Nýr miðill í loftið í september

Lestími: 3 mínútur

Gímaldið undir stjórn Eyrúnar Magnúsdóttur og Auðar Jónsdóttur

Er sama uppskrift að fjölmiðli og kjötsúpu?

Flestir þekkja söguna af naglasúpunni. Sagan hverfist um flæking sem kom í þorp og bað fólk um mat. Enginn þóttist eiga neitt en þegar maðurinn byrjaði að sjóða súpu úr vatni og nagla bar fólk að, hver og einn lagði eitthvað til, gulrót, kjötbita eða rófu … já, hitt og þetta. Samtakamátturinn bjó til næringarríka kjötsúpu handa öllum. 

Í byrjun september mun miðillinn Gímaldið hefja göngu sína. Að honum standa Eyrún Magnúsdóttir og Auður Jónsdóttir, sem báðar hafa áratugareynslu úr fjölmiðlum. Ætlunin er að byggja upp miðil með djúpum viðtölum, skýringum og nota greiningar jafnt sem staðreyndir til að segja sögur af samfélaginu. 

Það er von okkar að samfélagið taki honum vel. Naglarnir eru komnir í súpupottinn og á næstu vikum vonumst við til að okkur farnist jafn vel og flækingnum. Sannfæring okkar er að með góðu verklagi megi búa til fjölmiðil nokkuð snarpt svo lengi sem vinnubrögð blaðamennsku eru höfð að leiðarljósi – og fólk er reiðubúið að leggja til salt í súpuna.

Góður fjölmiðill  krefst réttrar blöndu: vandaðrar blaðamennsku, trausts verklags, gagnrýninnar hugsunar og opins vettvangs þar sem við greinum veruleikann, reynum að skilja hann og mætumst. Þótt fjölmiðlaflóra landsins sé allnokkur, svona miðað við höfðatölu, má enn bæta við. Og þó að sannarlega sé áskorun að reka fjölmiðil á fámennu málsvæði, þá eru tækifærin ekki síður raunveruleg.

Við byrjum með vatn og nagla en líka grun um að gerlegt sé að byggja upp fjölmiðil sem rúmi það að prófaðar séu nýjar aðferðir í bland við hefðbundnar. Þar sem staðreyndir fá að skyggja á skoðanir og samt leiðist engum. 

Því öflugri fjölmiðlar, því öflugra samfélag.

Að neðan er hægt að skrá sig á póstlista og fá frekari fréttir af súpgerðinni og fá Gímaldið beint í pósthólfið þegar það fer í loftið👇👇

Fyrir þau sem vilja bæta salti í súpuna er hægt að styrkja framtakið með því að leggja inn frjálst framlag á þennan reikning. Öll framlög fara í að byggja upp vandaðan miðil sem bragð er að:

0133-15-012206
Kt. 440225-3060

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 31. október, 2025, 12:21
Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link