Óður til brauðtertunnar

Lestími: 15 mínútur

Brauðtertan er skráð sem lifandi hefð hjá Þjóðminjasafni Íslands og glöggt má sjá lífið í Brauðtertufélagi Erlu og Erlu. Við förum hér yfir sögu íslensku brauðtertunnar í tilefni af brauðtertuveislu sem haldin er í ráðuneyti menningar á Menningarnótt.

Húsmóðirin beygir sig yfir brauðtertuna til að sprauta majonesröndum á hliðarnar. Nú á hún bara eftir að setja tannstöngla með íslenska fánanum ofan á, rétt á milli tómatrósanna og gúrkuspíralsins, þarna hjá sítrónusneiðunum. Hún er í skjannahvítri svuntu til að verja sparikjólinn sem hún klæðist innanundir, hvítari en majonesið sem þó er vitanlega ekki farið að gulna. Gott ef þetta er ekki skautbúningur frekar en sparikjóll. Mögulega er innrömmuð ljósmynd af nýkjörinni Vigdísi Finnbogadóttur á borðinu. Þér er boðið til alvöru veislu – brauðtertuveislu.

Þessi ber heitið Brauðterta röggsama ráðherrans og uppskriftina er að finna í Stóru brauðtertubókinni. Ekki var þó vísað til neins ákveðins ráðherra þegar hún var búin til. Mynd/Karl Petersson.

Þannig hefst formáli sem ég skrifaði í Stóru brauðtertubókina sem kom út fyrir tveimur árum. Nú, á menningarnótt, er aftur boðið til brauðtertuveislu. Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið býður gestum og gangandi upp á rúmlega fimm metra brauðtertu „svo líklega er um lengstu brauðtertu landsins að ræða“, segir í tilkynningu ráðuneytisins vegna viðburðarins sem hefst í ráðuneytinu að Reykjastræti klukkan þrjú í dag, laugardag. Þar verður einnig listasýningin Brauðtertan lifir sem byggir á verkum Tönju Levý sem hannaði vörulínu innblásna af íslensku brauðtertunni. 

Að þessu tilefni er haft eftir ráðherra, Loga Einarssyni, að brauðtertan hafi ekki aðeins sameinað kynslóðir heldur megi líta á hana sem ákveðið listform. „Hún er dæmi um lifandi hefð sem tekur stöðugum breytingum og þróast með þjóðinni – hefð sem sameinar, mettar og virkjar sköpunargleðina,“ segir Logi. Þá er vísað til þess að brauðtertan er skráð sem lifandi hefð hjá Þjóðminjasafni Íslands en í umfjöllun safnsins er haft eftir undirritaðri að brauðtertan sé hluti af menningararfleifð okkar. 

Við lýsum menningarnótt 2026 hér með setta og grípum aftur niður í formála Stóru brauðtertubókarinnar:

Terta úr brauði hljómar satt að segja alls ekki vel. En brauðtertur eru miklu meira en þessi litlu orð, brauð og terta. Þær eru svo vinsælar að þær eru fastagestir í öllum helstu veislum, hvort sem um er að ræða afmæli, fermingar eða brúðkaup. Þær eru líka mættar þegar við kveðjum ástvini. Við Íslendingar viljum hafa brauðtertuna okkur við hlið hvort sem það er á tímum gleði eða sorgar. Brauðtertan sameinar.

Saga brauðtertunnar á Íslandi

Blómatími brauðtertunnar er kominn enn á ný – hún hvarf aldrei alveg heldur lét kannski fara eilítið minna fyrir sér um tíma. Fyrra blómaskeið hennar var á sjöunda og áttunda áratugnum. Þegar allir voru með túberað hár, gengu í neonlituðum spandexfatnaði og fóru helst ekki út úr húsi nema vera í prjónuðum legghlífum voru brauðtertur á hverju veisluborði. Bjartmar Guðlaugsson, tónlistarmaðurinn ástsæli, gaf árið 1985 út lagið „Stúdentshúfan“ þar sem hann söng um fyrirmyndarbarnið sem hætti að læra heima og þar af leiðandi „engin stúdentshúfa í ár“. En sorgin var víðtækari hjá foreldrunum, og Bjartmar söng hástöfum „Það verður engin brauðterta í ár“. Engin útskriftarveisla, engin brauðterta.

Uppruni og áhrif frá öðrum löndum

Í huga margra er fátt íslenskara en brauðtertan. Hún hefur jafnvel verið kölluð þjóðarréttur Íslendinga. Eins og svo margt sem við höfum tekið með trompi þá er hún samt ekki alveg íslensk. Allavega ekki svona upphaflega. Eða hvað? Enginn velkist í vafa um að íslenskt tungumál sé sannarlega íslenskt þó það hafi þróast á löngum tíma út frá eldri málum sem töluð voru á Norðurlöndunum. 

