
Enn ein tillagan um rýmkaðan fánatíma er nú til meðferðar á Alþingi. Gímaldið skoðar rökin með og á móti því að flagga megi þjóðfánanum allan sólarhringinn og varpar fram í hæfilega rökstuddum kenningum um fánaáhuga alþingismanna.

Þingmenn hafa ítrekað gert atlögu að því að rýmka reglur um þann tíma sem flagga má íslenska fánanum.
Tillaga um þetta efni er nú til meðferðar á Alþingi og fjallað er um hana og fyrirrennara hennar frá fyrri þingum, í þriðja og síðasta hluta greinaraðar Gímaldsins um fánamálin sem eru til meðferðar á Alþingi.
Fánalög fjalla um íslenska fánann en um fánadaga og fánatíma er fjallað í sérstökum forsetaúrskurði. Þar er kveðið á um að ekki megi flagga íslenska fánanum fyrr en klukkan sjö að morgni og að jafnaði skuli hann eigi uppi vera lengur en til sólarlags og aldrei lengur en til miðnættis.

Margoft hefur verið reynt að rýmka þessar reglur með lagabreytingum, oftast af þingmönnum Framsóknarflokksins. Siv Friðleifsdóttir flutti tvisvar frumvörp í þeim tilgangi og Silja Dögg Gunnarsdóttir fimm sinnum.
Nú hefur Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingkona Samfylkingarinnar, tekið þetta klassíska baráttumál upp á sína arma. Hún leggur þó ekki til breytingar á lögum eins og framsóknarkonurnar, heldur leggur hún til að þingið feli forsætisráðherra að breyta reglum þannig að heimilað verði að draga þjóðfánann oftar á stöng og við fleiri aðstæður, ekki síst um bjartar sumarnætur þegar sól gengur ekki til viðar. Markmiðið samkvæmt tillögunni er það sama og hjá Framsóknarflokknum áður, að auka notkun fánans, en leitt er líkum að því að stífar reglur hafi fælt borgana frá því að flagga yfir höfuð.
Af lestri ótal frumvarpa og tillagna sem komið hafa fram um fánatímann á undanförnum árum, eru það einkum tvö vandamál sem standa aukinni notkun fánans fyrir þrifum.
Annars vegar óskýrar reglur. Fjallað er um fánann í lögum, forsetaúrskurði og í reglugerð. Af lestri umsagna sem borist hafa þinginu á síðustu árum má sjá að allskonar óvissu og ruglings gætir um hvað má og hvað má ekki. Gilda til dæmis sömu reglur um fána sem dreginn er á stöng sem föst er í jörð og stöng sem fest er á svalahandrið? Hvað með minni veifur framan á húsum, mega þær hanga allan sólarhringinn? Má fáninn snerta jörð og þarf að brenna hann ef það hendir.
Hins vegar veldur fánatíminn sjálfur vandræðum. Eins og staðan er í dag eru reglurnar um fánatíma iðulega brotnar við athafnir eins og brúðkaup og útfarir. Við útfarir er fáni dreginn í hálfa stöng meðan á athöfn stendur og svo flaggað að húni þegar henni er lokið. Hefjist útför eftir hádegi er sólin þegar sest að henni lokinni, stóran part ársins, og fáninn ætti að vera kominn niður af stönginni þegar tími er til að draga hann að húni.
Það er sterk hefð fyrir því að flaggað sé við útfarir og horft er fram hjá reglum um fánatíma í því tilviki. Því er ekki svo farið um aðrar athafnir og skemmtanir. Á dimmasta tímanum á fólk því val um að brjóta reglurnar eða sleppa því að flagga.
Því kemur á óvart að tillaga Ásu taki eingöngu til sumartímans þegar sólarlagsákvæðið skapar ekki sömu vandamál og það gerir á veturna þegar sólin sest á miðjum degi.
Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingkona Framsóknarflokksins, flutti fimm sinnum frumvarp um fánatíma á stjórnmálaferli sínum. Í síðustu atrennu hennar árið 2017 var lagt til að ákvæði forsetaúrskurðar um fánatíma færist inn í lögin sjálf. Þar komi fram sú meginregla sem gildir í dag, að fáninn megi blakta við hún frá sjö á morgnana til sólarlags og aldrei lengur en til miðnættis. Silja lagði til tvær undantekningar á reglunni. Annars vegar þá að sé flaggað við útisamkomu, opinbera athöfn, jarðarför eða minningarathöfn megi fáni vera uppi lengur en til sólarlags eða svo lengi sem athöfn varir, en þó aldrei lengur en til miðnættis. Hins vegar að fáni megi vera uppi allan sólarhringinn frá 15. maí til 15. ágúst ár hvert eða á öðrum tímum ef fáninn er flóðlýstur.
Helsta breytingin sem þarna er lögð til er sú að fáninn megi vera uppi allan sólarhringinn allt árið um kring en sé hann látinn hanga lengur en til sólseturs í skammdeginu þurfi að flóðlýsa hann.
