Fimman: Vest­ræn sam­vinna á kross­göt­um

Lestími: 17 mínútur

1. Tímamótaræða for­­sæt­is­ráð­herra Kanada
2. Evr­ópa hverf­ur frá var­færni og brýnir raustina
3. Við­skipta­samn­ing­ur ESB og Banda­ríkj­anna sett­ur á ís
4. Ut­­an­­rík­­is­ráð­herra Ís­lands vel­ur Kana­da­­leið­ina
5. Frið­ar­ráð Trumps til höf­uðs Sam­ein­uðu þjóð­un­um

flag, heaven, city, new york, united nations, united nations, united nations, united nations, united nations, united nations

Stað­reynd­in um breytta heim­skip­an er að renna upp fyr­ir leið­tog­um vest­rænna ríkja. Efa­semd­ir um Banda­rík­in sem trú­verð­ug­an þátt­tak­anda í vest­rænni sam­vinnu eru orðn­ar há­vær­ar og und­an­farna sól­ar­hringa hef­ur kveð­ið við nýj­an tón í yf­ir­lýs­ing­um leið­toga banda­lags­ríkja Ís­lands. Þenn­an nýja tón mátti líka heyra í ræðu Þor­gerð­ar Katrín­ar Gunn­ars­dótt­ur, ut­an­rík­is­ráð­herra Ís­lands, í um­ræðu um stöðu al­þjóða­mála á fimmtudag.

At­burða­rás síð­ustu sól­ar­hringa er sam­of­in þró­un í al­þjóða­mál­um á und­an­förn­um vik­um og mán­uð­u­m. Á þess­um tíma hef­ur spenna í sam­skipt­um að­ild­ar­ríkja NATO auk­ist jafnt og þétt, með­al ann­ars vegna frið­ar­um­leit­ana Banda­ríkja­for­seta milli Rúss­lands og Úkra­ín­u, út­komu nýrr­ar þjóðar­ör­ygg­is­stefnu Banda­ríkja­stjórn­ar og ekki síst end­ur­vak­ins áhuga og kröfu Banda­ríkja­for­seta um yf­ir­ráð yf­ir Græn­land­i.

Segja má að spenn­an hafi náð há­marki efna­hags­ráð­stefn­unni í Dav­os í Svis­s, þar sem nokkr­ir þjóð­ar­leið­tog­ar fluttu er­ind­i, þeirra á með­al Don­ald Trump.

Til að varpa ljósi á þær kross­göt­ur sem vest­ræn sam­vinna stend­ur á dreg­ur Gímald­ið sam­an at­burði síð­ustu sól­ar­hringa sam­an í fimm atriði.

1. Tímamótaræða for­­sæt­is­ráð­herra Kanada

Mark Car­ney, for­sæt­is­ráð­herra Kana­da, hélt tíma­móta­ræðu á efna­hags­ráð­stefn­unni í Dav­os í vik­unn­i. Í ræð­unn­i, sem far­ið hef­ur sig­ur­för um Evr­ópu og víðar, hvatti Car­n­ey ríki og þjóð­ar­leið­toga til að tala skýrt og af heið­ar­leika um hætt­una sem minni ríkj­um get­ur staf­að af stór­veld­um. Ræða hans var bæði ákall um heið­ar­legt sam­tal og við­brögð við breytt­um áhersl­um Banda­ríkja­stjórn­ar og fram­tíð­ar­sýn fyr­ir Kanada og banda­lags­ríki þess.

„Vald hinna valda­minni hefst á því að vera heið­ar­leg­ur,” sagði Gar­n­ey. Horfast þurfi í augu við þann veru­leika að breyt­ing­in sé var­an­leg. „Gamla heims­skip­an­in kem­ur ekki aft­ur. Við ætt­um ekki að syrgja það. For­tíð­ar­þrá er ekki stefna. En úr brot­un­um get­um við byggt eitt­hvað betra, sterkara og rétt­lát­ara,“ sagði Car­n­ey.

