
Ef Ísland gengi í ESB þá yrði það breyting fyrir flest íslensk fyrirtæki, en ekki endilega umbylting á einni nóttu. Hugveitan Evrópustraumar vann skýrslu fyrir Félag atvinnurekenda, þar sem greind eru áhrif aðildar á rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja og dregnir fram bæði kostir og gallar. Höfundurinn vonar að skýrslan sé gagnlegt framlag inn í umræðuna.

Tollar, gjaldmiðlar, vextir á lánum og regluumhverfi eru meðal þess sem hugveitan Evrópustraumar skoðar frá ýmsum hliðum í nýútkominni skýrslu um ESB og rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja. Félag atvinnurekenda og Íslensk-evrópska viðskiptaráðið létu gera skýrsluna en á kynningarfundi í vikunni var sérstaklega tekið fram að félagið tæki ekki afstöðu í þjóðaratkvæðagreiðslu. Skýrslunni væri ætlað að upplýsa og vera innlegg í umræðuna.
Hugveitan er stofnuð af Hallgrími Oddssyni hagfræðingi, en hann er í viðtali í hlaðvarpi Gímaldsins. Viðtalið má hlusta á hér í spilara inni í greininni og einnig á helstu hlaðvarpsveitum.
Skýrslan ber heitið ESB og rekstrarumhverfi fyrirtækja og skiptist í þrjá meginhluta: tolla og utanríkisviðskipti, gjaldmiðil og vaxtaumhverfi, og að lokum regluumhverfi og stöðu EES-samningsins. Hallgrímur lýsir markmiði skýrslunnar þannig að hann hafi viljað skoða hvað það er sem myndi breytast eða gæti breyst í rekstrarumhverfi fyrirtækja ef Ísland gengur í ESB. Ekki sé verið að leita að rökum fyrir fyrirfram ákveðinni niðurstöðu heldur skoða málin og leggja upplýsingar og niðurstöður á borðið.

Eitt af því sem bent er á í skýrslunni er munurinn á því að vera í EES annars vegar og tollabandalagi ESB hins vegar. Ísland er í dag á innri markaðnum en utan tollabandalagsins. Það þýðir að þegar vara kemur til Íslands þarf að tollafgreiða hana sérstaklega, jafnvel þótt tollurinn sé 0%. Innan tollabandalagsins hverfur sá kostnaður.
Á móti kæmi að Ísland tæki upp ytri tolla ESB gagnvart þriðju ríkjum. Þeir eru að jafnaði hærri en núverandi íslenskir tollar á sömu vöruflokka. Hallgrímur segir að stærsta einstaka breytingin í þeim efnum sé gagnvart Kína. Ísland er eitt fárra ríkja í heiminum með tvíhliða fríverslunarsamning við Kína, samning sem myndi falla niður við ESB-aðild. „Það er kannski það stærsta þarna, af því fríverslunarsamningar Íslands og Evrópusambandsins eru að mestu hinir sömu í dag. Við flytjum inn mikið frá Kína. Evrópusambandið gerir það raunar líka eins og öll ríki heims. Kína er stærsta útflutningsland sögunnar og innflutningur þaðan til Íslands hefur þrefaldast á síðasta áratug,“ bendir hann á. Tollar ESB á kínverskar vörur eru víða hærri en þeir íslensku, sem þýðir að verð á ýmsum innfluttum vörum frá Kína myndi hækka.
Á fyrstu mánuðum ársins voru vextir á nýjum fyrirtækjalánum hér á landi yfir 10%, en á bilinu 3,2-5,6% í ESB-löndum, samkvæmt skýrslunni en stuðst er við gögn frá Seðlabanka Íslands og Seðlabanka Evrópu.
Hallgrímur er varkár í fullyrðingum um hvað nákvæmlega myndi gerast við ESB-aðild, en segir að allt bendi til lækkunar. „Ég bendi auðvitað á að það eru, við getum kannski ekki fullyrt að vextir verði eitthvað ákveðnir ef við göngum inn í Evrópusambandið, en það eru þó allt sem bendir til að þeir myndu lækka. Skýringin er einföld: grunnvextir myndu taka mið af meginvöxtum Seðlabanka Evrópu, en ekki Seðlabanka Íslands,“ segir Hallgrímur.
Hann bætir þó við að innlendir þættir myndu ennþá skipta máli eins og bankaskattar, bindiskylda, verðbólga og samkeppni á fjármálamarkaði.

Spurningin um gjaldmiðilinn er ein þeirra sem velt er upp í skýrslunni. Hallgrímur bendir á að það hafi tekið ríki þrjú til nítján ár að taka upp evru eftir inngöngu í ESB og að til þess þurfi að uppfylla ströng skilyrði.
Ísland uppfyllir í dag þrjú af fimm svonefndum Maastricht-skilyrðum. Verðbólga og langtímavextir uppfylla ekki kröfurnar nú. En bent er á í skýrslunni að verðbólguvæntingar gætu lækkað þegar Ísland stefnir að inngöngu í gengissamstarf, en að langstærsti hlutinn sé í höndum Íslendinga sjálfra.
Hann vísar til vinnumarkaðsmódelsins, reksturs hins opinbera og útgjalda ríkisins sem þeirra þátta sem ráða mestu. En þegar horft er til langs tíma sé verðstöðugleiki betur tryggður með evru.
Netverslun skiptir sívaxandi máli en erlend netverslun Íslendinga jókst um 15% árið 2025 og nam 34–36 milljörðum króna, að því er fram kemur í skýrslunni. Netverslun er aðgengilegri neytendum innan ESB en á Íslandi og með einfaldara uppgjöri virðisaukaskatts og afnámi tollafgreiðslu yrði netverslun frá ríkjum ESB enn samkeppnishæfari á Íslandi við aðild.
Í dag þarf að greiða VSK þegar vara kemur til landsins, og í ákveðnum tilvikum getur tvísköttunarvandi skapast þar sem kaupandi greiðir bæði við kaup og við afhendingu. Við ESB-aðild myndi þetta breytast, að því er segir í skýrslunni, auk þess sem opnast gæti fyrir aðgengi að netverslunum t.d. stórra merkjavara sem ekki þjónusta Ísland eins og staðan er nú. Að sama skapi myndi staða íslenskra netverslana batna á Evrópumarkaði.
Niðurstöður skýrslunnar eru ekki í formi ráðleggingar um hvort fyrirtæki eru betur sett utan eða innan ESB, heldur eru dregnar fram upplýsingar og gögn sem máli skipta til að öðlast heildarmynd um það hvernig rekstrarumhverfi fyrirtækja gæti breyst ef Ísland gengur inn í Evrópusambandið. „Ég tala um í skýrslunni að þetta verði breyting en ekki umbylting fyrir flestan rekstur.“ Undantekningu á því segir hann vera landbúnaðinn, það yrðu breytingar miklar, en Hallgrímur bendir jafnframt á að nákvæm greining á áhrifunum á landbúnaðinn, bæði frá hlið neytenda og framleiðenda, hafi einfaldlega ekki átt sér stað.
Hallgrímur segist telja mikla þörf á frekari greiningum á kostum og göllum áður en þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram. „Ég held að fólk almennt sé fullfært um að um að ræða þetta á þessum nótum, öðruvísi en á háa C-inu,“ segir hann.
Skýrslan er aðgengileg á evrópustraumar.is.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.