
Fereydoun Farrokhzad var einn vinsælasti listamaður Írans og síðar eitt helsta tákn andófs gegn klerkaveldinu. Saga hans er saga manns sem barðist fyrir kvenfrelsi, tjáningarfrelsi og réttinum til að elska og var myrtur fyrir það. Þetta er saga hetju sem fær ekki góðan endi en skilur eftir sig rödd sem þagnar ekki.

Ég rakst ekki á hann í bók, grein eða frásögn, heldur í flæði mynda og hljóða sem fólk í útlegð notar til að halda sambandi við land sem það má ekki snúa aftur til. Þegar fréttir af uppreisninni í Íran bárust dag eftir dag fór fortíðin að birtast í nútímanum, ekki sem saga heldur sem krafa. Það var í því samhengi sem rödd Fereydouns Farrokhzads fann mig.
Það sagði mér enginn frá honum. Enginn sýndi mér mynd af honum eða benti mér á heimildir. Ég rakst á hann í story.
Ég var að skoða uppfærslur á Facebook hjá Írönum sem ég þekki á Íslandi, fólki sem hefur þurft að endurskilgreina trú, sjálfsmynd og tengsl frá grunni en elskar samt enn landið sitt. Þetta er fólk sem fylgist ekki með því sem er að gerast í Íran af fræðilegum áhuga heldur með líkamanum, í gegnum hverja frumu. Oft án upplýsinga: Internetinu í Íran hefur verið lokað vegna mótmæla, fréttir eru óljósar og þá þarf að halda tengslunum og voninni lifandi í gegnum minningar.

Í einu story-inu var mynd með setningu sem sat eftir í mér:
„Íran er 7.000 ára > Íslamska klerkaveldið er 45 ára.“
Það lítur út eins og einföld jafna. En í raun er hún pólitík, saga og siðferðileg yfirlýsing.
Fjörutíu og fimm ár gegn sjöþúsund.
Augnablik gegn arfleifð.
Tímabundið regluverk gegn siðmenningu.
Með þessum tölum er valdið sett í samhengi, gert tímabundið og svipt þeirri kröfu að vera endanlegt. Boðskapurinn er hljóður en afdráttarlaus:
þið eruð ekki Íran — þið eruð aðeins lítill kafli í sögu þess.
Í sömu andrá er verið að aðgreina ríkið frá þjóðinni. Klerkaveldið er kerfi, stofnanir, lög og refsingar. Íran er allt annað: tungumál, ljóð, tónlist, fjölskyldur, borgir, vísindi, náttúra og minningar. Fyrir fólk í útlegð er þetta ekki bara pólitísk setning heldur sjálfsmyndaryfirlýsing. Hún segir: Ég er enn Írani, jafnvel þótt ég hafni ríkinu sem segist tala fyrir mig.
Undir myndinni hljómaði lag sem ég hafði aldrei heyrt. Það byrjaði ekki eins og hefðbundið lag, heldur eins og stuttur ræðubútur, rödd sem kom inn með ákefð, áður en kór tók við, kór sem var ekki að syngja til skrauts, heldur eins og hann væri að kalla fólk til vöku. Þetta var ekki bara tónlist. Þetta var minning sett í hljóm, krafa um að tíminn sjálfur tilheyrði ekki valdinu.
Ég skildi ekki öll orðin en ég skildi stemninguna. Þetta var ákall og ég vildi vita meira. Ég fór að leita. Fyrst að laginu, það er bara 49 sekúndna langt. Svo að röddinni. Svo að manninum. Smátt og smátt komst ég að því að ræðubúturinn er meðal þess sem hefur varðveist af rödd Fereydouns Farrokhzads. Og kórinn, þessi hópur sem söng eins og hann væri að halda lífi í einhverju sem mætti ekki deyja, var myndaður af flóttafólki frá Íran.
Þá breyttist þetta úr „forvitnilegu lagi“ í eitthvað miklu stærra: brú á milli kynslóða, á milli þeirra sem töluðu áður og þeirra sem eru neydd til að tala núna, á milli lands sem hefur verið kallað vagga siðmenningar og stjórnkerfis sem er aðeins eitt, stutt tímabil í sögu þess.
Ég las mér meira til. Og skyndilega opnaðist heimur sem var bæði menningarlegur og pólitískur, hlýr og harður í senn. Heimur manns sem virtist skilja það sem þessar tvær tölur segja í raun: að baráttan snýst ekki bara um völd dagsins í dag heldur um hver fær að eiga söguna, minninguna og framtíðina.
