Sam­fylk­ing­in: Rós­in seg­­­­ir sig úr full­­­­trú­a­ráð­inu og leit­­ar sam­­starfs við aðra um fram­­boð

Lestími: 5 mínútur

Rós­in, 700 manna að­ild­ar­fé­lag í Sam­fylk­ing­unni, íhug­ar nú aðr­ar leið­ir til fram­boðs í Reykja­vík, mögu­lega í sam­starfi við Vor til vinstri.

Stjórn Rós­ar­inn­ar, Lands­fé­lags jafn­að­ar­manna, eitt aðildarfélag Samfylkingarinnar í Reykjavík, hef­ur sam­þykkt að slíta sam­starfi við full­trúa­ráð Sam­fylk­ing­ar­inn­ar. Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá fé­lag­in­u. Í til­kynn­ing­unni seg­ir með­al ann­ar­s: „Rós­in er þar með sjálf­stæð í sín­um ákvörð­un­um og mun ákveða sjálf fram­boðs­mál og sam­starf í fram­boð­um á veg­um fé­lags­ins.“

En helsta ástæða fé­lags­ins fyr­ir slit­un­um er óá­nægja með val á lista flokks­ins fyr­ir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arn­ar næsta vor.

Vor til vinstri einn af kostunum

Sam­kvæmt heim­ild­um Gímalds­ins, er nú rætt um þátttöku Rósarinnar í samstarfi við aðra flokka og framboð á vinstri vængnum um sameiginlegt framboð í borgarstjórnarkosningum. Einn af líklegum kostum til samstarfs er þátttaka í Vori til vinstri, með Sönnu Magdalenu Mörtudóttur og Vinstri grænum.

Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Rósarinnar segir ekki tímabært að gefa yfirlýsingar um slíkt samstarf. „Nú erum við bara að segja okkur úr fulltrúaráðinu og svo skoðum við næstu skref,“  segir hann.

Guðmundi ekki boðið sæti á lista

Í álykt­un stjórn­ar­inn­ar kem­ur fram að for­manni Rós­ar­inn­ar, Guð­mundi Inga Þór­odds­syn­i, hafi ver­ið til­kynnt að hon­um verði ekki boð­ið sæti á lista flokks­ins, þrátt fyr­ir að hafa lent í 7. sæti í próf­kjöri flokks­ins í Reykja­vík og lýst í kjöl­far­ið vilja til að skipa það sæt­i á framboðslista Samfylkingarinnar.

„Þeg­ar þannig er kom­ið sam­skipt­um Full­rúa­ráðs við sjöhund­ruð manna fé­lag­ þá eru horfn­ar all­ar for­send­ur fyr­ir sam­starfi þess og full­trúa­ráðs­ins. Stjórn Rós­ar­inn­ar sam­þykk­ir því að slíta sam­starfi sínu við full­trúa­ráð­ið í Reykja­vík­,“ segir í ályktuninni.

Eft­ir­far­andi til­kynn­ing var send á full­trúa­ráð Sam­fylk­ing­ar­fé­lag­anna í Reykja­vík:

Stjórn Rós­ar­inn­ar, Lands­fé­lag jafn­að­ar­fólks hef­ur tek­ið ákvörð­un um að slíta sam­starfi fé­lags­ins við full­trúa­ráð Sam­fylk­ing­ar­fé­lag­anna í Reykja­vík og segja fé­lag­aði úr að­ild að ráð­inu að fullu.

Ákvörð­un­in bygg­ir á heild­stæðu mati stjórn­ar á stöðu sam­starfs­ins og fram­tíð­ar­sýn fé­lags­ins um skipu­lag og starf inn­an flokks­ins. Tel­ur stjórn­in að for­send­ur áfram­hald­andi að­il­ar séu ekki leng­ur fyr­ir hend­i.

Rós­in er þar með sjálf­stæði í sín­um ákvörð­un­um og mun ákveða sjálf fram­boðs­mál og sam­starf í fram­boð­um á veg­um fé­lags­ins.

Ósk­að er eft­ir því að þessi til­kynn­ing verði færð til bók­ar og að nauð­syn­leg­ar ráð­staf­an­ir verði gerð­ar af hálfu full­trúa­ráðs og flokks­ins vegna slita að­ild­ar­inn­ar sem tek­ur gildi strax í dag.

Guð­ný Maja Riba, vara­for­mað­ur Rós­ar­inn­ar birti til­kynn­ingu um mál­ið á Face­book­síðu Rós­ar­inn­ar í gær­kvöld­i, en til­kynn­ing­in var tek­in nið­ur nokkrum mín­út­um síð­ar.

Um til­kynn­ing­una sagði Guð­ný að Rós­in hafi á frá upp­hafi starf­að á grunni jafn­að­ar, mann­rétt­inda og reynslu fólks sem vill leggja sitt af mörk­um til sam­fé­lags­ins.

„Sú ákvörð­un sem tek­in hef­ur ver­ið snýr að skipu­lagi og sam­starfs­formi í Reykja­vík en hef­ur ekki áhrif á okk­ar póli­tísku sann­fær­ingu eða að­ild að Sam­fylk­ing­unn­i. Við stönd­um áfram eð jafn­að­ar­stefn­u, fé­lags­legu rétt­læti og þeirri sýn að breið reynsla og ólík sjón­ar­mið styrki hreyf­ing­una. Sam­starf, virð­ing og fag­mennska eru lyk­il­at­riði í okk­ar starf­i, inn­an flokks sem ut­an­.“

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 11. júní, 2026, 07:33

Aðalheiður Ámundadóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link