Íslenskan líklega sterkari innan ESB

Lestími: 10 mínútur

Gauti Kristmannsson, prófessor í þýðingafræði og deildarforseti Íslensku- og menningardeildar Háskóla Íslands, hefur litlar áhyggjur af íslenskunni gangi Ísland í Evrópusambandið. Aðild myndi fjölga störfum við túlkun og þýðingar. Helst er litið til írsku og maltnesku varðandi áhrif ESB-aðildar á íslenska tungu. Áætlaður þýðingarkostnaður vegna mögulegra aðildarviðræðna er 600 milljónir króna.

Askell 1031

Tungumálið er einn af hornsteinum sjálfsmyndar þjóðríkjanna, segir Gauti Kristmannsson, prófessor í þýðingafræði og deildarforseti Íslensku- og menningardeildar Háskóla Íslands. „Það er okkar mesta og stærsta bygging,“  segir hann um íslenskuna. „Það geymir sögurnar okkar, það geymir kveðskapinn okkar, geymir söguna okkar.“  Gauti hefur kynnt sér málstefnu Evrópusambandsins um árabil og skrifaði greinina „Móðurmálshreyfingin og málstefna Evrópusambandsins“  þegar síðustu aðildarviðræður stóðu yfir. Hann telur að aðild yrði fremur jákvæð fyrir íslenska tungu þó áhrifin yrðu ekki róttæk, hið minnsta ekki fyrir daglegt líf venjulegs fólks. Áhrifin yrðu meiri hvað varðar stöðu íslenskunnar á sviði laga og stjórnsýslu, og þá málþróun og störf sem fylgja þýðingum. „Það myndu ýmis svið fá aukinn styrk,“  segir hann.

Viðtal við Gauta má finna í hlaðvarpi Gímaldsins. Hægt er að hlusta á það á helstu hlaðvarpsveitum eða í spilaranum hér að neðan.

Þegar ríki verður hluti af Evrópusambandinu þá verður opinbert tungumál þess ríkis sömuleiðis eitt af opinberum tungumálum Evrópusambandsins. Íslenska yrði því eitt af þessum opinberu tungumálum ESB ef af aðild verður. Opinber tungumál ESB eru nú 24, færri en ríkin í sambandinu þar sem sum lönd deila tungumálum. Á fundum í Evrópuþinginu er túlkað á öll tungumálin og fjöldi starfa hjá ESB eru beintengd tungumálum aðildarríkja. Allir borgarar Evrópusambandsríkja eiga rétt á því að eiga samskipti við stofnanir sambandsins á eigin tungumáli. 

ESB þegar búið að hafa samband aftur

Gauti starfaði sem dósent við HÍ þegar síðustu aðildarviðræður hófust árið 2009. Þá hafði Evrópusambandið samband við háskólann og bauð styrki til að koma á fót námi fyrir ráðstefnutúlka. Námið skilaði nokkrum menntuðum ráðstefnutúlkum áður en viðræðum var slitið. Gauti segir það taka tíma að þjálfa fólk í slíku:  „Þetta er svolítið eins og tónlistarhæfileikar.“  Nú er farið að spyrjast fyrir um slíkt á ný. „Ég er þegar búinn að fá fyrirspurnir frá yfirmanni fjöltyngis hjá Evrópuþinginu um hvort ég vilji ræða við þau um undirbúning að slíku, ef aðildarviðræður verða,“  segir Gauti. 

Gauti Kristmannsson túlkaði sjálfur í síðustu aðildarviðræðum Íslands og ESB. Mynd/Erla

Gauti þekkir túlkun á vegum sambandsins af eigin raun, enda túlkaði hann sjálfur fyrir Ísland í síðustu aðildarviðræðum. „Fundirnir fóru fram á ensku, það var allt túlkað á íslensku, hvert einasta orð,“ segir hann og stundum hafi sú vinna virst vera til lítils. „Oft voru Íslendingarnir ekkert að hlusta á túlkana og okkur fannst við vera að túlka út í tómið,“ rifjar hann upp. Það breyttist um leið og enskan varð torskilin. „Svo kom bara allt í einu einhver spænskur maður og hann hafði sett ræðuna sína í gegnum Google Translate og hann talaði á 200 km hraða á klukkustund ensku, með sterkum spænskum hreim,“ segir Gauti. „Þá tóku þau upp yfirleitt heyrnartólin og fóru að hlusta á okkur,“ enda höfðu túlkarnir fengið gögnin fyrir fram og gátu komið ræðunni skammlaust til skila á íslensku. „Þetta gerðist oftar en einu sinni,“ segir hann.

