
Tungumálakennsla snýst um að fólk eignist samfélag, að mati Sólveigar Jónasdóttur sem hefur kennt útlendingum íslensku síðustu ár. Hún telur valdeflingu og sjálfstyrkingu skipta mestu máli.

Sólveig Jónasdóttir segir tungumálakennslu snúast um að fólk eignist samfélag. Hún kennir íslensku í Múltíkúlti málamiðstöð sem stofnuð var fyrir um 16 árum af eiginmanni hennar Kjartani Jónssyni. „Það hefur alveg gleymst að koma til móts við nýja tíma,“ segir hún jafnframt og bendir á að þrátt fyrir endalaust kvabb um að útlendingar eigi að tala íslensku séum við, sem samfélag, lítið að gera fyrir fólk sem hingað flytur.

Á þessum 16 árum hefur Sólveig verið viðloðandi fyrirtækið í gegnum kennslu og námsefnisgerð en jafnframt sinnt öðrum störfum. Nú hefur hún kennt útlendingum íslensku í samfellt þrjú ár. „Í dag er skólinn í eigu okkar Kjartans auk þriggja annarra kennara en við skólann kenna að jafnaði um 16 til 20 kennarar, helmingurinn fastráðinn. Flest eru þau með BA gráðu í íslensku og/eða próf í öðrum tungumálum.“ Sjálf er Sólveig meðal annars með MA gráðu í mannfræði og hefur lokið námi í kennslufræði fullorðinna.
Þá býr hluti kennaranna með erlendan bakgrunn að háskólanámi í íslensku sem öðru máli. Í skólanum er kennd íslenska á íslensku og ensku; arabísku, spænsku og portugölsku, pólsku, rússnesku og úkranísku. Fólk getur þannig valið um hvort það fer í íslenskukennslu á sínu máli. „Sumum finnst kostur að vera með löndum sínum og læra á sínu móðurmáli, öðrum ekki.“
Sólveig kennir á íslensku og ensku. „Hóparnir eru blandaðir en litlir, ekki fleiri en 14 manns, en í þeim hópi getur verið fólk frá 14 mismunandi löndum. Fólk með mismunandi bakgrunn og líka í mismunandi stöðu,“ útskýrir hún. Í einum og sama tímanum geta til dæmis verið sérfræðingar sem hingað koma á sérfræðingaleyfi, fólk innan Evrópusambandsins, ungt fólk að starfa sem au pair (í vistráðningu) og fólk á flótta. „Öll saman í kúrsi.“

Sumir nemendurnir eru nýkomnir hingað á meðan aðrir hafa búið hér í lengri tíma. Stundum er fólk í vinnu og stundum er það í leit að vinnu. Stofnanir á borð við Vinnumálastofnun, Stígamót, félagsþjónustuna, borgina, sveita- og bæjarfélögin geta beint fólki til skólans. Flestir koma þó á eigin vegum.
Á þessum námskeiðum er markmiðið að fólk öðlist grunnatriði í daglegu spjalli og tilfinningu fyrir málfræðinni. „Á námskeiði númer þrjú læra þau til dæmis þátíðina, að þekkja föllin fjögur og geta sagt hluti eins og: Ég hef verið, ég hef farið og ég get farið. Auk þess að vera kominn með ágætis orðaforða í daglegt spjall og geta notað einfaldar setningar. Þetta er samt alltaf mjög einföld íslenska og þau eru í mismunandi aðstöðu til að æfa sig.“
Eðli málsins samkvæmt kennir Sólveig oft fólki sem er að koma úr erfiðum aðstæðum, enda leggur skólinn upp úr því að hafa heimilslegt andrúmsloft og ekki of stóra hópa. „Það getur verið spenna í tímanum,“ segir hún. „Fólk er auðvitað að kljást við allskonar.“ Sem dæmi nefnir hún að fyrst þegar sprengjuárásir hafi verið í Kænugarði hafi fólk frá Úkraínu oft fengið grátköst. Svipaða sögu megi segja um fólk frá Palestínu.
