
Silfrið kom fyrr úr sumarfríi enda þjóðaratkvæðagreiðsla framundan og ýmislegt sem kjósendur vilja vita. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson virtist hins vegar hafa sínar eigin hugmyndir um upplegg þáttarins.

Loksins var komið að því sem allir höfðu beðið eftir.
Ok, allir eru kannski smávægilegar ýkjur, en mjög margir höfðu sannarlega beðið eftir því að fá formenn flokkanna á þingi saman í Silfrinu og ræða þjóðaratkvæðagreiðsluna sem nálgast óðfluga. Silfrið kom fyrr en vanalega úr sumarfríi, og ekki að ástæðulausu. Þjóðin gengur brátt að kjörborðinu og tekur afstöðu til þess hvort hefja eigi að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandsins. Verkefni þáttarins hefur því væntanlega verið að fá formennina til að útskýra hvað já og nei þýða í raun. Silfrið gerði þarna tímabæra tilraun til að flytja áhorfendum upplýsingar sem þeir þurfa að vita sem kjósendur.
Það var að minnsta kosti fyrirheitið.
Niðurstaðan eftir þáttinn var hins vegar bara sú að Sigmundur Davíð hefði verið ókurteis, gripið ítrekað fram í fyrir öðrum og talað yfir aðra gesti þáttarins. Fáir ef nokkrir voru neinu nær um það sem stóð til að ræða. Markmiðinu um að upplýsa kjósendur var ekki náð.
Ég segi gestir, því þarna voru þau öll gestir þjóðarinnar, líka Sigmundur Davíð.
Þegar við mætum sem gestir í matarboð þá sitjum við til borðs og snæðum matinn sem fyrir okkur er lagður. Tökum þátt í spjalli, getum verið ýmist sammála eða ósammála. Við vitum að það er ekki reiknað með því að við hoppum í stofusófanum eða setjum kjötbita í vatnskönnuna, allavega við sem erum fullorðin.
Alveg eins og í matarboði þá eru ákveðnar leikreglur í umræðuþáttum. Já, líka umræðuþáttum um pólitík. En þær er hægt að beygja án þess að brjóta þær, fara að línunni en ekki yfir hana. Stjórnmálamenn hafa alltaf sitt agenda, þú þarft að nýta hvert tækifæri, hvert viðtal, til að fá fleiri á þitt band. Eða jafnvel bara passa að fólk verði þó ekki sammála stjórnmálamanninum í hinu liðinu. Stundum fer þetta samt út í hreina útúrsnúninga og jafnvel viljandi rangfærslur, bara til að reyna að skora einhver ímynduð stig. Og stundum er eins og það sé markmiðið að enginn fái hreinlega að heyra það sem þinn pólitíski andstæðingur hefur að segja.
„Sigmundur, leyfðu konunni að tala“, sagði Kristrún Frostadóttir við hann eftir enn ein frammíköllin.
Hann var þarna eini karlkyns gesturinn og því hefur verið fleygt fram á samfélagsmiðlum að hann hafi líklega talið sig vera að uppfylla einhvers konar kynjakvóta með því að reyna að tala jafn mikið og allar konurnar fimm til samans. Sigmundur ruglaðist líka aðeins þarna um tíma þegar hann taldi sig vera aftur orðinn þáttastjórnandi á RÚV og fór að leiðsegja eiginlegum þáttastjórnanda að hverju væri best að spyrja formenn ríkisstjórnarflokkanna, í stað þess að svara sjálfur því sem stjórnandinn spurði hann um.
En bíddu. Kannski var þessi líking við matarboð alls ekki góð.
Guðrún Hafsteins sagði jú að þjóðin væri svo klofin að fjölskyldur gætu varla hist vegna ágreinings um hvort segja eigi já eða nei við því að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þetta eru varla fjölskyldur sem hittast í matarboðum þessa dagana.
Síðar í þættinum sagði Guðrún þó að yrði jáið ofan á myndi Sjálfstæðisflokkurinn vinna að því að ná góðum samningi fyrir Íslands hönd. Þar með hafði hún sjálf sett fram ákveðið mótefni við þeirri sundrungu þjóðarinnar sem hún talaði um. Stjórnmálaflokkur getur barist gegn tiltekinni niðurstöðu en virt vilja kjósenda. Það er lýðræði. Tímabundið ósætti þarf hvorki að leiða til sambandsslita né þess að matarboðum með fjölskyldunni sé aflýst um ókomna tíð.
