
Fyrrverandi forseti telur stríðandi fylkingar, deilur um auðlindir og algera kröfu um víðtæka sátt, hafi staðið breytingum á stjórnarskrá fyrir þrifum.

Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti Íslands, telur synjunarvald stríðandi fylkinga, deilur um auðlindaákvæði og algera kröfu um víðtæka sátt, hafa staðið breytingum á stjórnarskrá fyrir þrifum. Hann leggur til að þjóðin fái endurskoðaða stjórnarskrá árið 2030, á 1100 ára afmæli Alþingis. Þetta kom fram í erindi sem forsetinn fyrrverandi hélt í Háskólanum á Akureyri í síðustu viku.
Erindi Guðna bar yfirskriftina: Af hverju er ekki lengur hægt að breyta stjórnarskrá lýðveldisins? En með spurningunni vísaði Guðni til loforðs um heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar sem gefið var í aðdraganda lýðveldisstofnunnar 1944 og velti því fyrir sér af hverju hún hefði ekki enn tekist nú rúmum 80 árum síðar.
Samandregið svar Guðna var að tvær fylkingar hefðu tekið sér synjunarvald og kæmu með því í veg fyrir breytingar. Pólitísk deiluefni einkum um auðlindaákvæði hafi líka spillt fyrir. Þá sé alger krafa um að breytingar séu gerðar „í sátt og samlyndi“ ef til vill mesta andstöðuafl breytinga á stjórnarskrá.
Loforðið um heildarendurskoðun kom til vegna þess að þegar Íslendingar lýstu yfir sjálfstæði í miðri seinni heimstyrjöld töldu menn afar brýnt, aðstæðna vegna að þjóðin lýsti sem mestri samstöðu um þann vilja sinn að stofna lýðveldi.

„Þess vegna var um það rætt og um það samið í þingsal að engu yrði breytt í stjórnarskránni nema því sem nauðsynlegt væri til að breyta konungsríki í lýðveldi,“ sagði Guðni. Svo yrði tekið til við endurskoðun stjórnarskrárinnar eftir stofnun lýðveldis.
Þetta heppnaðist að því leyti að samstaðan var nær alger, tæp 99 prósent landsmanna greiddu atkvæði með nýrri stjórnarskrá í þjóðaratkvæðagreiðslu. En endurskoðunin sem lofað var hefur ekki enn farið fram, þótt fyrstu árin hafi reglulega verið minnt á það. Til dæmis Sveinn Björnsson sem kvartaði undan því í nýársávarpi árið 1959 að ekkert bóli enn á þeirri stjórnarskrá sem lofað hafi verið og vonandi dragist það ekki of lengi.
En þetta dróst og dróst. Ýmsu hefur þó verið breytt í stjórnarskránni. Guðni nefndi til dæmis að deildaskipting alþingis var afnumin1991 og við sama tækifæri var gerð sú breyting að þingmenn halda áfram umboði sínu þótt þing sé rofið. Nýr mannréttindakafli tók gildi 1995 og ákvæðum um kjördæmaskipan hefur þrívegis verið breytt í stjórnarskrá.
Þrátt fyrir þessar breytingar standi meginkaflinn enn nánast óhreyfður; Kaflinn um hina eiginlegu stjórnskipun landsins, um þjóðhöfðingja og samband hans við aðra valdhafa. Í erindi sínu staldraði Guðni lengst við þennan meginkafla stjórnarskrárinnar enda sé það hann ekki síst sem þarfnist endurskoðunar. Umfjöllun Guðna um þennan meginkafla stjórnarskrárinnar er stórskemmtileg en hægt er að hlusta á erindi hans í heild hér.
Guðni telur það ekki helsta ágalla stjórnarskrárinnar að hún sé dönsk, þótt margir hafi amast við því gegnum tíðina. Meginvandamálið að mati Guðna er að hún skrifuð fyrir konungsríki en ekki lýðveldi. Það geti skapað ákveðin vandkvæði.
Guðni lýsir svo þessum vandkvæðum. Kaflinn sé byggður upp eins og forseti hafi geysileg völd sem svo séu tekin af honum með skýringum um hvers vegna hann hafi þau ekki lengur. „Úr verður flókin blanda sem erfitt er að henda reiður á,“ sagði Guðni.

Guðni sagði endurskoðun þessa kafla hafi aftur orðið mönnum hugstæð upp úr aldamótum og þá með það markmið að færa kafla um þjóðhöfðingja nær raunveruleika íslenskrar stjórnskipunar.
„Þetta varð ekki til lykta leitt vegna þess að það gerðist dálítið,“ segir Guðni kíminn og vísar til þess þegar Ólafur Ragnar Grímsson, þáverandi forseti ákvað að synja lögum staðfestingar í fyrsta sinn árið 2004. Vöknuðu þá ný lögfræðileg álitamál.
Þótt enginn velkist nú í vafa um þetta vald forseta, var því alls ekki svo farið þá. Fóru allar umræður um stjórnarskrárbreytingar í skrúfuna upp úr þessu, því umræðan um synjunarvaldið varð svo yfirþyrmandi.
„Svo kom hrunið með ákalli um nýtt lýðveldi, nýja stjórnarskrá. Stjórnlagaþing sem varð stjórnlagaráð samdi tillögu að nýrri stjórnarskrá og færði þinginu en svo stoppaði það allt saman,“ sagði Guðni og leitaðist svo við að svara aðalspurningu sinni:
„Síðan þá höfum við haldið áfram í ákveðnum hjólförum sem við komumst ekki upp úr og ég myndi nánast líta á það þannig að á síðustu árum og áratug hafa tvær fylkingar haft synjunarvald. Annars vegar þau sem segja að engu þurfi að breyta og hins vegar þau sem segja að öllu þurfi að breyta. Og við lendum alltaf í eldlínunni milli stríðandi fylkinga, við skynsama fólkið sem viljum málamiðlanir og áfangasigra. En ekkert gerist.“
„Síðan höfum við haldið áfram í ákveðnum hjólförum sem við komumst ekki upp úr“
Guðni nefndi í dæmaskyni vin sinn Birgi Ármannsson, fyrrverandi alþingismann og forseta Alþingis. Guðni líkti eftir Birgi í landsföðurlegum tón: „Vissulega þarf að skoða vissar endurbætur á stjórnarskrá en hér þarf að vanda til verka og taka sér nægan tíma.“ Guðni ítrekaði svo að þegar Birgir tali um ‚nægan tíma‘ þá sé hann að hugsa í áratugum.