Í ræðu sinni lagði Car­n­ey áherslu á að lít­il og með­al­stór ríki standi alltaf höll­um fæti í tví­hliða sam­skipt­um við stór­veld­i. Samn­ings­staða þeirra sé al­laf veik. „Þeg­ar við semj­um að­eins tví­hliða við yf­ir­ráða­ríki semj­um við af veik­leika. Við tök­um því sem er boð­ið. Við kepp­um okk­ar á milli um að vera sem eft­ir­gef­an­leg­ust. Þetta er ekki full­veld­i. Þetta er sýnd­ar­mennska full­veld­is á með­an við sætt­um okk­ur við und­ir­gefn­i.“

Car­n­ey tal­aði um mik­il­vægi hins al­þjóð­lega kerf­is sem byggt var upp eft­ir seinni heim­styrj­öld en ráð­ist sé á í dag af stór­veld­un­um sem hjálp­uðu til við að byggja þau upp. Hann sagði Kanada ekki ætla að beygja sig fyr­ir ríkj­um sem vilji brjóta nið­ur þessi mik­il­vægu kerfi og fagni sam­vinnu með þeim ríkj­um sem eru á sama máli. „Við er­­um miklu sterk­­ari í sam­ein­ingu gegn lönd­­um sem vilja brjóta nið­ur al­þjóð­lega kerf­ið.“

Í ljósi þessa hvatti Car­n­ey með­al­stór ríki til að starfa sam­an. „Því ef við sitj­um ekki við borð­ið er­um við á mat­seðl­in­um.“ Þótt stór­veld­in hafi efni á að standa ein, með sinni mark­aðs­stærð, hern­að­ar­getu og aflið til að ráða skil­mál­un­um, hafi með­al­stór ríki ekki efni á því.

Car­n­ey dvaldi við breytt­ar áhersl­ur kanadískra stjórn­valda í ljósi þess­ar­ar nýju skip­an mála á al­þjóða­vett­vang­i.

Út­gjöld til varn­ar­mála hefðu ver­ið tvö­föld­uð og fjöldi nýrra við­skipta­ og varn­ar­sam­vinnu­samn­ing­ar hafi ver­ið und­ir­rit­að­ir við ríki frá fjór­um heims­álf­um. Þá væri Kanada að efla sam­starf sitt við Evr­ópu­sam­band­ið.

Carney hefur fengið mikið lof fyrir ræðuna og hafa stjórn­mála­skýrend­ur spáð því að hún kunni að marka kafla­skila í vest­rænni sam­vinn­u.

Frétta­mið­ill­inn FF7 birti ís­lenska þýð­ingu ræðu Car­neys á vef­síðu sinni en hægt er að horfa á ræðuna hér.

2. Evr­ópa hverf­ur frá hefð­bund­inni var­færni

Það kveð­­ur einnig við mjög breytt­­an tón hjá leið­­tog­­um í Evr­­ópu, sem hing­að til hafa flest­ir tal­að af mik­illi var­færni um breytta stefnu Banda­ríkja­stjórn­ar. Flest­ir hafa mót­mælt ein­staka að­gerð­um eins og nálg­un for­set­ans í frið­ar­við­ræð­um milli Rúss­lands og Úkra­ín­u, nýrri tolla­stefnu og nýrri þjóðar­ör­ygg­is­stefnu Banda­ríkj­anna. Jafn­vel fyrstu við­brögð við ásælni Trumps í Græn­land, voru var­fær­in.

Nú kveð­ur hins veg­ar við nýj­an tón. Það eru eins og sam­an­tek­in ráð leið­toga að leggja áherslu á full­veld­i, sam­starf og mik­il­vægi al­þjóða­kerf­is Sam­ein­uðu þjóð­anna og virð­ingu fyr­ir al­þjóða­lög­um. En leið­tog­ar eru lík­a, líkt og Car­n­ey að tala með um­búð­ar­laus­ari hætti en áð­ur.

„Við stönd­um á kross­göt­u­m“ sagði Ursula von der Leyen, for­seti fram­kvæmda­stjórn­ar Evr­ópu­sam­bands­ins, í ræðu í Evr­ópu­þing­inu fyrr í vik­unn­i. Hún sagði að skip­an al­þjóða­mála væri ekki að­eins gjör­breytt held­ur væri breyt­ing­in var­an­leg og hefði orð­ið á skemmri tíma en við höf­um áð­ur séð. „Og þótt mörg­um okk­ar geðj­ist ekki að þess­um breyt­ing­um, þurf­um við að takast á við heim­inn eins og hann er nún­a.”

