Enga fána takk! Hvorki svona né hinseg­in

Lestími: 17 mínútur

Menntaskólum og ríkisháskólum yrði bannað að flagga hinseginfána ef frumvarp Miðflokksins um breytingar á fánalögum verður samþykkt. Fjallað er um fánamál í greinaröð Gímaldsins, en þrjú mál tengd þjóðfánanum bíða afgreiðslu þingsins.

Varla líð­ur ár án þess að mál tengt ís­lenska fán­an­um sé lagt fram á Al­þingi og þau eru nú kom­in vel á þriðja tug frá alda­mót­u­m. Í mörg­um til­vik­um er um sama eða svip­að mál að ræða, sem lagt er fram ár eft­ir ár, því áhuga­fólk um fán­ann legg­ur ekki ár­ar í bát þótt breyt­ing­ar ná­ist ekki í gegn í fyrstu at­renn­u.

Stund­um eru mörg fána­mál til með­ferð­ar á þingi á sama tíma og sú er raun­in nún­a. Ein til­laga til þings­á­lykt­un­ar og tvö frum­vörp um breyt­ing­ar á fána­lög­um bíða af­greiðslu þings­ins.

Segja þessi mál okk­ur eitt­hvað um stjórn­mál­in í dag? Fánamál er greinaröð um þrjú fánamál sem bíða afgreiðslu á Alþingi og langvar­andi fána­á­huga ís­lenskra al­þing­is­manna. Við byrj­um á frum­varpi Mið­flokks­ins.

Ein­ung­is ís­lenska fán­ann á hús­um hins op­in­bera

Í frum­varpi Karls Gauta Hjalta­son­ar og ann­arra þing­manna Mið­flokks­ins er lagt til að á hús­um op­in­berra bygg­inga verði bann­að að flagga öðr­um fán­um en ís­lenska þjóð­fán­an­um. Víkja megi frá þessu banni á þjóð­há­tíð­ar­degi ann­arra ríkja og vegna op­in­berra heim­sókna. Þá geti for­sæt­is­ráðu­neyt­ið, við sér­stak­ar að­stæð­ur, veitt und­an­þágu frá bann­in­u.

Frumvarp Karls Gauta er nýtt og er eina fánamálið á yfirstandandi þingi sem ekki hefur verið lagt fram áður. Grein­ar­gerð­in sem fylg­ir frum­varp­inu er stutt, að­eins ör­fá­ar lín­ur, eins og tíðkast reynd­ar um flest fána­þing­mál. Þar er ekki gerð grein fyr­ir nauð­syn þeirra breyt­inga sem lagð­ar eru til og í raun ekki rök­stutt með nein­um hætti af hverju um­rædd til­laga er gerð. Fjall­að er um fán­ann í sam­hengi við full­veldi lands­ins og sam­heldni þjóð­ar­inn­ar og mik­il­vægi þess að um notk­un hans við op­in­ber­ar bygg­ing­ar gildi skýr­ar regl­ur, í þeim til­gangi að hann verði meira not­að­ur. Með því sé hvatt til sam­stöðu þjóð­ar­inn­ar.

Karl Gauti Hjalta­son seg­ir bann við öðr­um fán­um en þeim ís­lenska á hús­um op­in­berra stofn­ana með­al ann­ars taka til mennta­stofn­anna, lög­reglu­stöðva og ráðu­neyta. MYND/RÚ­V/Ragn­ar Visa­ge

„Þetta hef­ur ver­ið óljóst, menn hafa ver­ið að flagga eins og þeim sýnist.“- Karl Gauti Hjaltason.

Í við­tali við RÚV sagði Karl Gauti að mark­mið frum­varps­ins væri með­al ann­ars að girða fyr­ir að það væri háð duttl­ung­um for­stöðu­manna op­in­berra stofn­anna hvaða fán­um sé flagg­að. Regl­ur í þess­um efn­um væru óskýr­ar. „Þetta hef­ur ver­ið óljóst, menn hafa ver­ið að flagga eins og þeim sýnist,“ sagði Karl Gauti við RÚ­V.

