Upp­gjör: Þing­ið í jóla­frí á árs af­mæli stjórn­ar­inn­ar

Lestími: 17 mínútur

Gímald­ið ger­ir upp haust­þing­ið og fyrsta ár rík­is­stjórn­ar Kristrún­ar Frosta­dótt­ur.

Fyrstu fjár­lög rík­is­stjórn­ar Kristrún­ar Frosta­dótt­ir voru sam­þykkt á fimmtu­dag og jóla­frí þing­manna er haf­ið.

Þing­störf­in hafa geng­ið ágæt­lega það sem af er vetri að mati Þór­unn­ar Svein­bjarn­ar­dótt­ur, for­seta Al­þing­is, sem kvaddi þing­heim með ávarpi við frest­un þing­funda. Þór­unn gat þess einnig að mál rík­is­stjórn­ar­inn­ar hafi kom­ið jafnt og þétt til með­ferð­ar í þing­inu sem skipti máli fyr­ir vand­aða þing­lega með­ferð og gæði laga­setn­ing­ar.

Í þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­inn­ar var gert ráð fyr­ir að 111 mál yrðu lögð fram fyr­ir ára­mót. Alls lagði stjórn­in fram 88 mál á haust­miss­er­inu og því vant­aði 23 mál upp á.

Af þess­um 88 mál­um sem lögð hafa ver­ið fram hafa 37 frum­vörp ver­ið sam­þykkt sem lög frá Al­þingi auk fimm álykt­anna.

Álög­ur á bí­l­eig­end­ur um­deild­ar í þing­inu

Meðal nýsamþykktra mála ber hæst fyrstu fjár­lög rík­is­stjórn­ar­inn­ar og laga­breyt­ing­ar þeim tengd. Mesta um­ræðu í þing­inu fengu nýj­ar álög­ur á bif­reið­ar­eig­end­ur; ann­ars veg­ar vöru­gjöld á bíla og hins veg­ar kíló­metra­gjald.

Þing­störf­in hafa geng­ið ágæt­lega í vet­ur að mati for­seta þings­ins sem þó hef­ur bölv­að þing­mönn­um stjórn­ar­and­stöð­unn­ar. Mynd/RÚ­V/Ragn­ar Visa­ge

Sleg­ið var met í um­ræðu um band­orm­inn eins og frum­varp­ið um tekju­hlið fjár­laga er kall­að. Stóð um­ræð­an yf­ir í tæpa átján tíma sem er marg­falt meira en í venju­lega en um­ræða um þenn­an hluta fjár­laga stend­ur jafn­an í tvær til þrjár klukku­stund­ir. Mest var rætt um vöru­gjöld á öku­tæki sem verða lögð á um ára­mót en einnig var mik­ið rætt um af­nám sam­skött­un­ar hjóna sem tek­ur til þeirra tekju­hæst­u.

Síð­ustu dag­ana fyr­ir jóla­frí þings­ins var mik­ið rætt um hinn hluta auk­inn­ar álagn­ing­ar á eig­end­ur bíla, kíló­metra­gjald­ið. Hvort tveggja, vöru­gjöld og kíló­metra­gjald eru nýj­ar tekju­öfl­un­ar­leið­ir fyr­ir rík­is­sjóð en skatt­tekj­ur af jarð­efna­elds­neyti hafa far­ið lækk­andi vegna orku­skipta og því nauð­syn­legt að taka í notk­un nýj­ar tekju­öfl­un­ar­leið­ir.

Að sögn for­sæt­is­ráð­herra hafa kíló­metra­gjald og vöru­gjöld ver­ið á teikni­borð­inu í fjár­mála­ráðu­neyt­inu í um ára­tug. En í frum­vörp­um um þess­ar nýju tekju­öfl­un­ar­leið­ir seg­ir að þeim sé ætl­að að standa straum kostn­aði við vega­kerf­ið og aðra um­ferð­ar­inn­við­i.

