
Þótt prófkjörin séu lýðræðisleg og gegnsæ eru þau ekki gallalaus. Uppstilling getur opnað dyr fyrir hæfu fólki sem annars hefði aldrei farið í stjórnmál. En hegða frambjóðendur sér með ólíkum hætti eftir því hvaðan umboð þeirra kemur?

Þótt prófkjörin séu lýðræðisleg og gegnsæ eru þau ekki gallalaus. Uppstilling getur opnað dyr fyrir hæfu fólki sem annars hefði aldrei farið í stjórnmál. En hegða frambjóðendur sér með ólíkum hætti eftir því hvaðan umboð þeirra kemur?
Að mörgu er að hyggja fyrir þau sem eiga sér þann draum að komast á þing eða í sveitarstjórn. Í stórum flokkum kunna ýmsar hindranir að vera í vegi og margir slagir sem þarf að taka löngu áður en hin eiginlega kosningabarátta hefst.
„Það er oft talað um þessi tvö stig sem kjörnir fulltrúar þurfi að komast í gegnum. Það er í fyrsta lagi að komast á listann og þá skiptir máli hver velur, og svo í öðru lagi að ná kjöri,“ segir Eva H. Önnudóttir prófessor í stjórnmálafræði.
„Það er í fyrsta lagi að komast á listann og þá skiptir máli hver velur“
Baráttan um sæti á lista kann þannig að hefjast í tengslum við þá aðferð sem flokkurinn ákveður að fara við val á lista enda getur aðferðin haft mikil áhrif á hvort frambjóðandi fær það sæti sem hann óskar sér. Viðkomandi kann til dæmis að vera vinsæll meðal almennra flokksmanna en óvinsæll í forystu flokksins. Honum kann einnig að vera ógnað af frambjóðanda sem er vel kynntur og vinsæll í grasrótinni og gæti af þessum sökum haft ríka ástæðu til að berjast fyrir því að prófkjör verði ofan á. Verði sú leið ofan á, þurfa þeir sem etja við hann kappi að bretta upp ermar, til að mynda með smölun.
Í Samfylkingunni verður kosið um prófkjörstillögu fulltrúaráðsins í Reykjavík í næstu viku. Boðað hefur verið til fundar í Verði, fulltrúaráði Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í kvöld þar sem kjósa á um tillögu stjórnar um leiðtogakjör og röðun.

Þau sem hyggja á framboð geta átt mikið undir þessum ákvörðunum og því ekki fjarri lagi að halda því fram að kosningabaráttan hefjist hér. Mörg dæmi eru um stríðandi fylkingar hafi fjölmennt á fundi sem þessa í því skyni ýmist að veita fyrirliggjandi tillögu brautargengi eða til að koma í veg fyrir hana.
Og jafnvel má segja að baráttan hefjist fyrr í einhverjum tilvikum, því þau sem gera tillögu um aðferðirnar eru líka kjörin. Hefst baráttan ef til vill þegar kosið er í fulltrúaráð Samfylkingarinnar og í stjórn Varðar?
Aðferðir við val á lista eru margar. Þær einkennast fyrst og fremst af því hver velur en raða má aðferðunum á skala frá mjög opinni aðferð þar sem almennir flokksfélagar velja, til mjög miðstýrðrar aðferðar þar sem fámennur hópur í innsta kjarna flokksins kemur að valinu.
Flokksfélagar ráða: Í prófkjöri eru það almennir flokksmenn sem kjósa á lista oftast með því að raða frambjóðendum í forgangsröð. Prófkjörin geta verið mis opin en algengast er að kosningarétt eigi félagsmenn sem hafa verið skráðir í flokkinn á tilteknu svæði í einhvern tiltekinn tíma áður en prófkjör fer fram. Hve langur sá tími er getur skipt miklu máli fyrir kosningabaráttu frambjóðenda. Sá sem getur smalað vel, vill hafa þennan tíma langan en sá sem óttast smölun og vill að ‚gömlu og góðu félagarnir‘ ráði, vill ekki gefa langan tíma til nýskráninga í flokkinn.

