
Stjórnendur leikskóla eru ekki hávær hópur en brýnir nú raust sína sem aldrei fyrr. Reykjavíkurborg á engan annan valkost en að hlusta. Hvort borgin heyrir það sem kallað er í eyra hennar er annað mál.

Manstu eftir fréttinni um leikskólastjórann sem fór fram úr fjárheimildum? Ekki? Nei, líklega er það vegna þess að sú frétt hefur aldrei verið sögð, þetta hefur bara sennilega aldrei gerst. Framkvæmdir hins opinbera keyra iðulega fram úr áætlunum og stofananir eyða gjarnan meiri peningum en þeim eru skammtaðir. En ekki leikskólar. Þar hefur aldrei verið bruðlað, ekki einu sinni í góðærinu fyrir hrun.
Það er erfitt að ímynda sér stétt stjórnenda hjá hinu opinbera eða annars staðar sem er jafn seinþreytt til vandræða og stjórnendur leikskóla. Leikskólastjórar, með sínu starfsfólki, sjá í raun til þess að atvinnulífið virki, að daglegt fjölskyldulíf geti verið í eðlilegum skorðum, að börn fái tækifæri til að þroskast og rækta hæfileika sína og félagsfærni, svo eitthvað sé nefnt. Þeim er falin ábyrgð á því að leikskólarnir haldist gangandi, sama hvað. Ef leikskólarnir ganga þá er hægt að láta hjólin snúast í samfélaginu.
Þegar hópur leikskólastjóra í öllum leikskólum sem stærsta sveitarfélag landsins rekur, með ábyrgð á yfir 6.500 börnum í 63 leikskólum, tekur sig saman og gefur út harðorða yfirlýsingu um ómögulegt ástand – þá verður einhver að hlusta.
Stjórnendur leikskóla eru ekki hávær hópur. Þetta er stjórnendahópur sem miklar kröfur eru gerðar til. Hann á að standa vaktina sama hvað, aðlagast breyttum kröfum í sífellu, taka á sig mikla ábyrgð, spara þegar þarf að spara, senda börn heim þegar of fáir eru á vaktinni, vera í stöðugum samskiptum við foreldra um alla mögulega hluti, passa að kreista eins hollan mat og mögulegt er út úr þeim fáu krónum sem úr er að spila og svo mætti lengi telja. Allt á þetta að gerast fyrir kaup sem er eflaust í engu samræmi við þær væntingar sem gerðar eru.
Þegar þessi hópur segir stopp – þá verður Reykjavíkurborg að stoppa og hlusta.
Það er minnisstætt þegar sonur minn kom heim úr leikskólanum einn daginn með pappírsskutlur. Hann hafði lært að búa slíkar til og koma þeim á flug, mjög spenntur yfir þessari nýju færni. Það vakti kátínu hjá móðurinn að sjá að skutlurnar voru kyrfilega merktar tilteknum fjárfestingarbanka, fyrirtæki sem mörgum árum áður hafði rúllað yfir. Bréfsefni bankans var enn í rífandi notkun – hvar annars staðar en á leikskólum. Þar er venjan að gjörnýta þann efnivið sem til fellur frekar en að fjárfesta í nýju. Jafnvel hefði bankinn átt að ráða sér leikskólastjóra á sínum tíma, þá hefði mögulega farið betur fyrir honum! En það er önnur saga.
Þótt árin sem leikskólaforeldri séu að baki þá gleymist ekki hversu vel var haldið á spöðunum að mörgu leyti, bæði í faglegu starfi og ekki síður í fjármálum. Blautu fötin komu heim í poka innan úr Cheerios-pakka, því plastpokar voru óþarfi sem þurfti ekki að kaupa.
Góðærið kom aldrei á leikskólana, þar hefur einfaldlega aldrei verið farið fram úr gefnum ramma, aldrei bruðlað. Mín upplifun sem foreldri var sú að ef einhvers staðar var farið út fyrir rammann á leikskólanum þá birtist það í því að starfsfólk og stjórnendur lögðu ævintýralega mikið á sig til að hvetja börnin í leik og þroska, oft miklu meira en hægt var að búast við. Eins og þegar eitt herbergið í leikskólanum var tæmt, krakkarnir fengu að vera á táslunum og bumbunni, tónlist var spiluð og hveitipoki opnaður. Svo var haldið hveitiball! Ærin fyrirhöfn fyrir starfsfólk að leyfa minnstu pjökkunum að baða sig upp úr hveiti og dansa af hjartans lyst, en ógleymanleg lífsreynsla fyrir krakkana.
