Þjóðfélagsumræðan seld hæstbjóðanda

Lestími: 7 mínútur

Tveir stærstu keppast um að ná forskoti, en það er mjótt á munum. Miðað við nýjustu spár fær annar 26,4 prósent, hinn 26,8 prósent. Nei, þetta er ekki kosningaspá.

a group of different social media logos

Tölurnar eru úr nýrri spá um hlutdeild tveggja tæknirisa, Alphabet (Google og Youtube) og Meta (Facebook og Instagram), í auglýsingum á netinu á þessu ári. Helstu spekingar segja að nú dragi til tíðinda því að Meta tróni á toppnum í heiminum í fyrsta sinn og hali inn 245 milljörðum dala í auglýsingatekjur á meðan Alphabet verði að sætta sig við 240 milljarða dala. Til hamingju Mark Zuckerberg! 

Samanlagðar auglýsingatekjur þessara tveggja risa gætu því orðið 485 milljarðar dala í ár. Um fimmtánfalt íslenska hagkerfið.  

Auglýsingakerfin sem tæknifyrirtækin nýta eru mjög þróuð enda búa risarnir að því að vita nær allt um notendur sína. Við deilum með þeim upplýsingum um hvert við förum, hverja við hittum, hvaða tónlist við hlustum á, hvað við horfum á, hvað börnin okkar heita, hvernig börnunum okkar líður, hvaða skoðanir við höfum á mönnum og málefnum, hvað við kaupum og svo mætti lengi telja. Mark Zuckerberg og félagar þekkja okkur líklega betur en við sjálf. 

Samband okkar við samfélagsmiðla er flóknara en flest önnur sambönd. Á sama tíma og við reynum stöðugt að finna leiðir til að minnka samfélagsmiðlanotkun, gerum okkur vel grein fyrir að þeir eru helsti vettvangur upplýsingaóreiðu og dreifimiðstöð falsfrétta og jafnvel megi kalla þá kjörlendur þeirra sem vilja ginna börn og óhörnuð ungmenni – þá tökum við samt öll þátt og getum eiginlega ekki án þeirra verið.

Með hálfgert óbragð í munni höldum áfram að peppa tæknibræður í Kísildal með stöðugri notkun okkar, vænu streymi af efni úr lífi okkar og starfi og tryggjum þannig Zuckerberg og félögum fullt aðgengi að skrifum okkar, gögnum, myndum og myndböndum. Og svo kaupum við af þeim auglýsingar fyrir milljarða til að halda maskínunni gangandi. 

Mark Zuckerberg hefur yfir mörgu að gleðjast. Meðal annars því að hagnast meira en nokkru sinni fyrr á auglýsingum á samfélagsmiðlum sínum. Mynd/Creative Commons/ Anirudh Koul

Fjölmiðlar í Kanada fengu sig fullsadda fyrir þremur árum af því að mata samfélagsmiðla á fréttaefni og sögðu stopp, við viljum fá greitt fyrir notkun á okkar efni. Lög voru sett um það að samfélagsmiðlar mættu ekki deila efni fjölmiðla nema greiða fyrir það. Fyrir vikið samdi Google, eigandi Youtube, við kanadísk yfirvöld um greiðslur í nokkurs konar samfélagssjóð blaðamennsku, sem fjölmiðlar fá svo greitt úr fyrir efni sitt. Konungur Meta-veldisins, Mark Zuckerberg, tók slíkan samning ekki í mál og lokaði þess í stað á fréttir kanadískra fjölmiðla á samfélagsmiðlum Meta. Það frekjukast stendur enn yfir. 

Afleiðingarnar hafa verið töluvert neikvæðar. Þótt Kanadamenn séu almennt sammála um að það hafi verið „það rétta í stöðunni“ að setja Meta stólinn fyrir dyrnar þá sé Kanada að tapa störukeppninni við tæknirisann. Það gæti því verið hagstæðara, bæði fyrir almenning og kanadíska fjölmiðla, að gefast upp og viðurkenna ósigur.

Áhrif bannsins hafa verið margvísleg. Til að mynda hefur áhorf á sjónvarp og hlustun á útvarp aukist, en það myndaðist engu að síður tómarúm á samfélagsmiðlum þegar fjölmiðlum var úthýst. Það rými eru samsæriskenningasmiðir, spunameistarar og aðrir vandræðagemsar meira en til í að fylla upp í með óvönduðum og misvísandi upplýsingum. Áhyggjur þeirra Kanadabúa sem vilja að kanadíska ríkið láti undan frekjunni í Zuckerberg snúa ekki síst að því að efni sem er sett fram af sérhagsmunaöflum sé dulbúið sem fréttaefni. Mótvægi ritstýrða fjölmiðla vanti og staðreyndavöktun sé ábótavant. 

