
„Það liggur fyrir að upplýsingarnar voru birtar á samfélagsmiðlum áður en einstaklingunum sjálfum var tilkynnt um ákvarðanirnar,“ segir í svari Útlendingastofnunar til Gímaldsins. Þeir sem starfsmaðurinn deildi trúnaðargögnum með, fólk í lokuðum hópi á Instagram, fengu því upplýsingar um niðurstöðu málsmeðferðar nafngreindra einstaklinga áður en þeir sjálfir.

Einn af þeim skjólstæðingum Útlendingastofnunar sem voru nafngreindir af starfsmanni stofnunarinnar á samfélagsmiðlinum Instagram hefur verið upplýstur um trúnaðarbrotið. Þetta kemur fram í svari Útlendingastofnunar við fyrirspurn Gímaldsins. Starfsmaðurinn hafði handskrifað nöfn einstaklinga sem voru með umsóknir um vernd til umfjöllunar hjá Útlendingastofnun og birti myndir af verkefnalistum sínum úr vinnunni þar sem hakað hafði verið við þá sem höfðu fengið synjun frá stofnuninni. Á einni myndinni hafði starfsmaðurinn skrifað: „3 kínverjar búnir komnir með klára synjun! Not all heroes wear capes“ ásamt tjákni af einstaklingi í ofurhetjubúningi.
„Það liggur fyrir að upplýsingarnar voru birtar á samfélagsmiðlum áður en einstaklingunum sjálfum var tilkynnt um ákvarðanirnar,“ segir í svari Útlendingastofnunar við fyrirspurn Gímaldsins vegna málsins. Þeir sem starfsmaðurinn deildi myndunum með, óviðkomandi fólk í lokuðum hópi á Instagram, fengu því upplýsingar um niðurstöðu málsmeðferðar nafngreindra einstaklinga áður en þeir sjálfir.
Útlendingastofnun sendi frá sér yfirlýsingu 7. janúar þar sem fram kom að stofnunin hafi tilkynnt brot starfsmannsins til lögreglu, brot hans á lögum um persónuvernd og þagnarskyldu opinberra starfsmanna. Auk þess kom þar fram að hann hafi „lokið störfum hjá stofnuninni“.
Blaðamaður Gímaldsins hafði samband við Útlendingastofnun þann 18. desember og óskaði viðbragða vegna trúnaðarbrots starfsmanns. Blaðamaður hafði þá undir höndum skjáskot af myndum sem starfsmaðurinn hafði deilt í nóvembermánuði í lokuðum hópi fólks á Instagram. Stjórnendur hjá Útlendingastofnun voru þá ekki meðvitaðir um brot starfsmannsins, og höfðu ekki áður séð skjáskotin, en veittu Gímaldinu svör vegna málsins næsta dag, og þann 20. desember birti Gímaldið fyrstu frétt um málið. Þar kom fram að málið væri litið alvarlegum augum og að brot á trúnaði hefðu afleiðingar í samræmi við alvarleika máls.
Þar var einnig tekið fram að starfsfólk Útlendingastofnunar væri bundið þagnarskyldu samkvæmt lögum, að reglur um meðhöndlun persónugreinanlegra upplýsinga og þagnarskyldu opinberra starfsmanna eru kynntar ítarlega fyrir starfsfólki þegar það hefur störf hjá stofnuninni, sem og þau viðurlög sem geta verið við broti á slíkum reglum. Allt starfsfólk undirritar þar að auki sérstaka yfirlýsingu þar sem það leggur drengskap sinn við því að fara með alla þá vitneskju sem það fær innan stofnunarinnar sem algeran trúnað, sagði í svari Útlendingastofnunar í desember. Hvað viðbrögð stofnunarinnar við brotum starfsmannsins sagðist stofnunin ekki geta tjáð sig um málefni einstakra starfsmanna. Á þessum tímapunkti hafði stofnunin aðeins haft vitneskju um brotin í rúman sólarhring.
Gímaldið sendi nýja fyrirspurn til Útlendingastofnunar á þriðjudag, 6. janúar, þar sem óskað upplýsinga um hvaða afleiðingar brotin hefðu haft fyrir viðkomandi starfsmann. Þá óskaði Gímaldið einnig svara við eftirfarandi spurningum varðandi þá einstaklinga sem starfsmaðurinn nafngreindi á Instagram:
– Var haft samband við þá og þeim tilkynnt að starfsmaður Útlendingastofnunar hefði brotið trúnað við meðferð mála þeirra ?
– Liggur fyrir – eða er til skoðunar – hvort nöfn þeirra, ásamt upplýsingum að þeir hefðu fengið synjun, birtust á samfélagsmiðlum áður en þeim sjálfum var tilkynnt um synjunina?
– Verða mál þeirra tekin upp aftur í ljósi trúnaðarbrots við málsmeðferð þeirra innan stofnunarinnar?
Útlendingastofnun svaraði fyrirspurninni degi síðar, 7. janúar, þar sem vísað var til þá nýbirtrar yfirlýsingar á vef stofnunarinnar, eins og Gímaldið greindi. Því til viðbótar sagði í svari Útlendingastofnunar til Gímaldsins:
„Aðeins birtist fullt nafn eins einstaklings á myndunum og hefur sá aðili verið upplýstur um trúnaðarbrotið. Það liggur fyrir að upplýsingarnar voru birtar á samfélagsmiðlum áður en einstaklingunum sjálfum var tilkynnt um ákvarðanirnar. Mál þeirra, og allra annarra sem starfsmaðurinn hefur haft aðkomu að, hafa verið yfirfarin með tilliti til þess hvort verkferlum stofnunarinnar sem eiga að tryggja gæði ákvarðana, hafi verið fylgt í hvívetna. Ekkert kom fram sem gefur tilefni til að endurskoða eða taka upp að nýju ákvarðanir sem starfsmaðurinn hafði aðkomu að.“

