Upplýsingaóreiða og fjármögnun: Lögreglan fylgist með erlendum áhrifum á ESB-umræðuna

Lestími: 11 mínútur

Greiningardeild ríkislögreglustjóra fylgist með mögulegum áhrifum erlendra ríkja á umræðu um Evrópusambandsmálið. Deildarstjórinn segir markmiðið ekki að hafa eftirlit með skoðunum fólks heldur að greina þegar erlendir aðilar reyna að móta umræðuna.

„Það sem við höfum áhyggjur af er að erlend ríki séu að skipta sér af málefnum Íslands með upplýsingaóreiðu til að hafa áhrif á þjóðfélagsumræðuna,“ segir Finnbogi Jónasson, deildarstjóri greiningardeildar ríkislögreglustjóra, um hlutverk lögreglunnar í tengslum við umræðu í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort halda eigi áfram aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið.

Ýmsum kann að þykja óvenjulegt að lögreglan komi að slíku en Finnbogi segir að hlutverk greiningardeildarinnar snúist einmitt um að fylgjast með þróun sem geti haft áhrif á öryggi ríkisins og veita stjórnvöldum ráðgjöf þegar mál sem snerta mikilvæga hagsmuni Íslands eru til umræðu. Komandi þjóðaratkvæðagreiðsla falli þar undir.

Finnbogi Jónasson segir mikilvægt að talað sé opinskátt og skýrt um hættuna af upplýsingaóreiðu og því þegar erlend ríki reyni að hafa áhrif á umræðuna. Mynd/aðsend.

„Þjóðaratkvæðagreiðslur geta haft gríðarlega mikla þýðingu fyrir hagsmuni ríkisins, alveg sama í hvaða átt niðurstaðan fer,“ segir hann. Greiningardeild ríkislögreglustjóra starfar samkvæmt lögreglulögum og reglugerðum sem skilgreina hlutverk hennar í greiningu á öryggismálum. Það felst meðal annars að greina þróun sem getur haft áhrif á hagsmuni ríkisins og þjóðhagslega mikilvæga starfsemi og að veita stjórnvöldum ráðgjöf um viðbúnað. Í því samhengi getur einnig komið til skoðunar hvort erlendir aðilar reyni með skipulögðum hætti að hafa áhrif á umræðu eða lýðræðislega ferla í landinu.

Sífellt fleiri dæmi frá öðrum löndum

Finnbogi segir að á undanförnum árum hafi sífellt fleiri dæmi komið fram í Evrópu um að ríki hafi orðið fyrir markvissum tilraunum erlendra aðila til að hafa áhrif á kosningar eða stjórnmálaumræðu. Slík áhrif birtist ekki endilega með beinum eða augljósum hætti heldur geti þau falist í dreifingu rangra upplýsinga, skipulagðri notkun samfélagsmiðla eða öðrum aðferðum sem miða að því að móta umræðu og skapa tortryggni gagnvart ákveðnum stofnunum eða stjórnmálum almennt.

„Það sem við höfum áhyggjur af er að fá afskipti frá erlendum ríkjum sem búa til upplýsingaóreiðu og trufla í rauninni þessa lýðræðislegu ferla.“

„Við sjáum það í kringum okkur að ríki hafa orðið fyrir því að það sé unnið markvisst að því að hafa áhrif á kosningar,“ segir hann. Slíkar aðgerðir snúist oft ekki bara um niðurstöðu kosninga heldur einnig um að grafa undan samstöðu í samfélögum. „Það sem við höfum áhyggjur af er að fá afskipti frá erlendum ríkjum sem búa til upplýsingaóreiðu og trufla í rauninni þessa lýðræðislegu ferla.“ Hann segir að slík starfsemi snúist oft að miklu leyti um „að keyra upp skautun og sundra samfélaginu.“

Finnbogi tók nýlega þátt í pallborði á málþingi um upplýsingaóreiðu og netógnir í aðdraganda kosninga. Málþingið var haldið á vegum Varðbergs, Fjölmiðlanefndar, dómsmálaráðuneytisins og utanríkisráðuneytisins og þar var meðal annars fjallað um hvernig ríki hafa reynt að hafa áhrif á kosningar og stjórnmálaumræðu í Evrópu á undanförnum árum. Aðspurður hvað hafi vakið mesta athygli hans á málþinginu nefnir hann erindi norska sérfræðingsins Eskil Grendahl Sivertsen, sem starfar við norsku varnarmálarannsóknarstofnunina og hefur rannsakað upplýsingaóreiðu og áhrif erlendra ríkja á samfélagsumræðu, en Gímaldið fjallaði nýverið um erindi hans.