Danska leikskáldið Ludvig Holmberg kynnti til sögunnar samlokutertu í leikriti í kring um aldamótin 1700. Það var hins vegar ekki fyrr en í kring um 1940 sem samlokutertur – eða brauðtertur – urðu vinsælar í Svíþjóð, kallaðar smörgåstårta upp á sænsku. Um áratug síðar voru Finnar farnir að gæða sér reglulega á voileipäkakku, sem einnig merkir samlokuterta. 

Brauðtertan í íslenskum fjölmiðlum

Fyrst var fjallað um brauðtertur í íslenskum tímaritum árið 1953. Þjóðviljinn fjallaði þá um þær í Heimilisþætti þar sem kom fram að „Brauðtertu er tilvalið að hafa á spila- og saumakvöldum. Hún verður dýr eða ódýr eftir því hvað er haft mikið á milli sneiðanna.“ Lögð var áhersla á að „áskurðurinn“ sé smátt brytjaður og lagt til að nota súrsað grænmeti, kjöt, reyktan lax, rækjur, sardínur, harðsoðin egg, gúrkur, tómata, ost eða hrátt grænmeti. „Oftast er mayonnaise hrært saman við áskurðinn. Sardínusmjör, rækjusmjör og laxasmjör er mjög hentugt milli sneiðanna.“ en þar var átt við að smyrja brauðið með smjörinu áður en majonessalatið væri sett á milli.

Í Kvennadálki vikublaðsins Fálkans sama ár var fjallað um að íslenskar húsmæður hafi jafnan haldið þeim sið að eiga gnótt af heimabökuðum kökum til jólanna, en þótt kökur smakkist jafnan vel finnist mörgum ómissandi að hafa einnig ósætt með á kaffiborðinu. Vegna lokaðra búða í kring um hátíðina og mikillar vinnu við að útbúa skreyttar brauðsneiðar – smurbrauð – er lagt til að bjóða upp á samlokur og brauðtertu. „Í fyrsta lagi má útbúa þær með talsverðum fyrirvara, ennfremur þarf ekki jafn fjölbreytt álegg, slíkar samlokur má jafnvel búa til þótt ekkert álegg sé til nema úr dósum, og svo t.d. egg eða ostur.“  Þá er gefin uppskrift að brauðtertu með salatblöðum og reyktu svínslæri, sinnepskrydduðu smjöri og majonesi.  „Brauðtertan er síðan vafin smjörpappír og látin standa að minnsta kosti tvær klukkustundir á köldum stað og eitthvað lagt ofan á til að pressa tertuna saman t.d. brauðbretti, eitt eða fleiri. Skorin í sneiðar með mjög beittum hníf.“ 

Ári síðar vekur tímaritið Vikan athygli á því hvað smekklega skreyttar brauðtertur geta sómað sér vel á veisluborðum: „Brauðterta getur verið mjög falleg og skrautleg á borði. Hún er smurð með smjöri og ofan á hana er lagt alls konar álegg. T.d. kjöt, sardínur og sítrónur eða salat, harðsoðin egg, tómatar og gúrkur.“

Tíminn birti síðan uppskrift að brauðtertu árið 1959 þar sem nota átti þrjú lög af „hveitibrauði“ og tvö lög af rúgbrauði. Fyllingin samanstóð af smjöri sem hafði verið blandað sinnepi, smjöri blandað með paprikukryddi, rifnum osti, skinku, þeytanlegum osti úr dós og þeyttum rjóma. 

Á þessum tíma var smurbrauðsstofan Brauðborg á Frakkastíg orðin nokkuð vinsæl og auglýsti að hjá þeim fengjust „Cocktailsnittur, Kanapin og brauðtertur“ en líka „Tóbak, sælgæti og gosdrykkir“. Öll herlegheitin var hægt að fá heimsend en opnunartíminn var aðeins frá 9 til 11.30. Morgunblaðið fjallaði síðan um það árið 1968 að hjá Brauðborg störfuðu þrjár sérmenntaðar smurbrauðsdömur, þar af ein sem væri nýkomin heim frá námi í Danmörku.

Heillandi hefðir og nýjungar brauðtertunnar

Brauðterta með rækjusalati er það sem flestir í dag kalla klassíska brauðtertu, þar sem í rækjusalatinu eru góðar rækjur, harðsoðin egg og að sjálfsögðu majones. Við þetta bætast hin ýmsu krydd eftir smekk og siðum í hverri fjölskyldu. Í hugum annarra er baunasalat með hangikjöti eina sanna klassíkin, og hjá enn öðrum er það skinkusalatið sem gerir gæfumuninn til að bragðlaukarnir veki upp nostalgíuna. En síðan eru það þeir sem eru alls ekkert að sækja í neina nostalgíu. 