Í yfirlýsingunni var haft eftir Kristínu Völundardóttur, forstjóra Útlendingastofnunar: „Ég geri þá kröfu að starfsfólk Útlendingastofnunar standi undir þeirri ábyrgð sem fylgir meðhöndlun viðkvæmra persónuupplýsinga. Traustið sem skjólstæðingar okkar sýna okkur byggir á því, og ég vil vera skýr um að brot á trúnaði verða ekki liðin innan stofnunarinnar.“
Gímaldið ræddi við Þorbjörgi Sigríði Gunnlaugsdóttur, dómsmálaráðherra, þann 23. desember þar sem hún sagði alvarlegt að starfsmaður Útlendingastofnunar hafi deilt nöfnum skjólstæðinga stofnunarinnar á samfélagsmiðlum. Hún sagði málið slá sig illa og hún skilji hörð viðbrögð við því, en í kjölfar umfjöllunar Gímaldsins sköpuðust miklar umræður um málið á samfélagsmiðlum þar sem fólk lét falla hvöss orð um Útlendingastofnun og velti upp spurningum um vinnustaðamenninguna þar.

Hún sagði mikilvægt að jafnvel þó um væri að ræða háttsemi eins starfsmanns þá geti áhrifin náð langt út fyrir þetta einstaka mál „og er til þess fallið að skaða traust á stofnuninni“.eigi ekki aðeins við um Útlendingastofnun heldur einnig aðrar stofnanir sem fari með mikilvæg mál og taki ákvarðanir í viðkvæmum málalflokkum. „Skaðinn í því að einn starfsmaður hagi sér í þessum hætti, hann blasir auðvitað við,“ segir hún og bætir við að slíkar stofnanir eigi „allt sitt undir því að almenningur beri traust sitt til þess að starfsmenn vinni faglega og málefnalega,“ sagði hún.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.