Að­eins einn sýslu­mað­ur yf­ir land­inu

Með­al ann­arra mála sem rík­is­stjórn­in kom í gegn á fyrri önn þessa vetr­ar eru breyt­ing­ar á lög­um um mennta­sjóð náms­manna, heim­ild­ir tengd­ar með­ferð sjúkra­skráa var breytt til að auka skil­virkni og hag­ræð­ing­u, kirkju­garð­ar fengu laga­heim­ild til að taka gjald fyr­ir þjón­ustu sína, lög­regl­an fékk aukn­ar heim­ild­ir til öfl­un­ar fjár­mála­upp­lýs­inga og heim­ild­ir til hald­lagn­ing­ar og kyrr­setn­inga.

Þá var sam­þykkt að sam­eina sýslu­manns­emb­ætt­in níu í eitt, með það að mark­mið­i, sam­kvæmt þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­inn­ar að „bæta þjón­ustu hins op­in­bera á öllu land­inu með ein­fald­ari stjórn­sýslu og jöfnu að­gengi að op­in­berri þjón­ust­u, óháð bú­set­u.“

Inga Sæland sig­ur­veg­ari hausts­ins

Að frátöldum fjármálaráðherra sem staðið hefur í ströngu á haustþinginu hefur Inga Sæland verið einn at­kvæða­mesti ráð­herra rík­is­stjórn­ar­inn­ar þetta haust­ið.

Inga Sæland var feng­sæl á haust­þing­in­u. Mynd/RÚ­V/Ragn­ar Visa­ge

Um miðj­an des­em­ber sam­þykkti Al­þingi frumvarp Ingu Sæland um jóla­bón­us líf­eyr­is­þega. Katta­- og hunda­eig­end­ur þurfa ekki leng­ur sam­þykki ná­granna sinna fyr­ir gælu­dýra­haldi í fjöl­eign­ar­hús­um, tek­in hef­ur ver­ið upp al­menn skrán­ing­ar­skylda leigu­samn­inga til að afla megi heild­stæðra upp­lýs­inga um leigu­mark­að­inn, rétt­ur for­eldra til fæð­ing­ar­or­lofs og sorg­ar­leyf­is hef­ur ver­ið bætt­ur og frí­tekju­mark elli­líf­eyr­is hækk­að.

Á síð­asta þing­fundi fyr­ir jóla­frí var sam­þykkt frum­varp sem fest­ir hlut­deild­ar­lán í sessi og mán­að­ar­leg­ar út­hlut­an­ir lána tryggð­ur gagn­vart lán­tök­um jafnt sem bygg­ing­ar­að­il­u­m. Einnig var sam­þykkt að hækka ár­lega láns­fjár­heim­ild Hús­næð­is­ og mann­virkja­stofn­un úr 4 millj­örð­um í 5.5 millj­arða. Hlut­deild­ar­lán voru fyrst kynnt til sög­unn­ar ár­ið 2020 til að hjálpa fyrstu kaup­end­um fast­eigna að kom­ast inn á mark­að­inn. Í hinu ný­sam­þykkta frum­varpi kem­ur fram að Ís­land hafi dreg­ist aft­ur úr öðr­um lönd­um OECD í hlut­falli þeirra sem eiga sér­eign og því þurfi að bregð­ast við.

Rús­ín­an í pylsu­end­an­um fyr­ir Ingu per­sónu­lega var án efa lög­fest­ing samn­ings­ins um rétt­indi fatl­aðs fólks. Lög­fest­ing­in hef­ur í för með sér að ákvæði samn­ings­ins fá laga­­gildi og geta ein­stak­l­ing­­ar byggt rétt sinn á ákvæð­­um hans fyr­­ir dóm­stól­­um og öðr­­um úr­­­skurð­­ar­að­il­u­m. Lög­­­fest­ing­in hef­­ur lengi ver­ið bar­átt­u­­mál hjá Ingu sem lagði fjór­­um sinn­­um fram þing­­mál þess efn­­is þeg­­ar hún var þing­­mað­­ur í stjórn­­­ar­and­­stöð­u.

Töl­fræði haust­þings­ins

Alþingi hefur tekið saman tölfræði um störf þingsins það sem af er 157. löggjafarþingi, frá því þing kom saman 9. september síðastliðinn til síðasta fundar fyrir jólaleyfi 18. desember.

