
Nara Wallker var dæmd til fangelsisvistar árið 2018 fyrir að bíta tunguna úr þáverandi eiginmanni sínum. Hún kærði íslenska ríkið til Mannréttindadómstóls Evrópu og kvartaði undan því að ekki væri tekið tillit til þess að hún væri þolandi heimilisofbeldis. Dómstóllinn tók ekki undir með henni í niðurstöðu sinni í dag.

Mannréttindadómstóll Evrópu (MDE) hefur vísað máli Nöru Walker gegn íslenska ríkinu, frá dómi. Niðurstaða þess efnis hefur verið birt á vef dómstólsins.
Í niðurstöðunni eru kæruefni Nöru rakin en hún hlaut átján mánaða fangelsisdóm fyrir tvær líkamsárásir og brot í nánu sambandi árið 2018.
Nara var dæmd fyrir að bíta af stykki úr tungu þáverandi eiginmanns síns og ofbeldi gegn konu sem var gestkomandi á heimili þeirra hjóna. Nara hélt því fram fyrir rétti að brot hennar hefðu verið framin í sjálfsvörn.
Í kæru sinni til MDE kvartaði Nara undan því að mál hennar hefði átt að skoða heildstætt og taka tillit til sögu sambands hennar við sinn fyrrverandi þegar framburður hennar um sjálfsvörn var metinn í sakamálinu gegn henni.
Hún hélt því enn fremur fram að kærur hennar um heimilisofbeldi hefðu ekki verið rannsakaðar af lögreglu með fullnægjandi hætti og benti sérstaklega á að meintur gerandi hafi ekki verið yfirheyrður fyrr en tveimur mánuðum eftir að kæra var lögð fram og ekki hafi verið teknar skýrslur af vitnum fyrr en næstum ári síðar.
Hún taldi að mikilvæg sönnunargögn hefðu verið hunsuð, meðal annars áverkavottorð og samskipti meints geranda við móður Nöru á samfélagsmiðlum sem hún taldi fela í sér viðurkenningu á brotum. Þá hélt Nara því fram að lögregla hefði komið fram við sig eins og geranda fremur en þolanda og benti á að engar myndir hafi verið teknar af áverkum hennar á vettvangi.
Hún hélt því jafnframt fram að lögreglan hefði komið fram við hana sem geranda frekar en fórnarlamb, og benti á að engar myndir voru teknar af áverkum hennar á vettvangi og að hún hefði dregið nokkrar ákærur sínar til baka til að flýta fyrir málsmeðferð.
Í svörum íslenska ríkisins til dómsins kom fram að sakfelling hennar byggðist á ítarlegu mati á sönnunargögnum, þar á meðal vitnisburði allra sem voru viðstaddir atvikið. Framburður hennar um sjálfsvörn hefði verið kannaður en dómstólar hefðu hafnað honum á þeim grundvelli að háttsemi hennar hefði ekki verið talin nauðsynleg til að verjast ólögmætri árás.
Varðandi rannsókn lögreglu á heimilisofbeldi hélt ríkið því fram að meintur gerandi hefði verið yfirheyrður og viðeigandi gagna hefði verið aflað, þar á meðal samskipta af samfélagsmiðlum. Ákvörðun um niðurfellingu málsins hefði byggst á sönnunarstöðu sönnunarstöðu þess. Bent var á að nokkur tími hafði liðið frá atvikum þar til Nara kærði þau til lögreglu og málið því ekki krafist tafarlausra aðgerða til að tryggja sönnunargögn. Þá hefðu fyrrnefnd samskipti á samfélagsmiðlum verið tvíræð og fælu ekki í sér viðurkenningu á meintri háttsemi.
Í niðurstöðu MDE var gerð grein fyrir almennum sjónarmiðum um jákvæða skyldu ríkisins til að vernda þolendur ofbeldis af hendi annarra einstaklinga á grundvelli 3. gr. sáttmálans um bann við pyndingum og ómannúðlegri meðferð og 8. gr. um friðhelgi einkalífs.
Vísaði MDE meðal annars til tveggja nýlega uppkveðinna dóma gegn Íslandi sem varða kynbundið ofbeldi. Við meðferð þeirra í Strassborg hefði dómstóllinn, í því skyni að leggja mat á hvort íslenska ríkið uppfyllti jákvæðar skyldur sínar, skoðað vandlega íslenskan lagaramma um meðferð heimilisofbeldis og málsmeðferðarskyldur yfirvalda við rannsókn slíkra kæra. Í þessum fyrrnefndu málum hefði dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að lagaramminn sem var í gildi á viðkomandi tímabili veitti fullnægjandi úrræði til verndar gegn heimilisofbeldi og kynferðisofbeldi í gegnum refsilöggjöfina.
Eftir að hafa fjallað um almennar jákvæðar skyldur íslenska ríkisins snéri MDE sér að sakamálinu gegn Nöru. Dómstóllinn ítrekaði að það sé ekki hlutverk hans að leggja sjálfstætt mat á sönnunargögn og skipta því mati út fyrir mat innlendra dómstóla.
Það var mat MDE að ekkert benti til þess að íslenskir dómstólar hafi látið hjá líða að meta mikilvæg sönnunargögn, rökstuðningur þeirra hafi verið handahófskenndur eða augljóslega ósanngjarn. Þvert á móti hafi fullyrðingar Nöru um sjálfsvörn verið teknar til skoðunar en þeim hafnað á grundvelli sönnunargagna málsins. Þá hafi íslenskir dómstólar fært ítarleg rök fyrir niðurstöðum sínum.
Að lokum snéri MDE sér að rannsókn á meintu heimilisofbeldi. MDE vísaði til þess að báðir aðilar máls hafi verið yfirheyrðir og sönnunargagna verið aflað. Saksóknari hafi metið kærur Nöru og fært ítarleg rök fyrir ákvörðun um niðurfellingu rannsóknar.
„Sú staðreynd að kærandi er ósammála mati á sönnunargögnum felur ekki í sjálfu sér í sér vanrækslu“
MDE tók sérstaklega fram að skylda ríkja til vandaðra rannsókna mála sé skylda um leiðir og ferli en ekki skylda til að komast að tiltekinni niðurstöðu. Í máli Nöru hafi yfirvöld framkvæmt rannsókn, aflað sönnunargagna og fært rök fyrir niðurstöðu sinni.
„Sú staðreynd að kærandi er ósammála mati á sönnunargögnum felur ekki í sjálfu sér í sér vanrækslu á því að uppfylla málsmeðferðarskyldur samkvæmt 3. og 8. gr. samningsins,“ segir að lokum í niðurstöðunni.
Í ljósi framangreinds taldi dómstóllinn að hafna bæri kærum Nöru sem augljóslega tilhæfulausum og vísaði þeim frá dómi.
Nara Walker lauk afplánun dómsins árið 2019 en var á reynslulausn fram á seinni hluta árs 2020. Nara Walker er áströlsk að uppruna og fljótlega eftir að hún varð frjáls ferða sinna flutti hún til Ástralíu þar sem hún býr í dag.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.