Þéttriðið net nikótínsala: Sölustaðir á höfuðborgarsvæðinu úr fjórtán í 114 á tveimur árum

Lestími: 6 mínútur

Gjald á nikótínpúða sem tekið var upp á síðasta ári hefur að markmiði að sporna við útbreiddri notkun meðal barna og ungs fólks. Útbreiðsla sölustaða er hröð, tegundum fjölgar og mest framboð er af sterkari púðum.

  • Tveir nýir sölustaðir nikótínpúða bætast við í hverri viku að meðaltali
  • Sölustaðir eru nú 250 um land allt – umsóknir í vinnslu fyrir 50 í viðbót
  • 81% innfluttra nikótínpúða eru í hærri styrkleikaflokkum
  • Þriðjungur ungmenna notar nikótínpúða daglega

Nikótínpúðar hafa breiðst út á miklum hraða hér á landi unfanfarin ár. Notkun á þeim hefur aukist hratt, einkum hjá ungu fólki, sölustöðum fjölgar ört og fjöldi innfluttra tegunda hefur margfaldast.

Til að fá að selja nikótínpúða, rafrettur eða nikótínvökva þarf að sækja um sérstakt leyfi frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Fyrstu leyfin voru veitt í mars 2023, eftir að eftirlit var fært yfir til stofnunarinnar með breytingu á lögum um nikótínvörur. Á sama tíma birtust niðurstöður úr netkönnun Gallup þar sem í ljós kom veruleg aukning í notkun nikótínpúða, einkum hjá yngra fólki. Eitt af hverjum þremur ungmennum á aldrinum 18-29 ára var þá, fyrir tveimur og hálfu ári, farið að nota nikótínpúða daglega.

Notkun á nikótínpúðum hefur aukist mikið síðan fyrir þremur árum. … Notkunin er mjög aldurstengd en fólk er líklegra til að nota púðana eftir því sem það er yngra. … Hlutfall fólks á aldrinum 18-29 ára sem notar púðana daglega fór úr 10% í 33% á síðastliðnum þremur árum og hlutfall fólks á aldrinum 30-39 ára sem notar þá daglega fór úr 6% í 21%. 

Úr netkönnun Gallup, niðurstöður birtar í mars 2023.

Í október 2023 höfðu 50 útsölustaðir fengið leyfi hjá HMS fyrir sölu á nikótínvörum, þar af voru 14 á höfuðborgarsvæðinu og 36 á landsbyggðinni.

Í október 2025, sléttum tveimur árum síðar, eru leyfin orðin 249. Net sölustaða er sérlega þétt á höfuðborgarsvæðinu. Alls eru 114 sölustaðir á höfuðborgarsvæðinu og 135 á landsbyggðinni. Leyfin gilda til sölu á nikótínpúðum, rafrettum og nikótínvökva.

Þess má geta til samanburðar að ef helstu matvöruverslanir landsins eru taldar saman eru þær 127 talsins, miðað við lauslega talningu á þeim verslunum sem eru með fleiri en eina matvöruverslun.

50 nýir sölustaðir munu bætast við

Að sögn Skarphéðins Grétarssonar sérfræðings í markaðseftirliti hjá HMS eru um 40 sölustaðir sem bíða úttektar auk tíu sem hafa verið teknir út og munu hljóta leyfi fljótlega.

„Það munu því bætast við amk 50 sölustaðir við þá sem nú þegar hafa leyfi, að því gefnu að fleiri umsóknir berist ekki, og gætu því verið 300 verslanir með leyfi fyrir lok árs,“ segir Skarphéðinn í samtali við Gímaldið.

Algengasta neysluform nikótíns

Frá árinu 2023, einkum eftir að birtar voru tölur bæði frá Gallup og embætti landlæknis um mikla notkun ungs fólks á nikótínpúðum, varð töluverð umræða um þessi mál á Alþingi. Haustið 2024 voru gerðar breytingar á ýmsum lögum um skatta og gjöld og sérstakt gjald lagt á nikótínvörur;  nikótínpúða og rafrettur.

