Margrét Tryggvadóttir: Krossgötur

Rut og Alma tala aldrei saman þótt þær séu bæði skólasystur og nágrannar; Rut lætur lítið fyrir sér fara og tilheyrir trúaðri fjölskyldu sem lokar sig af en Alma er marksækin og ætlar sér að ná langt í lífinu. Kærasti Ölmu, Hlynur, er efnilegur handboltamaður sem stefnir á atvinnumennsku. Fannar býr í sömu blokk og stelpurnar og þráir athygli og viðurkenningu jafnaldra sinna en viðhorf hans og bakgrunnur gera honum erfitt fyrir.

Óvæntar áskoranir neyða krakkana til að endurskoða framtíðina sem þau sáu fyrir sér. Rut langar að yfirgefa trúfélagið. Alma efast um samband sitt við Hlyn þegar hann missir áhugann á náminu. Fannar glímir við fordóma, sína eigin og annarra.

Krossgötur er grípandi saga um ungar manneskjur á leiðinni út í lífið. Margrét Tryggvadóttir hefur áður sent frá sér fjölmargar bækur og hlotið fyrir þær ýmis verðlaun og viðurkenningar, m.a. Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur fyrir söguna Sterk.

Bókapressa Gímaldsins birtir brot úr væntanlegum og nýútkomnum bókum í samstarfi við höfunda og útgefendur.

Margrét Tryggvadóttir (f. 1972) er bókmenntafræðingur með MA-próf í menningarstjórnun og f.v. alþingismaður. Bækur hennar Íslandsbók barnanna og Skoðum myndlist hlutu Fjöruverðlaunin – Bókmenntaverðlaun kvenna. Íslandsbók barnanna var auk þess tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki barna- og ungmennabóka og fyrir hana var Margrét tilnefnd til Barnabókaverðlauna Reykjavíkur. Þau verðlaun hlaut samhöfundur hennar, Linda Ólafsdóttir, fyrir myndirnar í bókinni. Margrét hlaut, ásamt Halldóri Baldurssyni, Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir bók þeirra Söguna af undurfögru prinsessunni og hugrakka prinsinum hennar árið 2006.

Margrét skráði upplifun sína af setu á Alþingi í bókina Útistöður (2014) og hún hefur einnig ritað greinar og bókarhluta um sérsvið sín.

Mál og menning  2026 ⎮  Innbundin, 357 bls.  ⎮  Verð: 5.890,- ⎮  Rafbók: 3.290,-

Hann sá hana og það var eitthvað við hana. Hann ákvað að elta, bara að gamni sínu og jók gönguhraðann. Hún tók greinilega eftir því og hraðaði sér líka. Hann fann að hann æstist við það og greikkaði sporið enn frekar. Hann nálgaðist hana hratt en þá fór hún að hlaupa. Hún kæmist ekki langt. Hann hafði yfirburði frá náttúrunnar hendi, var miklu stærri og sterkari. Hún var bara písl, helvítis tíkin, hugsaði hann og fann fyrir blóðbragði í munninum. Hann myndi ná henni, fyrr en síðar. Bara að hún færi ekki að öskra.

Hún beygði inn í garðinn, sennilega að reyna að hrista hann af sér. Hann tók lambhúshettuna upp úr vasanum og dró hana yfir höfuðið. Svo tók hann á sprett á eftir henni. Hún steig á hálkublett og rann til en datt þó ekki sem gerði eftirförina bara meira spennandi. Hann fann adrenalínið streyma um æðarnar. Hann var eins og rándýr að elta bráð. Hann var skapaður fyrir þetta.

Hún hljóp að hjólageymslunni og reif í hurðina sem opnaðist. Áttu svona geymslur ekki að vera læstar? hugsaði hann þar sem hann stökk á eftir henni að dyrunum. Hún reyndi að loka á eftir sér en hann náði að henda sér á hurðina áður en hún skelltist aftur.

Þegar hann var kominn inn var hann fljótur að ná henni og grípa hana. Hann var svo miklu stærri og sterkari en hún. Hann hélt henni með öðrum handleggnum, en lagði lófann yfir munninn á henni svo engin heyrðu til hennar. Svo ýtti hann henni áfram, út úr hjólageymslunni og fram á mannlausan, myrkan ganginn. Hún reyndi að rífa sig lausa og bíta hann í lófann en hann hélt bara fastar og lét það ekki á sig fá. Ef eitthvað þá kveikti það bara í honum. En sítt hárið á henni lagðist upp við andlitið á honum svo hann klæjaði. Helvítis tíkin.