Þróunin byrjaði hægt eins og svo oft. Sumir fóru að setja smátt skorna gúrku í rækjusalatið, eða jafnvel paprikubita. Í staðinn fyrir aromat ákvað einhver að prófa sig áfram með sætt chilli. Brauðtertur dagsins í dag eru með kjúklingasalati, parmaskinku eða vegan majonesi, skreyttar með blómum úr garðinum eða muldum kartöfluflögum, í bland við allt þetta gamla góða. Klassískt majonessalat með hangikjöti stendur alltaf fyrir sínu.

Stofnun Brauðtertufélags Erlu og Erlu

Það var á ósköp venjulegu föstudagskvöldi árið 2019 sem undirrituð stofnaði í gamni Facebookhóp sem átti eftir að stækka bæði óvænt og mikið. Nafna mín Gísladóttir var þá að undirbúa veislu og sárvantaði hugmyndir fyrir brauðtertugerð, en þrátt fyrir leit þá fann hún þær hvergi á aðgengilegum stað. Hún kallaði eftir aðstoð á Facebook, spurði hvort það væri enginn hópur þar sem fólk skiptist á ráðum við brauðtertugerðina, og til að gera langa sögu stutta þá stofnaði ég hóp til að létta henni lundina, nefndi hann Brauðtertufélag Erlu og Erlu, og sendi henni rafrænt boð. Sjálf var ég bara áhugakona um brauðtertur en hafði alist upp við að mamma, sem starfaði um tíma sem smurbrauðsdama í Norræna húsinu, útbjó gómsæt listaverk úr brauði og majonesi fyrir allar veislur. Ég var því hjartanlega sammála nöfnu minni um að fólk þyrfti vettvang til að geta deilt hugmyndum fyrir brauðtertugerðina. Þó að hópurinn hafi verið stofnaður í bríaríi þá vonaðist ég innst inni til þess að við yrðum nú ekki bara tvær í honum heldur að það myndu kannski bætast við fimm eða jafnvel tíu aðrir sem einnig vildu veg brauðtertunnar sem mestan. Í mínum villtustu draumum yrðum við kannski þrjátíu þarna saman að skiptast á ráðum. Strax fyrstu helgina voru komnir tugir meðlima í Brauðtertufélag Erlu og Erlu, fólk sem elskaði brauðtertur, vildi ólmt deila myndum af listilega skreyttum tertum sem það hafði gert og fá tækifæri til að dást að tertum annarra. Ekki leið á löngu þar til við vorum boðaðar í fjölmiðlaviðtöl til að ræða um þennan nýja og spennandi hóp sem fór sífellt stækkandi. Allt í einu vorum við orðin hundrað, svo þúsund, síðan fimm þúsund. Þegar þessar línur eru skrifaðar eru meðlimir hátt í 22 þúsund.  

Í ljós kom að það er ótrúlegur fjöldi Íslendinga sem hefur gríðarlega hæfileika þegar kemur að brauðtertugerð og myndir af verkum þeirra fengu að njóta sín þarna. Amma í Hveragerði sýndi hversu lipur hún var með útskurðarhnífinn og iðnaðarmaður á Austurlandi gerði svo fallegar tertur að þær hefðu sómað sér vel á borði Svíadrottningar. Þarna var fólk sem hafði gert brauðtertur alla ævi nánast og aðrir sem höfðu aldrei gert eina einustu, höfðu kannski miklað það fyrir sér en fékk hvatningu og ráð til að prófa loksins. Síðan eru þeir sem vildu bara njóta þess að skoða tertur sem aðrir höfðu gert. Ýmsir kalla þarna eftir fleiri uppskriftum en frá upphafi eru það myndir af heimagerðum brauðtertum sem njóta mestra vinsælda hjá meðlimum. Einstaka sinnum hefur verið bryddað upp á umræðu um heita brauðrétti en það skjótt skotið í kaf – brauðterta er eitt, heitur brauðréttur allt allt annað. Það er hægt að leika sér á ýmsan hátt við brauðtertugerðina en alltaf skal hún borin fram köld. 

