
Gímaldið gerir upp haustþingið og fyrsta ár ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur.

Fyrstu fjárlög ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttir voru samþykkt á fimmtudag og jólafrí þingmanna er hafið.
Þingstörfin hafa gengið ágætlega það sem af er vetri að mati Þórunnar Sveinbjarnardóttur, forseta Alþingis, sem kvaddi þingheim með ávarpi við frestun þingfunda. Þórunn gat þess einnig að mál ríkisstjórnarinnar hafi komið jafnt og þétt til meðferðar í þinginu sem skipti máli fyrir vandaða þinglega meðferð og gæði lagasetningar.
Í þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar var gert ráð fyrir að 111 mál yrðu lögð fram fyrir áramót. Alls lagði stjórnin fram 88 mál á haustmisserinu og því vantaði 23 mál upp á.
Af þessum 88 málum sem lögð hafa verið fram hafa 37 frumvörp verið samþykkt sem lög frá Alþingi auk fimm ályktanna.
Meðal nýsamþykktra mála ber hæst fyrstu fjárlög ríkisstjórnarinnar og lagabreytingar þeim tengd. Mesta umræðu í þinginu fengu nýjar álögur á bifreiðareigendur; annars vegar vörugjöld á bíla og hins vegar kílómetragjald.

Slegið var met í umræðu um bandorminn eins og frumvarpið um tekjuhlið fjárlaga er kallað. Stóð umræðan yfir í tæpa átján tíma sem er margfalt meira en í venjulega en umræða um þennan hluta fjárlaga stendur jafnan í tvær til þrjár klukkustundir. Mest var rætt um vörugjöld á ökutæki sem verða lögð á um áramót en einnig var mikið rætt um afnám samsköttunar hjóna sem tekur til þeirra tekjuhæstu.
Síðustu dagana fyrir jólafrí þingsins var mikið rætt um hinn hluta aukinnar álagningar á eigendur bíla, kílómetragjaldið. Hvort tveggja, vörugjöld og kílómetragjald eru nýjar tekjuöflunarleiðir fyrir ríkissjóð en skatttekjur af jarðefnaeldsneyti hafa farið lækkandi vegna orkuskipta og því nauðsynlegt að taka í notkun nýjar tekjuöflunarleiðir.
Að sögn forsætisráðherra hafa kílómetragjald og vörugjöld verið á teikniborðinu í fjármálaráðuneytinu í um áratug. En í frumvörpum um þessar nýju tekjuöflunarleiðir segir að þeim sé ætlað að standa straum kostnaði við vegakerfið og aðra umferðarinnviði.
Meðal annarra mála sem ríkisstjórnin kom í gegn á fyrri önn þessa vetrar eru breytingar á lögum um menntasjóð námsmanna, heimildir tengdar meðferð sjúkraskráa var breytt til að auka skilvirkni og hagræðingu, kirkjugarðar fengu lagaheimild til að taka gjald fyrir þjónustu sína, lögreglan fékk auknar heimildir til öflunar fjármálaupplýsinga og heimildir til haldlagningar og kyrrsetninga.
Þá var samþykkt að sameina sýslumannsembættin níu í eitt, með það að markmiði, samkvæmt þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar að „bæta þjónustu hins opinbera á öllu landinu með einfaldari stjórnsýslu og jöfnu aðgengi að opinberri þjónustu, óháð búsetu.“
Að frátöldum fjármálaráðherra sem staðið hefur í ströngu á haustþinginu hefur Inga Sæland verið einn atkvæðamesti ráðherra ríkisstjórnarinnar þetta haustið.

Um miðjan desember samþykkti Alþingi frumvarp Ingu Sæland um jólabónus lífeyrisþega. Katta- og hundaeigendur þurfa ekki lengur samþykki nágranna sinna fyrir gæludýrahaldi í fjöleignarhúsum, tekin hefur verið upp almenn skráningarskylda leigusamninga til að afla megi heildstæðra upplýsinga um leigumarkaðinn, réttur foreldra til fæðingarorlofs og sorgarleyfis hefur verið bættur og frítekjumark ellilífeyris hækkað.
