
Aðeins tveir flokkar í Reykjavík eiga eftir að kynna oddvita sína. Eftirvænting er um lista Sjálfstæðisflokksins sem kynntur verður í vikunni. Enn er eftir að fylla baráttusæti hjá Samfylkingunni.

Framboðslistar flokkanna fyrir borgarstjórnarkosningar eru óðum að taka á sig mynd. Oddvitar hafa verið kynntir í flestum flokkum og önnur efstu sæti sömuleiðis, í nokkrum tilvikum. Draga mun til frekari tíðinda í þessari viku og þeirri næstu.
Flokkur fólksins nýtur algerrar sérstöðu í borginni að því leyti að þar hefur enn ekkert frést af framboðsmálum og engir líklegir frambjóðendur verið nefndir. Heimir Már Pétursson, upplýsingafulltrúi hjá flokknum segir uppstillingu framboðslista í höndum stjórnar flokksins og ekki liggi fyrir hvenær framboðslisti verði kynntur. Helga Þórðardóttir borgarfulltrúi flokksins, hefur lýst því yfir að hún gefi ekki kost á sér áfram.
Samfylkingin valdi frambjóðendur í sex efstu sæti á sínum lista í prófkjöri og mun kynna heildarlista síðar í þessari viku. Fylgi Samfylkingarinnar samkvæmt fyrrnefndri könnun myndi skila flokknum átta borgarfulltrúum og því er enn óskipað í tvö líkleg sæti á lista flokksins. Regina Ásvaldsdóttir hefur verið orðuð við sjöunda sætið en hún tilkynnti á dögunum að hún myndi ekki halda áfram sem bæjarstjóri í Mosfellsbæ að loknum kosningum. Tónlistarmaðurinn Unnsteinn Manuel Stefánsson er líka talinn vera á radar uppstillingarnefndarinnar.

Tillaga uppstillinganefndar verður borin undir atkvæði í fulltrúaráði Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík næsta laugardag, 28. febrúar. Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi mun leiða listann og líklegt er að nefndin stilli Brynjari Níelssyni, fyrrverandi þingmanni flokksins, ofarlega á listann.

Heimildir Gímaldsins herma að auk Hildar verði aðeins einn borgarfulltrúi í öruggu sæti á listanum, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir. Aðrir borgarfulltrúar verði ýmist neðar eða ekki á listanum.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur mælst vel í könnunum á fylgi framboða til borgarstjórnar undanfarin misseri og fengi átta borgarfulltrúa samkvæmt nýjustu könnuninni sem unnin var af Gallup fyrir Viðskiptablaðið. Hún var framkvæmd í janúar og niðurstöður hennar voru birtar í blaðinu 3. febrúar.
Vor til vinstri hefur fengið nýtt nafn, Vinstrið og nú liggur fyrir hver verða í efstu sætum á lista framboðsins. Sanna Magdalena Mörtudóttir leiðir listann og Sigurvegarar forvals Vinstri grænna, þau Líf Magneudóttir og Stefán Pálsson verða í öðru og þriðja sæti.

Viðræður eru hafnar um þátttöku Rósarinnar, eins aðildarfélags Samfylkingarinnar, í framboðinu. Náist saman er líklegt að Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Rósarinnar, taki fjórða sæti á lista Vinstrisins. Fyrir liggur að auk annars og þriðja sætis á listanum fá Vinstri græn sjötta sætið og mun Finnur Ricart Andrason verma það sæti, í samræmi við niðurstöðu forvals Vinstri grænna.
Erfitt er að áætla raunverulegt fylgi Vinstrisins. Í könnun Gallup fyrir Viðskiptablaðið mælist framboðið með 1,2 prósent en Vinstri græn með 3,7 prósent. Samstarf VG og Vorsins voru tilkynnt 18. janúar, á miðju svartímabili könnunarinnar. Samkvæmt mælingum frá síðastliðnu hausti nýtur Sanna mikilla vinsælda meðal borgarfulltrúa en alls óvíst er að það skili sér í kjörkassana. Sósíalistar sem Sanna var kjörin í borgarstjórn fyrir í síðustu kosningum mælist með 4,2 prósenta fylgi og óljóst er hvort Sanna á eitthvað í því fylgi en hún hefur sagt sig frá öllum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn, enda með nýtt framboð í smíðum. Þá hefur ekki verið mælt hvort eða hvaða áhrif Rósin og Guðmundur Ingi hafa á fylgi framboðsins.
Framsóknarflokkurinn fékk góða kosningu í síðustu borgarstjórnarkosningum 18,7 prósent og fjóra borgarfulltrúa. Kosningasigurinn var nýttur til samstarfs til vinstri en kjósendur flokksins voru ekki ánægðir með það og refsuðu flokknum grimmilega í könnunum. Oddvitinn og þáverandi borgarstjóri Einar Þorsteinsson reyndi þá að endurheimta umboð sitt með því að slíta samstarfinu og hefja viðræður til hægri. Hann gætti hins vegar ekki nægilega að sér, missti borgarstjórastólinn og endaði í minnihluta. Flokkurinn mælist nú með 2,5 prósent sem dugar ekki til að koma manni í borgarstjórn.