Í svari við fyr­ir­spurn Gímalds­ins seg­ir Karl Gauti að frum­varp­ið taki að­eins til stofn­anna rík­is­ins en ekki til bygg­inga í eigu sveit­ar­fé­laga. „Hér und­ir eru því all­ar stofn­an­ir í eigu og und­ir stjórn rík­is­ins og for­stöðu­manna þess,“ seg­ir Karl Gauti í svar­inu og tek­ur dæmi um lög­reglu­stöðv­ar, ráðu­neyt­i, stjórn­ar­ráð­ið og mennta­stofn­an­ir rík­is­ins.

Umdeildu viðtali í Kastljósi svar­að með hinseg­in­fán­um

Mörg dæmi eru um að flagg­að sé við mennta­stofn­an­ir rík­is­ins. Við aðalbyggingu Háskóla Íslands hefur Hinsegin dögum verið fagnað síðustu ár með því að draga fána að húni.

View this post on Instagram

A post shared by Háskóli Íslands (@haskoli_islands)

Nokkrum vik­um fyr­ir fram­lagn­ingu frum­varps­ins var Snorri Más­son, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, gest­ur í Kast­ljósi. Í þætt­in­um lét Snorri þau orð falla um hinseg­in hreyf­ing­una að inn­an henn­ar hefði graf­ið um sig hug­mynda­fræði sem krefð­ist þess að fólk tryði því að það væru til fleiri en tvö kyn. Snorri sagði skoð­ana­kúg­un ríkja í um­ræð­um um þessi mál. „Ég get ekki lif­að í sam­fé­lagi þar sem lygi er gerð að sann­leika og sann­leik­ur er gerð­ur að lyg­i,“ sagði Snorri.

Dag­inn eft­ir þátt­inn var hinseg­in­fán­um flagg­að víða, með­al ann­ars í Borg­ar­holts­skóla og fleiri fram­halds­skól­u­m. „Við get­um ekki set­ið und­ir þessu þegj­andi og hljóða­laust, hvorki skól­ar né aðr­ir í sam­fé­lag­in­u,“ sagði Ár­sæll Guð­munds­son, skóla­meist­ari Borg­ar­holts­skóla, í sam­tali við Vísi.

View this post on Instagram

A post shared by Borgarholtsskóli (@borgo_skoli)

Lögreglan flaggaði í tilefni hinsegin daga

Í áð­ur­nefndu svari Karls Gauta eru lög­reglu­stöðv­ar einnig tekn­ar sem dæmi um op­in­ber­ar stofn­an­ir sem bann­ið taki til. Hinseg­in­fána hef­ur ver­ið flagg­að við að minnsta kosti eina lög­reglu­stöð, á Ak­ur­eyri en þar hef­ur fán­an­um ver­ið flagg­að í til­efni Hinseg­in daga. Síð­ast­lið­ið sum­ar vakti fán­inn reiði fólks sem barist hef­ur gegn hinseg­in­fræðslu í skól­um bæj­ar­ins og var þessu tiltæki lögreglunnar mótmælt í bloggfærslum og á samfélagsmiðlum.

Þess­ari mynd deildi lög­regl­an á Face­book­síðu sinni ár­ið 2023. Emb­ætt­ið hef­ur flaggað í tilefni hinsegin daga árum saman.

Þjóð­fána Úkra­ínu flagg­að við ráðu­neyti

Þá eru ráðu­neyti með­al stofn­anna sem nefnd­ar eru í svari Karls Gauta. Ekki er al­gengt að þau flaggi öðr­um fán­um en hin­um ís­lenska en í ráð­herra­tíð Þór­dís­ar Kol­brún­ar R. Gylfa­dótt­ur var þjóð­fána Úkra­ínu þó flagg­að við ut­an­rík­is­ráðu­neyt­ið í nóv­em­ber 2024 þeg­ar árás­ar­stríð Rúss­lands í Úkra­ínu hafði stað­ið í 1000 daga.

