Þegar Washington blés lífi í klerkaveldið í Teheran

Lestími: 9 mínútur

Árás sem átti að veikja írönsku stjórnina gæti hafa gert hið gagnstæða. Á meðan innri þrýstingur dvínaði hefur Íran aukið vægi sitt bæði með stöðu sinni við Hormússund og óvæntri leikni í upplýsingastríði. Sumir ganga svo langt að telja Íran nú eitt af fjórum stórveldum heimsins. Hvort sem það er of langt gengið eða ekki hefur þróunin varpað skýru ljósi á takmörk bandarísks valds.

Það leit um stund út fyrir að klerkastjórnin í Íran stæði frammi fyrir sinni alvarlegustu innri ógn í mörg ár. Efnahagskreppa, mótmæli og vaxandi óánægja bentu til þess að kerfið væri farið að gliðna. Horfur á breytingum, jafnvel valdaskiptum, virtust ekki lengur fjarlægur möguleiki heldur raunhæf sviðsmynd. En svo greip ytri óvinurinn inn í. Og það sem átti að veikja stjórnina virðist nú hafa styrkt hana.

Þetta er gömul saga í alþjóðastjórnmálum. Veik stjórnvöld sem missa lögmæti heima fyrir geta öðlast nýtt skjól þegar þau fá utanaðkomandi andstæðing til að sameina þjóðina gegn sér. Bandaríkin kunna nú að hafa gert Íran einmitt þann greiða. Í stað þess að hraða veikingu stjórnarinnar í Teheran hafa þau hugsanlega gefið henni nýtt pólitískt súrefni.

Súez og gjáin milli hernaðarmáttar og stjórnmála

Gamal Abdel Nasser á forsíðu Time árið 1958. Súez-kreppan varð táknrænt augnablik í hnignun gömlu evrópsku heimsveldanna og er nú rifjuð upp sem möguleg söguleg hliðstæða við stöðu Bandaríkjanna gagnvart Íran.

Sú þróun kallar fram augljósa sögulega samlíkingu: Súez árið 1956. Þá töldu Bretar og Frakkar sig geta beitt yfirburðavaldi til að aga leiðtoga sem þeir litu á sem viðráðanlegan. Þegar Gamal Abdel Nasser þjóðnýtti Súez-skurðinn svöruðu þeir með hervaldi í þeirri trú að þeir gætu endurheimt stjórn á stöðunni. Niðurstaðan varð hins vegar þveröfug. Þeir neyddust til að hörfa, Nasser stóð eftir sterkari en áður, og heimurinn sá skýrar en áður að gömlu evrópsku heimsveldin gátu ekki lengur mótað alþjóðakerfið ein og sér.

Súez markaði ekki upphaf hnignunar Bretlands og Frakklands. En hún afhjúpaði hana. Hún sýndi bilið milli hernaðarmáttar og raunverulegrar pólitískrar getu. Það er einmitt þessi gjá sem nú blasir við í umræðunni um Íran.

Í tveimur nýlegum greinum, annars vegar eftir Robert A. Pape í The New York Times og hins vegar Patrick Wintour í The Guardian, er sett fram óþægileg spurning fyrir Washington: hvort Bandaríkin standi frammi fyrir eigin „Súez-stund“. Höfundarnir nálgast viðfangsefnið með ólíkum hætti, en benda í sömu átt. Hernaðarlegir yfirburðir duga ekki sjálfkrafa til að tryggja pólitískan árangur. Og stundum getur valdbeiting flýtt fyrir þeirri þróun sem henni var ætlað að koma í veg fyrir.

Nýtt vægi Írans í heiminum

Rök Papes eru sérstaklega athyglisverð. Hann heldur því fram að Íran sé að öðlast nýtt alþjóðlegt vægi, ekki vegna þess að ríkið hafi umbreyst í hefðbundið stórveldi, heldur vegna þess að það situr við eina mikilvægustu orkuflutningaleið heims. Hormússund er ekki aðeins landfræðilegt þrengsli; það er slagæð í alþjóðahagkerfinu. Sá sem getur raskað flæði þar hefur áhrif langt út fyrir eigið nærsvæði.

Þarna liggur veikleiki Vesturlanda. Íran þarf ekki að loka Hormússundi. Það þarf ekki einu sinni að ráða yfir því með fullum hætti. Það nægir að gera það óáreiðanlegt. Að skapa næga óvissu, næga áhættu og nægan kostnað til að markaðurinn fari að haga sér öðruvísi. Olía skiptir ekki aðeins máli sem hrávara. Hún skiptir máli sem afhendingarkerfi. Hún þarf að berast á réttum tíma, í fyrirsjáanlegu magni og við ásættanlega áhættu. Um leið og það raskast hættir orkumarkaðurinn að vera einfaldur markaður og verður að öryggismáli.

Bandaríkin geta ekki tryggt öryggi hvers einasta skips sem fer um Hormússund nema með langvarandi og pólitískt erfiðri hernaðarlegri viðveru. Íran þarf hins vegar aðeins að viðhalda þeirri tilfinningu að leiðin sé ekki örugg. Annar aðilinn þarf að verja allt, hinn þarf aðeins að trufla nóg til að grafa undan trausti. Festist það ástand í sessi munu ríki svæðisins og alþjóðlegt viðskiptalíf laga sig að veruleika þar sem sá ræður mestu sem getur skapað óvissu um útflutninginn. Sá aðili er Íran. 

Afleiðingarnar stoppa ekki þar. Kína hefur afgerandi hagsmuni af stöðugu orkuflæði. Rússland hefur hag af hærra og óstöðugra orkuverði. Íran sjálft fær aukið vægi vegna stöðu sinnar. Þessi ríki þurfa ekki að mynda formlegt bandalag til að hagsmunir þeirra fari að liggja saman. Það er nóg að kerfið umbuni þeim í sömu átt. Nýtt valdakerfi getur orðið til án þess að því sé nokkru sinni formlega lýst yfir.

