Tólf úrbótatillögur og eitt tækifæri í skýrslu um Græna gímaldið

Lestími: 9 mínútur

Annmarkar voru bæði í undirbúningi máls hjá stjórnsýslu borgarinnar og í þeirri yfirferð sem fór fram hjá kjörnum fulltrúum í umhverfis- og skipulagsráði áður en ákvörðun um að leyfa Græna gímaldið var tekin. Þetta kemur fram í úttekt innri endurskoðunar á skipulagsferli vegna Álfabakka 2a, sem nefnt hefur verið Græna gímaldið, sem kom út í vikunni.

Stjórnsýsla og framkvæmd skipulags- og leyfisferla hefðu mátt vera markvissari, skýrari og betur skjalfest, segir í úttekt um Græna gímaldið sem lögð var fyrir borgarráð á fimmtudag.

Innri endurskoðun og ráðgjöf Reykjavíkur var falið það verkefni af borgarstjórn að gera úttektina með ákvörðun á fundi þann 7. janúar 2025. Ferlið hefur því tekið alls um 18 mánuði frá því ákvörðun um úttektina var tekin. Meðal þess sem lagt var upp með að kanna var ferli ákvarðanatöku, regluverk, eftirlitsferlar og það hvernig unnið var úr athugasemdum íbúa vegna málsins.

Lagðar voru fram 12 tillögur að úrbótum og 1 tækifæri til umbóta, eins og það er kallað í úttektinni. Alls 13 liðir sem beint er til borgarinnar að bæta úr. Borgarráð samþykkti að taka þær allar til greina og vísaði þeim áfram til umhverfis- og skipulagssviðs.

Veikleikar höfðu áhrif á gagnsæi og skýrleika

Niðurstöður úttektar varða ýmsa þætti ferlisins. Skýrslan er á 56 blaðsíðum og hún afmarkast við tímabilið frá því að gildandi deiliskipulag fyrir Suður-Mjódd tók gildi árið 2009 og til loka árs 2025.

Drög að skýrslu voru tilbúin þann 28. janúar síðastliðinn og voru þá kynnt borgarritara, sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs, formanni umhverfis- og skipulagsráðs og ráðsmanni úr ráðinu. Umhverfis- og skipulagssvið skilaði umsögn og ábendingum um skýrsluna þann 11. mars. Þann 24. mars, tæpum tveimur mánuðum eftir kynningu á fyrstu drögum, sendi innri endurskoðun skýrsludrög til fyrrverandi skipulagsfulltrúa, fyrrverandi deildarstjóra skipulagsmála, Álfabakka 2 ehf. og Búseta hsf. og óskaði eftir umsögn. Niðurstöður úttektar voru kynntar endurskoðunarnefnd 21. maí og lagðar fyrir í borgarráði 18. júní.

Niðurstöður úttektarinnar lúta að ýmsum þáttum. Þrennt verður hér dregið fram úr niðurstöðukafla skýrslunnar þar sem innri endurskoðun lýsir mati sínu á ferlinu:

  • „Að mati IER [Innri endurskoðunar og ráðgjafar] voru stjórnsýslulegir veikleikar til staðar í undirbúningi og meðferð málsins. Gögn málsins benda til þess að ekki hafi legið fyrir nægilega skýr og fullnægjandi gögn um áhrif og umfang breytingarinnar við afgreiðslu málsins í umhverfis- og skipulagsráði. Það bendir til annmarka, bæði í undirbúningi máls hjá stjórnsýslunni og í þeirri yfirferð sem fram fór hjá ráðinu áður en ákvörðun var tekin.“
  • „Heildarmat IER bendir til þess að stjórnsýsla og framkvæmd skipulags- og leyfisferla hefðu að ýmsu leyti mátt vera markvissari, skýrari og betur skjalfest. Einkum á þetta við um skipulagsskilmála, framsetningu skipulagsgagna, upplýsingagjöf, rekjanleika ákvarðana og yfirsýn yfir leyfisferli. Veikleikar komu fram á fleiri en einu stigi ferlisins og höfðu í sumum tilvikum áhrif á skýrleika, gagnsæi og fyrirsjáanleika málsmeðferðar.“
  • Að mati IER gátu þessir veikleikar skapað óvissu um túlkun skipulagsheimilda og torveldað hagsmunaaðilum að átta sig á forsendum ákvarðana og mögulegum áhrifum þeirra. Frá árinu 2025 hefur verið unnið markvisst að endurskoðun á skipulagi og ferlum umhverfis- og skipulagssviðs. Að mati IER er mikilvægt að þær breytingar verði að fullu innleiddar, enda miða þær að eflingu þjónustu við borgarbúa, til að tryggja að ferlið frá sölu til framkvæmda verði skilvirkt, faglegt og traust.“

Úrbæturnar sem borgarráð samþykkti

Tillögur og tækifæri úttektarinnar, sem alls eru 13, skiptast í fjóra undirkafla.