  • Þingfundir voru samtals 53 og stóðu í tæpar 320 klukkustundir. Meðallengd þingfunda var 5 klukkustundir og 55 mínútur. Lengsti þingfundurinn stóð í 13 klukkustundir og 27 mínútur. Lengsta umræðan var um fjárlög 2026 en hún stóð samtals í 44 klukkustundir og 54 mínútur.
  • Þingfundadagar voru alls 48.
  • Af 138 frumvörpum hafa nú alls 37 orðið að lögum og 101 er enn óútrætt.
  • Af 66 þingsályktunartillögum voru fimm samþykktar og 61 er óútrædd.
  • Sex skriflegar skýrslur voru lagðar fram, þar af ein samkvæmt beiðni. Átta beiðnir um skýrslur komu fram, allar til ráðherra. Ein munnleg skýrsla ráðherra var flutt.
  • Fyrirspurnir á þingskjölum voru samtals 155. Fyrirspurnir til munnlegs svars voru 14 og hefur sjö þeirra verið svarað en ein var kölluð aftur. 141 skrifleg fyrirspurn var lögð fram og hefur 71 þeirra verið svarað. 70 biðu svars er þingi var frestað.
  • Þingmál til meðferðar í þinginu voru 374 og tala prentaðra þingskjala var 617.
  • Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra voru 107.
  • Sérstakar umræður voru 10.
  • Samtals höfðu verið haldnir 192 fundir í fastanefndum þegar þingfundum var frestað
  • Haldinn var einn opinn nefndarfundur.

Val­kyrj­­u­­stjórn­­in eins árs

Rík­is­stjórn Kristrún­ar Frosta­dótt­ur var kynnt í Hafn­ar­firði 21. des­em­ber 2024. Stjórn­in fagn­ar því eins árs af­mæli á morg­un.

Ólíkt því sem al­mennt var áð­ur fyrr þeg­ar al­þing­is­kosn­ing­ar voru í maí, hóf rík­is­stjórn­in ekki þing­störf með fram­lagn­ingu fjár­laga­frum­varps enda fjár­lög ný­sam­þykkt þeg­ar stjórn­in var mynd­uð. Fyrsta verk rík­is­stjórn­ar­inn­ar á nýju ári var að leita að­stoð­ar út fyr­ir eig­in rað­ir.

Á fyrsta starfs­degi þessa árs efndi rík­­is­­stjórn­­in til sam­ráðs við al­­menn­ing um hag­ræð­ingu í rík­­is­­rekstri. Þjóð­in var spurð hvar og hvern­ig henni fynd­ist helst mega hag­ræða í rík­­is­­rekstri; hvar mætti stokka upp eða breyta for­­gangs­röð­un og hvort dæmi væru um só­un hjá hinu op­in­bera sem auð­velt væri að taka á.

Mik­il þátt­­taka var í sam­ráð­inu og bár­ust yf­­­ir 10.000 til­­lög­­ur um hag­ræð­ingu í 3985 um­­­sögn­­um. For­­stöð­u­­menn rík­­is­­stofn­ana fengu sömu spurn­ing­­ar frá rík­­is­­stjórn­­inni með ósk­­um um til­­lög­­ur. Í stefn­u­ræðu sinni við upp­­haf yf­­ir­stand­andi haust­­þings full­yrti for­­sæt­is­ráð­herra að sam­ráð­ið myndi skila sér í yf­­­ir 100 millj­­arða hag­ræð­ingu á tíma nýrr­­ar fjár­­­mála­á­ætl­­un­­ar. Með­­al hag­ræð­ing­­ar­að­­gerða sem ráð­ist verð­­ur í á grund­velli sam­ráðs­ins er af­­nám hand­haf­a­­launa vegna for­­seta­­valds en frum­varp þess efn­­is hef­­ur ver­ið birt í sam­ráðs­­gátt stjórn­­­valda.

