
Í nýrri þáttaröð Gímaldsins um sveitarstjórnarmál verður athyglinni beint að málefnum frekar en frambjóðendum. Málin verða skýrð og sett í samhengi með þjónustu við kjósendur að leiðarljósi. Þessi umfjöllun er fyrst og fremst í hljóðformi. Það er bæði hægt að hlusta inni í fréttinni og á helstu hlaðvarpsveitum.

Baráttan um völdin í sveitarfélögum landsins er farin af stað. Vettvangur kosningabaráttunnar hefur að miklu leyti færst frá ritstýrðum fjölmiðlum inn á samfélagsmiðla þar sem kjósendur tjá ánægju sína en einkum þó óánægju með hvaðeina sem torveldar þeim daglegt líf og veldur þeim gremju, og frambjóðendur svara kallinu á sama vettvangi og bjóða lausnir, stundum töfralausnir.
Önnur nýlunda í aðdraganda kosninga er sterk innkoma hlaðvarpa. Fjölmiðlarnir eru margir með sín hlaðvörp en einstaklingar halda líka úti hlaðvörpum og ná nú til sín frambjóðendur. Það eru líka fyrirtæki og hagsmunaaðilar að gera og hagsmunaöflin halda ekki bara úti hlaðvörpum heldur standa bílaumboð, byggingaverktakar og fasteignafélög að heilu ráðstefnunum um kosningamálin og fá oddvita flokka til að ræða við sig um hagsmunamál sín í aðdraganda kosninga.
Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir ræða þessa þróun í fyrsta þætti Barna og bílastæða, þáttaraðar Gímaldsins um sveitarstjórnarmál í aðdraganda kosninga. Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér efst í fréttinni og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Í þættinum ræða þær fjölbreyttan vettvang kosningabaráttunnar og hlutverk fjölmiðla í þessu nýja landslagi. Þær spyrja hvort þolinmæði fyrir sérhagsmunum sé að aukast aftur eftir að óþol fyrir slíku rauk upp úr öllu valdi í kjölfar efnahagshrunsins og hvaða þjónustu fjölmiðlar eigi helst að veita kjósendum til að undirbúa þá sem best fyrir kosningarnar. Á að láta frambjóðendum og jafnvel hagsmunaaðilum eftir að skilgreina vandamálin sem þarf að leysa eða eiga fjölmiðlar kannski frekar að beina athyglinni að málefnunum sjálfum, rýna í þau, greina og skýra út?
Í þættinum er rökstudd sú leið að gefa frambjóðendum frí í umfjöllun Gímaldsins um komandi kosningar, en framboðin hafa fjölbreyttari leiðir en áður til að koma sér á framfæri. Málefnin sjálf kunna hins vegar að verða undir og þess vegna beinir Gímaldið athyglinni að þeim.
Nafnið á þáttaröðinni er líka skýrt í þessum fyrsta þætti en stór hluti verkefna sveitarfélaga snýst um börn, velferð þeirra, menntun og lífsgæði. Miðað við umræðu fyrir þessar kosningar mætti þó halda að börn þrái fyrst og fremst eitt: bílastæði!
Þátturinn Börn og bílastæði er hugsaður fyrir forvitið fólk sem er þreytt á upphrópunum og rifrildum og leitar í staðinn að dýpri skilningi á þeim málefnum sem verða í brennidepli fyrir kosningarnar. Markmiðið er að veita kjósendum þjónustu frekar en frambjóðendum og þess vegna verður þátturinn án frambjóðenda. Í staðinn verður rætt við fólk sem best er að sér á þeim málefnasviðum sem tekin verða fyrir. Þættirnir verða aðgengilegir á öllum helstu hlaðvarpsveitum og verða öllum opnir. Næsti þáttur fer í loftið á fimmtudaginn og verður helgaður bílastæðum.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.