
Dómsmálaráðherra telur Útlendingastofnun hafa brugðist rétt við í máli starfsmanns sem varð uppvís að trúnaðarbroti og að önnur skref séu ekki tímabær. Félag talsmanna umsækjenda um alþjóðlega vernd hvatti dómsmálaráðuneytið til að kalla eftir óháðri úttekt á starfsemi Útlendingastofnunar í kjölfar Instagram-málsins.

„Útlendingastofnun brást rétt við máli tiltekins starfsmanns um leið og málið kom upp,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, um Instagram-málið svokallaða, þar sem starfsmaður Útlendingastofnunar braut trúnað og persónuverndarlög með því að birta nöfn umsækjenda um alþjóðlega vernd og upplýsingar um niðurstöður mála þeirra á samfélagsmiðlum.
„Það er alvarlegt þegar opinber starfsmaður misnotar það traust sem honum er falið vegna starfs síns. Slík brot eru algjörlega óásættanleg,“ segir hún. Starfsmaðurinn starfi ekki lengur hjá Útlendingastofnun og brot starfsmannsins hafi að hennar mati haft eðlilegar afleiðingar í för með sér. „Allar ákvarðanir viðkomandi starfsmanns voru yfirfarnar til að ganga úr skugga um að verkferlum hefði verið fylgt. Málið var jafnframt tilkynnt til lögreglu og Persónuverndar, sem hefur hafið frumathugun,“ segir hún.
Félag talsmanna umsækjenda um alþjóðlega vernd sendi frá sér yfirlýsingu í vikunni þar sem dómsmálaráðneytið var hvatt til aðkalla eftir óháðri úttekt á starfsemi Útlendingastofnunar í kjölfar málsins.
FTA segir í yfirlýsingunni að félagið lýsi „yfir áhyggjum af nýlegu máli er varðar brot á trúnaðar- og þagnarskyldu starfsmanns Útlendingastofnunar, svo og þeim viðhorfum sem endurspeglast í tjáningu starfsmannsins á samfélagsmiðlum.“
Í umfjöllun Gímaldsins kom fram að á einni myndanna, sem sýndi verkefnalista starfsmannsins þar sem hakað hafði verið við nöfn skjólstæðinga Útlendingastofnunar, hafði hann skrifað: „3 kínverjar búnir komnir með klára synjun! Not all heroes wear capes“ ásamt tákni af einstaklingi í ofurhetjubúningi.
Á öðru skjáskoti mátti sjá starfsmanninn deila mynd af jólalagalista á Spotify ásamt verkefnalista þar sem búið var að haka við nafn eins einstaklings sem þurfti að „klára“, með textanum: „Verðlauna mig með jólalögum fyrir fyrsta [tékk-emojí].“ Þá deildi hann einnig mynd af sér að borða jólaköku með textanum: „Jólakaka í mallanum & spurningakeppni gillsarans í eyrunum meðan ég skrifa synjun á vernd,“ ásamt hjarta-emojíi.
Í yfirlýsingu FTA er jafnframt lögð áhersla á að tjáning af þessu tagi verði „sjaldnast til í tómarúmi“ og geti endurspeglað það umhverfi sem starfsmaðurinn tilheyrir. Af þeirri ástæðu telur FTA að viðbrögð við málinu eigi ekki að „einskorðast við þann starfsmann sem átti í hlut, heldur jafnframt að beinast að stofnuninni í heild“.
Innt eftir viðbrögðum við yfirlýsingunni og áskorun félagsins um óháða útttekt á Útlendingastofnun segir Þorbjörg Sigríður: „Svona framkoma í starfi er ólíðandi en gæta þarf þess að dæma ekki alla starfsmenn og heila stofnun út frá háttsemi eins starfsmanns. Það er eðlilegur farvegur þessa máls og önnur skref ekki tímabær.“
FTA lagði til að úttekt yrði gerð á Útlendingatofnun „með tilliti til þeirra atriða sem málið dregur fram, þ.e. réttsýni í starfi, stofnanabrag, rækt við upplýsingaöryggi og trúnað.“ Þá segir í yfirlýsingu félagsins á að stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar, að beiðni Alþingis, væri „til þess fallin að upplýsa um fræðslu starfsfólks, gæði verkferla og verklagsreglna.“
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.