En Sigmundur Davíð var hvort eð er ekki klæddur fyrir matarboð. Hann var klæddur fyrir jarðarför. Á þessum hlýja sumardegi voru þær Lilja Alfreðs, Guðrún Hafsteins, Þorgerður Katrín og Inga Sæland allar í ljósum jakka, Kristrún í brúnum aðhnepptum jakka. Sigmundur var hins vegar í svörtum jakka með svart bindi.
Klæðnaðurinn reyndist þó í ágætu samræmi við málflutning hans. Sigmundur Davíð vildi jarða ýmislegt, trúverðugleika ríkisstjórnarinnar, fyrirhugaðar aðildarviðræður og helst möguleika þjóðarinnar á því að fá upplýsingar. Og þegar þættinum lauk hafði honum tekist að jarða upplýsta umræðu.
„Undir venjulegum kringumstæðum, ef að Silfrið væri að koma saman um miðjan ágúst, óvænt, þá væri það vegna þess að við erum hér í stórkostlegri krísu, efnahagskrísu,” sagði hann, og það er rétt hjá Sigmundi að það eru tíðindi að Silfrið komi fyrr úr sumarfríi en ella. Hann áttar sig því á hversu mikil tíðindi það er að formenn flokkanna voru boðaðir til umræðna á einmitt þessum tímapunkti. Það er mikið undir.
Því næst sagði hann að ekkert hefði gengið upp hjá ríkisstjórninni og „þá er gripið til þess ráðs sem er líklega stærsta smjörklípa íslenskrar stjórnmálasögu, að drepa málum á dreif með þessari umsókn um aðild að Evrópusambandinu. Og hún er ekki kynnt sem umsókn um aðild, hvort menn vilja ganga inn eða ekki, heldur, af því menn vita það að Íslendingar vilja ekki ganga í Evrópusambandið…”
Það hefur hins vegar verið mjög skýrt og undarlegt ef einhverjum, sér í lagi sem starfar á Alþingi, dylst að verið er að kjósa um hvort Ísland eigi á ný að hefja viðræður við Evrópusambandið. Spurningin sem kjósendur taka afstöðu til á kjörseðlinum er bókstaflega: „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“ Svarmöguleikar eru Já og Nei.
Nógu skýrt?
Hvað varðar þá meintu vissu um að Íslendingar vilji ekki ganga inn í ESB þá hafa nýjustu skoðanakannanir sýnt að það eru nokkuð jafn stórir hópar sem ætla að segja já og þeir sem ætla að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni um viðræður. Eiginlega fiftí-fiftí, eins og sumir segja. Ef farið verður í viðræður gefst þjóðinni aftur tækifæri til að segja hug sinn í þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort það vill eða vill ekki ganga inn.
Og Sigmundur hélt áfram „…dregin upp hér stórundarleg mynd þar sem því er haldið fram, í eina landinu, þetta hefur hvergi gerst annars staðar, einu stjórnvöldin sem hafa reynt þetta eru á Íslandi, að halda því fram að umsókn að Evrópusambandinu snúist um eitthvað allt annað en vilja til að ganga í Evrópusambandið…“
Já, það er nýmæli að haldin sé þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort hefja eigi viðræður á ný við ESB. En það er líka afar fátítt að þjóð hefji aðildarviðræður og þær séu síðan settar á ís af ríkinu sjálfu þegar önnur ríkisstjórn tekur við, líkt og gert var á Íslandi í síðustu viðræðum. Við lifum á óvenjulegum tímum.
Sigmundur Davíð kvartaði undan því að staðreyndir og skýr svör hyrfu í hávaða nútímastjórnmála á sama tíma og framganga hans gerði öðrum nær ómögulegt að koma staðreyndum og skýrum svörum á framfæri.
„Mér finnst þetta fyrst og fremst sorglegt. Og mér er nú sagt að ég megi ekki vera of pirraður yfir þessu þótt ég hafi gengið í gegn um þetta áður, horft upp á þetta allt saman, allt þetta leikrit. Ég horfði upp á það áður. En, maður má ekki vera of pirraður yfir því. Þetta sé víst bara nútímapólitík …,“ sagði maðurinn sem setti á svið nokkur örleikrit í þættinum. Sigmundur Davíð er stundum fyndinn og skemmtilegur í leikverkum sínum. En það var hann ekki í þetta skiptið. Alls ekki þegar hann kastaði því fram að hann ætlaði að sækja um aðild að Viðreisn, fara í aðildarviðræður og ganga inn svo framarlega sem Þorgerður fellst á kröfur hans.
„ … Popúlisminn, lýðskrumið sé orðið allsráðandi og það skiptir í rauninni engu máli hvað sé rétt og rangt,“ sagði hann en vakin er athygli á því að hann var hér að tala um aðra flokka en sinn eigin.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.