Hún segir tungumálakennslu snúast um að fólk eignist samfélag. „Það er þessi valdefling og líka sjálfstyrking sem mér finnst vera aðalatriðið. Ég kenni oftast stig eitt, tvö og þrjú svo ég get komið því að,“ segir hún sem kenndi sjálfstyrkingu í „gamla daga“ og álítur mikilvægt að nota þannig aðferðafræði í kennslu að fólk öðlist trú á sér. „Án tungumálsins missirðu alltaf stöðu þína við að flytja. Með því að ná tungumálinu nærðu að enduheimta stöðu þína í samfélaginu.“
Sólveig bendir á að fullorðinsfræðsla sé svolítið frábrugðin annarri kennslu. Miklu skipti hvernig kennarar nálgist hana. Hún er með áðurnefnt próf í fullorðinsfræðslukennslu en var áður upplýsingafulltrúi hjá stéttarfélaginu Sameyki og þar áður fræðslufulltrúi Alþjóðahúss. En hún hefur m.a. kennt á trúnaðarmannanámskeiðum, stjórnunarfræðslu og samskipti. „Ég var í þessum geira í gamla daga og er með reynslu af því að nálgast fullorðna einstaklinga sem eru að byrja að læra eitthvað. Þau eru auðvitað full af þekkingu og mikilvægt er að við hjálpum þeim að tengja það sem þau þegar kunna við nýja hluti, Það er ákveðið viðhorf sem mér finnst skipta mjög miklu máli hjá kennara.“
Margir nemenda hennar nú hafa dvalið á Íslandi um langt skeið: „Upp undir að hafa verið hér í tíu ár.“ Hún hefur þó líka haft nemendur sem höfðu aðeins dvalið hér í mánuð. „En fólk sem hefur dvalið hér lengi skilur oft mjög mikið og kann að nota ákveðna frasa. Oft kann það vinnutengda frasa en langar að kunna meira og kemur til að hreinsa upp málfræðina. Við erum með stöðupróf og þar sem metið er á hvaða stig fólk það fer en við erum með sjö stig í skólanum.“
Um er að ræða ólíka hópa. „Fólk sem hefur til dæmis lært tungumál áður og býr að svipuðu tungumálakerfi fer hraðar í gegnum námið á meðan aðrir þurfa stundum að taka sama stigið jafnvel tvisvar.“
Eins og áður sagði getur kennari hæglega verið með nemendur frá 14 löndum á sama tíma. Sólveig telur því mikilvægt að bjóða upp á fjölbreytt úrval í náminu. Nokkrir aðrir skólar kenna íslensku á borð við Mími og Dósaverksmiðjuna en áherslur skólanna eru að einhverju leyti misjafnar. Eins er hægt að sækja íslenskunám úti á landi eins og hjá fræðslumiðstöðvunum og hún nefnir jafnframt valkosti sem hún segir öfluga á borð við Símey á Eyjafjarðarsvæðinu og einnig á Reykjanesi og á Ísafirði. „Svo er auðvitað hægt að læra í gegnum netið.“
Í Covid-faraldrinum byrjuðu þau hjá MúltíKúltí að kenna í gegnum netið. „Og í dag er það þannig að nemendur geta valið að vera í tíma eða vera í tímanum í gegnum netið. Það auðveldar aðgengi á landsbyggðinnni en við erum líka með nemendur sem eru í útlöndum. Sumir nemendur eru þannig alltaf í gegnum netið en aðrir koma suma daga í tíma en sækja tíma gegnum netið aðra daga. Á þennan hátt er til dæmis hægt að sækja tíma þó að barnið sé veikt.“
Fólk skiptir stundum um skóla, enda misjafnt hvað hentar hverjum. „Við erum öll að kenna það sama en á mismunandi hátt. Öll með okkar persónueinkenni.“
Sólveigu finnst mikilvægt að búa til sem flesta möguleika svo fólki gefist meira færi á samfellu í námi sínu. „Svo þú getir fjárhagsins vegna tekið fleiri tíma í íslensku. Sért ekki alltaf að hugsa þetta í stuttum tímabilum. Draumur minn sem kennara er að geta skipulagt 14 vikna námskeið. En ég gæti aldrei rukkað fyrir það. Þá væri ég komin langt yfir hundrað þúsund krónurnar sem fólk þarf að borga. Skólarnir eru allir með kúrsa sem spanna sex og hálfa viku – sem eru þá 40 klukkustundir en 60 kennslustundir. Fyrir það rukka skólarnir flestir um 59.000 krónur“
Skólarnir fá ákveðna upphæð frá ríkinu fyrir nemendur sem ljúka námskeiðunum. „Það er niðurgreiðsla ríksins til íslenskukennslu. Kerfið er svolítið eins og strandveiðarnar, þú veist aldrei hvað þú færð en upphæðin deilist niður á þá nemendur sem hafa náð fullri mætingu. Fjölgun nemanda hefur undanfarið verið töluverð hjá okkur í Múltíkúltí og á sama tíma lækkar framlag ríkisins hlutfallslega. Í ár reiknast okkur til að hlutfall ríkisisins sé um 19% í gegnum þessar greiðslur en fyrir tveimur árum voru þær í kringum 23% “ útskýrir hún en segir fyrirsjáanleikann lítinn og fyrir vikið sé erfitt fyrir skólana að lækka verðið.
