Baráttusaga frumvarps sem missti allt nema eina fánastöng

Lestími: 15 mínútur

Frumvarp formanns Sjálfstæðisflokksins um tjúgufánann hefur orðið fyrir hverju áfallinu á fætur öðru síðan það var fyrst lagt fram fyrir átta árum. Það glataði fyrst tilefninu þegar afmæli fullveldisins leið hjá og síðan hefur hver fánastöngin af annarri helst úr lestinni.

Guð­rún Haf­steins­dótt­ir, for­mað­ur Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hef­ur lagt fram frum­varp á Al­þingi um að tjúgu­fán­inn skuli blakta við hún á Al­þing­is­hús­inu og á húsi stjórn­ar­ráðs­ins, frá morgni til kvölds alla daga árs­ins.

Í öðr­um hluta greinaraðar Gímaldsins um fánamálin á Alþingi, er far­ið yf­ir sögu tjúgu­fána­máls­ins. Í fyrsta hluta var far­ið yf­ir nýtt frum­varp Mið­flokks­ins, um bann við því að öðrum fánum en hinum íslenska verði flaggað á opinberum byggingum, og þeirri kenn­ingu varp­að fram að hugs­an­lega sé nýtt kapp­hlaup haf­ið á hægri væng stjórn­mál­anna; kapp­hlaup um efl­ingu hins ís­lenska þjóð­fána. Nú er kom­ið að fána­máli Sjálf­stæð­is­flokks­ins en saga þess hefst þó í Mið­flokkn­um fyr­ir átta ár­um síð­an.

Þessu tengt:

Fjall­að er um tjúgu­fán­ann í 2. gr. fána­laga. Þar segir:

Rík­is­stjórn, Al­þingi og aðr­ar op­in­ber­ar stofn­an­ir svo og full­trú­ar þess ráðu­neyt­is er fer með ut­an­rík­is­mál er­lend­is skulu nota þjóð­fán­ann klof­inn að fram­an: (tjúgu­fána). Tjúgu­fán­inn er að því leyti frá­brugð­inn hin­um al­menna þjóð­fána, að ytri reit­ir hans eru þrefalt lengri en stang­ar­reit­irn­ir og klauf upp í hann að fram­an, skor­in eft­ir bein­um lín­um, dregn­um frá ytri horn­um fán­ans inn að mið­línu hans.

Ytri ytri reit­ir tjúgufánans eru þrefalt lengri en stang­ar­reit­irn­ir og klauf upp í hann að fram­an.

Tjúgu­fána­mál­ið var fyrst lagt fram á vor­þingi 2018, að­eins nokkrum mán­uð­um eft­ir að fyrsti flutn­ings­mað­ur þess, Birg­ir Þór­ar­ins­son, var kjör­inn á þing fyr­ir Mið­flokk­inn. Um fyrsta þing­mál Birg­is var að ræða en hann átti eft­ir að leggja mál­ið ít­rek­að fram á stjórnmálaferli sínum.

Þrír armar ríkisvalds flaggi tjúgufána

Með frum­varp­inu lagði Birg­ir til að tjúgu­fán­inn skyldi dreg­inn á stöng klukkan 8 að morgni alla daga árs­ins og vera við hún til kl. 21 að kvöld­i, á bygg­ing­um hinna þriggja arma rík­is­valds­ins, það er, á Al­þing­is­hús­in­u, Stjórn­ar­ráðs­hús­inu og bygg­ingu Hæsta­rétt­ar Ís­lands. Þá skyldi Fáni for­seta Ís­lands dreg­inn á stöng við emb­ætt­is­bú­stað hans og við skrif­stofu hans í Reykja­vík á sama tíma og vera jafn­lengi við hún. Breyt­ing þessi skyldi taka gildi á 100 ára full­veld­is­af­mæli Ís­lands 1. des­em­ber 2018.

Ör­stutt grein­ar­gerð fylgdi frum­varp­inu. Þar er þess get­ið að ís­lenski fán­inn hafi form­lega orð­ið þjóð­fáni á full­veld­is­dag­inn 1918 en á há­degi þess dags hafi klof­inn fáni í fyrsta sinn ver­ið dreg­inn að húni við stjórn­ar­ráð­ið.

Ekki komst frum­varp Birg­is á dag­skrá þings­ins í fyrstu at­renn­u, en hann lagði mál­ið aft­ur fram við upp­haf haust­þings sama ár og þá gekk að­eins bet­ur. Mál­ið komst til fyrstu um­ræðu í nóv­em­ber, að­eins þrem­ur vik­um fyr­ir full­veld­is­af­mæl­ið.