Þetta er ástæða þess að Súez-samlíkingin er sterkari en margir vilja viðurkenna. Hún snýst ekki um að Bandaríkin standi á barmi hruns eða að Íran sé orðið þeim jafningi. Hún snýst um það grundvallaratriði að yfirburðir á vígvellinum tryggja ekki sjálfkrafa yfirráð yfir pólitískri niðurstöðu. Sú staðreynd verður nú sífellt skýrari.

Óvænt leikni Írans í upplýsingastríði

Umfjöllun CNN, Reuters og The Independent um nýtt form íranskra áróðursmynda sem blandar saman háði, netmenningu og pólitískum skilaboðum.

Samhliða þessu hefur Íran sýnt óvænta leikni í upplýsingastríði. Reikningar tengdir írönskum stjórnvöldum og valdakerfinu hafa nýtt meme-menningu, kaldhæðni og þau miðlaform sem ráða ríkjum á netinu af meiri færni en andstæðingar virðast færir um. Markmiðið er ekki aðeins að sannfæra heldur að setja tóninn, móta stemninguna og láta andstæðinginn líta út fyrir að vera hlægilegan, stirðan og úr takti við samtímann. Þessi nálgun nýtur þess líka að Bandaríkin eru sjálf djúpt klofin.

Írönsk skilaboð hafa spilað inn á deilur og vantraust sem þegar kraumar innan bandarísks samfélags, allt frá kynþáttadeilum til langvarandi tortryggni gagnvart stofnunum ríkisins, elítum og upplýsingastýringu. Þar falla jafnvel mál eins og umræður um Epstein-skjölin inn í stærra mynstur tortryggni. Það sem skiptir þó ekki síður máli er að núverandi stjórnvöld í Washington hafa sjálf grafið undan trausti á eigin stofnunum. Þegar stjórnvöld gera lítið til að virðast samstiga, trúverðug og traust verður leikurinn einfaldari fyrir andstæðing sem þarf aðeins að magna upp efa, reiði og fyrirlitningu.

Í því samhengi spilar íranska framsetningin markvisst inn á tilfinningu fyrir klíkuskap og frændhygli í kringum Trump, þar sem hollusta virðist oftar vega þyngra en hæfni. Um leið stilla Íranir eigin talsmönnum upp sem menntuðum, yfirveguðum og öguðum fulltrúum ríkisvalds, í skýrri andstöðu við bandaríska embættismenn. Framganga manna á borð við stríðsmálaráðherrann Pete Hegseth gerir þeim þann samanburð auðveldan.

Samanburðarmyndir af þessu tagi eru algengur hluti netáróðurs og er ætlað að draga upp agaða ímynd af Írönum en óreiðukennda mynd af bandarískum embættismönnum. Ebrahim Zolfaghari, talsmaður íranska byltingarvarðarins, er vinstra megin og Pete Hegseth, stríðsmálaráðherra Bandaríkjanna, hægra megin.

Sumir í Bandaríkjunum hafa bent á að þetta sé í fyrsta sinn sem áróður frá yfirlýstu óvinaríki er svo vel sniðinn að vestrænum áhorfendum að bandarískir notendur fari sjálfir að endurtaka slagorð, takta og myndmál. Í samtíma þar sem pólitísk áhrif ráðast ekki aðeins af herstyrk og formlegu valdi, heldur líka af því hver nær að móta ímynd, stemningu og viðhorf, getur slík framsetning skipt verulegu máli.

Mótmælendur gegn klerkastjórninni í Íran. Það sem í byrjun árs leit út eins og vaxandi innri ógn við stjórnina gæti hafa fjarað tímabundið út þegar ytri átök færðu henni nýtt pólitískt skjól. Mynd:  Christopher Rose. Flickr

Íranska stjórnin er ekki skyndilega orðin frjálslynt eða aðlaðandi afl. Hún er enn kúgandi stjórnkerfi með djúpa innri veikleika. En það breytir ekki því að utanaðkomandi árás getur tímabundið styrkt hana. Það er einmitt það sem virðist nú hafa gerst. Sú innri pressa sem blasti við í byrjun árs virðist hafa dvínað, að minnsta kosti um sinn, vegna þess að þjóðernisleg samstaða hefur tekið sæti pólitískrar sundrungar.

Hin kaldhæðna niðurstaða 

Þar liggur tragíkómedían. Það sem leit út eins og tækifæri til að veikja stjórnina í Teheran gæti hafa orðið að líflínu hennar. Og það sem átti að sýna mátt Bandaríkjanna gæti í staðinn hafa afhjúpað takmörk hans.

Hvort þetta reynist í reynd „Súez-stund“ Bandaríkjanna á eftir að koma í ljós. En spurningin sjálf er ekki lengur fráleit. Þvert á móti er hún orðin óþægilega trúverðug. Og kannski er það einmitt versta niðurstaðan fyrir Washington: ekki að andstæðingurinn hafi sigrað með afgerandi hætti, heldur að tilraunin til að veikja hann hafi gert hann öflugri en áður. 

Greinin byggir á greiningu höfundar á internetáróðri Írans auk greinar Robert A. Pape í The New York Times, „The War Is Turning Iran Into a Major World Power“, 6. apríl 2026, og grein Patrick Wintour í The Guardian, „Is Iran Trump’s Suez crisis, or just a passing thunderstorm?“, 11. apríl 2026.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 13. apríl, 2026, 09:43

Karen Kjartansdóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link