Leikskólastjórnendur í Reykjavík lýstu í yfirlýsingu sinni miklum áhyggjum af aðgerðarleysi borgaryfirvalda gagnvart „langvarandi og vel þekktum vanda í starfsumhverfi leikskóla borgarinnar. Afleiðingarnar eru alvarlegar og undirritaðir stjórnendur hafa verulegar áhyggjur af stöðu leikskólanna í Reykjavík,“ eins og segir í yfirlýsingunni sem birt var í vikunni.
Þarna er ekki talað út í loftið. Þetta er ekki upphrópun eða ábending sem einhver nefnd getur tekið til greina eftir yfirlegu.
„Þetta er og hefur verið viðvarandi ástand og hefur skilað okkur óviðunandi starfsumhverfi og ábyrgð sem ekki er lengur verjandi. Þetta er ekki lengur spurning um þolinmæði, samráð eða skilning á flóknu kerfi Reykjavíkurborgar. Þetta er spurning um pólitíska ábyrgð,“ segir ennfremur.
Yfirlýsingin er ákall frá hópi fólks sem hefur raunverulega fengið nóg, er við það að gefast upp. Vandinn hefur varað lengi og afleiðingarnar eru alvarlegar. Engu er ofaukið í yfirlýsingunni og ekkert er ýkt. Þarna er einfaldlega verið að lýsa ómögulegri stöðu sem búið er að setja stjórnendahópinn í. Fólkið sem þarna talar hefur setið á sér lengi, en getur það ekki lengur.
Svör borgarstjóra hafa verið á þá leið að það eigi nú að reyna að finna út úr þessu, reyna að klára einhverja áætlun (sem átti að vera tilbúin um áramót) fyrir lok mánaðar. En það átti líka að finna út úr þessu í fyrra, það tókst ekki. Og öll árin þar á undan líka.
Orðalagið í yfirlýsingunni er raunar frekar hófstillt, miðað við það sem hægt væri að segja um ástandið. Eitt orð sem hefur talsvert verið í umræðunni í tengslum við leikskóla undanfarið, og hefur mikil áhrif á þessa stöðu sem upp er komin, er fáliðun. Gjarnan er því hent inn í samtalið eins og um eðlilegan hlut sé að ræða. Barn þarf að fara snemma heim af því að „leikskólinn er í fáliðun.“
Orðið fáliðun ætti hreinlega ekki að vera til í samhengi við leikskóla, hvað þá furðuleg orðskrípi eins og f-á-l-i-ð-u-n-a-r-á-æ-t-l-u-n. Þó er oft talað eins og þetta séu hversdagsleg hugtök, bara hluti af þessum leikskólarekstri. Svo er ekki. Það ætti ekki að vera nein áætlun til sem heitir þessu undarlega orði.
Nú eru kosningar framundan í borginni eins og öðrum sveitarfélögum. Það hefur sín áhrif á leikskólamálin. Í gegnum tíðina hefur verið vinsælt að lofa lausnum, gjarnan nefna lausnirnar einhverjum fínum nöfnum. Við getum í það minnsta treyst því að allir þeir fjölmörgu flokkar sem berjast um þau (fjölmörgu!) sæti sem eru í boði í borgarstjórn munu kokka upp falleg loforð. Þau fara að birtast á næstu vikum í fjölmiðlum.
Yfirlýsing leikskólastjórnenda hefur þó sett pressu á núverandi meirihluta í borginni. Það verður að gera eitthvað. Þótt ólíklegt verði að teljast að einhverjar meiriháttar nýjar lausnir komi fram alveg á næstu vikum, þá er ljóst að holan er djúp. Líklega dugir ekkert minna en hreinlega að grípa til þeirrar róttæku aðgerðar að hlusta á stjórnendur leikskóla til að leysa vandann.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.