Árlega ljúka um 2000 nemendur ljúka námskeiðum hjá Múltíkúltí. „En við fáum ekki mótgreiðslur frá ríkinu fyrir þessa 2000 nemendur, heldur upphæð sem er um einn fjórði af kostnaðinum. Ef ríkið ætlaði að fylgja stefnunni að greiða fyrir hvern einstakling á námskeiði, þá vantar mikið upp á það. Mín upplifun er sú að ríkið hendir ölmusu inn í íslenskufræðslu fyrir fullorðna.,“ segir hún en tekur fram að eitthvað sé um það að fyrirtæki greiði fyrir starfsfólk. „En við kennum líka inni í fyrirtækjum. Þá sendum við kennara á ákveðnum tímum, yfirleitt er þá kennt á kaffistofunni eða í fundarsal.“
Aðspurð um hvað henni þyki um lækkun fjármagns fyrir liðinn íslenskukennsla fyrir útlendinga svarar Sólveig: „Það er algjörlega andstætt við það sem þyrfti að gera. Allir skólar upplifa fjölgun nemenda en samt lækkar ríkið upphæðina sem það leggur til á móti. Sem er furðulegt ef hugsað er til fjölgunar innflytjenda á Íslandi. Það er galið að tala fagurlega um mikilvægi íslenskunnar og skilja svo þennan stóra hóp eftir án þess að hafa betri möguleika til að læra hana.“

Biðlistar eru í námið og skólinn vinnur að því að opna annars staðar á höfuðborgarsvæðinu. „Fólk sækir mikið í íslenskukennslu. Þannig að áhuginn er fyrir hendi. Fólk vill læra. Það þarf bara aðeins betri pólitík.“
Sólveig tekur þó fram að þrátt fyrir biðlista sé einhver hópur sem ætli sér ekki að læra tungumálið. „Við tilheyrum evrópska atvinnusvæðinu og hér er til dæmis ungt fólk sem vinnur hálft ár á kaffihúsi á Íslandi og hálft ár á Ítalíu. Slíkir hópar eru ekki að læra tungumálið, enskan dugar þeim. En svo eru líka ótal dæmi um það að fólk hafi komið hingað á þeim forsendum en síðan einhverjum árum síðar ákveður það að búa hér áfram, jafnvel búið að eignast fjölskyldu. Þá kemur það oft í nám og kann kannski bara hrafl í málinu en þarf allt í einu að tala við leikskólann. Svo það er sjaldnast þannig að fólk komi hingað fyrirfram ákveðið í því að læra íslensku á fyrsta degi. Þannig er fólk bara ekki.“
Hér á landi eru ekki menntastofnanir líkt og þær sem tíðkast í löndum á borð við Danmörku og Þýskalandi þar sem fólk sem flytur inn í landið getur strax hafi nám sérhannað fyrir innflytjendur og það á praktískan hátt fyrir lítið fé. Annars vegar er kennd íslenska sem annað mál í Háskóla Íslands og að sögn Eiríks Rögnvaldssonar – sem er í viðtali í sömu umfjöllun – er þá um að ræða: „Tiltölulega akademískt nám fyrir þá sem stefna að BA-prófi og svo hagnýtt nám.“ Það er þó aðeins fyrir fólk sem hefur rétt á því að fara í nám í háskóla.