Sjá einnig: Rússar kyntu undir andstöðu við ESB fyrir Brexit – Ísland gæti vakið áhuga

„Það sem vakti mesta athygli mína var hversu opinn hann var með þetta; hvernig hann lagði þetta algjörlega á borðið,“ segir Finnbogi. Í erindi sínu hafi Sivertsen meðal annars fjallað um afskipti erlendra leyniþjónusta af norsku samfélagi og kosningaumræðu. „Hann talaði hreint út og nafngreindi rússneska leyniþjónustu og kínverska leyniþjónustu og hvað þessar þjónustur hafa verið að gera og hvernig þær hafa verið að beita sér.“

Slík umræða sé þó ekki ný fyrir þá sem starfa við greiningu á öryggismálum. „Þetta er ekkert nýtt fyrir mér,“ segir Finnbogi og vísar til þess að þetta heyri undir hans störf. Það sem hafi hins vegar vakið athygli hafi verið hversu opinskátt þetta var rætt og hann telur að það sé til marks um nýja tíma. Þetta endurspegli ákveðna þróun í Evrópu þar sem stjórnvöld og sérfræðingar séu farin að tala opinskátt um slíkar ógnir. Ef ætlunin sé að takast á við upplýsingaóreiðu þurfi einnig að vera hægt að benda á rangar upplýsingar og skýra hvaðan þær koma.

Tengsl stjórnmálaflokka og fjármögnun

Í umræðunni um áhrif erlendra ríkja á kosningar nefnir Finnbogi einnig dæmi frá öðrum löndum þar sem fjármunir hafa verið notaðir til að hafa áhrif á stjórnmálaumræðu. „Það hefur til dæmis verið fjallað um aðgerðir Rússa í Moldóvu,“ segir hann. „Ég held að það hafi komið fram þar að talið sé að Rússar hafi sett fjármagn sem nemur um einu prósenti af þjóðarframleiðslu Moldóvu í að hafa áhrif á kosningar.“

Slík fjármögnun geti haft veruleg áhrif á samfélag, sérstaklega ef hún tengist skipulagðri starfsemi. „Það hefur jafnvel verið talað um að fólki sé greitt í beinhörðum peningum fyrir að mæta á mótmæli,“ segir Finnbogi. Hann tekur þó fram að aðstæður séu ólíkar á Íslandi og í ríkjum sem liggja nær áhrifasvæði Rússlands eða hafa áður verið hluti af Sovétríkjunum. „Samfélagsgerðin er auðvitað önnur hér heldur en þar. Þjóðir sem liggja þétt upp að Rússlandi og hafa áður verið á áhrifasvæði Sovétríkjanna standa auðvitað öðruvísi heldur en við.“ En dæmin sýni engu að síður hversu víðtækar slíkar aðferðir geti verið þegar markmiðið er að hafa áhrif á stjórnmál. „Fjármagnið er engu að síður til staðar,“ segir hann.

Áhrif erlendra ríkja á umræðu birtast þó ekki alltaf í beinni fjármögnun eða skipulögðum áróðri. Finnbogi bendir á að aðferðirnar geti einnig verið óbeinar og byggst á tengslum eða kynningu. „Það eru alls konar ferðir sem fólki er boðið í þar sem uppihald er greitt að fullu, með kynningum og skemmtun og alls konar,“ segir hann. Slík starfsemi geti verið kynnt sem eðlilegur hluti af samskiptum milli ríkja og hluti af hefðbundinni utanríkisstefnu. „Oft er þetta bara kynning á landi og menningu og tilraun til að bæta samskipti.“

„Hvenær er þetta eðlilegur hluti af utanríkisstefnu ríkja og hvenær erum við komin inn í það að leyniþjónustur erlendra ríkja séu markvisst að vinna að því að ná fram ákveðnu markmiði?“

En stundum geti verið erfitt að greina hvar mörkin liggja. „Það er ekkert óeðlilegt við þetta upp að ákveðinni línu,“ segir hann. „En spurningin er hvar þessi lína liggur. Hvenær er þetta eðlilegur hluti af utanríkisstefnu ríkja og hvenær erum við komin inn í það að leyniþjónustur erlendra ríkja séu markvisst að vinna að því að ná fram ákveðnu markmiði?“

Í umræðu um möguleg áhrif erlendra ríkja vakna einnig upp spurningar um tengsl stjórnmálaflokka við aðila erlendis. Finnbogi segir að slík tengsl séu ekki ný af nálinni. „Í íslensku samfélagi síðustu áratugi hafa ákveðnir stjórnmálaflokkar haft meiri tengsl við stjórnmálaflokka erlendis,“ segir hann. Slík tengsl geti til dæmis verið við systurflokka á Norðurlöndum eða annars staðar í Evrópu. „Ef við lítum lengra aftur í tímann höfðu vinstriflokkar til dæmis sterk tengsl við Austur-Evrópu.“ Hann segir að slíkt samstarf geti verið eðlilegur hluti af alþjóðlegu samstarfi stjórnmálaflokka, en í samhengi við umræðu um áhrif erlendra ríkja geti slíkar tengingar einnig orðið hluti af stærra mynstri. „Sumt af þessu er eðlilegt, sumt ekki,“ segir hann.