Hann þokaði þeim áfram að gamla gufubaðinu. Það var í raun heppilegt að hún hafði komist inn áður en hann náði henni. Hann hafði ætlað sér að króa hana af einhvers staðar úti en þetta var í raun miklu betra. Gufubaðið var vel einangrað, þangað kom aldrei neinn, þar gæti hann gert það sem honum sýndist og átti rétt á.

Hún var hans.

 

ÞRIÐJUDAGUR

12. nóvember

 

RUT

Bjallan hringdi í þann mund sem kennarinn lauk við að segja þeim hvaða kafla þau áttu að leggja áherslu á fyrir prófið í lok vikunnar. Hann hækkaði röddina til að yfirgnæfa bjölluna og minnti þau á að það styttist líka í skil á síðustu tveimur verkefnunum og svo tækju miskunnarlaus jólaprófin við.

Rut staflaði bókunum sínum saman og gekk frá þeim í bakpokann sinn. Fyrir aftan hana voru samnemendur hennar líka að ganga frá dótinu sínu með tilheyrandi skarki og hávaða þegar stólum var ýtt frá og bókum skóflað ofan í töskur og bakpoka. Hún andvarpaði þungt. Ef hún gæti bara spólað áfram nokkrar vikur yrði lífið miklu bærilegra. Hún kveið ekki fyrir prófunum. Hún myndi klára sig á þeim eins og venjulega og sennilega standa sig betur en nokkur vænti enda svo sem enginn heima hjá henni sem hafði nokkrar væntingar til námsárangurs hennar. Það var allt hitt sem fylgdi tímanum fram undan sem hún vildi losna við. Aðventan, jólin og það allt. Jólapeysudagar, jólakveðjur, endalaus spenningur, jólalög og auglýsingar. Skraut og ljós alls staðar nema heima hjá þeim. Og svo þessi dauði tími þar sem ekkert var um að vera, skólinn lagðist í dvala og hún var innikróuð með fjölskyldunni en samt svo ein. Fjölskyldu sem hélt ekki upp á jólin en lofaði guð alla daga.

Rut gekk fram á ganginn í átt að matsalnum. Í bakpokanum var hún með samloku sem hún hafði smurt um morguninn, skyrdollu og mandarínu. Það var mesta furða að mamma hennar hleypti svo jólalegum ávexti inn á heimilið en hún keypti þær nú samt í kassavís. Nemendur streymdu eins og flóðbylgja út úr flestum kennslustofunum. Sum ein eins og hún, önnur í litlum hópum, misháværum. Fram undan sá hún Ölmu og Hlyn, Hildi og fleiri krakka sem hún vissi að Alma umgekkst. Hlynur slengdi handleggnum yfir axlirnar á Ölmu eins og til að sýna öllum að hann einn ætti hana og enginn annar. Eitt andartak stífnaði Alma upp og færði sig frá honum en svo hallaði hún sér að honum og lagði höfuðið á öxlina á honum svo sítt, ljóst hárið lagðist yfir bakið á honum.

Rut fann fyrir afbrýðisemi sem hún réð ekki við. Bara ef hún ætti einhvern sem hún gæti lagt höfuðið á öxlina á. Einhvern sérstakan. Eða kannski öllu heldur sérstaka. Ekki kærustu, bara góða vinkonu. Hún reyndi að hugsa um eitthvað annað en Alma hafði alltaf þessi áhrif á hana.

Alma og Hildur höfðu verið óaðskiljanlegar síðustu ár, alveg síðan Hildur flutti til Íslands. Rut mundi ekki nákvæmlega hvenær það var en þær höfðu verið í sama árgangi í grunnskóla. Saman voru Alma og Hildur eins og tveggja manna stelpuband. Alma var há, grönn, glæsileg og ljóshærð. Hún var alltaf vel tilhöfð, með flottar neglur og í fínum fötum. Hildur Safiya var lágvaxnari, með sítt svarbrúnt hár og brún augu. Yfirbragð hennar var afslappaðra en Ölmu. Það var líka eitthvað framandi við hana, eitthvað sem Rut fannst dularfullt eins og millinafnið hennar. Hún vissi að pabbi hennar var útlenskur og það sást á útliti Hildar. Og nú hafði Alma Hlyn líka sér við hlið. Rut gat allt eins trúað því að annar strákanna sem elti hann um allt væri með Hildi þótt hún vildi ekki trúa því að hún liti við Fannari. Hinn gaurinn þekkti hún ekki en Fannar, sem var ári eldri en þær, hafði oft verið andstyggilegur við Rut þegar þau voru yngri. Sem betur fer lét hann nú orðið oftast eins og hann sæi hana ekki en hún forðaðist samt að mæta honum. Rut leit niður og hélt áfram ganginn.

