrar furðu var tregða á að standa að þessu með Rannsóknarsetri um stjórnmál og efnahagsmál, svo að ákveðið var, að stofnunin stæði ein að fyrirlestrinum. Ég vísa því algerlega á bug, að eitthvað hafi verið sagt rangt eða villandi, og tel þá röngu ásökun raunar varða við siðareglur Háskólans og að breyttu breytanda við lög um meiðyrði,“ segir ennfremur í pósti Hannesar til skrifstofustjóra rektorsskrifstofu HÍ og tveggja starfsmanna skrifstofunnar. Aðrir sem fá póstinn eru Ragnar Árnason og Birgir Þór Runólfsson.

Rétt fyrir klukkan ellefu næsta morgun, föstudaginn 7. ágúst, berst annað bréf, í þetta sinn frá lögmanni Ragnars Árnasonar, Ingva Hrafni Óskarssyni. Tölvupósturinn er sendur á skrifstofustjórann og rektor Háskóla Íslands, Silju Báru Ómarsdóttur. Yfirskrift bréfs lögmannsins er: Bókun Hátíðarsalar Háskóla Íslands mánudaginn 10. ágúst 2026 – mótmæli við riftun leigusamnings og krafa um efndir.
Í bréfi lögmanns Ragnars er því sem kallað er „riftun leigusamnings“ mótmælt og þess krafist að bókun verði staðfest. Um sé að ræða bindandi leigusamning og skólanum sé hreinlega ekki stætt á að hætta við leigu salarins. „Ákvörðun um að meina umbjóðanda mínum umsamin afnot af salnum vegna umfjöllunarefnis viðburðarins og meintra „pólitískra“ tengsla felur jafnframt í sér mismunun sem fer í bága við jafnræðisreglur 11. gr. stjórnsýslulaga og 65. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944,“ segir í bréfinu.
Athygli vekur að í bréfi lögmannsins er áfram vísað í að bæði Lagadeild og Hagfræðideild hafi með málið að gera, þrátt fyrir að í bréfi Hannesar frá deginum áður hafi verið sagt um rannsóknarsetur hans að „stofnunin stæði ein að fyrirlestrinum“.
Lögmaður setur fram tvær kröfur fyrir hönd Ragnars Árnasonar: Annars vegar að Háskóli Íslands staðfesti bókun Hátíðarsalar fyrir viðburðinn og hins vegar að hann fái afhent öll gögn málsins.
Verði ekki orðið við fyrri kröfunni segir í bréfinu að Ragnar líti svo á að leigusamningur standi óhaggaður og hann áskilji sér allan rétt, „þar á meðal að krefjast skaðabóta úr hendi skólans vegna alls tjóns sem af vanefndum kann að hljótast, þ.m.t. útlagðs auglýsinga- og undirbúningskostnaðar, og eftir atvikum beina kvörtun vegna málsins til stjórnar Háskólans og umboðsmanns Alþingis. Í ljósi þess hve skammt er til viðburðarins er óskað skjótra viðbragða.“