Frumvarp Silju gengur lengra en tillaga Ásu Berglindar því það tekur einnig til fánatíma á veturna. Ekki er þó útilokað að gerð verði breyting á tillögu Ásu Berglindar í meðförum stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar eða í útfærslu forsætisráðherra sjálfs, enda er hún ekki bundin af ályktun þingsins um hve langt skuli ganga í breytingum á reglunum.
Í greinargerð með frumvarpi Silju frá 2017 er vikið að reglum um fánatíma í öðrum löndum. Í Noregi gildir fastur fánatími frá morgni til kvölds sem færist til um eina klukkustund eftir árstíðum. Í Danmörku þarf að taka fána niður við sólsetur en þar má hann hanga lengur ef hann er upplýstur. Í Svíþjóð gildir fastur fánatími frá morgni til kvölds en líkt og í Danmörku má fáni hanga lengur sé hann upplýstur.
Silja víkur einnig að fánareglum í Bandaríkjunum og Bretlandi. Þar sé miðað við sólarganginn. Flagga megi frá sólarupprás til sólarlags en fána megi þó hafa lengur uppi sé hann upplýstur.
Tillaga Ásu Berglindar um að forsætisráðherra verði falið að endurskoða reglur um fánatíma, er komin til meðferðar í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Tvær umsagnir hafa borist um tillöguna, báðar jákvæðar. Íslandsstofa segir löngu tímabært að endurskoða reglurnar. Aukin notkun fánans styrki ímynd Íslands og styðji það starf sem unnið sé við markaðssetningu á íslenskum vörum og þjónustu.
Hörður Lárusson, áhugamaður um fánann, er með athyglisverð sjónarmið um fánann í sinni umsögn. Hann nefnir tvær ólíkar leiðir til að auka notkun fánans. Önnur sé að skylda ríkisstofnanir til að flagga meira með reglum þar að lútandi. Við það verði fáninn sýnilegri. Almenningur tengist fánanum þó ekki endilega betur gegnum aukna notkun hans hjá hinu opinbera. Til að auka almenna notkun þurfi að fjölga tækifærunum og bæta aðgengi að upplýsingum um notkun fánans. Kallar Hörður eftir því að endurskoðun reglnanna hafi það markmið fyrst og fremst að einfalda fánareglurnar og veita gott aðgengi að þeim. Reglurnar eigi að hvetja til notkunar á fánanum utan fastra fánadaga.
Í eldri þingmálum, til dæmis málum Silju Daggar, eru flestir umsagnaraðilar á sama máli. Rýmka þurfi reglurnar til að auka notkun fánans. Þetta er þó alls ekki algilt. Kristbjörn Egilsson er alfarið á móti rýmkuðum fánatíma.

„Þegar fáni er dreginn að húni að morgni og felldur að kveldi á sér stað ákveðin athöfn sem greinir þjóðfánann frá öðrum fánum,“ segir Kristbjörn í umsögn fyrir nokkrum árum. Hann óttast að fái þjóðfáninn að vera við hún allan sólarhringinn fái hann smám saman á sig blæ annarra flagga. Minni virðing verði borin fyrir honum og hætt við að eftirlit minnki varðandi upplitun og slit.
Með umsögnum Kristbjörns fylgja myndir af þjóðfánum erlendis frá sem hanga jafnvel gauðrifnir og skítugir við hún. „Mér finnst þetta alltaf ömurleg sjón og fæ á tilfinninguna að þjóðfáninn sé meðhöndlaður eins og auglýsingafáni og í versta falli gólftuska,“ segir Kristbjörn sem gefur ekki mikið fyrir frjálslyndari reglur um notkun fánans.
Í fyrirliggjandi tillögu Ásu Berglindar er reyndar vikið að þessu og því velt upp að „ástæða sé til að skerpa á ákvæðum um umgengni við þjóðfánann og viðhald hans, svo sem því að hann skuli ávallt vera heill, hreinn og smekklegur, í samræmi við virðingu þá sem honum ber.
Auk tillögu Ásu Berglindar eru tvö frumvörp um breytingar á fánalögum til meðferðar í þinginu. Formaður Sjálfstæðisflokksins hefur tekið við máli Birgis Þórarinssonar um að tjúgufánanum verði flaggað á stjórnarráðinu og Alþingishúsinu alla daga ársins og Miðflokkurinn hefur lagt fram nýtt frumvarp um bann við því að öðrum fánum en íslenska þjóðfánanum sé flaggað á húsum opinberra stofnana. Þrjú mál um fánann á sama löggjafarþingi er vísbending um töluverðan áhuga meðal þingmanna. Sá áhugi endurspeglast þó ekki í umræðum í þingsal, því flutningsmenn fánamála mæta oftast aleinir til umræðunnar.