Þing­störf nýrr­ar rík­is­stjórn­ar hófust svo þeg­ar þing kom sam­an að loknu jóla­leyfi í jan­ú­ar á þessu ári og stjórn­in kom ýmsu í verk fyrstu mán­uð­ina.

Svoköll­uð stöðu­leik­a­regla var sett inn í lög um op­in­ber fjár­mál, en hún fel­ur í sér að sett verði há­mark fyr­ir vexti út­gjalda í fjár­mála­stefnu og fjár­mála­á­ætl­un sem taki mið af lang­tíma­vaxt­ar­getu lands­fram­leiðsl­unn­ar.

Þá voru sett lög um sölu á hlut rík­is­ins í Ís­lands­banka, rétt­indi til fæð­ing­ar­or­lofs og sorg­ar­leyfa voru auk­in og nokk­uð um­deild­ar breyt­ing­ar á regl­um um náms­mat í grunn­skól­um fest­ar í lög. Einnig voru sett­ar í lög aukn­ar heim­ild­ir til vinnslu og af­hend­ing­ar upp­lýs­ing­ar um far­þega og áhafn­ir í lög­gæslu­til­gangi og reglu­verk kring­um fram­sal saka­manna ein­fald­að.

Tvö frum­vörp um­hverf­is­ráð­herra um breyt­ing­ar á raf­orku­lög­um voru sam­þykkt; ann­ars veg­ar um aukna vernd smærri not­enda raf­orku, það er, heim­ila og smærri fyr­ir­tækja. Hins veg­ar um heim­ild til að veita virkj­un­ar­leyfi til bráða­birgða. Þá voru gerð­ar breyt­ing­ar á lög­um um um­hverf­is­mat fram­kvæmda sem fela í sér ein­föld­un og aflétt­ingu reglu­byrð­ar. Mark­mið­ið var að færa lög­gjöf­ina nær Evr­ópu­lög­gjöf­inni og tryggja að hún væri ekki meira íþyngj­andi en til­efni er til” að því er fram kem­ur í frum­varp­in­u.

For­seti batt enda á mál­þóf

Lang póli­tís­kasta mál fyrsta þings nýrr­ar rík­is­stjórn­ar var þó án efa frum­varp um breyt­ing­ar og hækk­un á veiði­gjald­i. Mál­ið var rætt langt fram á sum­ar.

Sleg­ið var met í lengd um­ræðu um mál á Al­þingi en mál­þóf stóð yf­ir um mál­ið langt fram á sum­ar og lauk henni ekki fyrr en for­seti skar á hnút­inn með beit­ingu ákvæð­is í þing­sköp­um sem heim­il­ar for­seta að binda endi á um­ræðu um mál.

Þetta inn­grip var for­seta og stjórn­ar­flokk­un­um erfitt en hins veg­ar átti eft­ir að koma í ljós hve gott sum­­­ar­ið hafði reynst rík­­is­­stjórn­­inn­i. Stjórn­­­ar­and­­stöð­u­­flokk­­arn­­ir töp­uðu miklu fylgi á mál­þóf­inu og and­staða þeirra við hækk­un veiði­gjalda mælt­ist al­mennt illa f fyr­ir. Mál­ið styrkti hins veg­ar rík­is­stjórn­ina.

Stjórn­in vin­sæl en and­stað­an ekki

Um síð­ustu mán­aða­mót var eitt ár lið­ið frá al­þing­is­kosn­ing­um og af því til­efni fjall­aði Gímald­ið um stöðu stjórn­mála­flokk­anna. Í þeirri um­fjöll­un bar hæst erf­ið­leik­ar Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem hafa tap­að fylgi allt kjör­tíma­bil­ið en ný­kjör­inn for­mað­ur flokks­ins er óvin­sæll, jafn­vel með­al eig­in flokks­manna. Þar er einnig fjall­að um botn­fros­ið fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins og flug Mið­flokks­ins í könn­un­um.

Þá er fjall­að um stöðu rík­is­stjórn­ar­flokk­ana; vin­sæld­ir Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, vand­ræða­gang Flokks fólks­ins og upp­tekna ráð­herra Við­reisn­ar.