Forval er líka einskonar prófkjör. Vinstri græn hafa oft notað þá aðferð og þá velja skráðir flokksfélagar í allra efstu sætin og svo er stillt upp í önnur sæti listans.
Grasrótin ræður: Ekki er óalgengt að skilgreind grasrót flokka komi að vali á lista til dæmis þannig að fjölmenn fulltrúaráð eða kjördæmisþing flokka velji lista með kosningu eða staðfesti val uppstillinganefndar.
Dæmi um þetta er sú tillaga sem liggur fyrir hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík sem gerir ráð fyrir að almennir félagsmenn kjósi oddvita flokksins en fulltrúaráð flokksins í Reykjavík sem telur um 1000 manns kjósi í næstu sæti þar á eftir á þar til gerðum röðunarfundi.
Uppstilling: Þegar stillt er á allan listann er það oftast sett í hendur uppstillinganefndar sem kosin hefur verið í þar til gerðu ferli innan flokksins. Hér er ekkert lýðræði heldur er hugmyndin sú að flokkurinn stilli upp lista sem þyki sigurstranglegur, jafnvel með því að sækja þekkta einstaklinga úr þjóðlífinu sem að trekkja að.
Uppstilling felur því almennt í sér meiri miðstýringu en í henni felast einnig tækifæri sem ekki bjóðast í prófkjöri. Til dæmis að fá á listann fólk sem myndi ekki gefa kost á sér annars. Ýmsar ólíkar leiðir hafa verið farnar um uppstillingu. Oft auglýsa uppstillinganefndir eftir tilnefningum og þá hafa verið farnar frumlegar leiðir á borð við skoðanakönnun eins og Samfylkingin efndi til fyrir alþingiskosningarnar 2021.
„Það er oft sagt að það sé lýðræðislegast og best fyrir flokkinn að hafa prófkjör. En það er ekki alltaf þannig. Það eru kostir og gallar við þessar leiðir,“ segir Eva.
„Prófkjörin eru gegnsæ og hafa yfirbragð þess að vera varin gegn klíkuskap og klækjabrögðum en svo sé auðvitað ekki alltaf. Ýmislegt getur gerst bak við tjöldin og kosningar geta verið taktískar, það er verið að ýta einum upp til að koma í veg fyrir kjör einhvers annars.“

Þótt segja megi að prófkjörin séu lýðræðislegasta leiðin þar sem allir skráðir félagar geti tekið þátt, sé það ekki endilega ávísun á besta listann. Í prófkjörum eigi þekkt andlit mun betri möguleika og þá jafnvel á kostnað fólks sem hefur starfað lengi í flokknum, hefur þjálfast þar til starfa og þekkir málefnagrunninn vel. Minna þekkt fólk, sem kunni að vera mjög vel hæft til starfa í stjórnmálum vegna þekkingar sinnar, veljist frekar á lista gegnum uppstillingu eða grasrótarfélög flokkana.
„Prófkjörin eru gegnsæ og hafa yfirbragð þess að vera varin gegn klíkuskap og klækjabrögðum en svo sé auðvitað ekki alltaf.“
Eva segir uppstillingu hafa ýmsa kosti. „Ef það er forystan eða nefnd innan flokksins sem velur, þá eru meiri líkur á að valið sé fólk sem hefur starfað í flokknum, veit hvað hann stendur fyrir og þekkir stefnumálin, í stað fólks sem eru ekkert langt frá stefnunni endilega en standa aðeins fjær,“ segir Eva og bætir við: „Eitt sem við sáum til dæmis, fyrir síðustu alþingiskosningar að eini flokkurinn sem var neyddur til að fara í prófkjör út af sínum reglum voru Píratar. Hinir flokkarnir gátu valið aðrar leiðir og gerðu það. Þeir gátu brugðist svo miklu hraðar við en Píratar. Þá gat forystan svolítið valið sitt fólk á listana og þarna var það beinlínis kostur fyrir flokkana að geta brugðist hratt við,“ segir Eva.

Þetta er þó ekki algilt. Val með uppstillingu getur haft þann kost að eftirsótt fólk sem myndi aldrei gefa kost á sér í prófkjöri, gæti þegið sæti á lista. Uppstilling er þannig í raun eina leið flokkanna til að „hausaveiða“ (e. headhunt) þekkt fólk sem gæfi ekki kost á sér í prófkjör. Dæmi um þetta eru Alma Möller og Víðir Reynisson, þingmenn Samfylkingarinnar og Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknarflokksins í borginni. Þessi þrjú voru ólíkleg til að hella sér út í prófkjörsbaráttu áður en stjórnmálaferill þeirra hófst, en ekkert þeirra hafði tekið þátt í starfi flokkana áður en leitað var til þeirra. Einar hafði meira að segja tekið þátt í ungliðastarfi Sjálfstæðisflokksins.
„Það er líka áhugavert að velta því upp að ef það er prófkjör innan flokka eða hvernig sem oddvitinn er valinn að þá sé reynt að velja í samráði við oddvitann að það sé valið í sætin sem á eftir koma þannig að það sé verið að velja hóp sem getur verið tiltölulega samstilltur,“ segir Eva.