Framsókn ætlar engu að síðar að gefa Einari Þorsteinssyni annað tækifæri og mun hann leiða lista flokksins í vor ásamt borgarfulltrúanum Magneu Gná Jóhannsdóttur, sem mun skipa annað sæti á lista Framsóknarflokksins. Í þriðja og fjórða sæti verða Þorvaldur Daníelsson, framkvæmdastjóri Hjólakrafts og Halldór Bachman, kynningarstjóri Almenna lífeyrissjóðsins. Ekki liggur fyrir hvenær endanlegur listi flokksins verður kynntur.
Tólf efstu sæti á lista Miðflokksins verða tilkynnt síðar í þessari viku, að sögn Björns Inga Hrafnssonar. Miðflokkurinn átti ekki upp á pallborðið í síðustu borgarstjórnarkosningum. Þá fékk flokkurinn 2,4 prósent og engan fulltrúa kjörinn. Nú mælist flokkurinn hins vegar með 9,3 prósent og tvo menn í borgarstjórn. Þessi nýjasta könnun var birt áður en flokkurinn tilkynnti að Ari Edwald muni leiða lista flokksins í Reykjavík. Því liggur ekki fyrir hvaða áhrif hann hefur á fylgi flokksins.
Val Miðflokksins á oddvita bendir til þess að Miðflokkurinn hyggist einkum leita í fylgi Sjálfstæðisflokksins en Ari var um árabil virkur í starfi Sjálfstæðisflokksins. Svo er einnig um Kristrúnu Kolbrúnu Kolbeinsdóttur sem skipa mun 2. Sæti á lista Miðflokksins, en hún er fyrrverandi formaður Hvatar, félags Sjálfstæðiskvenna í Reykjavík. Í þriðja sæti listans verður Lárus Blöndal Sigurðsson. Hann hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra knattspyrnufélags Vals og þar áður var hann forstjóri Bílanausts.
Uppstillinganefnd vinnur að röðun á lista Viðreisnar í Reykjavík og verður hann kynntur í byrjun mars. Nefndin heldur vinnunni mjög þétt að sér og ekkert lekur úr um störf hennar. Fyrir liggur að Björg Magnúsdóttir mun leiða lista Viðreisnar en hún sigraði leiðtogakjör í flokknum lok janúar. Björg er ein fárra oddvita í komandi kosningum sem ekki hefur haft viðkomu í Sjálfstæðisflokknum á ferlinum en hún var aðstoðarmaður Einars Þorsteinssonar, oddvita Framsóknarflokksins, þegar hann var borgarstjóri fyrr á þessu kjörtímabili.
Framsókn og Viðreisn hafa reyndar verið samferða í borginni allt kjörtímabilið. Í upphafi þess voru báðir flokkarnir þátttakendur í fjögurra flokka meirihluta. Þegar Einar Þorsteinsson sleit því samstarfi fylgdust Framsókn og Viðreisn að og hófu viðræður við Sjálfstæðisflokkinn og flokk fólksins um myndun nýs meirihluta. Þeim viðræðum var hætt þegar Flokkur fólksins dró sig út og tók þátt í myndun nýs meirihluta til vinstri. Hvorki Framsókn né Viðreisn eiga aðild að þeim meirihluta og eru báðir flokkarnir nú í minnihluta ásamt Sjálfstæðisflokknum.

Uppstillingarnefnd Viðreisnar hefur ekki gefið upp hvort eitthvert þeirra sem gáfu kost á sér í leiðtogakjörinu verði á listanum.
Viðreisn mælist með 10 prósenta fylgi í borginni. Haldi flokkurinn því fylgi í kosningunum mun hann fjölga borgarfulltrúum úr einum í tvo. Þótt fylgið sé á fleygiferð í borginni og taka beri könnunum á þessu stigi með nokkrum fyrirvara, er ekki ólíklegt að Viðreisn geti verið í oddastöðu þegar nýr meirihluti verður myndaður í Reykjavík eftir kosningar. Haldi fylgi Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar áfram að vera jafnt, er ekki útilokað að það verði Viðreisn sem ákveði hver verði borgarstjóri í vor, allt eftir því hvort flokknum þyki fýsilegt að halla sér til hægri eða vinstri.
Sósíalistar kynntu tíu efstu sæti á sínum framboðslista 10. febrúar síðastliðinn. Listann leiðir Silja Sóley Birgisdóttir, stuðningsfulltrúi og næstu sæti á eftir henni skipa Sigrún E Unnsteinsdóttir athafnakona, Hannes Pétursson verslunarmaður og Geirdís Hanna Kristjánsdóttir öryrki.
Átök og illdeilur hafa einkennt alla umfjöllun um flokkinn undanfarin misseri. Valdabarátta innan stjórnar flokksins leiddi til hallarbyltingar síðasta sumar og í kjölfarið súrnaði mjög í samskiptum flokksins við oddvita flokksins í borginni, Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, sem sagði sig frá öllum trúnaðarstöðum fyrir flokkinn og stofnaði Vor til vinstri, nú Vinstrið.
Sósíalistar fengu 7,7 prósent í síðustu kosningum og tvo borgarfulltrúa. Flokkurinn mælist nú með 4,2 prósent og einn borgarfulltrúa.