Ég vildi skilja hver hann var og hvers vegna rödd hans lifði enn á samfélagsmiðlum áratugum eftir dauða hans. Þegar ég fór að grúska kom í ljós að hann var sannarlega einstakur: skáld, tónlistarmaður, leikari, sjónvarpsstjarna og pólitískur aktívisti. Hetja sem fær aldrei góðan endi.
Á Internetinu má víða sjá tilvitnanir í orð hans, myndbrot úr fjörugum sjónvarpsþáttum og ákall hans til frelsis hljóma á ný í samhengi sem hann sjálfur lifði ekki til að sjá.
Hann leit út eins og kvikmyndastjarna síns tíma, með geislandi sviðsframkomu og svo sjálfsöruggur að hann vílaði ekki fyrir sér að birtast í glanstímaritum með bleika svuntu, barn í annarri hendi og diskastafla í hinni. Við hlið hans sat eiginkonan í hefðbundnum brúðarkjól: kyrr, næstum valdsmannsleg — eins og mótvægi við leikandi uppreisn hans.

Ljósmyndina sjálfa og fleiri góðar myndir af Fereydoun getið þið skoðað á instagram-síðu The Teheran Times, sem staðsett er í Frakklandi.
Myndin virkar í fyrstu létt og jafnvel fyndin. En hún er ekkert saklaus. Hún er leikur að kynhlutverkum, valdi og væntingum. Hann var ekki bara að skemmta. Hann var að ögra — og Íranir, flestir þeirra, elskuðu hann fyrir það.
Í nokkrar vikur hef ég hugsað um hann og vitað að ég yrði að segja fleira fólki frá honum. Hér segi ég því frá lífi og áhrifum Fereydouns Farrokhzads og flétta ég saman persónulega sýn mína og staðreyndir um þennan litríka listamann og andófsmann sem barðist fyrir tjáningarfrelsi, gegn klerkaveldi Írans og fyrir réttinum til að vera maður sjálfur og elska þann sem maður vildi, rétt sem hann leit á sem ófrávíkjanlega undirstöðu annarrar réttindabaráttu.
Fereydoun Farrokhzad fæddist árið 1938 í Teheran í Íran, sonur háttsetts embættismanns í hernum. Hann var í hópi sjö systkina, í systkinahópnum var skáldkonan og kvikmyndaleikstjórinn Forough Farrokhzad, sem síðar varð táknmynd frjálsrar tjáningar og kvenréttindabaráttu í Íran. Forough braut blað í bókmenntum landsins með því að skrifa opinskátt um líkama kvenna, ást, kynferðislegar langanir og sjálfstæði á tímum þegar slíkt var bæði tabú og hættulegt. Og já, hún fékk svo sannarlega að gjalda fyrir það dýru verði en það er efni í aðra grein.

Fereydoun ólst upp í nánum tengslum við þessar hugmyndir. Hann heillaðist snemma af ljóðum, kvenfrelsishugmyndum og tónlist, líkt og systir hans, en einnig af þeirri hugmynd að list gæti verið tæki til frelsunar. Hugmyndir Foroughs um sjálfræði, jafnrétti og réttinn til að tala óhrædd mótuðu sýn hans á samfélagið og hlutverk listamannsins í því.
Í Þýskalandi, þar sem hann nam stjórnmálafræði og nútímasögu á sjöunda áratugnum, kynntist hann hugmyndum um lýðræði, tjáningarfrelsi og menningu sem mótandi afl í samfélaginu. Þar varð honum sífellt ljósara að pólitík ein og sér nægði ekki til að breyta heimi fólks, hún þurfti rödd, ímynd og tilfinningu. Þegar hann sneri aftur heim var hann því brennandi af ástríðu fyrir listum, ekki þrátt fyrir námið, heldur einmitt vegna þess.
Fljótlega gerði Fereydoun Farrokhzad garðinn frægan í írönsku útvarpi og sjónvarpi. Hann stjórnaði vinsælum útvarpsþætti og síðar sjónvarpsþættinum Mikhak-e Noghrei (sem líklega myndi þýðast sem Silfurnegullinn) glæsilegum þætti sem fléttaði saman tónlist, húmor og samfélagslegri umræðu. Í þeim þætti kynnti hann ótal nýja listamenn sem síðar urðu stórstjörnur en á meðal þeirra nafna sem Íranir nefna í frásögnum eru söngvararnir Ebi, Leilu Forouhar, Shohreh og Sattar (ég mæli með að þið hlustið).