„Prófkjörin geta svolítið sett þetta í uppnám, sérstaklega ef það eru kannski tveir til þrír að keppast um efsta sætið og svo raðast þeir bara í efstu þrjú sætin, þá náttúrulega reynir á samstarfið og samstarfsviljann.“
Í þessu ljósi vekur tillagan sem liggur fyrir hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík athygli. Þar er lagt til annars vegar leiðtogakjör og í kjölfarið val hjá 1000 manna flokksráði.
Þetta þýðir að sigurvegari leiðtogakjörs getur engin áhrif haft á hvaða fólk velst með á lista flokksins. Hjá Viðreisn hins vegar hefur einnig verið boðað til leiðtogakjörs en í kjölfar þess tekur uppstillingarnefnd til starfa sem raðar í önnur sæti flokksins.
Flokkar eru ólíkir að stærð og grasrótarstarf öflugra í sumum flokkum en öðrum. Þess vegna sjáum við til dæmis oftar uppstillingu í minni sveitarfélögum á landsbyggðinni. Flokksfélagar eru einfaldlega ekki nógu margir til að kosning í prófkjöri sé fýsilegt. Það sama á við um minni flokka á höfuðborgarsvæðinu. Uppstillingarnefnd er að störfum í Miðflokknum í Reykjavík svo dæmi sé tekið.
Þá miðast aðferð flokkana oft við kjörfylgi þeirri og hvað megi búast við að flokkurinn fái marga borgarfulltrúa. Vinstri græn hafa til dæmis oft haft forval meðal flokksfélaga í efstu þrjú sætin og láta uppstillingarnefnd eftir að velja í önnur sæti.
Samfylkingin stefnir á prófkjör um efstu sjö sætin og tillagan sem fyrir liggur hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík gerir ráð fyrir kosningu um oddvita og röðun flokksráðs í efstu sjö sætin en stillt verði upp í neðri hluta listans. Í þessum tilvikum er gert ráð fyrir því að flokksfólk komi að vali á þeim sem líklegast er að nái kjöri en uppstillingarnefnd klári svo að fylla í önnur sæti á listanum.
Það getur einnig haft mikil áhrif hvort gert er ráð fyrir mikilli endurnýjun á lista flokksins og einkum og sér í lagi hvort oddviti flokksins hyggst halda áfram. Boðað hefur verið til leiðtogakjörs í Viðreisn í Reykjavík sem fyrr segir, en ólíklegt er að svo hefði verið, nema af því að sitjandi oddviti, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, hefur ákveðið að láta gott heita og gefa ekki kost á sér áfram.
Tilhneigingin er sú að sé fólk valið af uppstillinganefnd eða flokksráði, er það í raun valið í umboði nefndarinnar eða flokksráðsins að sögn Evu. Bein kosning meðal flokksmanna veitir frambjóðendum þannig ólíka stöðu og meira sjálfstæði. Rannsóknir styðji þetta.
„Það liggur fyrir töluvert af rannsóknum um áhrif aðferða við val á framboðslista í aðdraganda kosninga og hvernig áhrif þær geta haft áhrif á kosningabaráttuna og samstarf kjörinna fulltrúa,“ segir Eva og skýrir þetta nánar.
„Í kosningabaráttunni geta frambjóðendur sem valdir eru í mjög opnu ferli frekar vikið frá skilaboðum flokksins en þeir sem eru valdir af fámennum hópi innan flokksins.“
„Það hefur meðal annars verið skoðað hvort fólk sem er valið á lista af uppstillingarnefnd er hollara sínum flokki en fólk sem valið er í prófkjöri. Til dæmis hvort frambjóðendur sem valdir eru af litlum hópi í flokknum, forystunni eða uppstillinganefnd, séu líklegri til að vera „þægir flokkshestar“, það er að segja meira á flokkslínunni, í samanburði við þá sem eru valdir með opnari hætti og hvort þeir sem valdir eru í prófkjöri hafi þá frekar tilhneigingu til að víkja meira frá flokkslínum.“
Innt eftir niðurstöðum slíkra rannsókna segir Eva línurnar ekki alveg skýrar í þessu. „En það hefur þó verið sýnt fram á að í kosningabaráttunni geta frambjóðendur sem valdir eru í mjög opnu ferli frekar vikið frá skilaboðum flokksins en þeir sem eru valdir af fámennum hópi innan flokksins.“ Þetta hætti svo að skipta máli þegar kjöri hefur verið náð.
„Þegar kemur að því hvernig kjörnir fulltrúar greiða atkvæði á þingi að þá virðist þetta ekki skipta miklu máli. Þar kýs fólk yfirleitt með flokknum sínum alveg sama hvernig var valið á lista,“ segir Eva.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.