
Dómsmálaráðherra segir alvarlegt að starfsmaður Útlendingastofnunar hafi deilt nöfnum skjólstæðinga stofnunarinnar á samfélagsmiðlum. Hún segir málið slá sig illa og hún skilji hörð viðbrögð við því.

„Ég lít þetta alvarlegum augum, að starfsmaður sem hefur undir höndum gögn starfs síns vegna sé að fara með þau með þessum hætti,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, um að starfsmaður Útlendingastofnunar hafi brotið þagnarskyldu sína og deilt nöfnum skjólstæðinga stofnunarinnar á samfélagsmiðlum.
Eins og Gímaldið greindi frá á laugardag birti starfsmaður Útlendingastofnunar handskrifaða verkefnalista úr vinnunni í lokuðum hópi á Instagram með nöfnum skjólstæðinga stofnunarinnar með athugasemdum á borð við „3 kínverjar búnir komnir með klára synjun! Not all heroes wear capes“ ásamt emoji af einstaklingi í ofurhetjubúningi.
Þorbjörg Sigríður segir að jafnvel þó um sé að ræða háttsemi eins starfsmanns þá geti áhrifin náð langt út fyrir þetta einstaka mál „og er til þess fallið að skaða traust á stofnuninni“.
Hún segir að það eigi ekki aðeins við um Útlendingastofnun heldur einnig aðrar stofnanir sem fari með mikilvæg mál og taki ákvarðanir í viðkvæmum málalflokkum.
„Skaðinn í því að einn starfsmaður hagi sér í þessum hætti, hann blasir auðvitað við,“ segir hún og bætir við að slíkar stofnanir eigi „allt sitt undir því að almenningur beri traust sitt til þess að starfsmenn vinni faglega og málefnalega“.
Útlendingastofnun fékk fyrst veður af málinu þegar Gímaldið hafði samband í vikunni og voru þá virkjaðir verkferlar stofnunarinnar þegar kemur að öryggisbresti við meðhöndlun persónuupplýsinga. Þá sagðist Þórhildur Hagalín, upplýsingafulltrúi Útlendingastofnunar, ekki geta tjáð sig um mál einstaka starfsfólks en: „Það er alveg skýrt að brot á trúnaði eru litin mjög alvarlegum augum og hafa afleiðingar í samræmi við alvarleika máls.“

Þorbjörg Sigríður bendir á að mál starfsmannsins sé nú til umfjöllunar hjá Útlendingastofnun „og það verður að leyfa því að fá að hafa sinn gang,“ segir hún og ítrekar: „En auðvitað er þetta alvarlegt.“
Í kjölfar umfjöllunar Gímaldsins sköpuðust miklar umræður um málið á samfélagsmiðlum þar sem fólk lét falla hvöss orð um Útlendingastofnun og velti upp spurningum um vinnustaðamenninguna þar.
„Þetta slær mann mjög illa og ég skil þessi viðbrögð bara mjög vel,“ segir hún. Hún lýsir málinu jafnframt sem „óheppilegu, svo ekki sé fastar að orði kveðið“.
Spurð hvort einhver samskipti hafi átt sér stað milli dómsmálaráðuneytisins og Útlendingastofnunar vegna málsins segir hún svo ekki vera: „Ég hef ekki átt í neinum samskiptum við Útlendingastofnun í kjölfarið og heyrði bara fyrst af þessu í fjölmiðlum“.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.