Á síðasta þingfundi fyrir jólafrí var samþykkt frumvarp sem festir hlutdeildarlán í sessi og mánaðarlegar úthlutanir lána tryggður gagnvart lántökum jafnt sem byggingaraðilum. Einnig var samþykkt að hækka árlega lánsfjárheimild Húsnæðis og mannvirkjastofnun úr 4 milljörðum í 5.5 milljarða. Hlutdeildarlán voru fyrst kynnt til sögunnar árið 2020 til að hjálpa fyrstu kaupendum fasteigna að komast inn á markaðinn. Í hinu nýsamþykkta frumvarpi kemur fram að Ísland hafi dregist aftur úr öðrum löndum OECD í hlutfalli þeirra sem eiga séreign og því þurfi að bregðast við.
Rúsínan í pylsuendanum fyrir Ingu persónulega var án efa lögfesting samningsins um réttindi fatlaðs fólks. Lögfestingin hefur í för með sér að ákvæði samningsins fá lagagildi og geta einstaklingar byggt rétt sinn á ákvæðum hans fyrir dómstólum og öðrum úrskurðaraðilum. Lögfestingin hefur lengi verið baráttumál hjá Ingu sem lagði fjórum sinnum fram þingmál þess efnis þegar hún var þingmaður í stjórnarandstöðu.
Alþingi hefur tekið saman tölfræði um störf þingsins það sem af er 157. löggjafarþingi, frá því þing kom saman 9. september síðastliðinn til síðasta fundar fyrir jólaleyfi 18. desember.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur var kynnt í Hafnarfirði 21. desember 2024. Stjórnin fagnar því eins árs afmæli á morgun.
Ólíkt því sem almennt var áður fyrr þegar alþingiskosningar voru í maí, hóf ríkisstjórnin ekki þingstörf með framlagningu fjárlagafrumvarps enda fjárlög nýsamþykkt þegar stjórnin var mynduð. Fyrsta verk ríkisstjórnarinnar á nýju ári var að leita aðstoðar út fyrir eigin raðir.

Á fyrsta starfsdegi þessa árs efndi ríkisstjórnin til samráðs við almenning um hagræðingu í ríkisrekstri. Þjóðin var spurð hvar og hvernig henni fyndist helst mega hagræða í ríkisrekstri; hvar mætti stokka upp eða breyta forgangsröðun og hvort dæmi væru um sóun hjá hinu opinbera sem auðvelt væri að taka á.
Mikil þátttaka var í samráðinu og bárust yfir 10.000 tillögur um hagræðingu í 3985 umsögnum. Forstöðumenn ríkisstofnana fengu sömu spurningar frá ríkisstjórninni með óskum um tillögur. Í stefnuræðu sinni við upphaf yfirstandandi haustþings fullyrti forsætisráðherra að samráðið myndi skila sér í yfir 100 milljarða hagræðingu á tíma nýrrar fjármálaáætlunar. Meðal hagræðingaraðgerða sem ráðist verður í á grundvelli samráðsins er afnám handhafalauna vegna forsetavalds en frumvarp þess efnis hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda.
Þingstörf nýrrar ríkisstjórnar hófust svo þegar þing kom saman að loknu jólaleyfi í janúar á þessu ári og stjórnin kom ýmsu í verk fyrstu mánuðina.
Svokölluð stöðuleikaregla var sett inn í lög um opinber fjármál, en hún felur í sér að sett verði hámark fyrir vexti útgjalda í fjármálastefnu og fjármálaáætlun sem taki mið af langtímavaxtargetu landsframleiðslunnar.
Þá voru sett lög um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka, réttindi til fæðingarorlofs og sorgarleyfa voru aukin og nokkuð umdeildar breytingar á reglum um námsmat í grunnskólum festar í lög. Einnig voru settar í lög auknar heimildir til vinnslu og afhendingar upplýsingar um farþega og áhafnir í löggæslutilgangi og regluverk kringum framsal sakamanna einfaldað.
Tvö frumvörp umhverfisráðherra um breytingar á raforkulögum voru samþykkt; annars vegar um aukna vernd smærri notenda raforku, það er, heimila og smærri fyrirtækja. Hins vegar um heimild til að veita virkjunarleyfi til bráðabirgða. Þá voru gerðar breytingar á lögum um umhverfismat framkvæmda sem fela í sér einföldun og afléttingu reglubyrðar. Markmiðið var að færa löggjöfina nær Evrópulöggjöfinni og tryggja að hún væri ekki meira íþyngjandi en tilefni er til” að því er fram kemur í frumvarpinu.
Lang pólitískasta mál fyrsta þings nýrrar ríkisstjórnar var þó án efa frumvarp um breytingar og hækkun á veiðigjaldi. Málið var rætt langt fram á sumar.