Aftur á móti getur fólk sem hefur unnið hér um tíma fengið töluvert endurgreitt frá stéttarfélögum sínum. En ekki er hægt að koma beint inn í nám, nema greiða úr eigin vasa. Að sögn Sólveigar greiða stéttarfélögin tvö til þrjú námskeið á ári en þó sé misjafnt eftir stéttarfélögum hversu mikið það er.
„En stéttarfélögin eru mörg með sérreglur um íslenskukennslu. Til að fá styrk fyrir önnur námskeið þarftu samt að vera félagsmaður í ákveðið langri tíma, til dæmis sex eða tólf mánuði. En fyrir íslenskunámskeið gildir yfirleitt styttri tíma, svo stéttarfélögin koma til móts við fólk. Það munar gífulega um þetta og við finnum að þegar fólk tekur námskeiðin velta sumir fyrir sér hvort mögulegt sé að taka þriðja námskeiðið. Hvort það sé niðurgreitt. Ef þú ert búinn með skammtinn þinn hjá stéttarfélaginu þetta árið þarftu að bíða fram á næsta tímabil til að taka næsta námskeið og það getur verið vont í tungumálanámi að taka löng hlé. Einstaklingur fær styrk til náms og það verður að duga fyrir árið.“
Hluti nemenda Múltíkúltí er hjá stéttarfélaginu Eflingu: „ … og misjafnt hversu hár styrkurinn þar er,“ að sögn Sólveigar. „Hámarksstyrkur þar er 130.000 á ári, sýnist mér á heimasíðunni þeirra, og það er þá allt að 90% af námskeiðisgjaldi. Þá nærðu tveimur námskeiðum á árinu. En þetta er miðað við að þú sért í fullu starfi og hafir borgað til félagsins í sex mánuði af síðustu 24 mánuðum. En þetta eru auðvitað þeirra eigin réttur. Þau eru oft að nýta hluta af sínum kjarapakka sem þau myndu kannski nota í annars konar námskeið og starfsþróun – eins og íslenskir kollegar þeirra gera á sama tíma.“
Fæst fyrirtæki bjóða upp á íslenskukennslu á vinnutíma. Sólveig segir að fólk noti frítíma sinn til að læra íslensku og sé í ofan á lag oft hundþreytt. Auk þess að mörg þurfa að nota eigin peninga í námið. „Þannig eru þau burtu frá fjölskyldu sinni, ná ekki að hvíla sig fyrir næsta vinnudag og oft með áhyggjur af því hvernig eigi að borga næsta námskeið. Ímyndaðu þér hvernig það er að læra nefnifall, þolfall, þágufall og eignarfall á föstudagskvöldi, æðislegt!“
Hún segir að þrátt fyrir endalaust kvabb úti í samfélaginu um að útlendingar eigi að tala íslensku séum við, sem samfélag, að gera mjög lítið til að koma til móts við fólk sem hingað flytur. „Það hefur alveg gleymst að koma til móts við nýja tíma. Og það lærir enginn tungumál á þremur mánuðum, það er ekki hægt.“
Mannfræðingurinn í henni hefur ekki áhyggjur af hópamyndinu fólks sem talar bjagaða ensku sín á milli. „Ég held að fólk sé ekki að tala bjagaða ensku sín á milli en kannski sitt móðurmál. Og mér finnst hópamyndun eðlileg. En ég hef áhyggjur af því að fólk hafi ekki næg tækifæri af því að læra tungumálið. Og ég hef miklar áhyggjur af því að íslenskan eigi í vök að verjast. Ég held að við þurfum að auka framboð á möguleikum fólks til að læra. Held líka að við þurfum að taka fastar á því hvað er að gerast í samfélaginu,“ segir hún og vísar þar með til atvinnulífsins, enskunotkunar hjá fyrirtækjum, í nöfnum fyrirtækja og á skiltum sem og notkunar slanguryrða.
Er lýðræðislega mulið undan fólki ef það fær ekki næg tækifæri til að læra tungumálið?
