
Á gráleitum miðvikudegi í mars fara feðgin saman í IKEA. Ferðin tekur óvæntan snúning þegar þau lokast inni í versluninni yfir nótt.
Að loknum rómuðum þríleik sínum um síldarævintýrið snýr Hallgrímur Helgason aftur í nútímann í nýstárlegri sögu um hversdag okkar allra – sem verður aldrei samur.
Bókapressa Gímaldsins birtir brot úr væntanlegum og nýútkomnum bókum í samstarfi við höfunda og útgefendur.

Hallgrímur Helgason er þúsundþjalasmiður í íslensku menningarlífi og hefur komið við í ýmsum kimum bókmenntanna auk þess að stunda myndlist og samfélagsumræðu. Hann lærði myndlist í Reykjavík og München og hefur frá árinu 1982 starfað sjálfstætt sem myndlistarmaður og rithöfundur.
Fyrsta skáldsaga Hallgríms, Hella, kom út árið 1990 og síðan hefur hann sent frá sér fjölda skáldsagna, leikrita, ljóðabóka og þýðinga. Skáldsögur hans hafa komið víða út erlendis, verið kvikmyndaðar og settar á svið. Magnaðar skáldsögur Hallgríms um Gest Eilífsson á Segulfirði; Sextíu kíló af sólskini, Sextíu kíló af kjaftshöggum og Sextíu kíló af sunnudögum, hittu lesendur í hjartastað, bæði hérlendis og víða um heim. Að loknum rómuðum þríleik sínum um síldarævintýrið snýr Hallgrímur aftur í nútímann haustið 2026 í nýstárlegri skáldsögu: Enginn deyr í IKEA.
Hallgrímur hefur hlotið ófáar viðurkenningar á ferli sínum sem rithöfundur. Árið 2021 var hann sæmdur Heiðursorðu Frakka fyrir framlag sitt til lista og bókmennta, hefur þrisvar verið tilnefndur til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og bæði fengið Íslensku þýðingarverðlaunin og Íslensku hljóðbókaverðlaunin. Þá hefur hann hlotið Íslensku bókmenntaverðlaunin þrisvar sinnum, fyrir Höfund Íslands 2001, Sextíu kíló af sólskini 2018 og Sextíu kíló af kjaftshöggum.
Mál og menning 2026. ⎮ Innbundin, 256 bls. ⎮ Væntanleg
Hann rankaði við sér í tungusófanum, með sofandi barnið á bringunni, og velti fyrir sér hve lengi hann hefði sofið. Tilfinningin sagði honum að klukkan væri orðin tólf á miðnætti en hún gæti líka verið eitt eða tvö. Hafði lögreglan virkilega ekki komið? Auðvitað gat hún hafa komið en hann hafði þá sofið það af sér með sinn dauða síma. Hann bölvaði því að hafa hætt að ganga með úrið, forláta snjallúr sem endurómaði allt sem símanum datt í hug. Hann hafði viljað einfalda líf sitt og var hvort eð var alltaf með þann síðarnefnda á sér.
Hann gat kennt einum manni um að síminn hefði klárað sig svo snemma. Eldriborgarinn Hallur Pálsson hafði hringt í hann um morguninn og talað við hann í heila tvo tíma, og eins og ávallt í myndsímtali. Alvar þekkti orðið íbúð hans vel, mottum prýtt alrými á fjórtándu hæð með garðskálasvölum og útsýn yfir gömlu höfnina, stórskalamálverk eftir Georg Guðna og Eggert Pétursson. Sjálfsagt höfðu 40% af hleðslunni farið í þetta eina samtal. Sem fyrr hafði gamli maðurinn áhyggjur af veikingu dollarsins sem virtist sökkva dýpra með hverju fljótræði forsetans. „Ég ólst nú upp við það að dollarinn var king og ég hélt ég myndi nú ekki lifa það að sjá hann titra, en ég held við ættum að færa okkur yfir í gullið. Gull er ekki allt en allt vill gull, eins og þeir segja. Mér sýnist únsan hafa hækkað um helming frá sama tíma í fyrra. Ef það er ekki kreppumerki þá veit ég ekki hvað. Ég má bara ekki við öðru Alvotech-dæmi.“
Hallur var varkár fjárfestir eins og flestir á hans aldri og Alvar geymdi 98% af eigum hans í öruggum sjóðum, en gamli maðurinn leyfði sér að gambla með 2% til að halda sér ungum og um þau 2% snerust vikuleg myndsamtöl hans nær eingöngu. Reyndar hófust samtölin nú oftast á lofræðum hans um þurrkað mangó, hann bara fékk ekki nóg af þurrkuðum mangósneiðum. „Og svo var ég að prófa eitt nýtt um helgina; Mangó Chili Twist. Það er bara ennþá betra en hitt!“ sagði sá gamli og lyfti pakkningunni í mynd. Alvar hafði margoft minnt sig á að gúggla áhrif mangóneyslu á eldri herramenn en alltaf gleymt því. Síðan barst tal þeirra að markaðsaðstæðum en þegar samtalið var hálfnað kom gjarnan spurningin: „Hvað segir hann um þetta?“ Með því átti hann við bankastjórann sem var reyndar kona en Hallur hafði eitt sinn útskýrt fyrir Alvari að hann mætti ekki lengur tala um konur í símann „útaf henni Kollu minni“.