Í ræðu sinni sagði Birg­ir Ís­lend­inga nota fán­ann lít­ið. Úr því þyrfti að bæta því fán­inn væri fal­leg­ur og hefði eng­ar nei­kvæð­ar teng­ing­ar. Þá vék Birg­ir að hefð­um um þjóð­fána í ná­granna­ríkj­u­m. Til dæm­is væri flagg­að á hverj­um degi við norska og sænska þing­hús­ið og sænsku kon­ungs­höll­ina. „Er vel við hæfi, nú þeg­ar stytt­ist í 100 ára full­veld­is­af­mæl­ið, að við ger­um fán­ann okk­ar sýni­legri á bygg­ing­um hinna þriggja arma rík­is­valds­ins, auk bygg­inga for­seta Ís­lands­,“ sagði Birg­ir í ræðunni.

„Gott fram­sókn­ar­mál á ferð­inn­i“

Nokkr­ir þing­menn tóku þátt í um­ræð­unn­i. Flokks­bróð­ir Birg­is, Sig­urð­ur Páll Jóns­son, lýsti stolti yf­ir því að nafn hans væri á þessu góða máli. Það væri til þess fall­ið að efla þjóð­arstolt og fán­ann sem sam­ein­ing­ar­tákn. Ólaf­ur Ís­leifs­son, þá þing­mað­ur Flokks fólks­ins, tók í sama streng, en hann og Karl Gauti Hjalta­son voru einu með­flutn­ings­menn frum­varps­ins sem ekki voru í Mið­flokkn­um. Það átti þó eft­ir að breyt­ast fá­um vik­um síð­ar.

Kol­beinn Ótt­ars­son Propp­e, þá­ver­andi þing­mað­ur Vinstri grænna, lýsti því sjón­ar­miði að lít­il notk­un fán­ans kynni að tengj­ast ströng­um regl­um um hann. Birg­ir and­mælti ekki þeirri kenn­ingu en kvaðst að­spurð­ur ekki sjá ástæðu til að slaka neitt á fána­lög­um. Með frum­varp­inu væri hins veg­ar lögð til auk­in notk­un fán­ans með dag­legri flögg­un hans á fimm stöð­u­m.

Birg­ir Þór­ar­ins­son gekk úr Mið­flokkn­um og í Sjálf­stæð­is­flokk­inn strax að lokn­um kosn­ing­um 2021 og tók Tjúgu­fána­mál­ið með sér. MYND/RÚ­V/Ragn­ar Visa­ge

Kol­beinn spurði Birgi hvort ekki hefði kom­ið til greina að nota sömu að­ferð og til dæm­is í Bret­landi þar sem fáni blakt­ir á Buck­ing­ham höll þeg­ar þjóð­höfð­ing­inn er í hús­in­u. Ekki hugn­að­ist Birgi sú leið og sagði frum­varp sitt ganga lengra. Þetta var hár­rétt hjá Birgi enda ger­ir frum­varp­ið ekki grein­ar­mun á því hvort ein­hver er heima. Fán­inn skuli blakta á hverj­um ein­asta degi frá morgni til kvölds, hvað sem öll­um manna­ferð­um líð­i.

„Hér er gott fram­sókn­ar­mál á ferð­inn­i,“ sagði Þór­unn Eg­ils­dótt­ir, þá­ver­andi þing­flokks­for­mað­ur Fram­sókn­ar­flokks­ins, í um­ræð­unn­i. Hún sagði Fram­sókn­ar­menn hafa tal­að fyr­ir við­líka máli í mörg ár og þótt hún gengi ekki svo langt að væna Birgi um stuld á hug­mynd­um fram­sókn­ar­manna, lýsti hún von­brigð­um með að eng­um úr Fram­sókn hefði boð­ist að vera með­flutn­ings­mað­ur.

Að um­ræð­um lokn­um var mál­inu vís­að til stjórn­skip­un­ar­- og eft­ir­lits­nefnd­ar þingsins. Ell­efu um­sagn­ar­beiðn­ir voru send­ar út og tvær um­sagn­ir bár­ust nefnd­inn­i, báðar end­ur­nýtt­ar úr fána­mál­um um ann­að efn­i; rýmkað­an fána­tíma. Ís­lands­stofa hvatti til já­kvæðr­ar af­greiðslu frum­varps­ins. Auk­in notk­un þjóð­fán­ans styrki ímynd lands­ins og sé til þess fall­in að að efla þjóð­ar­vit­und. Í um­sögn frá Íþrótta­ og ólymp­íu­sam­bandi Ís­lands sagð­i: „ÍSÍ er því fylgj­andi að lög um þjóð­fána Ís­lend­inga verði rýmkuð en vill þó árétta nauð­syn þess að virð­ing við þjóð­fán­ann verði ekki skert, hvorki í orði né verki.“

Lengra komst mál­ið ekki að þessu sinn­i. Það sofn­aði í nefnd og ald­ar­af­mæli full­veld­is­ins kom og fór.