Á þessum árum var íranska sjónvarpið áhrifamesti vettvangurinn. Vinsælir þættir sameinuðu fjölskyldurnar í stofunum, kvöld eftir kvöld. Silfurnegullinn var ekki jaðarþáttur fyrir menningarlega innvígða heldur hluti af sameiginlegu lífi þjóðarinnar. Á sviðinu hafnaði hann hugmyndinni um hinn hefðbundna karlmann. Konur voru ekki viðfang heldur þátttakendur, sýnilegar, virkar og metnar að verðleikum. Áhorfið var gríðarlegt; milljónir Írana fylgdust með Farrokhzad vikulega, ekki aðeins til að hlæja eða hlusta á tónlist, heldur til að sjá hvað hann myndi segja næst, hvaða mörk hann myndi færa til og hversu langt hann myndi ganga að þessu sinni.
Farrokhzad talaði opinskátt um málefni sem aðrir forðuðust: stöðu kvenna, frelsi einstaklingsins og rétt fólks til að falla ekki að þröngum samfélagslegum normum. Í því samhengi sýndi hann einnig samúð með jaðarsettum hópum, þar á meðal samkynhneigðum, á tímum þegar slík umræða var nánast óhugsandi í írönsku almannarými og raunar víðast hvar annars staðar.
Fereydoun óttaðist ekki að ögra valdhöfum, hvort sem þeir voru veraldlegir eða trúarlegir. Hann hikaði ekki við að gera grín að því sem alls ekki mátti hæðast að, klerkunum. Keisarann sjálfan hæddi hann sjaldan beint, en samfélagsádeilan var svo skýr að hún fór ekkert fram hjá neinum. Þetta varð til þess að á síðari hluta sjöunda áratugarins og fram á þann áttunda lenti hann í vaxandi útistöðum sem hann hafði þótt hljótt um.
Á þessum árum var Fereydoun Farrokhzad einn ástsælasti skemmtikraftur Írans. Hann notaði húmorinn sem skjöld gegn ritskoðun, en jafnframt sem vopn gegn valdi. Hann var orðinn fastur liður í lífi almennings og í þeirri stöðu naut hann ákveðins svigrúms. Hann var of elskaður til hægt væri að þagga niður í honum án þess að það hefði afleiðingar. Um tíma virtist hann því nær ósnertanlegur.
En þetta svigrúm var brothætt.
Eftir því sem rödd Farrokhzads varð skýrari, og ádeilan beittari, fór verndin sem vinsældirnar veittu að molna. Hann þótti hafa „ófriðlega frjálslyndar“ skoðanir.
Í nóvember 1978 var hann skyndilega rekinn úr starfi sínu sem dagskrárgerðarmaður á Ríkisútvarpi Írans eftir að upp komst að hann hefði heimsótt fjölskyldu æskuvinar sem tengdist vinstrisinnaðri hreyfingu, einhverju sem yfirvöld þoldu ekki.
Skömmu síðar var ráðist inn á heimili hans, oftar en einu sinni. Hann var handtekinn, bundið fyrir augu hans og hann settur í einangrun.

Þegar íslamska byltingin skall á í Íran árið 1979 reis Farrokhzad upp sem eitt fremsta tákn frelsis og andófs gegn nýju klerkavaldi. En áður en við víkjum að þeim kafla vil ég fá að staldra aðeins aftur við myndina af honum með bleiku svuntuna.
Á frægri ljósmynd frá áttunda áratugnum, sem hér var nefnd að ofan, birtist Fereydoun Farrokhzad með bleika svuntu um sig miðjan, stafla af diskum í annarri hendi og barn í hinni. Áhorfendur þekktu hann fyrir litríkar sviðsmyndir og óvænt uppátæki en þetta atriði vakti sérstaka athygli.
Hann benti á fáránleikann í því að festast í gamaldags hugmyndum um hvað karlar og konur mættu eða ættu að gera.Af hverju ættu karlar ekki að klæðast bleikum lit eða sinna börnum? Í bleiku svuntunni fólst bæði skopstæling á hlutverki húsmóðurinnar en líka virðingarvottur við störf þeirra.