Tæki­færi stjórn­ar­and­stöð­unn­ar á nýju ári

Þrátt fyr­ir ýmsa erf­ið­leika hef­ur allt spil­ast upp í hend­ur rík­is­stjórn­ar­inn­ar þetta fyrsta ár henn­ar við völd. Blik­ur á lofti í efna­hags­mál­u­m, eft­ir röð áfalla und­an­farna mán­uði gætu þó far­ið að síga í hjá stjórn­inn­i. Þrá­lát verð­bólga, vax­andi at­vinnu­leysi og frost á hús­næð­is­mark­aði ættu að fela í sér tæki­færi fyr­ir stjórn­ar­and­stöð­una.

Fjöl­mörg mál bíða með­ferð­ar þings­ins á nýju ári. Þau mál sem þeg­ar hafa ver­ið lögð fram eru mis­langt kom­in í með­för­um þings­ins. Bók­un 35 hef­ur ver­ið af­greidd úr nefnd og bíð­ur ann­arr­ar um­ræð­u, um­deilt mál um leigu­bíla er til með­ferð­ar í at­vinnu­vega­nefnd. Frum­varp um teng­ingu líf­eyr­is­greiðslna við launa­vísi­tölu hef­ur ver­ið af­greitt úr vel­ferð­ar­nefnd. Í þeirri nefnd er svo­kall­að Air­bnb frum­varp einnig til með­ferð­ar en því er ætl­að að stemma stigu við því að ein­staka að­ild­ar geti haft fjölda íbúða í skamm­tíma­leig­u.

Al­manna­varn­ir út­lend­inga­mál, sam­göngu­mál og snjall­sím­ar

Nokk­ur frum­vörp um út­lend­inga­mál eru til með­ferð­ar í alls­herj­ar­ og mennta­mála­nefnd, með­al ann­ars um brott­far­ar­stöð og aft­ur­köll­un al­þjóð­legr­ar vernd­ar.

Í alls­herj­ar­nefnd eru líka nokk­ur mál tengd al­manna­vörn­um, með­al ann­ars um heild­ar­end­ur­skoð­un al­manna­varna­laga. Þá er til um­fjöll­un­ar í nefnd­inni frum­varp mennta­mála­ráð­herra um notk­un snjall­síma í grunn­skól­u­m.

Sam­göngu­á­ætl­un er í um­sagn­ar­ferli og tvær til­lög­ur um breyt­ing­ar á ramma­á­ætl­un eru bíða einnig umræðu í um­hverf­is­- og sam­göngu­nefnd.

Lagareldi, búvörulög, strandveiðar og fjölmiðlar

Fjöl­mörg mál eru einnig í vinnslu í ráðu­neyt­um og bíða fram­lagn­ing­ar á þingi á vor­þing­i. Má þar nefna breyt­ing­ar á kosn­inga­lög­um til að auka jafn­ræði í at­kvæða­vægi og þing­sæta­dreif­ing­u, breyt­ing­ar á bú­vöru­lög­um og nýja lög­gjöf um lagar­eld­i. Boð­uð er heild­ar­end­ur­skoð­un á lög­um um skip­an op­in­berra fram­kvæmda og end­ur­skoð­un sveit­ar­stjórn­ar­laga. Setja á ný lög um strand­veið­ar og byggða­kvóta og fjár­mála­ráð­herra boð­ar heild­ar­end­ur­skoð­un á lög­um um skip­an op­in­berra fram­kvæmda. Þá hef­ur menn­ing­ar­-, ný­sköp­un­ar-,­ og há­skóla­ráð­herra kynnt hugmyndir sínar um end­ur­skoð­un á fyr­ir­komu­lagi stuðn­ings til einka­rek­inna fjöl­miðla.

Af nógu verð­ur að taka þeg­ar þing kem­ur sam­an eft­ir jóla­leyfi þann 14. jan­ú­ar 2026.



Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er opin tímabundið, en efni Gímaldsins er almennt aðeins fyrir áskrifendur.

Við viljum
byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?
Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 11. júní, 2026, 07:53

Aðalheiður Ámundadóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link