„Þótt mörg­um okk­ar geðj­ist ekki að þess­um breyt­ing­um, þurf­um við að takast á við heim­inn eins og hann er nún­a.” – Ursula von der Leyen.

Vegna þessa þurfi Evr­ópa að herða upp hugann. „Við þurf­um að hverfa frá okkar hefð­bundnu Evr­ópsku var­færn­i,“ sagði von der Leyen. Evr­ópu­sam­bands­rík­in þurfi nú að efla efna­hag sinn og varn­ir. Álf­an þurfi að herða sig upp og hafa sjálf áhrif á þró­un mála í sín­um eig­in heims­hluta.

Ræða Emmanu­els Macron, Frakk­lands­for­seta, á efna­hags­ráð­stefn­unni í Dav­os var í svip­uð­um tón. Hann tal­aði fyr­ir virð­ingu í stað yf­ir­gangs og sagði Frakk­land og Evr­ópu að­hyll­ast full­veldi og sjálf­stæði ríkja á grund­velli stofnsátt­mála Sam­ein­uðu mál­anna.

Ljóst var að Macron beindi orð­um sín­um að for­seta Banda­ríkj­anna. Hann sagði sam­keppni frá Banda­ríkj­un­um grafa und­an út­flutn­ings­hags­mun­um Evr­ópu og sak­aði Banda­rík­in um að beita sér op­in­skátt til að veikja og und­ir­oka Evr­ópu. Vís­aði Macron með­al ann­ars til ít­rek­aðra hót­ana um tolla á þau ríki sem ekki eru auð­sveip. Líkt og von der Leyen, hvatti Macron til þess Evr­ópa efli sig. „Við mun­um gera okk­ar besta í þágu sterk­ari og sjálf­stæði Evr­ópu.

Volodymyr Zel­en­sky, for­seti Úkra­ín­u, flutti harð­orða ræðu í Dav­os og gagn­rýndi leið­toga Evr­ópu fyr­ir að bregð­ast ekki með meira af­ger­andi hætti við þeim ör­ygg­is­á­skor­un­um sem álf­an stend­ur frammi fyr­ir. Hann vís­aði ekki að­eins til Úkra­ínu í þessu sam­bandi held­ur einnig til Græn­lands og gagn­rýndi hann leið­toga fyr­ir að hafa beð­ið of lengi í ráða­leysi eft­ir því að Banda­ríkja­menn ró­ist og snúi sér að öðru.

Leið­tog­ar að­ild­ar­ríkja ESB hittust á auka­fundi í Brus­sel á fimmtudagskvöld og ræddu svipt­ing­ar í vest­rænni sam­vinn­u.

Þessu tengt:

3. Við­skipta­samn­ing­ur ESB og Banda­ríkj­anna sett­ur á ís

Evr­ópu­þing­ið sam­þykkti að setja sam­þykkt við­skipta­samn­ings milli Evr­ópu­sam­bands­ins og Banda­ríkj­anna á ís. Til­kynn­ing þessa efn­is var birt, stuttu eft­ir að Don­ald Trump lauk máli sínu í Dav­os. „Við­skipta­samn­ing­ur­inn hef­ur ver­ið sett­ur á bið þar til hót­un­um um Græn­land linn­ir,“ sagði í til­kynn­ing­unn­i.

Samn­ing­ur­inn sem um ræð­ir var gerð­ur í kjöl­far kynn­ing­ar á tolla­stefnu Banda­ríkja­for­seta í fyrra. Samn­ing­ur­inn var und­ir­rit­að­ur síð­ast­lið­ið sum­ar en tek­ur ekki form­lega gildi fyrr en Evr­ópu­þing­ið hef­ur greitt um hann at­kvæði og ráð­herra­ráð Evr­ópu­sam­bands­ins veitt sam­þykki sitt.