Í öðrum þáttum fékk hann börn til að koma fram og talaði við þau af alúð, eða benti á að feður gætu verið jafn mikill hluti af lífi barna sinna og mæður. Með fjölda eftirminnilegra uppátækja tókst Farrokhzad að koma kvenfrelsisumræðu og gagnrýni á staðalímyndir inn á heimili fólks um allt Íran, án þess að predika eða hneyksla um of. Fólk hló en hugsaði sitt. Þetta var á tíma þegar bylting var í loftinu í Íran; ungt fólk þráði breytingar og jafnrétti en bæði keisarastjórnin og síðar klerkaveldið reyndu að hafa hemil á slíkri róttækni.
Í febrúar árið 1979 hrundi heimsmynd margra Írana. Keisarinn flúði land og íslamska byltingin, undir forystu Ayatolla Khomeini, færði klerkaveldið til valda. Maður sem hafði byggt feril sinn á frjálsri tjáningu, húmor og samfélagslegri gagnrýni var í lífshættu.
Árið 1981 flúði hann Íran. Sú ákvörðun var honum ákaflega erfið. Fereydoun elskaði land sitt af öllu hjarta og átti djúp tengsl við fjölskyldu sína, ekki síst móður sína.
Hann sá alla tíð eftir því að hafa farið.
Hann flúði dulbúinn, með vegabréf bróður síns, og leið hans lá um Tyrkland og París til Vestur-Þýskalands, þar sem hann fékk hæli. Þar hófst nýr kafli – ekki frelsissaga, heldur útlegð.
Í Íran hafði Farrokhzad verið þjóðþekkt stjarna með rödd og áhrif. Í Evrópu varð hann einn af mörgum flóttamönnum sem þurftu að byrja upp á nýtt. Umskiptin reyndust honum sársaukafull. Hann barðist við þunglyndi, fjárhagserfiðleika og djúpa tilfinningu um að hafa verið rifinn úr sínu samhengi, menningu og tungumáli.
Í formála ljóðabókar sem hann gaf út í útlegð skrifaði hann:
„Ég skammast mín fyrir að fyrsta upplag ljóðabókar minnar sé gefið út í Los Angeles. Sú borg er ekki borg heldur frumskógur… kannski verður bókin blíð gola fyrir sálir sem eru þreyttar á svikum og glæpum.“
Í viðtali árið 1989 sagði hann:
„Ég er frjáls hugsandi einstaklingur. Ég vona að einn daginn geti ég snúið aftur til heimalandsins og lagt mitt af mörkum fyrir þjóð mína… Mig langar að byggja, leggja einn stein ofan á annan, planta trjám.“
Í sama viðtali bætti hann við, af sárri hreinskilni:
„Ég hefði aldrei átt að fara.“
Setning sem fangar tvíræðni útlegðarinnar fullkomlega: nauðsynlega ákvörðun sem samt skilur eftir sig ævilanga sorg.
Reynsla Farrokhzads af útlegðinni var ekki aðeins pólitísk heldur djúpt persónuleg. Um leið og hann varð frjálsari til að gagnrýna klerkaveldið opinberlega mætti hann nýjum hindrunum ekki síst þeim sem sneru að eigin sjálfsmynd. Stærsti ósýnilegi múrinn laut að kynhneigð hans.
Í Íran hafði einkalíf hans aldrei verið rætt opinberlega en kjaftasögur höfðu fylgt honum um árabil. Hann hafði kvænst tvívegis glæsilegum og gáfuðum konum og eignaðist son með þeirri fyrri. Eftir skilnaðina fór orðrómur á kreik um að hann væri samkynhneigður.
Í útlegðinni varð þessi þáttur lífs hans ekki lengur aðeins einkamál, heldur pólitískt vopn. Sumir í íranska útlagasamfélaginu litu á hann með tortryggni; aðrir hvöttu hann til að halda þessu fyrir sig, „að minnsta kosti um stund“. Vinur hans og tónlistarmaður, Esfandiar Monfaredzadeh, sagði síðar:
„Farrokhzad leit ekki á það sem skömm að vera samkynhneigður og vildi að fólk vissi — en það var alltof snemmt fyrir þann tíma.“
Ráðin voru gefin í góðum huga en þau gengu gegn eðli hans.
Fyrir Farrokhzad var þögn ekki hlutlaus. Hún var lygi. Og lygi, að hans mati, var ein af birtingarmyndum ofbeldis.
Í Vestur-Þýskalandi á níunda áratugnum var samkynhneigð að vísu ekki lengur beinlínis glæpsamleg en fordómarnir lifðu áfram.