Framboðið Okkar borg hefur kynnt frambjóðendur þriggja efstu sæta hjá sér en þau skipa Sigfús Aðalsteinsson fasteignasali, Baldur Borgþórsson ráðgjafi og Hlynur Áskelsson framhaldsskólakennari. Ekki liggur fyrir hvenær endanlegur listi flokksins liggur fyrir. Meðal helstu stefnumála Okkar borgar er að tvö bílastæði fylgi hverri íbúð, byggð í úthverfum verði lágreist, fækkun hælisleitenda, mislæg gatnamót þar sem þau eru möguleg og andstaða við borgarlínu.
Prófkjör Pírata hefst 26. febrúar og stendur í viku. Niðurstöður þess verða kynntar 6. mars. Alls eru 11 í framboði. Tvö gefa kost á sér í oddvitasætið, þau Alexandra Briem, borgarfulltrúi, og Kristinn Jón Ólafsson, varaborgarfulltrúi flokksins.
Flokkurinn fékk þrjá borgarfulltrúa í síðustu kosningum. Alexandra er sú eina sem gefur kost á sér á ný fyrir flokkinn. Dóra Björt Guðjónsdóttir er gengin til liðs fyrir Samfylkinguna og Magnús Norðdahl ætlar ekki að gefa kost á sér aftur. Flokkurinn mælist nú með 5 prósenta fylgi sem gæfi einn mann. Flokkurinn átti í viðræðum um samstarf við Vor til vinstri en ekki náðist samkomulag um samstarf og mun flokkurinn því bjóða fram í eigin nafni í kosningunum í vor.
Nýjasta könnun á fylgi flokka í Reykjavík var unnin af Gallup fyrir Viðskiptablaðið. Hún var framkvæmd í janúar og niðurstöður hennar voru birtar í blaðinu 3. febrúar. Samkvæmt könnuninni er hörð barátta milli Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar en flokkarnir tveir hafa langmest fylgi í Reykjavík og mynda tvo turna í kosningabaráttunni. Sjálfstæðisflokkurinn er með 32,7 prósent fylgi en Samfylkingin með 29,4 prósent.
Flokkarnir bæta báðir við sig fylgi milli kannana og styrkja sig verulega frá síðustu kosningum. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins eru fimm í dag en yrðu átta samkvæmt könnuninni. Samfylkingin fengi líka átta borgarfulltrúa samkvæmt könnuninni sem væri fjölgun um þrjá.
Turnarnir tveir eru þó ekki að keppa hvor við annan um fylgið nema að litlu leyti. Fylgið hægra megin við miðju fer einnig til Miðflokksins og Viðreisnar og það vinstra fylgi sem ekki er hjá Samfylkingunni er mjög dreift milli litlu flokkana sem eru ýmist með einn mann í borgarstjórn eða engan.
Næst á eftir Sjálfstæðisflokknum og Samfylkingunni koma Viðreisn (10%) og Miðflokkurinn (9,3%) sem bæði fengju tvo menn kjörna. Þótt stóru flokkarnir tveir fái flesta borgarfulltrúa gætu Viðreisn og Miðflokkurinn haft mikil áhrif á, og jafnvel ráðið úrslitum um hvaða meirihluti verði myndaður eftir kosningar.
Þrír flokkar eru með einn manni inni samkvæmt könnuninni. Sósíalistar, Píratar og Vinstri græn. Erfitt að henda reiður mögulegu fylgi Vinstrisins en það hefur í raun aldrei verið mælt svo mark sé á takandi.
Áhugavert verður að fylgjast með næstu könnunum á fylginu í borginni en þessi nýjasta könnun er því marki brennd að aðeins brotakennd mynd var komin á framboðin í borginni á því tímabili sem hún var lögð fyrir, 5. – 31. janúar. Ekki varð ljóst fyrr undir lok janúar hverjir leiða lista Samfylkingarinnar og Viðreisnar og ekki var búið að kynna oddvita Miðflokksins. Vinstrið var sömuleiðis enn á teikniborðinu og er enn. Frambjóðendur í prófkjöri Pírata eru enn tiltölulega nýkomnir fram og niðurstöður prófkjörs liggja ekki fyrir fyrr en í mars. Að lokum er enn allt á huldu í framboðsmálum Flokks fólksins.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.