Þegar sannleikurinn víkur fyrir slagorðum

Lestími: 6 mínútur

Tilfinningarökin voru það sem virkaði í Brexit. Viltu láta aðra stjórna þér? Let’s take back control var þekktasta tilfinningahlaðna slagorð útgöngusinna. Skrifum söguna sjálf, voru skilaboðin. Rangar tölur sem sýndu kostnað við veru landsins í ESB virkuðu vel til að styðja við hugmyndir um að forðast ESB. Við höfum haft áratug til að læra af reynslu Breta og sleppa því að bjóða óreiðunni í kaffi. Okkar Brexit-augnablik er runnið upp.

Á Alþingi hafa þingmenn kost á að gera grein fyrir atkvæði sínu. Þá koma þeir upp einn af öðrum og lýsa því af hverju þeir segja já eða nei í tilteknum málum.

Nú hefur þjóðin orðið og í hvert skipti sem við opnum símana okkar bíða okkar andlit á skjánum. Mörg velja að gera grein fyrir atkvæði sínu með því að beina símamyndavélinni að eigin ásjónu, horfa djúpt í símaskjáinn og lýsa vali sínu af sannfæringu.

Almenningur hefur ekki ræðustól Alþingis til að tala úr þannig að miðlunarleiðin eru samfélagsmiðlar. Misgóð myndbönd og allt það, en þetta er allavega mikið tekið, eins og sagt er. Fjölmiðlar, hlaðvörp og fylkingar nota líka sama vettvang til að koma ýmsum andlitum á skjáinn okkar.

Þótt freistandi sé að ímynda sér að samfélagsmiðlarnir, þessi alræmdi nútíma vettvangur upplýsingamiðlunar, séu á einhvern hátt lýðræðislegir af því að allir hafa míkrafón, þá er það eins fjarri sanni og hugsast getur. Þótt allir geti gert grein fyrir atkvæði sínu þá stýra notendur næstum engu á þessum vettvangi, peningar stjórna öllu.

Fátt er óreiðukennt við upplýsingaóreiðu

Í ófáum skýrslum um varnar- og öryggismál sem ríkisstjórnir síðustu ára hafa lagt fram og varða þjóðaröryggi og viðbrögð við svokölluðum fjölþáttaógnum sem að okkur steðja er alltaf minnst á sama fyrirbærið: upplýsingaóreiðu. En hún er ekki alltaf eitthvað fyrirbæri sem kemur að utan, heldur innlend.

Vágesturinn upplýsingaóreiða er óvelkominn víðast hvar, nema hjá þeim sem vilja stunda áróður án þess að staðreyndir eða sannleikur þvælist fyrir. Þá er óreiðunni boðið í kaffi og henni færðar kleinur.

Óreiðuhugtakið er ekkert sérlega lýsandi. Eiginlega frekar krúttlegt og saklaust. Alvöru upplýsingaóreiða er kerfisbundin og skipulögð. Þá er röngum eða vafasömum staðhæfingum haldið markvisst fram, ekki óreiðukennt heldur meðvitað. Þetta er hægt að gera til dæmis með því að borga birtingar undir fullyrðingar, setja þær í texta auglýsinga, láta frambærilegt fólk í þjóðfélaginu halda þeim fram, koma þeim án síu í ákveðna fjölmiðla eða biðja fólk að hringja þær út til almennings.

Samfélagsmiðlarnir eru hálfgerður vígvöllur að þessu leyti. Þar eru minnstar varnir. Engar staðreyndir vaktaðar. Engar fullyrðingar sannreyndar. Óreiðan fær að leika lausum hala. Hver sem er getur sagt hvað sem er. Sá sem borgar mest fær mesta athygli. Þegar andlitin á skjánum – fólkið með fullyrðingarnar – er fólk sem við treystum vel og hefur skapað sér nafn þá hljóma staðhæfingarnar eins og heilagur sannleikur, óháð gildi þeirra. Þegar sama fólk heldur þrumuræður og þær eru magnaðar upp í mörgum miðlum þá eiga staðhæfingar greiða leið inn í umræðuna.

Vágesturinn upplýsingaóreiða er óvelkominn víðast hvar, nema hjá þeim sem vilja stunda áróður án þess að staðreyndir eða sannleikur þvælist fyrir. Þá er óreiðunni boðið í kaffi og henni færðar kleinur.

Nú þegar auglýsingar og áróður fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu eru að ná hámarki er rétt að velta því upp hvers vegna við sættum okkur við að vera óvarin þjóð. Ef sömu trixin virka núna og á tímum Brexit, þá segir það okkur að varnir okkar gegn óreiðu og vafasömum fullyrðingum eru síst betri en þær voru hjá Bretum fyrir áratug.

Brexit-augnablikið er komið

Utanríkisráðherra uppskar hörð viðbrögð þegar hún dirfðist að nefna Brexit í viðtali við The Guardian í byrjun sumars og sagði að hún óttaðist að Ísland myndi standa frammi fyrir „Brexit-augnabliki“.

„Ég óttast að við stöndum frammi fyrir Brexit-augnabliki,“ sagði hún. „Það væri, að mínu mati, fremur hættuleg leið því … það voru alls kyns lygar sem Brexit-sinnar lögðu fram.“

Hræðsluáróður var orðið sem notað var yfir þessi varnaðarorð ráðherrans.

Það sem virkaði í Brexit voru tilfinningarökin. Við gerum þetta sjálf. Stjórnum sjálf og eigum okkur sjálf.

Skrifum söguna sjálf.

Sagan endurtekur sig gjarnan. Frægasta fullyrðing útgöngusinna var um kostnaðinn við það að vera í ESB. Talan var röng, það vissu allir og líka þeir sjálfir, en það kom ekki í veg fyrir að hún væri prentuð á rútur og ekið með hana um landið þvert og endilangt.

Sannleikurinn var ekki með Brexit-liðum í liði, en það skipti þá ekki máli því uppgjörið fór ekki fram fyrr en eftir kosninganar.

50 milljónir punda og 50 milljarðar króna

„Við sendum ESB 50 milljónir punda á dag. Fjármögnum heilbrigðiskerfið [NHS] í staðinn.“ Og svo var skilaboðunum „Let’s take back control“ hnýtt við sem oftast.

Skilaboðin voru að við eigum að stjórna, þetta eru okkar peningar, notum þá fyrir okkar þjóð en ekki einhverjar aðrar þjóðir sem koma okkur ekki við.

Rök máttu sín lítils, staðreyndir skiptu ekki máli og sannleikurinn var settur til hliðar. Breska þjóðin var óvarin í óreiðukenndu flóði upplýsinga og áróðurs.

Áratugur er liðinn frá Brexit. Við höfum haft tíu ár til að læra af reynslu Breta, byggja upp varnir fyrir almenning og forðast „Brexit-augnablik“.

Nú stendur til að íslenska þjóðin taki stærstu ákvörðun sinnar kynslóðar á umræðuvettvangi þar sem engar staðreyndir eru vaktaðar, engar fullyrðingar sannreyndar og sá sem borgar mest talar hæst.

Það er ekki spurning um hvort óreiðan mæti.

Hún er þegar sest inn í eldhús með kaffi og kleinur.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 28. ágúst, 2026, 10:50

Eyrún Magnúsdóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link