Slegið var met í lengd umræðu um mál á Alþingi en málþóf stóð yfir um málið langt fram á sumar og lauk henni ekki fyrr en forseti skar á hnútinn með beitingu ákvæðis í þingsköpum sem heimilar forseta að binda endi á umræðu um mál.
Þetta inngrip var forseta og stjórnarflokkunum erfitt en hins vegar átti eftir að koma í ljós hve gott sumarið hafði reynst ríkisstjórninni. Stjórnarandstöðuflokkarnir töpuðu miklu fylgi á málþófinu og andstaða þeirra við hækkun veiðigjalda mæltist almennt illa f fyrir. Málið styrkti hins vegar ríkisstjórnina.
Um síðustu mánaðamót var eitt ár liðið frá alþingiskosningum og af því tilefni fjallaði Gímaldið um stöðu stjórnmálaflokkanna. Í þeirri umfjöllun bar hæst erfiðleikar Sjálfstæðisflokksins sem hafa tapað fylgi allt kjörtímabilið en nýkjörinn formaður flokksins er óvinsæll, jafnvel meðal eigin flokksmanna. Þar er einnig fjallað um botnfrosið fylgi Framsóknarflokksins og flug Miðflokksins í könnunum.
Þá er fjallað um stöðu ríkisstjórnarflokkana; vinsældir Samfylkingarinnar, vandræðagang Flokks fólksins og upptekna ráðherra Viðreisnar.
Þrátt fyrir ýmsa erfiðleika hefur allt spilast upp í hendur ríkisstjórnarinnar þetta fyrsta ár hennar við völd. Blikur á lofti í efnahagsmálum, eftir röð áfalla undanfarna mánuði gætu þó farið að síga í hjá stjórninni. Þrálát verðbólga, vaxandi atvinnuleysi og frost á húsnæðismarkaði ættu að fela í sér tækifæri fyrir stjórnarandstöðuna.
Fjölmörg mál bíða meðferðar þingsins á nýju ári. Þau mál sem þegar hafa verið lögð fram eru mislangt komin í meðförum þingsins. Bókun 35 hefur verið afgreidd úr nefnd og bíður annarrar umræðu, umdeilt mál um leigubíla er til meðferðar í atvinnuveganefnd. Frumvarp um tengingu lífeyrisgreiðslna við launavísitölu hefur verið afgreitt úr velferðarnefnd. Í þeirri nefnd er svokallað Airbnb frumvarp einnig til meðferðar en því er ætlað að stemma stigu við því að einstaka aðildar geti haft fjölda íbúða í skammtímaleigu.
Nokkur frumvörp um útlendingamál eru til meðferðar í allsherjar og menntamálanefnd, meðal annars um brottfararstöð og afturköllun alþjóðlegrar verndar.
Í allsherjarnefnd eru líka nokkur mál tengd almannavörnum, meðal annars um heildarendurskoðun almannavarnalaga. Þá er til umfjöllunar í nefndinni frumvarp menntamálaráðherra um notkun snjallsíma í grunnskólum.
Samgönguáætlun er í umsagnarferli og tvær tillögur um breytingar á rammaáætlun eru bíða einnig umræðu í umhverfis- og samgöngunefnd.
Fjölmörg mál eru einnig í vinnslu í ráðuneytum og bíða framlagningar á þingi á vorþingi. Má þar nefna breytingar á kosningalögum til að auka jafnræði í atkvæðavægi og þingsætadreifingu, breytingar á búvörulögum og nýja löggjöf um lagareldi. Boðuð er heildarendurskoðun á lögum um skipan opinberra framkvæmda og endurskoðun sveitarstjórnarlaga. Setja á ný lög um strandveiðar og byggðakvóta og fjármálaráðherra boðar heildarendurskoðun á lögum um skipan opinberra framkvæmda. Þá hefur menningar-, nýsköpunar-, og háskólaráðherra kynnt hugmyndir sínar um endurskoðun á fyrirkomulagi stuðnings til einkarekinna fjölmiðla.
Af nógu verður að taka þegar þing kemur saman eftir jólaleyfi þann 14. janúar 2026.
Kæri lesandi Gímaldsins
Þessi grein er opin tímabundið, en efni Gímaldsins er almennt aðeins fyrir áskrifendur.
Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.
Vilt þú vera með?
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.