Stuttu eft­ir til­kynn­ingu Evr­ópu­þings­ins, féll Dón­ald Trump frá hót­un­um sín­um um tíu pró­senta refsi­tolla á Evr­ópu­ríki og sagði samn­inga­við­ræð­ur hafn­ar um Græn­land. Ekki ligg­ur fyr­ir hvaða hags­mun­ir eru til um­fjöll­un­ar í þeim við­ræð­um en í ljósi þess að helsti við­semj­andi Trumps er fram­kvæmda­stjóri NATO, er talið að þær teng­ist frek­ar ör­ygg­is­ og varn­ar­mál­u­m. Al­ger sam­staða rík­ir með­al sam­starfs­þjóða í Evr­ópu gegn því að Banda­rík­in eign­ist Græn­land og þótt Trump lýsi yf­ir fulln­að­ar­sigri í fyrr­nefnd­um samn­inga­við­ræð­um er nán­ast úti­lok­að að í þeim felist eft­ir­gjöf varð­andi eign­ar­hald.

4. Ut­­an­­rík­­is­ráð­herra Ís­lands vel­ur Kana­da­­leið­ina

Það kvað við nýj­an tón í ræðu Þor­gerð­ar Katrín­ar Gunn­ars­dótt­ur, ut­an­rík­is­ráð­herra á Al­þingi á fimmtudagsmorgun. Í munn­legri skýrslu ráð­herra um stöðu al­þjóða­mála, mátti heyra berg­mál af ræð­um fram­kvæmd­ar­stjóra Evr­ópu­sam­bands­ins, for­seta Frakk­lands og for­sæt­is­ráð­herra Kanada.

„Núna stönd­um við frammi fyr­ir nýrri heims­mynd sem er ver­ið að reyna að teikna, ver­ið að reyna að breyta og það er ver­ið að hleypa mjög fá­um að pensl­in­um.“ – Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir, ut­an­rík­is­ráð­herra.

Þorgerður sagði nauð­syn­legt að end­ur­hugsa stöðu Ís­lands í hverf­ul­um heim­i. Þau ríki sem ekki telj­ist til stór­velda standi fyr­ir skýru vali. Hún vís­aði sér­stak­lega til ræðu Car­neys og sagði hann lýsa stöð­unni frá­bær­lega. „Við Ís­lend­ing­ar og þessi rík­is­stjórn hef­ur í raun­inni ver­ið að vinna ná­kvæm­lega eft­ir því plan­i. Við vit­um að við er­um með tvær grunn­stoð­ir í varn­ar­mál­um en við höf­um einmitt ver­ið að auka sam­starf­ið, gera tví­hliða yf­ir­lýs­ing­ar, eiga í sam­starfi og sam­tali bæði við Evr­ópu­sam­band­ið og Kanada og fleiri þjóð­ir til þess einmitt að tryggja og treysta stöðu Ís­lands í hverf­ul­um heim­i.“ Sagði Þor­gerð­ur að hald­ið yrði áfram á þess­ari braut.

„Það væri óþol­andi fyr­ir okk­ur Ís­lend­inga og ekki boð­leg staða ef við, smá­rík­in eða með­al­stóru rík­in, ætl­uð­um að keppa um hylli hinna sterku og síð­an bíða þæg og ró­leg eft­ir því að mol­ar af nægta­borði þeirra féllu af og til til litlu og með­al­stóru ríkj­anna.“

Líkt og von der Leyen sagði Þor­gerð­ur þær að breyt­ing­ar sem eru að teikn­ast upp í al­þjóða­ör­ygg­is­mál­um eigi sér fá­ar hlið­stæð­ur í lýð­veld­is­sög­unn­i. Því mið­ur séu ekki mjög mörg já­kvæð teikn á loft­i. „Ég verð þó að segja að síð­ustu daga hef­ur ver­ið sterkt að sjá hvern­ig Evr­ópu­rík­in hafa stað­ið sam­an og tal­að einni rödd­u, til að mynda með því að ýta und­ir full­veldi og sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt Græn­lands og treysta stuðn­ing­inn við Dan­mörku. Sí­end­ur­tekn­ar yf­ir­lýs­ing­ar Banda­ríkja­for­seta um yf­ir­töku á Græn­landi er for­dæma­laus fram­ganga gegn nánu banda­lags­rík­i.”