Þögn og myrkur ríkti yfir básnum og búðinni. Rökkurbirtan gaf þó til kynna glugga á hægri hönd í innréttingunni og í honum útsýn í formi ljósmyndar, íbúðahverfi sem hann kannaðist við, fannst það vera í efri byggðum Akureyrar á snjóþungum vetri. Þetta gat jafnvel verið gatan sem Reynir frændi hans bjó við. Þessi gluggi, með sínu falska útsýni, veitti undarlega tilfinningu. Hann gaf upp nákvæma staðsetningu á því hvar þú vaknaðir en sagði um leið að þú værir hvergi.
Stella svaf enn undir úlpujakkanum og bærði vart á sér. Og Helga ein heima, þvílík hörmung sem þetta var allt saman, þvílíkt klúður. Var virkilega engin næturvarsla hér? Enginn að fylgjast með öryggismyndavélunum? Hann sá fyrir sér að Helga Lind hefði komið á bíl foreldra sinna, fundið fjölskyldubílinn á stæðinu og læstar dyr á versluninni, hefði svo hringt í lögregluna enn á ný. Í kjölfarið kom honum til hugar að einhver i-merkt upplýsingastöðin á stígnum gæti lumað á hleðslutæki fyrir iPhone. Hann reyndi að smokra barninu varlega af bringunni og niður í sófann og tókst það án þess að hún rumskaði.
Hann stóð yfir henni um stund áður en hann gekk út úr básnum að sofandi rúllustiganum. Allt var óbreytt niðri í anddyrinu sem og úti á stæðinu. Þar stóðu nú aðeins tveir bílar, langt frá innganginum. Annar var nýja Kían þeirra, rafbíllinn rauði, sem beið þeirra líkt og sauðtryggur hestur með súld í feldi og hengdi haus í náttbirtu stæðisins. Alvar gekk hratt til baka og leit inn í básinn. Barnið svaf enn, í sömu stellingu og hann skildi við það. Síðan sneri hann sér við og skimaði út á stíginn. Hann kom ekki auga á neina upplýsingastöð. Eftir örlítið hik enn yfirgaf hann básinn og fetaði sig út á stíginn en fékk um leið gamalt ævintýri í hausinn, fannst hann vera að yfirgefa Rauðhettu í dimmu rjóðri, og sneri aftur til að tékka á Stellu. Hún svaf vært.
Enn lagði hann af stað út á örvalausan skógarstíginn og læddist í gegnum sófadeildina, kom að 45 gráðu beygju og skimaði inn í næstu deild á eftir sem hann vissi að var stofuskápadeildin. Talsverðir innréttinga-rangalar voru á hægri hönd en við næstu hornbeygju blasti við í rökkrinu starfsstöð með i-merki hátt á stöng sem stóð upp úr smáu afgreiðsluborði með tölvuskjá, í um það bil þrjátíu metra fjarlægð. Hann leit um öxl í átt að Stellu, engin hreyfing sýnileg þar.
Hann fór hratt eftir stígnum og náði fljótt að afgreiðslupúltinu. Á bakhlið þess voru tvær opnar hillur fullar af allskyns dóti; prentari, prentarapappír, eldhúsrúlla, spreykanna, IKEA-bæklingurinn 2021 og ýmsir plastbakkar. Í einum þeirra voru allskyns snúrur og eftir stutt grams kom í ljós að ein snúran var föst við rafkló. Hann bar hinn enda snúrunnar upp að andlitinu og sá ekki betur en að þar væri smákló fyrir snjallsíma. Klóin var skíðnett að hætti nýjustu tækja. Hann fór í innri jakkavasann eftir símanum en greip þar í tómt. Símtækið var auðvitað í úlpujakkavasanum, sem nú var sængin hennar Stellu. Alvar stakk hleðslutækinu á sig en heyrði um leið dempaðan dynk í fjarska, þó ekki langt undan, og hjartað tók kipp. Hann skimaði í kringum sig en kom ekki auga á neitt og flýtti sér til baka með fenginn. En áður en hann náði heim í sófadeildina heyrðist annar dynkur og hann fraus, leit óttasleginn inn í búðina en síðan í átt að svefnstað Stellu. Ekki fylgdu fleiri dynkir og hann hélt áfram för sinni til baka.