Rektor svarar bréfinu samdægurs og áréttar að Hátíðarsalur sé ekki í boði. „Umræddur viðburður var auglýstur 6. ágúst sl. í Morgunblaðinu þannig að gefið var til kynna að hann fari fram á vegum aðila utan HÍ, en undir auglýsinguna rita „Áfram Ísland“ og „Almenna bókafélagið“ í „samstarfi við Rannsóknasetur í stjórnmálum og efnahagsmálum við Félagsvísindastofnun“. Í ljósi þessa telur HÍ að ekki séu lengur forsendur fyrir að líta svo á að viðburðurinn fari fram innan þess ramma sem kveðið er á um í 1. gr. húsreglna Hátíðasalar. Sú afstaða breytist ekki þótt fyrirlesari og fundarstjóri viðburðarins teljist virtir fræðimenn.“
Vísað er til þess að HÍ sé „ekki bundinn af löggerningi sem stofnað er til á grundvelli villandi eða ófullnægjandi upplýsinga um atriði sem skipta sköpum. Hefðu réttar upplýsingar legið fyrir hefði salurinn ekki verið leigður út með þessum hætti,“ segir í bréfinu þar sem jafnframt er áréttað að aðstandendum bjóðist að halda viðburðinn á sama tíma í húsnæði HÍ í Öskju.
Bréfin eru fleiri, því sama dag og tölvupóstar ganga frá lögmanni til rektors og aftur til baka þá senda þeir Hannes og Ragnar rektori sameiginlega annað bréf, sem Hannes hefur sjálfur birt í heild sinni á Facebook.
Það er málið rakið og því mótmælt að villandi upplýsingar hafi verið veittar. „Þessi misskilningur er óskiljanlegur. Það er Rannsóknarsetur um stjórnmál og efnahagsmál í Félagsvísindastofnun, sem stendur að fundinum, ekki Áfram Ísland eða Almenna bókafélagið.“
Lesendur muna þó líklega að Baudenbacher sjálfur kvaðst hafa þekkst boð Áfram Ísland og auk þess þakkaði hann bæði Halldóri Benjamín Þorbergssyni hjá Áfram Ísland og Ernu Bjarnadóttur hjá Heimssýn fyrir góð ráð og gestrisni í færslu sinni á Linkedin.
„Aðalatriði málsins er, að Baudenbacher mun flytja fræðilegan fyrirlestur á vegum rannsóknarseturs í Háskólanum. Skiptir engu máli í því sambandi þótt ýmsir aðilar vilja vekja athygli á fyrirlestrinum,“ halda þeir félagar Ragnar og Hannes áfram í bréfi sínu til rektors og segjast telja það „væntanlega óafvitandi en í reynd atlögu að fræðilegu (akademísku) frelsi og hlutverki og markmiðum Háskóla Íslands, ef þessum heimskunna fræðimanni er neitað um að flytja fræðilegan fyrirlestur í Háskóla Íslands á þeim vettvangi, sem hér um ræðir, af því að einhverjir kunna að vera ósáttir við hina fræðilega nálgun hans eða við þá aðila, sem athygli vilja vekja á hinum fræðilega fyrirlestri hans.“
Í svarbréfi til þeirra tveggja þann 10. ágúst hafnar rektor því að í ákvörðuninni um að bjóða sal undir viðburðinn í Öskju en ekki Hátíðarsalnum felist ritskoðun eða skerðing á akademísku frelsi, en vísar að öðru leyti í bréfið sem áður hafði verið sent lögmanni.
„Virðulegi rektor. Þakka þetta svarbréf. Ljóst er að við sjáum þetta mál mismunandi augum og þér hafið kosið að beita valdi yðar í samræmi við yðar sýn. Vonandi verður sú ákvörðun Háskólanum ekki til óheilla,“ segir í svari Ragnars Árnasonar til rektors.
Víkur þá sögunni að sjálfum fyrirlesaranum, dr. Carl Baudenbacher, sem líklega er orðinn þekktari á Íslandi en hann kærir sig um vegna þessa máls. Hann sendir Silju Báru líka tölvupóst.

Að morgni fyrirlestrardagsins 10. ágúst skrifar Baudenbacher sjálfur til rektors. Hann segist í bréfinu ekki vera stjórnmálamaður heldur fræðimaður og vísar í það að hann hafi haldið fyrirlestra í háskólum víða um heim.
„Það veldur mér miklum áhyggjum að Háskóli Íslands hefur með skömmum fyrirvara meinað mér að halda fyrirlestur í húsnæði skólans,“ segir í bréfi hans til Silju Báru í íslenskri þýðingu blaðamanns.
Segist Baudenbacher ekki vera stjórnmálamaður heldur fræðimaður. Hann kveðst ekki ætla að tjá sig um atvikið en bætir við: „Hins vegar held ég að þér hafið ekki gert orðspori háskólans neinn greiða.“
Póstinn sendir Baudenbacher einnig á Hannes Hólmstein, Ragnar Árnason og fyrrverandi samstarfsmann sinn Þorgeir Örlygsson.
Í svari rektors til Baudenbachers leiðréttir hún það að Baudenbacher hafi verið meinað að tala í sölum Háskólans. Bendir rektor á að sérreglur gildi um Hátíðarsalinn. Sá salur sé ekki fyrir viðburði á vegum annarra en skólans sjálfs, en þegar aðkoma Áfram Ísland hafi verið ljós hafi skipuleggjendum verið boðinn annar salur.

