Stjórn­ar­for­mað­ur RÚV seg­ir lýð­ræð­inu standa ógn af fjölg­un upp­lýs­inga­full­trúa

Lestími: 3 mínútur

Stefán Jón Hafstein formaður stjórnar RÚV lýsti áhyggjum af stöðu fjölmiðla í ræðu á aðalfundi RÚV. Hann sagði veika fjölmiðla missa getuna til að veita aðhald og benti á fækkun blaðamanna og fjölgun upplýsingafulltrúa. Þá lagði hann til að hið opinbera hætti að kaupa auglýsingar af tæknirisum.

„Þegar fjölmiðlar veikjast, missa þeir beint talsamband við valdhafa til að veita aðhald, afla nauðsynlegra upplýsinga og efla gagnrýna umræðu. Þeir verða fyrir vikið auðveldari bráð fyrir hagsmunaaðila sem hanna sína eigin „sögu“.” Þetta sagði Stefán Jón Hafstein, stjórnarformaður RÚV, á aðalfundi Ríkisútvarpsins ohf., í vikunni.

Stefán Jón Hafstein, formaður stjórnar RÚV.

Stefán vék að stöðu blaðamannastéttarinnar í skýrslu stjórnar og benti á að starfandi blaðamönnum hafi fækkað úr 3000 í innan við 1000 á síðustu 15 til 20 árum. Á sama tíma hafi upplýsingafulltrúum hjá hinu opinbera, hagsmunasamtökum og í stórfyrirtækjum fjölgað stórkostlega.

„Þetta fólk hefur atvinnu af því að fóðra sífellt veikari fjölmiðla á sinni útgáfu af veruleikanum. Framvindusaga samfélagsins í heild verður samsuða af sérhagsmunakynningum. Þetta er hættulegt lýðræðinu,“ sagði Stefán.

Leggur til að stofnunum verði bannað að auglýsa í erlendum miðlum

Í ræðu sinni vék hann líka að stöðunni á auglýsingamarkaðinum. Heildartekjur RÚV hafi verið yfir 9,3 milljarðar króna í fyrra. Gjöld notenda hafi verið yfir sex milljarðar og auglýsingatekjur 2,3 milljarðar. „Við erum því að tala um mjög öflugan fjölmiðil í íslensku samhengi og því ber að fagna.”

Stefán vék að þeim áformum ráðherra að hluta af auglýsingatekjum RÚV verði miðlað til annarra fjölmiðla og hafnaði fullyrðingum um mikla fyrirferð RÚV á innlendum auglýsingamarkaði. Markaðurinn sé um 30 milljarðar en þar af fari um 15 milljarðar til erlendra samfélagsmiðla og streimisveitna. RÚV taki innan við 8 prósent af auglýsingatekjum á markaðinum að sögn Stefáns.

„Það er því ekki feitan gölt að flá hjá RÚV ef menn vilja styrkja aðra íslenska miðla; feitu bitarnir streyma til útlanda til fyrirtækja sem borga enga skatta hér og hafa engar samfélagslegar skyldur við Ísland.“

Vísaði Stefán til nýrra gagna frá Hagstofunni sem sýni „stórkostlega blæðingu fjármagns úr landi til erlendra miðla,“ eins og það er orðað í ræðunni.

„Ég hvet fjármálaráðherra til að láta greina hve mikið fé hið opinbera, ríki og sveitarfélög, setja í þessa erlendu miðla með auglýsingakaupum. Það er grátlegt að fjárveitingavaldið standi í að skrapa saman örfáum hundruðum milljóna í fjölmiðlastyrki á meðan milljarðar streyma úr landi.

Stefán lagði til að spornað verði gegn þessu til heilla fyrir íslenska fjölmiðla.  „Við eigum hreinlega að banna opinberum stofnunum að auglýsa í þessum erlendu miðlum. Það myndi bjarga miklu fyrir íslenska fjölmiðla og hagkerfið í heild.”

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 18. apríl, 2026, 10:25

Aðalheiður Ámundadóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link