Umsagnir frá borgurum, fyrirtækjum og félagasamtökum eru líka oftast fáar. Skátarnir, Íslandsstofa og Íþrótta- og ólympíusamband Íslands eru meðal dyggustu umsagnaraðila. Af umsögnum er einnig ljóst að lítill en öflugur hópur einstaklinga hefur mikinn áhuga á fánanum. Umsagnir þeirra sýna að áhugamenn um fánann koma gjarnan að máli við alþingismenn með áhyggjur sínar og áherslur um fánann.
Ætla má að ýmist séu þeir þingmenn sem leggja fram fánamál, sérstaklega fánahollir og þjóðræknir, eða að þeir séu, með þingmálum sínum, að reyna að leysa vandamál sem borgararnir hafa leitað til þeirra með.
Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn eiga flest þeirra þingmála sem lögð hafa verið fram um fánann frá aldamótum, auk Miðflokksins sem er vaxandi í þessum efnum. Jóhanna Sigurðardóttir, þá formaður Samfylkingarinnar, lagði þó tvívegis fram frumvarp, um notkun fánans til markaðssetningar, í forsætisráðherratíð sinni. Mál Jóhönnu náðu ekki fram að ganga en Sigmundur Davíð Gunnlaugsson lagði aftur fram slíkt frumvarp þegar hann var forsætisráðherra og varð það að lögum árið 2016.
Ása Berglind er fyrsti óbreytti þingmaður Samfylkingarinnar til að leggja fram þingmál um fánann, á þessari öld. Hún er þingmaður stjórnarmeirihlutans en lausleg skoðun sýnir að oftast hefur áhugi fyrir fánanum og breytingum á reglum um hann verið meiri meðal þingmanna sem tilheyra þeim flokkum sem mynda meirihluta á Alþingi.
Auk Ásu Berglindar má nefna að í stjórnartíð Davíðs Oddssonar, flutti Guðmundur Hallvarðsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ítrekað tillögu um að íslenska fánanum skyldi flaggað í þingsal. Þessu var eins farið í tilviki framsóknarkonunnar Silju Daggar en hún hóf sína baráttu fyrir breyttum fánatíma þegar Framsóknarflokkurinn var í ríkisstjórn undir forsæti Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Silja Dögg hélt hins vegar áfram með þau mál eftir að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar tók við völdum, en þá var Framsókn í stjórnarandstöðu.
Því er ekki endilega hægt að slá því föstu að þingmenn Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins séu hallari undir fánann en aðrir þingmenn, enda þessir tveir flokkar oftar öðrum í ríkisstjórn og þingmenn þeirra því oftar bundnir af áherslum sitjandi ríkisstjórnar.
Þingmenn stjórnarflokka eru, eðli málsins samkvæmt, ekki eins frjálsir af því að leggja fram þingmál um hvað eina sem þeir vilja bæta í samfélaginu. Fæstir þeirra myndu til dæmis leggja fram frumvarp sem fer þvert gegn stjórnarsáttmála ríkisstjórnar. Því kann að vera að þingmenn í þessari stöðu finni sér fátt annað að gera upp á sitt eindæmi en að flagga íslenska fánanum. Mál eins og tillaga Ásu Berglindar er tiltölulega öruggt og óumdeilt og tilvalið til að ná þverpólitískri samstöðu.
Þingmenn í stjórnarandstöðu hafa hins vegar oftast öðrum hnöppum að hneppa, en að velta fyrir sér þjóðfánanum. Þeir eru að veita ríkisstjórninni aðhald og beita tækjum sem þeir hafa í þinginu til að varpa ljósi á hvað megi betur fara. Þingmenn í stjórnarandstöðu hafa meira frelsi en þingmenn meirihlutans, enda óbundnir af stjórnarsáttmála og þeirri ábyrgð sem fylgir því að vera í meirihluta. Þeir geta þannig notað frumvörp og tillögur til að varpa ljósi á hvernig þeim þyki að réttast að leysa vandamál sem eru í deiglunni og eru í því efni síður bundnir af fjárlögum og af öðrum stefnumálum ríkisstjórnarinnar en þingmenn meirihlutans. Frumvörp stjórnarandstöðuþingmanna eru í raun ekki ætluð til lagasetningar heldur til að kynna pólitíska afstöðu. Fáninn er því sjaldnar framarlega í forgangi meðal þingmanna í stjórnarandstöðu.
Þetta er þó ekki algilt eins og frumvörp Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns Sjálfstæðisflokksins, og Karls Gauta Hjaltasonar, þingmanns Miðflokksins eru dæmi um. Um þau fjallaði Gímaldið í fyrstu tveimur hlutum greinaraðar um fánamál.
Annað og eldra dæmi er að Siv Friðleifsdóttir fékk mikinn áhuga á fánum í forsætisráðherratíð Jóhönnu Sigurðardóttur en Framsókn var þá í stjórnarandstöðu. Siv lagði fram frumvarp notkun fánans til markaðssetningar, svipað því sem Jóhanna hafði sjálf lagt fram fyrr á sama kjörtímabili, og tillögu til þingsályktunar um kynningarátak á þjóðfánanum.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.