Kalla eftir úttekt á Útlendingastofnun í kjölfar Instagram-málsins

Lestími: 5 mínútur

Fé­lag tals­manna um­sækj­enda um al­þjóð­lega vernd hvet­ur dóms­mála­ráðu­neyt­ið til að kalla eft­ir óháðri út­tekt á starf­semi Út­lend­inga­stofn­un­ar í kjöl­far In­stagram­­máls­ins. Tján­ing eins og starfs­mað­ur stofn­un­ar­inn­ar varð upp­vís að verði „sjaldn­ast til í tóma­rúmi“ og geti end­ur­spegl­að það um­hverfi sem starfs­mað­ur­inn til­heyr­ir.

Félag talsmanna umsækjenda um alþjóðlega vernd, FTA, beinir því til dómsmálaráðuneytisins að kalla eftir óháðri úttekt á starfsemi Útlendingastofnun í kjölfar þess að starfsmaður stofnunarinnar braut trúnað með því að birta nöfn umsækjenda um alþjóðlega vernd og upplýsingar um niðurstöður mála þeirra á samfélagsmiðlum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá FTA.

Sjá einnig: Starfsmaður Útlendingastofnunar birti nöfn skjólstæðinga á Instagram

Gímaldið fjallaði fyrst um málið 20. desember, í frétt þar sem greint var frá því að starfsmaður Útlendingastofnunar hefði deilt trúnaðarupplýsingum frá stofnuninni í lokuðum hópi fólks á Instagram. Blaðamaður Gímaldsins hafði þá borið skjáskot af efninu undir Útlendingastofnun, en málið hafði ekki áður komið inn á borð stofnunarinnar. Í svari Útlendingastofnunar kom fram að málið væri litið alvarlegum augum og að brot á trúnaði hefðu afleiðingar í samræmi við alvarleika máls.

Sjá einnig: Útlendingastofnun tilkynnti trúnaðarbrot starfsmanns til lögreglu

Þá kom fram í yfirlýsingu sem Útlendingastofnun sendi frá sér þann 7. janúar, í kjölfar fyrirspurna Gímaldsins, að stofnunin hefði tilkynnt brot starfsmannsins til lögreglu vegna brota á lögum um persónuvernd og þagnarskyldu opinberra starfsmanna. Þar kom jafnframt fram að starfsmaðurinn hefði „lokið störfum hjá stofnuninni.“

Áhyggjur af þeim viðhorfum sem endurspeglast í tjáningunni

FTA segir í yfirlýsingunni að félagið lýsi „yfir áhyggjum af nýlegu máli er varðar brot á trúnaðar- og þagnarskyldu starfsmanns Útlendingastofnunar, svo og þeim viðhorfum sem endurspeglast í tjáningu starfsmannsins á samfélagsmiðlum.“

Í umfjöllun Gímaldsins kom fram að á einni myndanna, sem sýndi verkefnalista starfsmannsins þar sem hakað hafði verið við nöfn skjólstæðinga Útlendingastofnunar, hafði hann skrifað: „3 kínverjar búnir komnir með klára synjun! Not all heroes wear capes“ ásamt tákni af einstaklingi í ofurhetjubúningi.

Á öðru skjáskoti mátti sjá starfsmanninn deila mynd af jólalagalista á Spotify ásamt verkefnalista þar sem búið var að haka við nafn eins einstaklings sem þurfti að „klára“, með textanum: „Verðlauna mig með jólalögum fyrir fyrsta [tékk-emojí].“ Þá deildi hann einnig mynd af sér að borða jólaköku með textanum: „Jólakaka í mallanum & spurningakeppni gillsarans í eyrunum meðan ég skrifa synjun á vernd,“ ásamt hjarta-emojíi.

Tjáning af þessu tagi verði „sjaldnast til í tómarúmi“

FTA bendir á að félagsmenn félagsins og umbjóðendur þeirra eigi „mikið undir því að starfsfólk stofnunarinnar fylgi lögum og góðum stjórnsýsluháttum.“ Í því samhengi vísar félagið sérstaklega til 14. greinar laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, þar sem meðal annars segir að starfsmanni beri að rækja starf sitt „með alúð og samviskusemi í hvívetna“ og að hann skuli forðast háttsemi „í starfi sínu eða utan þess sem er honum til vanvirðu eða álitshnekkis eða varpað getur rýrð á það starf eða starfsgrein er hann vinnur við.“

Sjá einnig: Instagram-málið og viðbrögð Útlendingastofnunar

Í yfirlýsingunni er jafnframt lögð áhersla á að tjáning af þessu tagi verði „sjaldnast til í tómarúmi“ og geti endurspeglað það umhverfi sem starfsmaðurinn tilheyrir. Af þeirri ástæðu telur FTA að viðbrögð við málinu eigi ekki að „einskorðast við þann starfsmann sem átti í hlut, heldur jafnframt að beinast að stofnuninni í heild“.

FTA segir traust vera „undirstöðu lögbundinnar stjórnsýslu“ og að þegar á því halli skipti máli að brugðist sé við með skýrum hætti. Í yfirlýsingunni segir að viðbrögð við málinu verði að vera „þess eðlis að þau dragi úr líkum á því að sambærilegt atvik komi upp á ný.“

Sjá einnig: Dómsmálaráðherra: Til þess fallið að skaða traust til Útlendingastofnunar

Í ljósi aðstæðna telur FTA tilefni til þess að Dómsmálaráðuneytið kalli eftir óháðri úttekt á starfsemi Útlendingastofnunar „með tilliti til þeirra atriða sem málið dregur fram, þ.e. réttsýni í starfi, stofnanabrag, rækt við upplýsingaöryggi og trúnað.“ Þá bendir félagið á að stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar, að beiðni Alþingis, væri „til þess fallin að upplýsa um fræðslu starfsfólks, gæði verkferla og verklagsreglna.“ Að lokum vekur FTA athygli á mikilvægi þess að Persónuvernd hefji „úttekt eða frumkvæðisathugun á vinnslu persónuupplýsinga hjá Útlendingastofnun,“ í ljósi þess að málið snúi að meðferð viðkvæmra persónuupplýsinga umsækjenda um alþjóðlega vernd.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 9. febrúar, 2026, 19:28

Erla Hlynsdóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link