
Viðræðum um sameiginlegt framboð Rósarinnar og Vinstrisins er lokið. Ekkert verður af samstarfi. Rósin fagnar öflugum og fjölbreyttum framboðslista Samfylkingarinnar.

Rósin, verður um kyrrt í Samfylkingunni og mun styðja hana i komandi borgarstjórnarkosningum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórn Rósarinnar á Facebook síðu félagsins.
Félagið hefur að undanförnu átt í formlegum viðræðum við Vinstrið um sameiginlegt framboð til borgarstjórnar en þeim viðræðum er nú lokið.
„Að undangengnu mati hefur stjórn Rósarinnar ákveðið einróma að halda áfram starfi sínu innan Samfylkingarinnar og styðja hana í komandi kosningum. Skýr vilji stjórnar er að vinna að festu, samstöðu og ábyrgri málefnalegri vinnu,“ segir í tilkynningunni. Fram kemur að samtöl við Vinstrið hafi verið málefnaleg og uppbyggileg og eru Vinstrinu þökkuð góð samskipti.
Eins og Gímaldið greindi frá sagði Rósin sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar fyrr í mánuðinum vegna óánægju með að Guðmundi Inga Þóroddssyni, formanni Rósarinnar, hefði ekki verið boðið 7. sæti á lista flokksins í Reykjavík.
Nú er hins vegar komið annað hljóð komið í stjórn Rósarinnar sem lýsir ánægju með nýkynntan lista flokksins. „Rósin óskar Samfylkingarfélögunum í Reykjavík til hamingju með öflugan og fjölbreyttan framboðslista. Þar er breiður hópur fólks með ólíka reynslu og sterka sýn á framtíð borgarinnar.“
„Rósin mun áfram starfa af heilindum að þeim málefnum sem félagið hefur ávallt lagt áherslu á. Málefni jaðarsettra og efnaminni hópa verða áfram í forgrunni og markmið okkar er að styrkja jafnaðarstefnuna innan Samfylkingarinnar,“ segir í tilkynningunni.
„Já þetta er sameiginleg ákvörðun okkar, og auðvitað stend ég að henni með hinum í stjórninni,“ segir Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Rósarinnar.
„Ég er farinn í helgarfrí, heyrðu í mér á mánudaginn,“ svarar Guðmundur inntur eftir því hvað sé framundan hjá honum og hvort nú sé útséð um framboð hans í Reykjavík.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.