Þor­gerð­ur tók þó fram að enn væri unn­ið að því að treysta sam­band­ið við Banda­rík­in en á jafn­rétt­is­grund­velli frem­ur en ein­stefnu stór­veld­is gagn­vart Ís­land­i. Lesa má ræðu Þorgerðar hér og horfa á hana hér að neðan

5. Frið­ar­ráð til höf­uðs Sam­ein­uðu þjóð­un­um

Á sama tíma og for­seti Banda­ríkj­anna kepp­ist við að efna til ágrein­ings og ill­deilna við ríki sem hafa hing­að til ver­ið nán­ustu banda­lags­ríki Banda­ríkj­anna, styrk­ir hann tengsl við ríki sem að­hyll­ast önn­ur gild­i. Stofn­fund­ur svo­kall­aðs Frið­ar­ráðs fór fram í Dav­os á föstudag. Hug­mynd­in að ráð­inu var upp­haf­lega kynnt í tengsl­um við frið­ar­um­leit­an­ir á Gaza en í boðs­bréfi til þjóð­ar­leið­toga fyr­ir helgi er ráð­ið kynnt sem eins­kon­ar arf­taki Sam­ein­uðu þjóð­anna og því ætl­að að vinna að lausn deilu­mála á al­þjóða­vett­vang­i, jafn­vel í sam­keppni við Ör­ygg­is­ráð Sam­ein­uðu þjóð­anna. Don­ald Trump verð­ur sjálf­ur for­seti ráðs­ins en gert er ráð fyr­ir að ríki önn­ur fái sæti í ráð­inu í þrjú ár í senn. Ríkj­um stend­ur einnig til boða að kaupa var­an­legt sæti í ráð­inu en gegn greiðslu millj­arðs Banda­ríkja­dala.

Það þyk­ir ef­laust tákn­rænt að stofn­fund­ur­inn fari fram á þessum tímapunkti enda sýn­ir hann svo ekki verð­ur um villst hvaða banda­lög eru að teikn­ast upp og hver eru að rofna.

Með­al ríkja sem þeg­ið hafa sæti í ráð­inu eru ríki fyrir botni Miðjarðarhafs á borð við Ísra­el, Sá­di­ Ar­ab­í­u, Sam­ein­uðu Ar­ab­ísku fursta­dæm­in, Jórdan­í­u, Katar og Eg­ypta­land, þau Evr­ópu­ríki sem hafa átt hvað best sam­skipti við for­seta Banda­ríkj­anna; Tyrk­land, Ung­verja­land og Bela­rús. Þá hafa Indónesí­a, Pakistan, Ví­etna­m, Kasakst­an og Ús­bekist­an einnig sam­þykkt þátt­töku. Rúss­land og Kína hafa ekki tek­ið op­in­ber­lega af­stöðu til boðs um þátt­töku. Bent hef­ur ver­ið á að bæði þessi lönd fara með neit­un­ar­vald í ör­ygg­is­ráði Sam­ein­uðu þjóð­anna og óvíst að þau vilji styrkja nýtt al­þjóð­legt banda­lag sem ætl­að er að veikja það sem fyr­ir er, án trygg­ing­ar um sam­bæri­legt vald og þess sem for­sæti Banda­ríkj­anna ætl­ar sjálf­um sér.

Þau Evr­ópu­ríki sem feng­ið hafa boð um sæti í ráð­inu hafa ým­ist af­þakk­að sæti eða lýst efa­semd­um á þeim grund­velli að hug­mynd­in grafi und­an starfi Sam­ein­uðu þjóð­anna. Krafa Don­alds Trump um að Banda­rík­in þurfi að eign­ast Græn­land og ólg­an sem henni fylg­ir hef­ur ef­laust mik­il áhrif, auk þeirra við­horfa til Evr­ópu­ríkja sem Banda­ríkja­stjórn hef­ur lýst, bæði í ræð­um for­set­ans og í þjóðar­ör­ygg­is­stefnu lands­ins. Þá hef­ur boð til Vla­dimir Pút­ins um setu í ráð­inu hef­ur ekki síð­ur latt ríki Evr­ópu til þátt­töku.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 11. júní, 2026, 07:45

Aðalheiður Ámundadóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link