„Algjörlega. Við erum að búa til jaðarhópa. Búum til hópa sem þekkja ekki réttindi sín og hafa takmarkaðri möguleika á að taka þátt í lýðræðislegu samfélagi. Fólk í þessari aðstöðu býður sig ekki fram í húsfélaginu eða íþróttafélaginu. Við þurfum á því að halda í okkar litla samfélagi að öll sé virk, öll taki þátt.“
Talið berst að því að fyrir þetta fámenna málsvæði er hver manneskja sem lærir íslensku dýrmæt. Sólveig segir að ef við ætlum að viðhalda íslenskunni sé nauðsynlegt að leggja peninga og hugsun í það. Í mörg ár starfaði hún sem fræðslufulltrúi í Alþjóðahúsinu og rifjar upp að þar hafi starf hennar aðallega falist í því að fræða Íslendinga; fara á vinnustaði og byggja þar brýr á milli íslenskra og erlendra starfsmanna.
„Ég held að það sé atriði sem við þurfum öll hérna að skoða aðeins. Það er fáránlegt að fara í bakaríið eða kaffihúsið og heyra Íslendinga panta: One cappuccino. Thank you. Yes, please. Þá er einhver enskumælandi að afgreiða. En ef við byrjum á því að taka út öll þessi litlu ensku orð, notum: Einn cappuccino, takk fyrir – þá mjakast þetta í aðra átt. Við erum öll íslenskukennarar þarna úti“

Í lok viðtalsins er Sólveig sjálf orðin útlendingur því undirrituð heyrir aftur í henni þegar hún er komin til Finnlands ásamt fjórum öðrum kennurum frá Múltíkúltí. Tilgangur ferðarinnar er að heimsækja stofnanir sem kenna finnsku og bjóða upp á námskeið fyrir innflytjendur. Þegar næst í hana er hún nýkomin úr heimsókn í stærstu fræðslumiðstöð Helsinki-borgar.
Hún útskýrir að um sé að ræða fræðslumiðstöð: „Sem fær 60 prósent fjármagn frá borginni og 30 prósent frá ríkinu en um tíu prósent frá nemendunum sjálfum. Til dæmis kostar sjö vikna finnskunámskeið fyrir vinnandi fólk 50 Evrur. Okkar námskeið heima eru aðeins styttri og færri tímar. Þarna eru þetta 14 tímar í hverri viku. Hælisleitendur og atvinnulausir borga þó ekkert en mega læra finnsku í eitt ár.“
„Í Helsinki eru tíu skólar bara á vegum þessarar stofnanar, í öllum hverfum. Í nágrannasveitarfélaginu Vantaa heimsóttum við aðra fræðslustofnun sem fær sama fjármagn frá ríkinu en afgangurinn er fjármagnaður af sveitarfélaginu. Hlutur sveitarfélaganna er aðeins mismunandi eftir því hvar í landinu skólarnir eru en þó eru alls staðar í Finnlandi verið að gera betur en við Íslendingar. Í Finnlandi er einfaldlega litið svo á að algjörlega nauðsynlegt sé fyrir innflytjendur að læra málið til þess að fá vinnu og búa í Finnlandi,“ segir hún og bætir við að þar hafi enska ekki tekið yfir: „ … eins og manni virðist stundum hér.“
Þá útskýrir hún að Reykjavíkurborg og sveitafélög greiði ekki neitt til íslenskukennslu, nema bara til barna og unglinga í gegnum skólakerfið og að einhverjum hluta til eigin starfsmanna. „En ekki inn í almennu fullorðinsfræðsluna. Eftir heimsóknina til Finnlands upplifum við rosalegan aðstöðumun á milli þess að reka íslenskuskóla og finnskuskóla.“
Að lokum segist hún hafa fengð að sitja finnskutíma með fólki sem lært hefur finnsku í tvö til þrjú ár. „Heima þekkist varla að fólk sé búið að vera í marga tíma, ár eftir ár, að læra tungumálið, nema í háskólanum auðvitað. Þvert á móti er fólk að skammta sér námið og reikna út hvað stéttarfélagið og Vinnumálastofnun leggi til. Stöðugt að hugsa: Hvernig get ég borgað þetta, hvaða tíma hef ég?“
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.