Að mati Gauta afhjúpar þetta misskilning um enskuna sem sjálfgefið samskiptamál. „Enska er ekkert bara enska,“ segir hann. „Enskan sem er töluð, er að mestu leyti töluð af fólki sem ekki hefur ensku að móðurmáli.“ Þetta eigi enn frekar við eftir útgöngu Breta. „Þetta er örlítið brot af Evrópusambandinu sem er með ensku að móðurmáli,“ bendir hann á.

Hugmyndir um að fækka opinberum tungumálum sambandsins hafa öðru hverju komið fram en aldrei fengið hljómgrunn, og Gauti á ekki von á að það breytist. „Það yrði hlegið út af borðinu,“ segir hann. „Ætlar einhver að segja Frökkum að hætta að tala frönsku eða Þjóðverjum að tala þýsku?“ Þá gildi neitunarvald í slíkum málum þar sem öll ríki þyrftu að samþykkja slíka breytingu: „Það ríki sem þyrfti að fórna tungumáli sínu myndi bara segja nei“. 

Aukinn kraftur í tungumálanám

Gauti bendir á að Ísland hafi þegar aðgengi að ýmsum Evrópusamstarfi í gegn um EES-samninginn. „Háskólar eru að miklu leyti inni í ESB nú þegar, því við höfum aðgang að öllum rannsóknasjóðum og annað,“ segir hann, og telur að samningurinn hafi gjörbreytt íslensku háskólakerfi. Sumir styrkir sambandsins beinist sérstaklega að málsamfélögum á borð við það íslenska þar sem hugmyndin er að styrkja lítil tungumál.

Aðild myndi þó bæta nokkru við, ekki síst störfum við þýðingar, að sögn Gauta. Hann telur einnig að fög sem snúa að tungumálum myndu eflast. „Við þyrftum náttúrulega að mennta fleira fólk í erlendum tungumálum og íslensku. Þessi fög myndu náttúrulega fá aukinn kraft,“ segir hann.

a computer circuit board with a brain on it
Gauti hefur meiri áhyggjur af tæknirisunum en ESB hvað íslenska tungu varðar. Mynd/Unsplash

Að mati Gauta eru stærstu áskoranir íslenskunnar þó ekki í Brussel heldur í Sílíkondalnum, og hann hefur efasemdir um getu gervigreindar þegar kemur að tungumálinu sjálfu. „Þetta eru apparöt sem byggja á því sem fyrir er. Þau eru ekki nýskapandi, ekki í tungumáli,“ segir hann, og lýsir tækninni sem óáreiðanlegri: „Hún segir aldrei: „Ég veit það ekki,“ heldur bara býr til svör.“ Áhyggjurnar snúa ekki síst að því hver ræður yfir gögnunum, og telur Gauti að fá öfl geti veitt tæknirisunum viðnám. Hann rifjar upp að hafa á sínum tíma skrifað undir hjá Árnastofnun að allir hans textar mættu fara inn í mállíkan en þetta hafi síðan endað hjá þessum risum, sem hafi ekki verið það sem hann reiknaði með. „Þetta eru sjö fyrirtæki og síðan Bandaríkjastjórn. Þá held ég að Evrópusambandið sé eini aðilinn sem getur boðið þeim byrginn. Við gætum það aldrei sem smáþjóð.“

Áhrif aðildar á tungumál smáþjóða þekkjast þegar af reynslu annarra ríkja innan sambandsins. Gauti nefnir Möltu og síðan Írland sem dæmi. „Þeir tóku eftir því hversu mikil áhrif þetta hafði á þróun maltneskunnar og hvað mikið líf varð í nýyrðavinnu, og maltneskan fékk bara nýjan tilverugrundvöll í gegnum þetta, vegna þess að það er verið að þýða á tungumálið, það er verið að túlka það,“ segir hann. „Írarnir fóru þá fram á að fá írskuna viðurkennda sem opinbert mál, það er komið í gegn, og nú er þýtt og túlkað á írsku mjög mikið.“

Viðtalið við Gauta í heild sinni má heyra í hlaðvarpi Gímaldsins sem má nálgast hér að ofan.

Reynsla Möltu og Írlands

Þau opinberu tungumál innan ESB sem helst er litið til vegna samanburðar við íslensku eru maltneska og írska. Báðar þjóðirnar eru með tvö opinber tungumál; á Möltu eru það maltneska og enska, en á Írlandi írska og enska. Íbúar Möltu eru á sjötta hundrað þúsund en á Írlandi búa ríflega sjö milljónir, þar af er mjög lítill hluti sem talar írsku daglega þó allt að fjörutíu prósent Íra segjast kunna írsku.

