Sjálfselskan í kjörklefanum og öll ímynduðu vandamálin

Lestími: 4 mínútur

Kosningar draga fram sjálfselskuna í okkur öllum. Við fáum tækifæri til að vera ein í kjörklefanum með okkar atkvæði. Fáum að handleika það, eiga með því stund stórrar ákvörðunar og stinga því svo nafnlausu ofan í kassa. Enginn þarf að vita, við erum ein í litla klefanum og ráðum okkur sjálf. Enginn segir okkur til.

a rainbow painted street in the middle of a city

Kosningar draga fram sjálfselskuna í okkur öllum. Við fáum tækifæri til að vera ein í kjörklefanum með okkar atkvæði. Fáum að handleika það, eiga með því stund stórrar ákvörðunar og stinga því svo nafnlausu ofan í kassa. Enginn þarf að vita, við erum ein í litla klefanum og ráðum okkur sjálf. Enginn segir okkur til.

Þetta er okkar mál, okkar atkvæði. Við ráðum.

Í aðdraganda kosninga er ein stærsta spurningin sem hent er á loft: Hvað getur sveitarfélagið mitt gert fyrir mig? Svo kokkum við upp svör við þessari spurningu eftir ýmsum leiðum. Horfum gjarnan yfir málefnaflokka og skoðum hvar okkur þykir sveitarfélagið sem við búum í geta staðið sig betur. Við glápum kannski á símann og skrollum yfir misgáfuleg kosningamyndbönd, þrælum okkur í gegnum löng viðtöl við frambjóðendur eða umræðuþætti með sjálfskipuðum spekingum og kjósum svo eftir því hvaða frambjóðanda eða flokki við treystum best til að fullnægja þörfum okkar.

Hver getur gert mest fyrir mig, akkúrat núna?

Hvað ef við prófuðum að spyrja í kjörklefanum: Hvað get ég gert? Hvert er mitt hlutverk? Hvernig get ég nýtt atkvæðið til að tryggja lífvænlegt sveitarfélag sem þjónar næstu kynslóðum betur en nú? 

Ef við snúum málunum svona þá lánast okkur kannski að draga ögn úr sjálfselskunni og setja fókus á næstu kynslóðir. Það er ekkert víst að þessi hugaræfing breyti því hvert atkvæðið okkar fer, en það er gott að víkka út mengið áður en við gerum upp hug okkar. 

Heilt yfir höfum við, sem byggjum þetta land, það bara fínt og sveitarfélögin okkar eru almennt ágætis félög. Víða er karpað um hversu stór þau eiga að vera, hvort rétt sé að sameinast en stóra myndin er sú að við rífumst einna mest um hluti sem geta ekki flokkast undir annað en fyrsta heims vandamál. Ruslabílnum seinkar, það vantar nýtt dekk í róluna, maturinn í skólanum er ekki nógu góður, bílastæðið mitt er ekki nógu nálægt búðinni og svo framvegis. 

Þegar brestur á með kosningabaráttu er síðan engu líkara en að frambjóðendur setji á sig gúmmíhanska og róti í ruslinu eftir ómerkilegu máli, dusti af því rykið, gefi nýtt nafn og gangi svo um götur og bendi grafalvarlegir á svip á að þetta mál muni setja allt á hliðina ef ekkert verði að gert. Pólitísk frasavél er ræst af öllu afli og ruglinu síðan úðað yfir kjósendur. 

Við erum oft ringluð og hugsum, já þetta hljómar eins og vesen, en er þetta raunverulegt vandamál? Þarf ég að snúa atkvæði mínu á einhvern ákveðinn hátt til að þetta mál leysist?

Til þess að lausnirnar hljómi eins og þær séu nauðsynlegar þarf vandamálið að vera trúverðugt. Þess vegna eru vandamál svo vinsælt viðfangsefni í kosningabaráttu. Þá getur frambjóðandi sprottið fram sem lausnari. 

Fegurðin við kosningar er eiginlega írónían við þessa sjálfselsku allt um kring, hjá kjósendum og frambjóðendum. Á endanum snýst þetta auðvitað um samfélag og það að geta byggt upp í sameiningu. 

Við, kjósendur, stöndum pínu einmana og sjálfselsk með okkar atkvæði í klefanum. Förum í huganum yfir okkar mál sem við teljum okkur vera að kjósa lausnir við. 

Frambjóðendur standa keikir í sjónvarpsútsendingum með einstakar lausnir, svo hugvitssamar að þeir sjálfir hafa aldrei áður heyrt neitt jafn gáfulegt. Þau bjóða öll eitthvað einstakt, eitthvað sem engum hefur áður dottið í hug. Frasapólitík eða ekki, þetta er þeirra móment og þau segja það sem þarf að segja til að tryggja þitt atkvæði. 

Atkvæðið er afruglari okkar kjósenda.

Við handleikum það og hugsum um alla frasana, öll vandamálin sem við heyrðum af í kosningabaráttunni. Svo reynum við að meta hvað af þessu var raunverulegt og hvað ekki. Hvað var satt og hvað var logið. Hverjum er treystandi og hverjum ekki. 

Svo er bara að bíða og sjá. 

Gleðilegan kjördag!

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 16. maí, 2026, 08:24

Eyrún Magnúsdóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link