  • Úrbótatillögur um yfirferð deiliskipulags og samskipti
  • Úrbótatillaga um afgreiðslu byggingarleyfa
  • Úrbótatillögur um skipulag USK, fundargerðir og starf fagráða
  • Tækifæri til umbóta um heimildir skoðunarmanna

Deiliskipulag og samskipti

Því er beint til embættis skipulags- og byggingarfulltrúa (sem áður voru tvö embætti en er nú sameinað í eitt) að skýrar kröfur um skil og framsetningu gagna verði settar í verklagsreglur embættisins. Kveða þurfi á um hvaða breytingar verði á aðliggjandi svæðum, einkum þegar um er að ræða breytingar á skipulagi á svæði sem þegar hefur verið byggt upp eða er í byggingu. Þá er vikið að því að gera eigi kröfu um afstöðumyndir, þrívíddarteikningar og myndir af skuggavarpi.

Umhverfis- og skipulagsráð á að móta skýr viðmið um hvernig svara eigi ábendingum og áhyggjum íbúa í skipulagsmálum, segir í úttektinni. Sé ekki hægt að svara íbúum skýrt um áhrif skipulagsákvæða skuli endurskoða ákvæðið eða skýra frekar.

Þegar deiliskipulagi sé breytt skulu öll helstu deiliskipulagsákvæði sem gilda um svæðið koma fram, en ekki aðeins þau sem breytt er. Þetta sé í anda góðrar stjórnsýslu og gagnsæis, einkum þegar margar breytingar eru gerðar.

Embætti skipulags- og byggingarfulltrúa er falið „með skýru verklagi og gæðaeftirliti“ að tryggja að auglýsingar um deiliskipulag „séu settar fram á skýran hátt og birtist rétt þannig að hagsmunaraðilar geti auðveldlega áttað sig á efni þeirra og mögulegum áhrifum.“ Þá er áréttað að tilkynningar til hagsmunaaðila um breytingar á deiliskipulagi séu ekki aðeins sendar með bréfi heldur einnig rafrænt.

Áréttað er að þeir sem vinni að gerð deiliskipulags uppfylli hæfisskilyrði.

Þá segir í úttektinni að umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur skuli tryggja að lóðarvilyrðishafar fái skýrar leiðbeiningar um stefnumörkun borgarinnar um viðkomandi lóð og að „viðhaldið sé virku sambandi við kaupendur til að samræma væntingar í skipulagsferlinu,“ eins og það er orðað.

Skoðun IER tekur til tveggja meginþátta, að því er segir í úttektinni. „Annars vegar voru tekin viðtöl við núverandi og fyrrverandi starfsfólk Reykjavíkurborgar og helstu hagsmunaaðila og hins vegar er farið yfir gögn og upplýsingar sem liggja til grundvallar skipulags- og leyfisferlinu, svo sem úthlutun lóða, breytingar á deiliskipulagi, útgáfu byggingarleyfa, eftirlitsskýrslur og samskipti.“ Úttektin er ekki unnin sem lagaleg álitsgerð. Mynd/Róbert Reynisson/Reykjavík

Afgreiðsla byggingarleyfa

Undir þessum lið er áréttað að fram fari „formlegt, skjalfest og rekjanlegt mat“ á því hvort framkvæmd teljist matsskyld áður en byggingarleyfi er samþykkt. Einnig að fyrir liggi fullnægjandi og tæknilega rétt gögn ásamt afstöðumyndum sem sýna skuli mannvirki á aðliggjandi lóðum, áður en framkvæmdir hefjast. Þetta verði gert svo hægt sé að leggja mat á grenndaráhrif, hönnun og samræmi.

