
Gímaldið hefur fengið ótrúlegar viðtökur. Nú tökum við næstu skref og viljum heyra frá ykkur. Fjölmiðill verður ekki til í tómarúmi heldur er það samfélagið sem skapar hann.

Sæl öll, kæru vinir og velunnarar,
Takk fyrir að skrá ykkur á póstlista Gímaldsins!
Loksins kemur póstur en við höfum fengið svo jákvæð viðbrögð við framtakinu að síðustu daga höfum við verið að ná utan um þau.
Væntanlega hafið þið skráð ykkur hér af því þið viljið taka þátt í að skapa eitthvað nýtt í flóru fjölmiðla á Íslandi. Við ætlum að leggja okkur allar fram um að standa undir væntingum. Sýn okkar er sú að skapa miðil þar sem fagmennska verður í fyrirrúmi en efnið jafnframt borið girnilega á borð, þannig að aðgengilegt sé að lesa, hlusta eða horfa á það. Þannig má bregða á leik á skapandi hátt, án þess að það bitni á faglegri nálgun.
Við lifum á tímum þegar ýmsir forðast jafnvel fréttamiðla, sumir til að halda sér í jafnvægi. En góð fréttaskýring býr yfir þeim áhrifamætti að geta jafnvel róað fólk, þó að innihaldið hrelli. Það að útskýra hlutina á aðgengilegan hátt og setja þá í sem réttast samhengi býr yfir þeim galdri að skýra hugsun fólks. Skilningurinn veitir okkur einhvers konar öryggi. Órólegur nútími krefst því yfirvegaðra umfjallanna. Já, því öflugri fjölmiðlar því öflugra samfélag.
Við hlökkum til þess að vera í samtali við ykkur og fá ykkur í lið með okkur við að skapa samfélag Gímaldsins.
Einhvern næstu daga sendum við stutta könnun til ykkar sem eruð á póstlistanum, þar sem við biðjum um álit ykkar. Endilega segið okkur hvað ykkur þykir vanta í íslenskt fjölmiðlaumhverfi og hvernig umfjallanir skipta ykkur máli. Við erum þakklátar öllum þeim sem koma sýn sinni á framfæri.
Við erum að vinna í því að koma samfélagsmiðlunum okkar í loftið. Við viljum endilega fá ykkur sem vini á Facebook og Instagram, þið finnið Gímaldið þar. Ef þið viljið hafa samband við okkur þá er best að senda okkur skilaboð þar eða tölvupóst á netfangið [email protected]
Með kærri kveðju,
Eyrún Magnúsdóttir og Auður Jónsdóttir
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.