View this post on Instagram

A post shared by Utanríkisráðuneytið (@utanrikisthjonustan)

Fáni Palest­ínu víða dreg­inn að húni

Fáni Palest­ínu hef­ur ver­ið áber­andi und­an­far­in miss­eri og sitt sýn­ist hverj­u­m. Ör­fá­um vik­um áð­ur en frum­varp Mið­flokks­ins var lagt fram voru fjöl­menn mót­mæli á Austurvelli und­ir kjör­orð­inu Þjóð gegn þjóð­ar­morði og báru margir mótmælenda palestínska fánann með­an á þeim stóð.

Í júlí síð­ast­liðn­um var sam­þykkt í borg­ar­ráði að sýna sam­stöðu með palest­ínsku þjóð­inni með því að draga fána henn­ar að hún­i, við hlið hins úkra­ínska, sem blakt hef­ur við Ráð­hús Reykja­vík­ur frá því inn­rás­ar­stríð Rúss­lands hófst.

Hvort blakt­andi fán­ar við Ráð­hús­ið hafi ver­ið hvat­ar að frum­varps­gerð­inni er alls óvíst en ekki er ólík­legt að þeir hafi hald­ið mönn­um við efn­ið, enda í beinni sjón­línu frá ný­bygg­ingu Al­þing­is sem hýs­ir skrif­stof­ur þing­manna og þing­flokka. Myndir/Reykjavíkurborg.

Karl Gauti seg­ir frum­varp Mið­flokks­ins ekki ná til sveit­ar­fé­laga, og frum­varp­ið hefði því ekki áhrif á fána sem flagg­að er við Ráð­hús­ið. All­ur gang­ur hef­ur ver­ið á því hvaða regl­ur gilda um notk­un fána hjá sveit­ar­fé­lög­um og hvort sveit­ar­fé­lög hafa sett sér slík­ar regl­ur yf­ir höf­uð. Í sept­em­ber síð­ast­liðn­um voru regl­ur um notk­un fána end­ur­skoð­að­ar hjá Reykja­vík­ur­borg með­al ann­ars með það að mark­miði að auð­veld­ara sé fyr­ir kjörna full­trúa að sýna þjóð­um og íbú­um sam­stöðu þeg­ar við á.

Ólík­ar regl­ur með­al sveit­ar­fé­laga

Fyr­ir tveim­ur ár­um voru sett­ar regl­ur um fána­mál í Múla­þing­i. Að­drag­and­inn er sá að haust­ið 2023 var palest­ínski fán­inn dreg­inn að húni við fé­lags­heim­il­ið Herðu­breið á Seyð­is­firð­i.

Sesselja varð ekki við ósk um að fáninn yrði fjarlægður, en hann hvarf engu að síður eina nóttina.

„Ég held við sé­um öll sam­mála um að það sem er að ger­ast, að heilli þjóð sé út­rýmt fyr­ir fram­an nef­ið á okk­ur, sé hræði­leg­t,“ sagði Sess­elja Hlín Jónasar­dótt­ir, stað­ar­hald­ari í Herðu­breið, í við­tali við Aust­ur­frétt í des­em­ber sama ár, um ástæð­ur þess að fán­inn var dreg­inn að hún­i. Sagð­ist Sess­elja finna fyr­ir sam­hug vegna fán­ans.

Rúm­um mán­uði síð­ar var Sess­elju þó gert að taka fán­ann nið­ur, hann færi í bága við ný­birt­ar leið­bein­ing­ar Múla­þings um notk­un fána. Regl­urn­ar voru sett­ar í lok jan­ú­ar 2024 eft­ir til­lögu frá Þresti Jóns­syni bæj­ar­full­trúa Mið­flokks­ins.