flag of Canada
Í Kanada þurfa fjölmiðlar ekki að læra nýjustu duttlunga algóryþmans á Facebook, efni þeirra fær einfaldlega ekki dreifingu á samfélagsmiðlum Meta, sama hvað. Mynd/ Jason Hafso / Unsplash

Vandinn, sem Kanadamenn hafa rekið sig illilega á, er að það er hægt að láta svo margt líta út eins og efni fjölmiðla. Áferðin er sú sama, hvort sem það er „frétt“ frá sérhagsmunahópi eða alvöru frétt frá fjölmiðli. Það sem ruglar enn frekar í rýminu er að okkur hættir til að meta til jafns efni sem birtist á sama vettvangi. „Æ, þetta er eitthvað sem einhver birti á Facebook,“ segjum við en munum svo kannski ekki hver birti eða hvort viðkomandi er treystandi til að vita nokkuð um málið. Vel unnar fréttir og fréttaefni er ekki bara einhver sem segir eitthvað. Og þær eiga heldur ekki að snúast um hver galar hæst eða getur sagt það sem er hneysklanlegast. Gott efni á að upplýsa, fræða, skýra út. Auka skilning okkar á viðfangsefninu og jafnvel veröldinni. En á samfélagsmiðlum er ekki endilega gerður greinarmunur á aðalatriðum og aukaatriðum. 

Samband okkar við samfélagsmiðla er í raun kúgunarsamband. Við elskum þá og hötum til skiptis. Við styrkjum þá dyggilega og viljum vera í sambandinu þegar allt gengur vel en innst inni þráum við ekkert heitar en að komast í burtu, verða frjáls. 

Fyrirtæki í flestum geirum þekkja þetta erfiða samband vel. Líka fjölmiðlar og stjórnmálafólk. Algóryþminn forgangsraðar tilteknum tegundum af efni og þá eltast allir við að gera slíkt efni, þjálfa jafnvel upp starfsfólk til að læra á samfélagsmiðla. Allir vilja skara fram úr á þessum miðlum til að halda í við samkeppnina. En svo gerist það að Mark Zuckerberg ákveður að breyta algóryþmanum. Þá þarf að læra allt upp á nýtt. 

Samfélagsmiðlarnir kúga okkur til hlýðni við kerfi sem við kusum ekki yfir okkur, sem við áttum okkur oft ekki að við erum hluti af. Kerfi sem við styðjum dyggilega en þolum samt ekki. 

Frá litla Íslandi fara fimmtán milljarðar króna beinustu leið úr landi, skattfrjálst, ár hvert í að smyrja samfélagsmiðlavélina með auglýsingakaupum. Fyrir utan allan tímann sem við verjum þarna inni í misgagnleg erindi.  

Óafvitandi fara fjölmiðlar líkt og aðrir að hugsa „Hvað virkar á samfélagsmiðlum?“ frekar en „Hvað þarf fólk að vita? Hvaða spurninga er mikilvægt að spyrja? Hver eru aðalatriðin?“ Frambjóðendur í kosningum falla í sömu gryfju, auk þess að keppa um athygli við sérhagsmunaöfl sem vilja líka hafa sín áhrif. Samfélagsmiðlar forgangsraða ekki eftir gæðum, ekki eftir mikilvægi eða samfélagslegu gildi. Þeir raða eftir duttlungum, eftir algóryþmum sem geta breyst fyrirvaralaust. En fyrst og fremst raða þeir eftir því sem gefur mestar tekjur. Peningar stjórna þessari vél eins og mörgum öðrum.

Auðvitað eru samfélagsmiðlar ekki alslæmir. Þeir hafa til dæmis fært ýmsum rödd sem höfðu hana ekki áður. Einhverjir hafa náð í gegn, vakið athygli á málum sem annars hefðu verið þöguð í hel. En í stóra samhenginu er upplýsingaumhverfi sem stýrt er af tæknirisum er ekki sérlega kræsilegt. Og alls ekki lýðræðislegt. Samband okkar við samfélagsmiðla tekur meira frá okkur en það gefur, en við höngum á því vegna þess að það eru ekki neinir aðrir meira spennandi fiskar í sjónum. 

Miðlarnir sem kenndir eru við samfélag eru ekki sérlega samfélagslega þenkjandi. Þetta er gott að hafa í huga nú þegar kosningar nálgast. Aðalatriðin eru ekki endilega það sem lendir efst í bunkanum sem Mark Zuckerberg vill að þú sjáir. Aukaatriðin verða ekki síður áberandi, svo lengi sem einhver er til í að borga fyrir að koma þeim á framfæri.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 25. apríl, 2026, 09:37

Eyrún Magnúsdóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link