A bunch of boats that are sitting in the water
Þriggja ára aðlögunartímabil tók við fyrir maltnesku eftir að Malta gekk í ESB vegna skorts á þýðendum og túlkum. Mynd/Unsplash

Þegar Malta gekk í Evrópusambandið árið 2004 varð maltneska eitt af opinberum tungumálum sambandsins. Vegna skorts á þýðendum og túlkum var þó samþykkt þriggja ára aðlögunartímabil þar sem stofnanir ESB voru ekki skyldugar til að þýða öll lagaskjöl yfir á maltnesku. Aðildin skapaði tækifæri fyrir maltneska þýðendur og  túlka, en jafnframt vakti hún upp spurningar um hvort lítið ríki gæti mannað þær stöður sem fylgdu því að hafa fullgilt opinbert tungumál innan Evrópusambandsins. Í dag starfa um 300 sérfræðingar við maltnesku innan stofnana ESB.

Írland gekk í Evrópubandalagið, forvera ESB, árið 1973 en írska varð ekki opinbert tungumál innan Evrópusambandsins fyrr en 2007. Þar var sama sagan og varðandi Möltu; veitt var undanþága vegna skorts á þýðendum og túlkum sem takmarkaði hversu mikið þurfti að þýða yfir á írsku. Sú undanþága var afnumin í áföngum og féll að fullu úr gildi 2022 þegar írska hlaut sömu stöðu og önnur opinber tungumál sambandsins. Það ár voru tæplega 200 írskumælandi starfsmenn hjá stofnunum ESB en sjö árum áður voru þeir aðeins 58.

Írum þótti eftirsóknarvert að írskan fengi þessa opinberu stöðu innan ESB. Þegar þáverandi forsætisráðherra hélt lokaræðu sína á Evrópþinginu 2004 hóf hann mál sitt á írsku og fálmuðu fundarmenn eftir heyrnartólunum sínum til að heyra túlkun á því sem hann sagði, sem var hins vegar ekki til staðar. Forsætisráðherrann gantaðist með þessa erfiðleika fundarmanna við að skilja hvað hann hafði sagt, en bætti við að þetta vandamál yrði úr sögunni þegar írska yrði eitt af opinberum tungumálum Evrópusambandsins.

Þrátt fyrir ýmis líkindi í þessu samhengi er þó einn mikilvægur munur á írsku annars vegar og maltnesku og íslensku hins vegar. Þótt margir Írar kunni írsku er enska ráðandi í daglegu lífi þeirra. Maltneska og íslenska eru hins vegar notuð daglega af þorra íbúa Möltu og Íslands. 

Þýðingarkostnaður vegna aðildarviðræðna

Fjallað er um mat á kostnaði við framhald viðræðna við ESB í meirihlutaáliti utanríkismálanefndar Alþingis. Þar er vísað til svars frá utanríkisráðuneytinu til nefndarinnar en þar segir að kostnaðurinn sé háður nokkurri óvissu um hve langan tíma viðræðurnar myndu taka, ef af þeim verður, og hvernig þær yrðu skipulagðar. Ráðuneytið leggur fram kostnaðarmat sem byggist á því að viðræðurnar taki um tvö ár og að þær fari fram með svipuðum hætti og síðast. Samkvæmt því er ráðgert að kostnaðurinn við aðildarviðræður verði 1,9 milljarðar. Þar af er áætlaður þýðingarkostnaður 600 milljónir króna.

Þar er gert ráð fyrir að þýða þurfi allt regluverk ESB á íslensku. Tekið er fram að verulegur hluti löggjafar ESB er þegar þýddur í þeim tilvikum þar sem hún hefur verið tekin upp í EES-samninginn, er hluti af Schengen-samstarfinu eða vegna annars samstarfs við ESB. Þá hafa sáttmálar ESB þegar verið þýddir. 

„Áætlað er að þýða þurfi 30–50 þúsund blaðsíður. Gert er ráð fyrir að verulegum hluta þessara þýðinga yrði útvistað, en óhjákvæmilegt sé þó að styrkja þýðingamiðstöð utanríkisráðuneytis vegna umfangs verkefnisins. Þá er mögulegt að hægt verði að afla stuðnings frá ESB vegna þessa kostnaðar, eins og reyndin var í viðræðunum 2009–2013, en það mun ekki skýrast fyrr en fyrir liggur hvort af viðræðum verður. Komi til aðildar mun kostnaður vegna þýðinga alfarið falla á ESB,“ segir í meirihlutaáliti utanríkismálanefndar.

Aðalmynd efst í grein: Áskell Þórisson ljósmyndari

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 19. júní, 2026, 21:48

Erla Hlynsdóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link