
Rafrænt eftirlit með gerendum, fangelsi fyrir vændiskaup, þyngri refsingar og hærri bætur. Þetta og fleira er til skoðunnar í fyrstu Landsáætlun dómsmálaráðherra gegn kynbundnu ofbeldi gegn konum.

Dómsmálaráðherra hefur birt drög að landsáætlun gegn kynbundnu ofbeldi gegn konum, í Samráðsgátt stjórnvalda. Rafrænt eftirlit með gerendum, fangelsi fyrir vændiskaup, þyngri refsingar og hærri bætur. Þetta og fleira er til skoðunnar í fyrstu landsáætlun af þessari tegund.
Í drögunum eru 25 aðgerðir sem ráðast á í á næstu fjórum árum. Þetta er fyrsta landsáætlun sinnar tegundar og hún er byggð á skuldbindingum Íslands samkvæmt samningi Evrópuráðsins, kenndum við Istanbúl, um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi gegn konum og heimilisofbeldi.
„Baráttan gegn kynbundnu ofbeldi er eitt allra mikilvægasta jafnréttismál samtímans og hefur verið baráttumál Viðreisnar frá stofnun flokksins,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra og bætir við: „Með þessari landsáætlun stígum við skýr og afdráttarlaus skref til að auka öryggi þolenda, bæta þjónusta og auka þekkingu innan kerfisins.“
Áætlunin er meðal annars byggð á tilmælum eftirlitsnefndar sem starfar samkvæmt Istanbúl samningnum (GREVIO nefndin) en nefndin birti fyrstu stöðuskýrslu sína um Ísland í nóvember 2022.
Aðgerðirnar 25 taka til skilgreininga í lögum, verndar og stuðnings fyrir þolendur, forvarna, rannsóknar og saksóknar fyrir brot, samhæfðar stefnu og gagnaöflunar, efnislegs réttar, eftirfylgni og innleiðingar.
Hluti aðgerða samkvæmt áætluninni er þegar komnar á rekspöl og má þar nefna frumvarp ráðherra um nálgunarbann, sem þegar hefur verið lagt fyrir ríkisstjórn og verður lagt fram á Alþingi á næstu dögum. Með frumvarpinu er lagt til að lögfest verði heimild til að hafa rafrænt eftirlit með þeim sem sæta nálgunarbanni eða brottvísun af heimili að uppfylltum skilyrðum. Þessi breyting er í samræmi við tillögur GREVIO nefndarinnar og þeim var ætlað að styrkja réttarstöðu þeirra sem mega þola heimilisofbeldi og umsáturseinelti.
Önnur aðgerð í landsáætluninni er að efla notkun þess úrræðis að láta þá sem dæmdir eru til skilorðsbundinnar refsingar sæta meðferð. Lagaheimild er nú þegar fyrir hendi í almennum hegningarlögum til þessa en samkvæmt landsáætlun er stefnt að því að halda fræðslu um þessi efni fyrir ákærendur og dómara.
„Til þess að stuðla að því að skilorð gerenda ofbeldis í nánum samböndum og kynferðisofbeldis sé í auknum mæli bundið við meðferð, á borð við þá sem Heimilisfriður og Taktu skrefið veita, verður haldin fræðsla fyrir ákærendur og dómara. Til þess að skilorðsbundnir dómar sem eru bundnir slíkum sérskilyrðum þjóni tilgangi sínum þarf að vera unnt að framfylgja þeim eins og til er ætlast. Því verða settar skýrar reglur um umsjón og eftirlit Fangelsismálastofnunar þar um,“ segir í áætluninni.
Þá er lagt til að heiðurstengt ofbeldi hér á landi verði kortlagt og fræðsluefni um birtingarmyndir þess og neikvæðs félagslegs taumhalds gegn konum og stúlkum verði miðlað til starfsfólks í félagsþjónustu, lögreglu, innan skóla og frístundasviðs og heilbrigðiskerfisins. Einnig á að vinna fræðsluefni fyrir fatlað fólk.
Efna á til rannsóknar um viðhorf og reynslu fagfólks í refsivörslukerfinu af breytingum í lagaumhverfi og verklagi undanfarin ár og hvort frekari aðgerða sé þörf. Þessi aðgerð er tilkomin vegna tilmæla GREVIO um nauðsyn þess að geta lögregla og ákæruvalds í málaflokknum verði aukin og kortlagðir þeir þættir sem hægt hafa á meðferð kynbundinna ofbeldismála.
Koma á upp kerfisbundnu áhættumati vegna þeirra brota sem landsáætlunin tekur til. Þá verður kannað kannað hvort setja eigi á fót nefnd sem rannsaki kvennamorð. Slík nefnd hefði sambærilegt hlutverk og rannsóknarnefnd samgönguslysa sem kemur saman í hvert sinn sem einhver lætur lífið í samgönguslysi og rannsakar orsakir slysa með það fyrir augum að draga úr hættu á samskonar slysum og afleiðingum þeirra.
Kveðið er á um öflugri gagnaöflun en nú er haldið til haga og reglulega verði birt gögn um birtingarmyndir kynbundins ofbeldis. Markmið þessa er að samræmdar upplýsingar brotaþola, gerendur og tegundir brota verði aðgengilegar um allt land. Útlendingastofnun verði einnig falið að skrá, safna og birta gögn um fjölda umsókna um alþjóðlega vernd á grundvelli kynbundinna ofsókna.
Í kafla áætlunarinnar um efnislegan rétt er fjallað um vernd þolenda í forsjár og umgengnisdeilum, einkum að þolanda ofbeldis verði ekki gert að sæta lögbundinni sáttameðferð í forsjármálum. Þá er lagt til að vægasta refsing fyrir vændiskaup verði fangelsi en ekki sekt og skoðað verði hvort rétt sé að gera breytingar á lögum til að koma í veg fyrir að vændiskaupendur njóti nafnleyndar þegar mál fara fyrir dómstóla og gæta betur að réttindum seljenda vændis.
Í kaflanum er einnig fjallað um endurskoðun reglna um greiðslu bóta úr ríkissjóði til þolenda ofbeldis með það markmið að tryggja betur bótarétt þeirra.
Hér eru aðgerðirnar 25 sem dómsmálaráðherra leggur til í drögum Landsáætlunarinnar en hún verður til umsagnar í Samráðsgátt stjórnvalda til 6. janúar næstkomandi.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.