Á móti Birgi og félögum standi svo byltingarsinnarnir sem segi allt ónýtt og það þurfi nýja stjórnarskrá frá grunni og það strax.
á meðan þessar fylkingar voru að takast á missti fólk hreinlega áhuga á málinu. Guðni rifjaði upp erindi sem hann hélt á fundi hjá Stjórnarskrárfélaginu árið 2015. „Glugginn er búinn að lokast,“ sagði ég. Það er ekki lengur krafa í samfélaginu um þessa byltingu sem var svo rík árin 2009, 2010 og 2011. Þessi byltingarandi, hann þvarr.“
Þetta megi sjá í skoðanakönnunum um þau mál sem brenni á fólki en þar sé stjórnarskrármálið komið mjög aftarlega á merina.
Samsetning Alþingis eftir síðustu kosningar sýni þetta líka. Þar sé ekki lengur sterkt ákall um breytingar á stjórnarskrá. Píratar eigi ekki fulltrúa á þingi og Samfylkingin sem hafi áður haldið málinu mjög á lofti hafi aðrar áherslur í dag.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, fyrrverandi þingmaður, var í salnum, og í umræðum eftir framsögu Guðna, benti hún á að það væru ekki eingöngu stríðandi fylkingar um allt eða ekkert sem stöðvað hefðu breytingar heldur líka afstaða til einstakra mála. Nefndi hún sérstaklega tillögur um auðlindaákvæði sem allt hafi strandað á í tilraunum til breytinga.
„Auðlindaákvæði getur bara spillt fyrir allri annarri vinnu.“

Guðni tók undir þetta. „Ég hygg að þetta skipti máli og það yrði miklu erfiðara að þoka áfram breytingum á kaflanum um þjóðhöfðingjann […] ef við líka tökum slaginn um auðlindaákvæðið. Sem er nota bene það eina sem núverandi ríkisstjórn minnist á þegar vikið er að stjórnarskrárbreytingum í sáttmála hennar,“ sagði Guðni og kjarnaði svar sitt:
„Stutta svarið er, auðlindaákvæði getur bara spillt fyrir allri annarri vinnu.“ Guðni nefndi einnig framsalsákvæði, sem skapað hefur vandamál vegna framkvæmdar alþjóðlegra skuldbindinga hér á landi en ekki hefur reynst mögulegt að koma slíku ákvæði í stjórnarskrá vegna ótta við að það verði nýtt til inngöngu í Evrópusambandið.
„Þarna koma inn hápólitískar deilur sem myndu gera allt svo miklu erfiðara.“
Guðni viðurkenndi að ákvæðin um hvernig breyta megi stjórnarskránni séu erfið. Fyrst þurfi samþykki þings, svo ber að rjúfa þing og næsta þing staðfesti svo breytingarnar áður en þær ganga í gildi. En þetta sé hins vegar ekki það erfiðasta við breytingar á stjórnarskrá.
„Við höfum búið til þá kenningu að það megi bara breyta stjórnarskrá í sátt og samlyndi. Og það er hið sterka andstöðuafl, ekki endilega breytingaákvæði stjórnarskrárinnar,“ sagði Guðni og hélt áfram í ákafa: „Og þetta er bara ekki satt. Það er bara ekki satt að stjórnarskrá hafi alltaf verið breytt í sátt og samlyndi,“ sagði Guðni og rifjaði upp breytingar á stjórnarskrá um kjördæmaskipan bæði árið 1942 og 1959 en miklar deilur hafi staðið um þær breytingar sem afgreiddar voru gegnum algerlega sundruð þing.
„Það er bara ekki satt að stjórnarskrá hafi alltaf verið breytt í sátt og samlyndi“
„Þannig að við verðum kannski að losna undan því oki líka. Við getum ekki leyft að hver og einn sem er á móti, finnst þetta ekki nóg eða of mikið, segi bara, „ég er ekki sáttur“ og þá gerist ekki neitt. Það þarf bara að stíga yfir þann þröskuld og þá mun kannski eitthvað gerast,“ sagði Guðni og bætti við: „Við þurfum að finna milliveginn.“
Guðni benti á dæmi þess að reynt hafi verið að ráðast í endurskoðun við sérstök tilefni. Til dæmis hafi verið uppi hugmyndir um slíkt árið 1974 í tilefni af 1100 ára Íslandsbyggðar, en ekkert orðið af því. Hann benti svo fimm ár fram í tímann til ársins 2030 þegar ellefu aldir verða frá stofnun Alþingis. „Hvernig væri að reyna einu sinni enn?“
„Hvernig væri að reyna einu sinni enn?“
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.