Í sam­tali við RÚV sagð­ist Sess­elja ekki skilja regl­urn­ar og benti á að úkra­ínski fán­an­um hafi ver­ið flagg­að við Ráð­hús­ið í Reykja­vík í tvö ár. „Hvað næst, má ekki flagga til dæm­is pride­­-fán­an­um?“ spurði Sess­elja.

Danska fyr­ir­mynd­in

Í grein­ar­gerð með frum­varpi Mið­flokks­ins er vik­ið að breyt­ing­um sem gerð­ar voru á fána­lög­um í Dan­mörku ár­ið 2024. Dönsku lög­in eru þó ólík hug­mynd­um Mið­flokks­ins og fjalla ekki sér­stak­lega um notk­un fána á op­in­ber­um bygg­ing­um held­ur ganga þau mun lengra og gera óheim­ilt og refsi­vert fyr­ir borg­ara, fyr­ir­tæki og stofn­an­ir að flagga þjóð­fán­um og svæð­is­fán­um ann­arra landa. Í til­kynn­ingu frá dóms­mála­ráðu­neyti Dan­merk­ur seg­ir að „fjöl­marg­ar und­an­tekn­ing­ar“ séu á bann­in­u. Það tek­ur hvorki til þjóð­fána Norð­ur­land­anna né Þýska­lands og ekki er bann­að að flagga fán­um al­þjóð­legra eða svæð­is­bund­inna sam­taka. Þá er tek­ið fram að eft­ir sem áð­ur verði fólki heim­ilt að flagga regn­boga­fán­an­um.

Dan­ir eru stolt­ir af fán­an­um sín­um og mega vera það. Dannebr­og er ansi fal­leg­ur. Mynd/Wiki­media

Dönsku fána­lög­in eru alls ekki ný af nál­inni og eiga sér áhuga­verða sög­u. Í Dan­mörku hef­ur ver­ið bann­að að flagga öðr­um þjóð­fán­um en hin­um danska í 100 ár. Fyr­ir nokkrum ár­um komust hjón bú­sett á Jót­landi í kast við lög­in vegna banda­rísks fána sem þau flögg­uðu við heim­ili sitt. Mál­ið fór alla leið fyr­ir Hæsta­rétt sem komst að þeirri nið­ur­stöðu að ekki væri full­nægj­andi laga­stoð fyr­ir því að banna fólki að draga banda­ríska fán­ann að hún­i. Í kjöl­far dóms­ins ákvað rík­is­stjórn Dan­merk­ur að skjóta styrk­ari laga­stoð und­ir bann­ið frek­ar en að aflétta því.

Fjall­að var um dönsku lög­in í ís­lensk­um fjöl­miðl­um og í kjöl­far­ið spratt upp nokk­ur um­ræða á blogg­síð­um og sam­fé­lags­miðl­um um nauð­syn sam­bæri­legra laga á Ís­land­i.

Deilt hef­ur ver­ið um fána í fleiri Evr­ópu­ríkj­um á und­an­förn­um miss­er­um en slík um­ræða sprett­ur gjarn­an upp í tengsl­um við Hinseg­in daga. Síð­asta sum­ar til­kynnti Jul­ia Kloeckner, þing­mað­ur Kristi­legra demókrata og for­seti þýska þings­ins, að hinseg­in fán­ar yrðu ekki dregn­ir að húni við þýska þing­ið í til­efni hinseg­in daga í Berlín líkt og tíðkast hafði í stjórn­ar­tíð þýska jafn­að­ar­manna­flokks­ins. Til­kynn­ing­in olli miklu fjaðrafoki en Friedrich Merz, kansl­ari Þýska­lands, kom flokks­syst­ur sinni til varn­ar og studdi ákvörð­un­ina op­in­ber­lega. „Það eru að­eins tveir fán­ar sem skulu vera sýni­leg­ir við þing­ið okk­ar en það er þýski fán­inn og fáni Evr­ópu­sam­bands­ins,“ sagði kansl­ar­inn í við­tali við þýsku sjón­varps­stöð­ina ARD.