Brauðtertugerð sem keppnisgrein

Sundbolur og handklæði sem Tanja Levý hannaði. Mynd: Eygló Gísladóttir

Snemma var kallað eftir því að haldin yrði brauðtertukeppni og það varð úr að við Erlurnar tvær ásamt hönnuðunum Tönju Levý og Valdísi Steinarsdóttur sem einnig elska brauðtertur, skipulögðum brauðtertukeppni sem var haldin í samstarfi við Reykjavíkurborg á menningarnótt 2019. Þar var keppt í þremur flokkum: Sú fallegasta, sú bragðbesta og sú frumlegasta. Lokað var fyrir umferð í miðborginni í tilefni menningarnætur sem í fyrstu var ákveðin áskorun því vandasamt getur verið að flytja viðkvæmar brauðtertur milli staða. Á endanum var það lögreglan sem tók að sér að fylgja keppendum með brauðterturnar sínar í Hafnarhúsið þar sem keppnin fór fram og birtust fréttir af því að brauðterturnar hefðu fengið lögreglufylgd. Valinkunnir dómarar gengu til liðs við okkur og sigurvegararnir fengu vegleg verðlaun, en þar á meðal voru handklæði og sundbolur úr hönnunarlínunni Brauðtertan lifir eftir Tönju Levý, en íslenska brauðtertan var innblástur að línunni þar sem allar vörurnar, svo sem viskustykki, pottaleppar og svunta, voru prýdd mynd af brauðtertu. Ýmis klassísk þemu fengu að njóta sín hjá keppendum. Frumlegasta brauðtertan var með harðfisksalati sem smakkaðist mjög vel en önnur var ekki síður frumleg, listaverk sem kallaðist Bread Pitt þar sem listamaðurinn sjálfur var hluti af verkinu en hann kom sér fyrir hjá hinum brauðtertunum með brauðtertubita í hönd og annan sem hluta af höfuðskrauti. 

Brauðtertukeppnir sem birtingarmynd samtímans 

Sigurvegari í keppninni þar sem þemað var eldgos, Hraunflóðið sem Anna Margrét Magnúsdóttir gerði. Mynd/Brauðtertufélag Erlu og Erlu

Keppnir geta verið farvegur ýmissar sköpunar, líka þegar um brauðtertur er að ræða. Eftir að eldgos hófst í Merardölum árið 2022 efndi Brauðtertufélag Erlu og Erlu til keppni í tilefni af jarðhræringunum á Reykjanesskaganum þar sem þemað var eldgos, og hugmyndaríkir þátttakendur notuðu til að mynda reyktan lax til að tákna eldtungurnar en svartan kavíar og litað poppkorn sem kólnað hraunrennsli. En brauðtertukeppnirnar eru víðar. Starfsmannafélag Reykjavíkur hélt brauðtertukeppni þar sem þemað var Reykjavíkurtjörn. Við gerð einnar tertunnar lögðu þátttakendur í umfangsmikla rannsóknarvinnu þannig að ráðhúsið og nánasta umhverfi þess væri allt í réttum hlutföllum þegar það var endurgert í formi brauðtertu. Önnur terta í þeirri keppni var innblásin af því þegar Fjölnir Þorgeirsson bjargaði tíu hestum sem höfðu fallið niður um ís á Tjörninni árið 2009, en leikfangahestar úr Playmo prýddu þá tertu. Enn ein var endurgerð listaverksins Litla hafpulsan eftir Steinunni Gunnlaugsdóttur sem stóð á Tjörninni. Þrátt fyrir sköpunargleðina hjá þeim sem tóku þátt í þessum keppnum er langsamlega algengast að boðið sé upp á hefðbundnari brauðtertur þegar haldin er veisla. Einhverjum kann síðan að finnast viðeigandi að Playmohestarnir hafi verið á hálum ís því almennt er miðað við að öll brauðtertan sé æt, þar með talið allar skreytingarnar. Mín persónulega skoðun er hins vegar að allt sé leyfilegt í ástum, stríði og brauðtertukeppnum. 

Majones og menning

„Hvert á hún rækjur sínar að rekja?“ er heiti BA-ritgerðar um myndheim brauðtertunnar eftir Ásdísi Hönnu Guðnadóttur sem hún skrifaði við Listaháskóla Íslands árið 2021.Þar fjallar hún um brauðtertuna sem skrautmun þar sem saga, myndheimur og birtingarmynd hennar í nútímanum er skoðuð, og hún setur íslenskt handverk á borð við útsaum og silfursmíði í samhengi við skreytingar á brauðtertum. „Brauðterta sem er þakin með majonesi er eins og hvítt blað,“ skrifar Ásdís og bendir á að möguleikarnir séu endalausir. 

Við viljum einmitt að majonesið sé sem hvítast því það tekur að gulna þegar brauðtertan stendur lengi á borðstofuborðinu, eða eins og Stella í orlofi sagði svo eftirminnilega í kvikmyndinni góðu þegar hún var komin með nóg: „Jæja, Goggi minn. Við skulum drífa okkur heim. Boðið er búið, Bára er komin í bleyti og majonesan er orðin gul.“

Pistilinn er uppfærð útgáfa af formála Stóru brauðtertubókarinnar sem kom út hjá Sögum útgáfu 2024. Myndir efst í grein eru allar frá félögum í Brauðtertufélagi Erlu og Erlu.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 22. ágúst, 2026, 10:28

Erla Hlynsdóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link