Smám saman tók Farrokhzad þá ákvörðun að segja sinn sannleika opinberlega, ekki til að ögra, heldur til að lifa í samræmi við eigin siðferðiskennd. Á tónleikum í Sydney árið 1991 stóð hann fyrir framan áhorfendur sína og sagði undanbragðalaust:
„Ég ætla að standa hér fyrir framan ykkur eins og maður og segi ykkur það sem ég hugsa. Í tíu ár á ævi minni bjó ég með manni og elskaði hann út af lífinu.“
Í salnum varð þögn, stutt og þung, næstum andakt. Síðan braust út lófatak. Leyndarmáli hafði verið aflétt, reyndar leyndarmáli sem margir vissu en enginn hafði þorað að nefna það upphátt. Farrokhzad vissi að sumir myndu snúa við honum baki og aðrir myndu nota þetta gegn honum. En fyrir honum var þetta spurning um mannlega reisn. Að lifa í felum, jafnvel í útlegð, jafngilti því að gefa eftir fyrir sömu öflum og hann hafði barist gegn alla tíð.
Um leið og Farrokhzad fótaði sig persónulega í útlegðinni hóf hann einnig pólitíska baráttu úr fjarska. Hann gat einfaldlega ekki setið auðum höndum á meðan landar hans bjuggu við kúgun, aftökur og þöggun heima fyrir. Útlegðin varð ekki athvarf heldur nýr vettvangur.
Í Evrópu og Bandaríkjunum tók hann þátt í fjölmörgum mótmælum gegn írönskum stjórnvöldum. Í San Francisco, Los Angeles, London og París, hvar sem írönsk útlagasamfélög komu saman til að mótmæla klerkaveldinu var Farrokhzad áberandi. Aðdáendur kölluðu hann menntaðan föðurlandsvin; hann var jú með doktorspróf í stjórnmálafræði.
Frá árinu 1982 var hann fastur þáttastjórnandi í vikulegum útvarpsþætti fyrir útlagasamtök sem nefndust Derafsh-e Kaviani, Fánaberi frelsisins. Þátturinn, Halló, nágrannar!, var sendur út frá París og síðar Svíþjóð og barst á öldum ljósvakans til Írana bæði í útlegð og innanlands. Líkt og í sjónvarpi áður blandaði Farrokhzad saman tónlist og orðum.
Hann hikaði ekki við að gagnrýna Ayatolla Khomeini og klerkastéttina opinberlega. Í ræðum sínum beitti hann háði af mikilli leikni og beindi spjótum sínum að helgimyndum valdsins. Á einum tónleikum sagði hann meðal annars, með sínum einkennandi bitra húmor, að aðeins Khomeini sjálfur gæti skrifað reglur svo fjarstæðukenndar að þær líktust skopmynd af trú.
Í framhaldinu minnti hann landsmenn sína stöðugt á menningararfinn:
„Þið eruð börn Saadi, Hafez, Rúmí og Avicenna — ljóðskálda, hugsuða og lækna sem mótuðu siðferðisvitund, kærleika og rökhyggju persneskrar menningar — en hafið endað með klerkum sem fyrirlíta bæði ljóð og vísindi.“
Með þessum orðum kallaði hann ekki aðeins klerkaveldið til ábyrgðar heldur einnig þá sem höfðu sætt sig við það.
Upptökur af ræðum hans fóru í dreifingu á hljóðsnældum, rétt eins og boðskapur Khomeinis hafði gert á sínum tíma. Kassettur voru afritaðar, þær gengu manna á milli og jafnvel smyglað inn til Írans. Rödd Farrokhzads lifði neðanjarðarlífi, ekki í gegnum opinbera miðla heldur í stofum, bílum og lokuðum herbergjum þar sem fólk hlustaði í kyrrþey.
Sem ræðumaður var Farrokhzad óvenjulegur. Rödd hans var hlý þegar hann talaði um börn, minningar eða menningu, en hvöss og miskunnarlaus þegar hann beindi orðum sínum að harðstjórninni.
Á tónleikum sínum lauk hann nær undantekningarlaust með því að leiða salinn í söngnum Ey Íran, óopinberum þjóðsöng Persa.
Smám saman breyttist hlutverk hans. Hann var ekki lengur aðeins listamaður í útlegð, heldur táknmynd andófs. Rödd sem áður hafði glatt heimili landsins varð nú óþægileg, beinskeytt og reið. Og valdið hlustaði.
Eftir því sem rödd Farrokhzads varð háværari varð staða hans ótryggari. Nafn hans birtist á svörtum listum írönsku leyniþjónustunnar ásamt öðrum útlagaleiðtogum.