Skát­ar gagn­rýna mál­ið en bænd­ur ræða ótengd mál

Frum­varp Karls Gauta er nú til með­ferð­ar í stjórn­skip­un­ar-­ og eft­ir­lits­nefnd þingsins. Þrjár um­sagn­ir bár­ust nefnd­inni um frum­varp­ið. Tvær þeirra fjalla reynd­ar al­far­ið um önn­ur og ótengd bar­áttu­mál fána­á­huga­fólks. Í annarri þeirra not­ar Fána­smiðj­an tæki­fær­ið og reif­ar ým­is vanda­mál um notk­un fán­ans. Óljóst sé hvort fána sem fest­ir eru á svala­hand­rið og í blóma­beð, þurfi að taka nið­ur á nótt­unni og að stærð­ir á fán­um fyr­ir skip og skút­ur séu á reik­i.

a flag flying in the wind with a blue sky in the background
Frum­varp Karls Gauta kveð­ur á um að ein­ung­is ís­lenska þjóð­fán­ann skuli draga að húni á hús­um op­in­berra bygg­inga.

Bænda­sam­tök­in hafa held­ur enga skoð­un á fána­banni Mið­flokks­ins en senda þó inn um­sögn um notk­un fán­ans við mark­aðs­setn­ing­u. Bænd­um finnst mik­il­vægt að þjóð­fáni Ís­lend­inga sé ein­ung­is not­að­ur til að kynna og mark­aðs­setja vör­ur sem eru raun­veru­lega ís­lensk­ar en verði ekki not­að­ur til að af­vega­leiða neyt­end­ur. Þetta er vel þekkt sjónarmið í fánaumræðunni, en teng­ist frum­varpi Mið­flokks­ins í raun­inni ekki.

„Við leggj­umst al­far­ið gegn þessu“ – Bandalag Íslenskra skáta

Eina um­sögn­in sem fjall­ar um efni frum­varps­ins er frá Banda­lagi ís­lenskra skáta en þeir eru and­snún­ir efni þess. Gagn­rýnt er að hend­ur for­ráða­fólks stofn­ana rík­is­ins verði bundn­ar með þeim hætti sem frum­varp­ið legg­ur til og geti ekki leng­ur sýnt mál­efn­um stuðn­ing „sé til þess til­efni og vilji á hverj­um tíma.“ Lög um ís­lenska fán­ann eigi að stuðla að virð­ingu fyr­ir fán­an­um og hafa skýr­ar regl­ur um með­ferð hans og notk­un.

„Aft­ur á móti telj­um við að þau eigi ekki sam­hliða að banna notk­un ann­arra fána eða tak­marka notk­un fánastanga við op­in­ber­ar bygg­ing­ar ein­ung­is við þjóð­fán­ann. Við leggj­umst því al­far­ið gegn þessu,“ seg­ir í um­sögn skáta.

Ekki er unnt að full­yrða hvort frum­varpi Karls Gauta er ætl­að að auka notk­un ís­lenska fán­ans og efla með því ein­ingu með­al þjóð­ar­inn­ar eða girða fyr­ir að hinseg­in fán­inn fái að blakta við fangastang­ir fram­halds­skóla.

Ein skýr­ing til er sú að frum­varp­ið sé í raun­inni svar Mið­flokks­ins við frum­varpi for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins um tjúgu­fán­ann. Það mál á sér langa sögu með ræt­ur í Mið­flokkn­um og kann að verða enn ein birt­ing­ar­mynd kapp­hlaups­ins á hægri væng stjórn­mál­anna. Um tjúgu­fána­mál­ið verð­ur fjall­að í næsta hluta um­fjöll­un­ar Gímalds­ins um fána­mál­in á þing­i.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 11. júní, 2026, 07:39

Aðalheiður Ámundadóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link