„Það væri Háskóla Íslands heiður að fá þig til að flytja erindi á háskólasvæðinu. Ein takmörkun er þó á, en hún er sú að Hátíðarsalurinn, sem hafði verið tekinn frá fyrir fyrirlesturinn, er ekki í boði fyrir samtök utan háskólans. Þegar viðburðurinn var auglýstur af samtökunum „Áfram Ísland“ á fimmtudaginn tilkynntum við [Ragnari] Árnasyni, fyrrverandi prófessor, að flytja þyrfti fyrirlesturinn og buðum aðra stofu á háskólasvæðinu fyrir viðburðinn. Því boði hefur ekki verið tekið.“
Málið hefur semsagt frá upphafi snúið að því hver heldur fundinn og hvar. Líkt og rakið er að ofan vísuðu Ragnar og Hannes ítrekað til deilda og stofnana innan Háskólans sem komu ekki nærri viðburðinum og tóku engan þátt í að skipuleggja hann. Lagadeild, Hagfræðideild og Félagsvísindastofnun höfðu ekki aðkomu en nöfn þeirra þó nýtt til að fá brautargengi fyrir bókunina.
Rannsóknarsetur um stjórnmál og efnahagsmál, sem sagt er að hafi haldið fundinn, var aldrei nefnt í bókun Ragnars og var heldur aldrei skráð fyrir Hátíðarsalnum, þrátt fyrir að fundurinn hafi verið auglýstur í nafni þess. Salurinn var bókaður á ótengt rannsóknarverkefni merkt NOS-HS, norrænum samstarfsvettvangi um fjármögnum rannsókna í hug- og félagsvísindum, sem Birgir Þór Runólfsson stýrði en er lokið.

Gímaldið sendi fyrirspurn á NOS-HS, sem er samstarfsvettvangur fjármögnunaraðila rannsókna í Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð, á sviði hug- og félagsvísinda og spurðist fyrir um þetta tiltekna rannsóknarverkefni, sem var skráð fyrir salnum og hefði því þurft að greiða fyrir leigu salarins. Svarið er eftirfarandi:
„Birgir Þór Runólfsson var verkefnastjóri NOS-HS vinnustofuraðar sem hlaut styrk fyrir tímabilið 2020–2022: Kostir og gallar aflaheimilda í sjávarútvegi. Verkefnistímabilinu lauk árið 2023.“ Ekki hafa fengist frekari skýringar á því hvort og hvernig það verkefni tengdist fundi um ESB með dr. Carl Baudenbacher.
Rannsóknarsetur um stjórnmál og efnahagsmál tengist tveimur öðrum rannsóknarsstofnunum sem allar eru nátengdar Áfram Ísland. Þær eru Rannsóknarsetur um nýsköpun og hagvöxt og Rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmál.
Dr. Carl Baudenbacher kom og hélt sitt erindi auk þess að skrifa bók ásamt dóttur sinni Lauru Baudenbacher sem Almenna bókafélagið gaf út. Í frétt sem á vef RNH, rannsóknarseturs þar sem Hannes, Ragnar og Birgir eru í rannsóknarráði, kemur nú fram að öll þessi þrjú rannsóknarsetur, RSE, hitt RSE og RNH, hafi staðið að fundinum með Baudenbacher, sem haldinn var undir merkjum Áfram Ísland og Almenna bókafélagsins.
Hollenski fjölmiðillinn Follow the Money, sem sérhæfir sig í rannsóknum á fjármálatengslum, fjallaði í dag um tengsl íslenskra fyrirtækja og einstaklinga við evrópskar hreyfingar og hugveitur sem studdu Brexit.
RÚV vakti athygli á grein þeirra en þar kemur meðal annars fram að Almenna bókafélagið, hluthafar og stjórnarmenn þess, þar á meðal fyrirtæki í meirihlutaeigu Hannesar Hólmsteins, hafi styrkt Brexit-hlynntar hugveitur um tugi þúsunda evra á árunum í kringum þjóðaratkvæðagreiðsluna í Bretlandi.
Lesa má úttekt hollenska miðilsins hér: https://www.ftm.eu/articles/iceland-referendum-eu-accession-negotiations-fishing-industry-brexit
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.