Skipulag umhverfis- og skipulagssviðs, fundargerðir og starf fagráða

Undir þessum lið eru gerðar fimm tillögur til úrbóta. Sú fyrsta er að umhverfis- og skipulagssvið ljúki við innleiðingu skipulagsbreytinga. Rétt er að geta þess að þær breytingar komu til eftir að ákveðið var að ráðast í úttektina.

Önnur og þriðja úrbótatillaga fjalla einnig um hið breytta skipulag sviðsins. Áréttað er að uppfæra þurfi verkferla „fyrir meginferlið sala-skipulag-hönnun-uppbygging fyrir lok 2026“, ljúka við innleiðingu gæðakerfis, greina flöskuhálsa, tryggja að mönnun sé í samræmi við umfang verkefna og að þau séu „unnin skilvirkt, með stöðugri eftirfylgni og að samskiptin í tengslum við þau séu markviss og samræmd,“ eins og það er orðað.

Fjórða úrbótatillagan undir þessum lið lýtur að hluta að starfi borgarfulltrúa og setu þeirra í fagráðum borgarinnar. Lagt er til að verklag fyrir fagráðin verði innleitt, það verði byggt á „árlegri starfsáætlun, áhættumati verkefna og reglubundnum samantektum um stöðu og umfang mála“. Ennfremur segir að efla þurfi sameiginlegan skilning á verkaskiptingu stjórnsýslu og fagráða. „Þá verði metið hvort umfang verkefna, undirbúningstími funda og seta ráðsmanna í fleiri en einu fagráði styðji við fullnægjandi yfirferð mála.“

Þá er lagt til að skrifstofa stjórnsýslu og gæða leiti leiða til að styrkja verklag við gerð fundargerða. „Mikilvægt er að hafa fundargerðir skýrar, áreiðanlegar og aðgengilegar enda þjónar það grundvallarþáttum vandaðrar stjórnsýslu,“ segir í úttektinni.

Tækifæri til umbóta

Eftir upptalningu á úrbótatillögunum tólf er settur fram þrettándi liður sem kallaður er tækifæri til umbóta um heimildir skoðunarmanna. Hann er svona: „Vel færi á því að Reykjavíkurborg héldi utan um heimildir skoðunarmanna sinna ásamt flokkun bygginga í skoðunarflokka til að tryggja að þær hljóti skoðun hjá skoðunarmanni með réttar heimildir.“

Þessir 13 liðir eru sagðir miða að því að bæta starfsemi og stjórnsýslu borgarinnar og stendur til að fylgja þeim eftir með sérstakri könnun að ári.

Umfjöllun Gímaldsins um umsögnina sem aldrei átti að birta

Borghildur Sturludóttir arkitekt og fyrrverandi staðgengill skipulagsfulltrúa Reykjavíkurborgar var til viðtals við Gímaldið í vor. Þar lýsir hún með eigin orðum ferlinu og því hvernig umsögn hennar, sem hefst á orðunum „Leyfi til að gera ljótar byggingar er mikið á Íslandi…“ rataði í fundargerð en var síðan kippt þaðan út. Nokkuð sem varð tilefni til þess að Umboðsmaður Alþingis hóf athugun á málinu og því hvernig farið er með fundargerðir hjá Reykjavíkurborg.

Athugun Umboðsmanns Alþingis enn í vinnslu

Frumkvæðisathugun Umboðsmanns Alþingis vegna fundargerða Reykjavíkurborgar um skipulagsafgreiðslu Græna gímaldsins er enn í vinnslu. Umboðsmaður Alþingis staðfestir í samtali við Gímaldið að Reykjavíkurborg hafi sent frekari gögn eftir að óskað var eftir því í febrúar síðastliðnum. 

Athugun embættisins hófst með ósk um gögn frá borginni í júní 2025. Tilefnið var umfjöllun í fréttum um að fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa hefði verið tekin af vefsíðu Reykjavíkurborgar, henni breytt og hún birt á ný. Óskað var eftir tilteknum upplýsingum og skýringum frá borginni vegna málsins. Á því ári sem liðið er frá því athugun hófst hefur í tvígang verið óskað frekari upplýsinga. Ekki liggur fyrir hvenær niðurstaða fæst en málið er í skoðun og ekki hefur verið óskað eftir frekari gögnum eða skýringum frá borginni að svo stöddu. 

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 20. júní, 2026, 10:46

Eyrún Magnúsdóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link