
Evrópumálið er komið til utanríkismálanefndar en fyrri umræðu um málið lauk í þinginu í gærkvöld. Mörg önnur stór mál bíða umfjöllunar á Alþingi. Frumvörp um lagareldi og innviðafélag voru lögð fram í gær og enn bíða umdeild mál eins og Bókun 35, breyting á búvörulögum og svokallað vísitölumál.

Fyrri umræðu um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið, lauk á Alþingi á ellefta tímanum á mánudagskvöld og var málinu vísað til utanríkismálanefndar til umsagna og annarrar meðferðar.
Meðal þeirra sem tóku til máls um tillöguna undir lok umræðunnar var Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og fyrrverandi utanríkisráðherra. Hún sagði málið hafið yfir flokkapólitík og gagnrýndi umræðuna í þinginu á báða bóga. Hún sagði orðræðu um blekkingar ekki hjálplega og sagði málflutning Miðflokksins um EES-samstarfið og alþjóðasamstarf, óþægilegan. Þórdís Kolbrún gagnrýndi líka ríkisstjórnina, einkum fyrir það hve lítil áhersla sé á efnislega umræðu um kosti og galla aðildar á þessu stigi.
Búast má við að umræða nefndarinnar verði viðamikil en meðal þess sem rætt var hvað mest í fyrstu umræðu voru spurningar um að hversu miklu leyti er hægt að ná samningum um sérlausnir eða undanþágur, samningsmarkmið Íslands verði viðræðum haldið áfram, kostnað af aðildarviðræðum og fleira sem farið var yfir í ítarlegri umfjöllun Gímaldsins um ólík sjónarmið stjórnarliða og stjórnarandstöðu í málinu.
Nægur tími er enn til stefnu fyrir málið en þingið þarf að afgreiða málið endanlega fyrir 29. maí til að atkvæðagreiðslan geti farið fram á tilsettum tíma, 29. ágúst, en þrír mánuðir þurfa að líða frá samþykkt tillögunnar þar til þjóðaratkvæðagreiðslan getur farið fram.
Nú þegar Evrópumálið er komið til nefndar taka önnur mál við sem beðið hafa þess að komast á dagskrá. Ríkisstjórnin er í óða önn að ljúka framlagningu þeirra mála sem stefnt er að klára á yfirstandandi þingi en lokafrestur til að leggja fram mál sem klára á fyrir sumarfrí, er 31. mars.

Meðal þeirra mála sem bíða þess að komast til fyrstu umræðu til að hægt sé að vísa þeim til meðferðar í nefndum er frumvarp atvinnuvegaráðherra um lagareldi og frumvarp innviðaráðherra um innviðafélag. Frumvörp þessi voru lögð fram í gær og eru bæði umfangsmikil. Lagareldismálið hefur tekið töluverðum breytingum frá því það var kynnt í samráðsgátt en tæplega þúsund umsagnir bárust frá einstaklingum, hagsmunaaðilum, opinberum stofnunum og sveitarfélögum.
Meðal breytinga sem gerðar voru á frumvarpinu eftir samráðið er að takmarkanir á heimild til útgáfu rekstrarleyfa til erlendra aðila gilda ekki um landeldi eins og áður var gert ráð fyrir. Matvælastofnun verður skylt að hafa samráð við Umhverfis- og orkustofnun við vinnslu umsókna um rekstrarleyfi og vegna breytinga á rekstrarleyfum. Þá verður Hafrannsóknarstofnun gert kleift að fela einkaaðilum vöktun í ám til að fylgjast með fjölda eldislaxa.
Frumvarp um stofnun innviðafélags tengist samgönguáætlun en innviðafélagi er ætlað að sjá um fjármögnun stærri samgönguframkvæmda. Frumvarpið gerir ráð fyrir því að innviðafélag hafi heimild til að annast fjármögnun, framkvæmd og eignarhald samgöngumannvirkja, sjá um rekstur þeirra og innheimta veggjöld eftir atvikum.
Nokkur stór mál á enn eftir að leggja fram, þar á meðal er fjármálaáætlun sem leggja þarf fram fyrir mánaðarmót. Samkvæmt starfsáætlun þingsins fer fyrri umræða um hana fram um miðjan apríl. Frumvarp um breytingar á fjölmiðlalögum á einnig eftir að leggja fram en í samráðsgátt er frumvarp sem gerir ráð fyrir að stuðningur við frjálsa fjölmiðla verði festur í sessi til næstu fimm ára. Umsagnafresti er nýlokið og hefur ráðherra nú skamman tíma til að fara yfir umsagnir og gera breytingar, ætli hann að ná að leggja málið fram fyrir fyrr fyrrnefndan frest 31. mars.
Þá er nokkur fjöldi mála sem komin eru vel á veg í þinginu og hafa verið afgreidd úr nefndum og bíða umræðu í þingsal og lokaafgreiðslu. Er hér meðal annars um að ræða frumvarp til nýrra sóttvarnarlaga, sem afgreitt var með nefndaráliti úr velferðarnefnd í gær. Afar umdeilt mál um tengingu almannatrygginga við launavísitölu er á dagskrá þingfundar í dag og stefnir meirihlutinn á að gera það að lögum í vikunni. Hin umdeilda bókun 35 hefur hins vegar beðið lengi, en málið var afgreitt með nefndaráliti frá utanríkismálanefnd fyrir áramót.
Þá er fjöldi umfangsmikilla mála til umfjöllunar í nefndum þingsins. Má þar nefna frumvarp til nýrra sveitarstjórnarlaga, umfangsmiklar breytingar á lögum um sjúkratryggingar, breytingar á búvörulögum, og frumvarp dómsmálaráðherra til nýrra heildarlaga um almannavarnir. Þá eru enn nokkur frumvörp dómsmálaráðherra á sviði útlendingamála til umræðu í nefndum.
Þótt mál stjórnarinnar séu mörg stór í sniðum og umdeild er enn töluverður tími til stefnu. Þingið fer ekki í sumarfrí fyrr en 12. júní, samkvæmt starfsáætlun Alþingis, en tekur sér frí fyrstu tvær vikurnar í maí til að gefa sveitarstjórnarstiginu sviðið í aðdraganda kosninga.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.