Á sama tíma fór hringurinn einnig að þrengjast innan útlagasamfélaganna sjálfra. Ágreiningur, tortryggni og illdeilur settu svip sinn á lífið í diaspora-samfélaginu. Mannúðarstarfi hans, ekki síst aðstoð við barnunga íranska stríðsfanga í Írak, var snúið upp í ásakanir um fjárdrátt. Þótt þær reyndust haldlausar urðu þær til þess að einangra hann félagslega og grafa undan orðspori hans. Þunglyndi og fjárhagserfiðleikar sóttu á. Á sama tíma varð hann opnari um sjálfan sig. Þessi opna sjálfsmynd, ásamt sífellt harðari gagnrýni á klerkaveldið, jók hættuna. Hann fékk ítrekaðar hótanir. Vinir vöruðu hann við. Sumarið 1992 var hann þó enn á ferðinni, enn að tala, enn að syngja. Á tónleikum í Vancouver sama ár var reiði hans bersýnilegri en áður. Hann talaði af sársauka og ást og endaði, að vanda, á söngnum Ey Íran. Nú vitum við að það var hans svanasöngur.
Fereydoun Farrokhzad var myrtur 55 ára gamall. Frægðarsól hans var ekki að ganga til viðar; hún stóð hátt á lofti, í nýjum og alþjóðlegum fasa. Skömmu áður hafði hann leikið í kvikmyndinni I Love Vienna, austurrískri mynd sem var valin sem framlag landsins til Óskarsverðlaunanna í flokki erlendra kvikmynda.
Hann fannst myrtur í íbúð sinni í Bonn í Þýskalandi. Á líkama hans var óheyrilegur fjöldi stungusára. Allt benti til þess að morðinginn hefði þekkt Farrokhzads; matur hafði verið borinn á dúkalagt borð.
Þýsk yfirvöld komust aldrei til botns í málinu en fáir efast um ástæður þess. Morðið bar öll einkenni svokallaðra keðjumorða sem voru kerfisbundnar aðgerðir íranskra stjórnvalda gegn andófsmönnum í útlegð. Aðkoman var skelfileg. Rödd Farrokhzads var þögguð með ofbeldi – en þó ekki.


Þegar ég skoðaði myndir af Farrokhzad tók ég eftir augljósum líkindum við annan mann sem lifði líka á mörkum fegurðar, dirfsku og sviðslista: Freddie Mercury. Ég sá fljótlega að fleiri höfðu tekið eftir þessu. Líkindin liggja ekki aðeins í sviðsframkomu eða handahreyfingum heldur í sameiginlegum undirstraumi, þeirri list að leyfa sér að vera margbrotinn maður í heimi sem vill einfalt fólk.
Freddie Mercury, fæddur Farrokh Bulsara, kom úr Parsi-fjölskyldu, minnihlutahópi af írönskum uppruna með menningararf sem tengist Persíu. Fjölskylda hans flúði síðar Zanzibar og settist að í Bretlandi. Hann var líka maður milli heima: innflytjandi, jaðarsettur, en of stór persónuleiki til að verða þægilegur.
Ég fann engar heimildir sem sýna bein tengsl eða áhrif milli þeirra. En stundum þurfa þau ekki að vera bein. Stundum er það bara sama tungumál listamanna sem neituðu hefðbundnum hlutverkum og notuðu sviðið til að ryðja brautina.

Ég settist við að skrifa þessa grein með eina mynd í huga: Fereydoun Farrokhzad með bleika svuntu, með geislandi bros þess sem óttast fátt en elskar þeim mun meira. Í myndinni felst arfleifð hans: leikur og alvara í senn, grín sem er pólitík, fegurð sem er andóf. Hún var bæði gríma og afhjúpun, leið til að komast framhjá ritskoðun og um leið aðferð til að afhjúpa fjötra samfélagsins.
Þegar rödd hans hljómaði á samfélagsmiðlum áratugum eftir dauða hans, hjá ungu fólki á Íslandi sem lifir í útlegð frá Íran, var það ekki til að rifja upp liðna tíð heldur til að tala inn í nútímann. Farrokhzad er brú: milli kynslóða, milli heimalands og útlegðar, milli fortíðar og nútíðar.
Farrokhzad lifir áfram vegna þess að hann tilheyrir ekki einum tíma né einu landi. Hann tilheyrir fólki sem neitar að láta segja sér hver það megi vera. Og slíkt fólk veit að klerkaveldið er aðeins stuttur kafli í langri sögu Írans, sögu sem er enn í skrifum.

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.