Í greinargerð með lagafrumvarpinu er gjaldtakan skýrð svo: Tillögu um gjaldtöku á nikótínvörur, einnota rafrettur og áfyllingarvökva er fyrst og fremst ætlað að hafa áhrif á og sporna við sífellt útbreiddari notkun meðal barna og ungs fólks. Nú er svo komið að nikótínpúðarnir eru algengasta neysluform nikótíns hér á landi en aðeins lítill hluti notenda nikótínpúða er fyrrum reykingafólk sem notar nikótínpúða til þess að hætta tóbaksreykingum. Þá innihalda þessar vörur oftast mikið magn nikótíns, eru afar ávanabindandi og sýnt þykir að þær hafi neikvæð áhrif á þroska og heilsu ungmenna og barna. Með hækkun gjalds á umræddar vörur standa vonir til að draga úr neyslu hjá yngsta aldurshópnum.

Þrepaskipt gjald tekið upp

Í upphaflegu frumvarpi átti gjald að leggjast á þyngd nikótínpúða en að fengnum umsögnum um málið var því breytt í efnahags- og viðskiptanefnd og ákveðið að leggja þrepaskipt gjöld á nikótínpúða eftir styrkleika nikótíns sem er mældur í milligrömmum á hvert gramm.

Styrkur getur verið frá 1 mg/g upp í 20 mg/g sem er hæsti leyfilegi styrkleiki hér á landi. Í reglugerðinni sem gildir hér á landi er púðunum skipt í fjóra styrkleikaflokka. 

Sé styrkur nikótíns á bilinu 1 til 8 mg/g leggjast 8 krónur á hvert gramm. Fyrir styrkleika á bilinu 8,1 til 12 mg/g leggjast 12 krónur á hvert gramm. Þriðji styrkleikaflokkurinn er á bilinu 12,1 mg/g til 16 mg/g og þá leggjast 15 krónur á hvert gramm. Í efsta styrkleika eru sterkustu púðarnir, með 16,1 til 20 mg/g af nikótíni en á þá leggjast 20 krónur á hvert gramm. 

Mest aukning í sterkari nikótínpúðum

„Það er meira sótt um stærri púða og oft nálægt hámarkinu 20 mg/g. En að því sögðu hafa einhverjir púðaframleiðendur verið að breyta vörulínum sínum úr 20 mg/g niður í 16 mg/g en það gæti verið vegna takmarka á styrkleika í framleiðslulöndum, eins og t.d. Danmörku,“ segir Skarphéðinn.

Meirihluti nefndarinnar beindi því til stjórnvalda í áliti sínu að framkvæma lýðheilsumat á áhrifum af gjaldtöku á nikótín og eftir atvikum endurskoða gjaldtökuna eða bregðast við með öðrum viðeigandi hætti gefi niðurstöður tilefni til þess.

Nikótínsalar þurfa ekki einungis leyfi til að selja nikótínvörurnar heldur þurfa heildsalar að sækja um sérstök leyfi fyrir hverri tegund fyrir sig og tilkynna hana til HMS með tilteknum fyrirvara.

Líkt og með sölustaðina hefur orðið veruleg aukning í fjölda tegunda sem seldar eru. Í október 2023 höfðu leyfi verið veitt fyrir 123 tegundum nikótínpúða. Tegundir nikótinpúða sem samþykktar hafa verið til sölu hér á landi eru nú 484 og hefur magnið því nær fjórfaldast á tveimur árum.

Engin algild flokkun er til á styrkleika nikótínpúða, en almennt teljast púðar með nikótíninnihaldi yfir 10-12 milligrömm á hvert gramm, sterkir eða mjög sterkir.

Af 484 tegundum sem samþykktar eru til sölu hér á landi eru 408, eða 81% nikótínpúða, með nikótínmagn yfir 12 mg/g.

 

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 13. desember, 2025, 10:25

Eyrún Magnúsdóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link