 

Þær Alma höfðu verið vinkonur þegar þær voru litlar, eiginlega alveg frá því Rut mundi eftir sér. En svo lauk því snarlega þótt hún skildi ekki af hverju þá og hafði oft hugsað um það síðan. Rut hafði verið ósátt við að mega ekki leika við Ölmu sem var samt alltaf svo nærri. Þær bjuggu í sama stigaganginum í blokkinni við Fornhagann. Áður skottuðust þær á milli hæða og teygðu sig upp í dyrabjöllurnar til að heimsækja hvor aðra. Þær hlupu upp stigana eða renndu sér niður handriðið, léku sér undir borðum, inni í herbergi eða úti í stóra garðinum á bak við blokkina. En svo gerðist eitthvað, Rut var ekki alveg viss hvað það var, en eftir það máttu þær ekki leika sér lengur saman. Um svipað leyti gengu foreldrar hennar í söfnuðinn og foreldrar Ölmu skildu og pabbi hennar flutti burt. Rut vissi að hvor atburður fyrir sig hefði dugað til að rjúfa tengslin á milli fjölskyldnanna en innst inni var hún viss um að eitthvað meira hefði gerst en hafði ekki hugmynd um hvað. Hún mundi óljóst eftir uppþoti seint um kvöld, látum og gráti inn í nóttina. Foreldrar þeirra töluðust ekki við eftir það og þær Alma máttu ekki leika sér saman. Með tímanum létu þær eins og þær sæju ekki hvor aðra þegar þær mættust í skólanum eða stigaganginum. Alma hafði alltaf verið vinsæl en Rut ekki. Þær áttu enga samleið.

Rut sá að Alma og vinir hennar héldu inn í matsalinn og vildi ekki elta þau þangað. Hún fékk sér því sæti á bekk á ganginum, tók nestið sitt upp úr töskunni og spjaldtölvuna til að glugga í á meðan hún borðaði. Hún reyndi að nota netið í skólanum eins og hún gat því þau voru ekki nettengd heima. Nemendur héldu áfram að streyma að matsalnum og nokkur sem hún þekkti kinkuðu kolli til hennar. Það var einn af kostunum við að vera í framhaldsskóla. Fólk heilsaði henni og dæmdi hana ekki fyrirfram.

Í Kvennó hafði Rut byrjað nýtt líf. Hér gat hún falið sig í fjöldanum. Í augum flestra var hún alveg venjuleg. Þetta gekk þó bara næstum upp því hún var ekki sú eina úr gamla skólanum sem hafði farið í Kvennó. Fyrir þeim sem höfðu verið með henni í grunnskóla var hún enn skrítna stelpan sem átti öll litlu systkinin og mömmu sem gekk bara í síðum gamaldags pilsum og klippti ekki hárið og var heima nema þegar þau voru í kirkjunni. Stelpan sem var í Geislanum, þessum undarlega trúarsöfnuði sem fæst höfðu heyrt um og engin botnuðu neitt í. Stelpan sem fór aldrei í klippingu af því að konur máttu ekki skerða hár sitt. En einhvern veginn skipti það samt minna máli nú en áður og þau voru að mestu hætt að hrekkja hana. Hún lét eins og hún sæi þau ekki og það var að mestu gagnkvæmt.

Í Geislanum átti hún vini og söfnuðurinn var eins og hennar annað heimili. Eftir því sem tíminn leið fannst henni þó söfnuðurinn, með öllum sínum reglum og kvöðum, þrengja meira og meira að sér. Þeim var sagt að fylgja lífsreglum öldunganna en eftir því sem hún varð eldri fannst henni erfiðara að samþykkja allt sem þeir sögðu. Hún vissi að með því að efast var hún að óhlýðnast en hún réð ekki við sig. Söfnuðurinn gerði henni auk þess ómögulegt að lifa því sem flestum fannst venjulegt líf.