Hæsti­rétt­ur set­ti strik í reikn­ing­inn

Birg­ir lét ekki deig­an síga og lagði frum­varp­ið fram í þriðja sinn haust­ið 2019. Mál­ið var tek­ið á dag­skrá þing­fund­ar í febr­ú­ar 2020 og Birg­ir flutti sömu ræðu og fyrr án þess þó að víkja að full­veld­is­af­mæl­in­u, enda það þá þeg­ar um garð geng­ið. Þá bætti Birg­ir við þeirri til­lögu í ræð­unn­i, að skát­arn­ir tækju að sér að fræða lands­menn um notk­un fán­ans, jafn­vel með fjár­styrk frá rík­is­vald­in­u.

Ólaf­ur Ís­leifs­son og Karl Gauti Hjalta­son gengu til liðs við Mið­flokk­inn eft­ir Klaust­ur­mál­ið en Birg­ir gekk úr flokkn­um síð­ar og tók tjúgu­fána­mál­ið með sér.

Í þetta skipti tók eng­inn þátt í um­ræð­un­um með Birg­i. Um þetta leyti átti Birg­ir erfitt í þing­flokki Mið­flokks­ins vegna klaust­urs­máls­ins; ekki að­eins hafði hann for­dæmt eig­in fé­laga fyr­ir slæma hegð­un á Klaustri held­ur voru brottrekn­ir þing­menn úr Flokki fólks­ins auk þess að ganga yf­ir í þing­flokk Mið­flokks­ins í óþökk Birg­is.

Tjúgu­fána­mál­ið fór nú aft­ur til nefnd­ar og ósk­að var eft­ir um­sögn­um frá þeim sem oft­ast láta sig fán­ann varða. Ekki dugðu fyr­ir­heit um rík­is­styrk, til þess að skát­ar sendu nefnd­inni um­sögn um tjúgu­fán­ann, þrátt fyr­ir tíð­ar um­sagn­ir frá þeim um önn­ur fána­mál gegn­um ár­in.

Að­eins barst ein um­sögn um mál­ið í þess­ari þriðju at­rennu Birg­is; nú frá Hæsta­rétti Ís­lands. Æðsti dóm­stóll lands­ins lagði þó ekki dóm á mál­ið að öðru leiti en um kostn­að dóms­valds­ins af hug­mynd­inn­i. Í um­sögn Hæsta­rétt­ar seg­ir:

„Ekki er vakt í hús­næði rétt­ar­ins eft­ir kl. 16 á virk­um dög­um eða um helg­ar og á öðr­um frí­dög­um. Þyrfti því að kaupa þessa þjón­ustu alla daga árs­ins um kvöld og einnig að morg­un­lagi á frí­dög­um. Þótt ná­kvæm kostn­að­ar­grein­ing hafi ekki far­ið fram er ekki ólík­legt að ár­leg­ur kostn­að­ur gæti ver­ið á bil­inu 3­-5 millj­ón­ir króna.”

Átti Hæsti­rétt­ur síð­asta orð­ið um tjúgu­fán­ann á þessu þing­i, og logn­að­ist mál­ið út af í nefnd.

Nú setti Birg­ir mál­ið á ís. Ekki er ljóst hvort erf­ið­leik­ar í þing­flokki Mið­flokks­ins eða millj­ón­irn­ar sem það kost­ar að flagga í Hæsta­rétt­i, töfðu fram­gang tjúgu­fán­ans en nú frétt­ist ekk­ert af mál­inu í þrjú og hálft ár.

Fánastöngum fækkað úr fimm í tvær

Haust­ið 2023 hafði Birg­ir ver­ið þing­mað­ur Sjálf­stæð­is­flokks­ins í tæp tvö ár og nú var lagt í fjórðu at­rennu með mál­ið. Brá Birg­ir út af van­an­um og leit­aði með­flutn­ings­manna út fyr­ir sinn eig­in flokk. Eng­inn úr Mið­flokkn­um fékk að vera með í þetta sinn og í stað­inn fluttu mál­ið með Birg­i, þrír Sjálf­stæð­is­menn, Ás­mund­ur Frið­riks­son, Diljá Mist Ein­ars­dótt­ir og Óli Björn Kára­son; for­mað­ur Við­reisn­ar, Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir og flokksbróðir hennar, Eyjólfur Ármansson, fram­sókn­ar­kon­an Ingi­björg Isaksen og Bjarkey Ol­sen Gunn­ars­dótt­ir úr Vinstri græn­um.