Stúlkan svaf enn á sínum stað, smáir kuldaskórnir á gólfinu, en bærði á sér um leið og faðir hennar nálgaðist, líkt og hún skynjaði komu hans með iljunum. Hann settist við hlið hennar og hún settist upp, vöknuð en vönkuð.
„Pabbi, hvar e vi núna?“
„Við erum enn hér, í IKEA.“
„E mamma ekki komin?“
„Nei,“ sagði hann og tók telpuna í fangið, „við skulum bara sofa áfram. Það er ennþá nótt.“
Hann hjalaði áfram við hana og strauk henni um höfuð, hár og kinnar, lagði hana fast upp að sér, naut þess að vera faðir um stund og finna hana faðma sig á móti. Naut þess að finna á vanga sínum hitann frá öðrum smærri, finna blóð sitt duna við blóð sitt. Í hans huga var Stella innilegasta barnið þeirra, mikið fyrir faðm og knús, og Helga talaði oft um hve fast hún sótti í hlýjuna. Sjálfsagt var það vegna áranna tveggja í frystinum, hugsaði hann stundum.
Allt í einu barst þytur af stígnum og þau störðu stjörf út úr sófahorninu á lágvaxinn mann koma skeiðandi eftir alfaraveginum, í átt frá rúllustiganum, og fór hratt yfir. Þetta var pasturslítill maður með mikið enni, á víðum vinnubuxum með vasafjöld og móskulega grænni flíspeysu, skartaði gráleitu yfirskeggi og háum kollvikum. Gat verið frá Afganistan en gat líka verið úr Breiðholtinu. Í hægri hendi, þeirri sem að feðginunum sneri, hélt hann á slaghamri og satt að segja var eitthvað ógnandi við hraðann á honum. Alvar vissi ekki fyrr en maðurinn var farinn hjá; hann hvarf út í sófadeildina og þar á milli þilja líkt og draugur, án þess að hinn strandaði faðir svo mikið sem reyndi að gera vart við sig og telpuna. Ennismaðurinn hafði heldur ekki tekið eftir þeim.
„Hver va þetta?“
„Ég veit það ekki.“
„Steliþjófu?“
„Ég veit ekki. Kannski.“
Alvar sat sem steinrunninn með stúlkuna í fanginu og var allur ein eyru og augu ef fleiri skyldu koma um stíginn. Þögnin var yfirþyrmandi og mínútur liðu með blóðslög í eyrum.
Stella var sofnuð aftur og hann sjálfur næstum líka þegar torkennilegt hljóð barst djúpt innan úr verslunarmyrkrinu. Það var einhverskonar stálskrapandi sarg í yfirstærð, dimmt og drungalegt. Svo voldugt var það reyndar að Alvari fannst nánast eins og sjálfum veruleikanum væri snúið á blautu malbiki. Samt vaknaði barnið ekki.
Hann lagði dótturina frá sér og rölti aftur fram að rúllustiganum, nú ögn skjálfandi í skrefinu. En ekki bárust frekari hljóð og ekki var heldur að sjá neitt lát á myrkrinu úti. Loks rankaði hann við sér og mundi eftir hleðslutækinu, hraðaði sér aftur í sófahornið, fann snjallsímann í úlpuvasanum og reyndi að koma smáklónni á snúruendanum í símarassinn. Hún vildi ekki inn og þegar hann bar stærri klóna betur upp í gráleita birtuna las hann af henni Samsung.
Hann andvarpaði en færði svo stúlkuna út á tungu sófans og lagðist sjálfur við hlið hennar, í púðahornið. Með ekkert yfir sér fann hann hve IKEA-myrkrið andaði köldu og stóð aftur upp, fann drappað Nätnäva pólýesterteppi á stólarmi í gagnstæðu horni, lagðist síðan aftur og breiddi það yfir sig. Voru þau fyrst Íslendinga til að eyða nótt á þessu „heimili mannkyns“ eins og verslunin kallaði sig? Hann sá fyrir sér smáfregn á netmiðli undir fyrirsögninni: Eyddu nótt í IKEA.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.