Starfsfólk Meta látið þjálfa gervigreindina sem tekur störfin þeirra

Lestími: 4 mínútur

Hversu hratt hreyfist músin og hversu lengi ertu að slá inn einn tölvupóst? Hjá tæknirisanum Meta hefur verið komið upp hugbúnaði sem fylgist með allri tölvuhegðun starfsfólks í rauntíma og tekur jafnvel skjáskot af tölvuskjám þeirra. Tilgangurinn? Að þjálfa gervigreind.

woman sitting and using MacBook Air and Apple Magic mouse

Meta, eigandi Facebook, Instagram og Whatsapp, tilkynnti í apríl að fyrirtækið hygðist segja upp 8.000 manns og nú í vikunni hófst sú hrina uppsagna. Fyrirtækið er með 78.000 starfsmenn víða um heim. Auk uppsagnanna verða gerðar miklar breytingar á störfum um 7.000 starfsmanna en verkefni þeirra verða færð meira yfir í þróun fyrirtækisins á gervigreind.    

Undanfarnar vikur hafa verið róstursamar innan Meta-samstæðunnar, einmitt vegna þessarar þróunarstarfsemi. Meta setti af stað innra verkfæri sem það kallar Model Capability Initiative (MCI) á tölvur starfsmanna sem eru staðsettir í Bandaríkjunum. Þessi hugbúnaður gerir yfirmönnum kleift að fylgjast með músahreyfingum, smellum, hraða innsláttar og taka regluleg skjáskot af tölvuskjám starfsmanna. 

logo
Meta er sagt dansa á línunni siðferðislega og lagalega með því að gefa starfsfólki ekki kost á að velja hvort það gengst undir það að hegðun þess sé rýnd og gögnin nýtt til að þjálfa gervigreind. Mynd/ Mariia Shalabaieva á Unsplash

Yfirmenn Meta segja tilganginn með þessu að þjálfa líkön fyrir gervigreind. Starfsfólk hefur ekki val um hvort þessi hugbúnaður er settur upp, heldur er það einfaldlega krafa stjórnenda hjá Meta að starfsfólk taki þátt í gervigreindarþróun fyrirtækisins með þessum hætti. Yfirmenn hafa líka fullyrt að gögn um starfsfólk og vinnu þess verði ekki notuð til að meta afköst heldur sé þetta aðeins í þágu þróunar á gervigreind. 

Starfsfólk hefur mótmælt þessum aðferðum fyrirtækisins og meðal annars dreift bæklingum á salernum og sjálfsölum á vinnustaðnum og safnað undirskriftum gegn þeim. Á undirskriftasíðunni er birt yfirlýsing þar sem segir meðal annars: 

Það ætti ekki að vera viðtekin venja að fyrirtækjum, óháð stærð, sé heimilt að arðræna starfsfólk sitt með því að safna gögnum þess án samþykkis í þeim tilgangi að þjálfa gervigreind. Gervigreind sem ætlað er að þjóna og styrkja fólk getur ekki gert það á sama tíma og hún hunsar eða virðir ekki samþykki fólksins sem hún segist þjóna.

Alls hafa um 1.500 starfsmenn Meta skrifað undir mótmælin og krefjast þess að hugbúnaðurinn, sem gerir Meta kleift að fylgjast með hverri hreyfingu þeirra við tölvuskjáinn, verði tekinn úr notkun hjá fyrirtækinu. Þessi mótmæli fara fram á sama tíma og Meta er upptekið við uppsagnir þúsunda starfsmanna og endurskilgreiningu fjölda starfa í þágu gervigreindar. 

Stillt upp við vegg

Starfsmenn hafa lýst þessu eftirliti Meta í þágu þess að þjálfa gervigreind sem dystópísku. Þarna sé í raun verið að stilla starfsfólki upp við vegg og þvinga það til að þjálfa gervigreindarerindreka, sem síðan muni taka störf þeirra. Meta hefur boðað frekari uppsagnir á síðari hluta ársins, sem hefur enn frekar kynt undir ólgu á vinnustöðum fyrirtækisins.

Mark Zuckerberg og aðrir forvígismenn Meta hafa reynt að tala starfsfólk upp með því að segja að það sé best fyrir gervigreindarlíkönin að læra af þeim bestu. Fylgjast þurfi með vinnulagi besta og klárasta fólksins til að byggja góð þjálfunargögn fyrir gervigreind. Starfsfólk Meta sé einfaldlega svo klárt að það sé besta uppspretta sem gervigreindarerindrekar geti hugsað sér. Verktakar séu ekki eins góðir í þetta verkefni. 

Verkfærið er enn sem komið er aðeins notað í Bandaríkjunum en í Evrópu er óvíst hvort slíkt eftirlit myndi samræmast vinnulöggjöf. 

Meta hefur áform um að fjárfesta í gervigreindarþróun fyrir um 135 milljarða bandaríkjadala á þessu ári, um tvöfalt meira en á síðasta ári.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 21. maí, 2026, 08:58

Eyrún Magnúsdóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link