Jafnaldrar hennar og vinir í Geislanum tóku flest enn mikinn þátt í safnaðarstarfinu og hún þorði aldrei að tala við þau um að hún væri ekki alltaf sátt þar, ekki einu sinni við Fjölni, besta vin sinn sem var henni næstum eins og bróðir. Annir vegna skólans voru góð afsökun sem hún greip gjarna til. Fæst höfðu krakkarnir haldið áfram námi eftir grunnskólann. Í raun voru þau bara tvö á hennar reki sem voru í framhaldsskóla núna. Ekkert í Geislanum hvatti þau til náms. Þvert á móti var þeim sagt að heimurinn væri á heljarþröm, heimsendir nálgaðist óðfluga og þá kæmi hefðbundið nám ekki að neinu gagni og það gæti beinlínis verið skaðlegt að eyða tíma sínum í að læra annað en Biblíuna og virða þær leikreglur sem öldungarnir settu þeim. Það var ekki alltaf einfalt og Rut hafði tekið eftir því að öldungarnir fylgdu reglunum ekki alltaf sjálfir.

Rut opnaði samfélagsmiðilinn sem hún notaði mest. Hún var ekki með neitt app í spjaldtölvunni fyrir hann eins og flest heldur sló hún slóðina inn í hvert sinn og eyddi svo sögunni þegar hún var búin að skrá sig út aftur. Hún vildi ekki að foreldrar hennar kæmust að því að hún væri þar en það var vonlaust að vera til án samfélagsmiðla. Hún þurfti að geta verið í samskiptum út af skólaverkefnum og slíku. Þótt foreldrar hennar væru ekki eins ströng og mörg önnur í Geislanum þá var betra að þau vissu bara ekkert um þetta.

Það var nefnilega fleira sem hún sótti í á samfélagsmiðlum. Hún hafði fundið hópa fyrir fólk eins og hana sjálfa sem voru í allskonar söfnuðum og höfðu annaðhvort yfirgefið þá eða voru að hugsa um að gera það. Það var stóra leyndarmálið hennar og hún afbar ekki tilhugsunina um að þau kæmust að því.

Hún las færslur frá fólki sem hafði alist upp í sértrúarsöfnuðum en gat ekki hugsað sér lífið þar lengur. Söfnuðirnir voru margir hverjir í Bandaríkjunum en líka í fleiri löndum og þótt þeir væru ýmiskonar virtist líka margt líkt með þeim. Valdið sem leiðtogarnir höfðu yfir fólkinu var kunnuglegt og yfirleitt voru það bara karlar sem voru við stjórnvölinn, karlar sem settu strangar reglur og útskúfuðu þeim sem brutu þær.

Hingað til hafði hún aldrei þorað að setja inn færslu því þá þyrfti hún að skrifa hvernig henni leið og hún var ekki tilbúin til þess. Auk þess vissi hún að það gæti verið áhættusamt ef einhver úr Geislanum sæi það. Henni fannst samt einkennilega hughreystandi að sjá annað fólk glíma við sömu spurningar og hún sjálf og hún hafði áhuga á að sjá hvernig því gekk að fóta sig fyrir utan söfnuðina, oft án fjölskyldu sinnar sem varð þar eftir. Stundum setti hún inn athugasemdir við færslur frá öðrum og vonaði að þær virkuðu styðjandi. Hún hafði líka nokkrum sinnum sent krökkum á sínum aldri skilaboð og átti orðið nokkra vini eða kunningja sem henni fannst gaman að spjalla við, ekki bara um trúarsöfnuðina heldur allt mögulegt. Stundum fannst henni hún eiga meira sameiginlegt með þeim en krökkunum sem voru í kringum hana í skólanum dags daglega.

Hún hafði jafnvel sagt frá því að stundum fyndist henni hún verða að yfirgefa Geislann og þar með fólkið sitt. Krakkarnir hvöttu hana til að undirbúa sig vel ef hún léti verða af því, gera áætlun og fara eftir henni. Hún þyrfti að búa til lista sem hún gæti fylgt, skref fyrir skref. Þá yrði hún frjáls. Hún hafði oft byrjað á honum en bara í huganum. Að búa til alvöru skjal í spjaldtölvunni eða stílabók var skref sem hún var ekki tilbúin að stíga. Þá yrði ekki aftur snúið. Á meðan listinn var bara í höfðinu á henni og ekki fastmótaður gat hún látið sig dreyma án afleiðinga og þá var heldur engin hætta á að einhver fyndi listann.

 

Síðast uppfært: 24. október, 2026
Deila grein:
Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link