Á Alþingi í vikunni ræddi Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar, meint tengsl Miðflokksins við bandarísku MAGA-hreyfinguna og sagði að Sigmundur Davíð Guðlaugsson, formaður Miðflokksins þyrfti að gera hreint fyrir sínum dyrum hvað það varðar. Heimildin hefur fjallað ítarlegar um slíkar tengingar, og greindi til að mynda frá því að að bæði Miðflokkur og Sjálfstæðisflokkurinn hafi greitt ráðgjafa Nigel Farage, leiðtoga breska Umbótaflokksins, fyrir að koma á fundum með bandarísku áhrifafólki í fyrra. Spurður hvort þessi mál séu til athugunar hjá greiningardeildinni segir Finnbogi að hann geti ekkert tjáð sig um hvaða mál séu til skoðunar.

Ríki sem hafa hag af veiku ESB

En hvers vegna ættu erlend ríki yfir höfuð að hafa áhuga á því að hafa áhrif á umræðu á litlu landi eins og Íslandi? Finnbogi bendir á að Ísland sé hluti af stærra alþjóðlegu samhengi. „Við erum hluti af miklu stærra kerfi heldur en bara Ísland,“ segir hann. Ísland sé meðal annars hluti af NATO og gegni mikilvægu hlutverki í Norður-Atlantshafi. Landfræðileg staðsetning Íslands í svokölluðu GIUK-gapi – milli Grænlands, Íslands og Bretlands – hafi lengi verið talin lykilatriði í öryggismálum á svæðinu. „Landfræðileg staðsetning Íslands í þessu svæði skiptir gríðarlega miklu máli fyrir öryggi Norður-Atlantshafs.“

Auk þess geti staða Íslands gagnvart Evrópusambandinu haft áhrif á stærra alþjóðlegt samhengi. „Það eru ríki sem hafa hag af því að Evrópusambandið sé ekki mjög sterkt,“ segir hann. „Þá getur skipt máli hvort ný ríki bætast við sambandið eða ekki.“ Hann bendir á að slíkar spurningar snúist ekki endilega um þau málefni sem eru efst í huga kjósenda í daglegu lífi, heldur um stærra samhengi alþjóðapólitíkur þar sem ríki meta eigin hagsmuni út frá áhrifum á bandalög, viðskipti og öryggismál.

Ráð til almennings

Finnbogi leggur þó ríka áherslu á að hlutverk lögreglunnar snúist ekki um að fylgjast með skoðunum Íslendinga eða stjórna umræðunni á nokkurn hátt. „Við ætlum ekki að vera eftirlitsaðili með umræðu og tjáningu Íslendinga,“ segir hann. Fólk geti haft sínar skoðanir og tjáð þær, jafnvel þótt þær séu byggðar á misskilningi eða röngum upplýsingum. „Menn geta haft sínar skoðanir og sett þær fram eins og þeir vilja. Stundum eru þær byggðar á misskilningi, stundum ekki.“ Það sem veki áhyggjur sé eingöngu þegar aðkoma erlendra ríkja komi til og markvissar tilraunir séu gerðar til að hafa áhrif á umræðu eða lýðræðislegt ferli.

„Er þetta sennilegt? Er þetta trúverðugt? Get ég fundið þessar upplýsingar annars staðar?“

Um leið bendir hann á að almenningur gegni mikilvægu hlutverki í upplýsingasamfélaginu. Í heimi þar sem upplýsingar berast stöðugt í gegnum samfélagsmiðla og stafræna miðla skipti miklu máli að fólk staldri við áður en það deilir efni áfram. „Það sem skiptir kannski mestu máli er að fólk gefi sér smá tíma áður en það deilir upplýsingum áfram,“ segir hann. Hann hvetur fólk til að spyrja sig hvort upplýsingar séu trúverðugar og hvort hægt sé að staðfesta þær. „Er þetta sennilegt? Er þetta trúverðugt? Get ég fundið þessar upplýsingar annars staðar?“ Í stöðugu upplýsingastreymi dagsins geti verið auðvelt að dreifa efni áfram án þess að hugsa sig um. „Ég held að enginn vilji taka þátt í því að dreifa upplýsingum sem hann grunar að séu rangar,“ segir Finnbogi. „Þess vegna skiptir máli að staldra aðeins við áður en við deilum þeim áfram.“

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 13. mars, 2026, 14:23

Erla Hlynsdóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link