Í þess­ari fjórðu til­raun hafði mál­ið tek­ið tölu­verð­um breyt­ing­um. Ekki hef­ur Birg­ir fund­ið það fé sem Hæsti­rétt­ur þurfti til að geta flagg­að og ef til vill þurfti for­seti Ís­lands ann­að eins, því nú voru Hæsti­rétt­ur, Bessa­stað­ir og skrif­stofa for­set­ans við Sól­eyj­ar­götu horf­in úr mál­inu og bygg­ing­arn­ar sem flagga skyldi á, ekki leng­ur fimm held­ur tvær; stjórn­ar­ráð­ið og Al­þing­is­hús­ið.

Grein­ar­gerð­in með frum­varp­inu hélt líka áfram að stytt­ast. Ald­ar­af­mæli full­veld­is­ins auð­vit­að löngu lið­ið og ekki var leng­ur hægt að vísa til þriggja arma rík­is­valds­ins, eft­ir að Hæsti­rétt­ur helt­ist úr lest­inn­i.

Enn á ný komst mál­ið á dag­skrá og þrátt fyr­ir al­gera end­ur­nýj­un með­flutn­ings­manna, mætti Birg­ir aft­ur einn til um­ræð­unn­ar. Mál­ið fór sinn vana­gang til nefnd­ar og kall­að var eft­ir um­sögn­um. Að þessu sinni barst eng­in um­sögn um mál­ið og logn­að­ist það út af í nefnd­inn­i.

En þrátt fyr­ir dræm­ar und­ir­tekt­ir bæði inn­an og ut­an þings gafst Birg­ir ekki upp og lagði mál­ið fram í fimmta sinn haust­ið 2024. En lengra komst hann ekki því nokkrum vik­um síð­ar boð­aði Bjarni Bene­dikts­son til kosn­inga og Birg­ir átti ekki aft­ur­kvæmt á þing.

Formaður Sjálfstæðisflokksins tekur við keflinu

Tjúgu­fána­mál­ið hef­ur hins veg­ar öðl­ast nýtt líf á yf­ir­stand­andi kjör­tíma­bili og það hvorki meira né minna en í hönd­um sjálfs for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem ákvað að taka við kefl­inu af Birgi í bar­átt­unni fyr­ir fram­gangi tjúgu­fán­ans á þök­um stjórn­ar­ráðs­ins og Al­þing­is.

Guð­rún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, hef­ur tek­ið fleiri mál Birg­is upp á sína arma. Af fjórum frumvörpum sem hún hefur lagt fram á kjör­tíma­bil­inu eiga þrjú upp­runa sinn hjá Birgi Þór­ar­ins­syn­i. Mynd/RÚV/Ragnar Visage

Hef­ur Guð­rún Haf­steins­dótt­ir lagt frum­varp­ið tví­veg­is fram í loka­út­gáfu Birg­is og bíð­ur það nú með­ferð­ar í í sjö­unda sinn. Ólíkt fánamáli Miðflokksins, sem komið er til meðferðar í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, hefur Guðrún ekki enn mælt fyrir sínu máli á þingfundi. Fyrr verður því ekki vísað til nefndar.

Forsætisráðherra flaggar óumbeðin

Þær breyt­ing­ar hafa hins veg­ar orð­ið á hög­um tjúgu­fán­ans,frá því Guð­rún tók við mál­inu, að hon­um er nú flagg­að á þaki stjórn­ar­ráðs­ins á hverj­um deg­i. Um er að ræða breyt­ingu sem Kristrún Frosta­dótt­ir, for­sæt­is­ráð­herra inn­leiddi í mars í fyrra, viku eft­ir að Guð­rún var kjör­in for­mað­ur Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Nú er því svo komið, eftir að Birgir gafst upp á Hæstarétti og forsetanum, og eftir að forsætisráðherra tók upp á sitt einsdæmi að flagga alla daga í stjórnarráðinu að aðeins ein fánastöng er eftir af þeim fimm sem lagt var upp með í upphafi. Fánastöngin á Alþingishúsinu. Þar er tjúgufáninn alltaf dreginn að húni þegar þingfundur er og á fánadögum. Þar er því enn margt óaðgert.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 11. júní, 2026, 07:37

Aðalheiður Ámundadóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link