Bannorðin í borginni rædd í nýjum kosningaþætti
Nýr þáttur af Börn og bílastæði, kosningaumfjöllun Gímaldsins, er lentur á helstu hlaðvarpsveitum. Þar er fjallað um stefnuskrár, eitruðu hugtökin sem ekki má ræða og það hvernig sundlaugar fá meira rými en Sundabraut í stefnum flokkanna.


