|
Gímaldið heilsar þriðjudaginn 5. maí 2026
Lárus Welding tapaði í Strassborg: Mannréttindadómstóll Evrópu telur ekki að brotið hafi verið á rétti Lárusar Welding til réttlátrar málsmeðferðar fyrir óvilhöllum dómstóli þegar hann var sakfelldur í Stím-málinu svokallaða. Mál hans var dæmt í Strassborg í dag. Lárus kærði málið til MDE eftir að Hæstiréttur hafnaði beiðni hans um að taka málið fyrir árið 2020. Þrír Íslendingar sem sakfelldir voru fyrir umboðssvik í málinu kærðu það allir til MDE og dómurinn á enn eftir að kveða upp dóma í málum Þorvaldar Lúðvíks Sigurjónssonar og Jóhannesar Sveinssonar. Upphaflega kvörtuðu þeir allir undan löngum málsmeðferðartíma og að gögnum sem hafi verið mikilvæg fyrir málsvarnir þeirra hafi verið haldið frá þeim. Eina kæruefnið sem dæmt var um í máli Lárusar varðar hins vegar þá dómara sem dæmdu mál hans í héraði en málið var dæmt tvisvar á því dómstigi vegna vanhæfis eins dómarans sem dæmdi það upphaflega. Málið var þá dæmt af tveimur skipuðum dómurum, Sigríði Hjaltested og Símoni Sigvaldasyni auk eins sérfróðs meðdómara. Þegar upp komst að Sigríður Hjaltested var vanhæf var málið dæmt aftur. Þá dæmdi málið sami sérfróði meðdómari og áður auk Símonar Sigvaldasonar og Ingimundar Einarssonar sem kom í stað Sigríðar Hjaltested. Lárus krafðist þess að hinn sérfróði meðdómari viki sæti en því var hafnað. Fyrir MDE hélt Lárus því fram að draga mætti óhlutdrægni hans í efa en endurtekin skipun sérfróða meðdómarans af hálfu sama dómsforseta hafi gefið í skyn að hún hafi verið valin í endurupptökuna á grundvelli skoðana sinna í fyrri málsmeðferðinni gegn honum. Mannréttindadómstóll Evrópu var ekki sammála því og sýknaði íslenska ríkið af kæru hans.
Flestir borgarbúar treysta Sönnu Magdalenu Mörtudóttur best af oddvitum þeirra flokka sem bjóða fram í borgarstjórnarkosningum í vor. Þetta kemur fram í könnun Maskínu sem unnin var fyrir Sýn. Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, fylgir á eftir Sönnu en 30,3 prósent segjast treysta henni vel. Þar á eftir er Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar, sem nýtur trausts 28,4 prósenta borgarbúa. Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, nýtur trausts 25,3 prósenta og 20,9 prósent treysta Silju Sóleyju Birgisdóttur, oddvita Sósíalista. Einari Þorsteinssyni, oddvita Framsóknar, og Kristni Jóni Ólafssyni, oddvita Pírata, er báðum treyst af rétt rúmum 18 prósentum borgarbúa. Þá treysta 12,8 prósent Ara Edwald, oddvita Miðflokksins, best og 8,8 prósent Guðmundi Inga Þóroddssyni, oddvita Flokks fólksins. Hægt er að skoða könnunina í frétt Vísis en áhugavert er að skoða traust kjósenda flokkana til oddvita annarra flokka. Þannig er til dæmis ágætt traust til oddvita Viðreisnar meðal kjósenda Samfylkingar og öfugt.
Sjálfstæðisflokkurinn heldur áfram að bæta við sig fylgi í Reykjavík. Í könnun Gallup sem gerð var í síðari hluta apríl mánaðar mælist flokkurinn með 30 prósenta fylgi en Samfylkingin með 22 prósent. Vinstrið stendur í stað og mælist með 13 prósent. RÚV fjallaði um könnunina í gær en niðurstöður hennar hafa ekki verið birtar. Miðflokkurinn heldur áfram að tapa og mælist með 10 prósent og Viðreisn sömuleiðis og mælist með 9 prósent. Sósíalistar eru hins vegar á siglingu samkvæmt könnuninni og mælast nú með 5 prósent sem er mikil bæting frá síðustu mælingum Gallup þar sem flokkur var með 3 prósent. Framsókn tapar hins vegar einu prósenti og mælist með 3 prósent, eins og Píratar. Flokkur fólksins nær engu flugi samkvæmt könnuninni og mælist með 2 prósent og næði ekki inn manni. Við minnum á að kosningaþáttur Gímaldsins – Börn og bílastæði – er farinn af stað. Þið finnið þáttinn á Gímaldinu og öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Bragi Guðbrandsson hlýtur Norður-suður verðlaun Evrópuráðsins í ár ásamt stríðsfréttaritaranum Rami Abou Jamous. Dómnefnd Norður-suður stofnunar Evrópuráðsins tilkynnti um verðlaunahafana í gær en þau verða veitt í 31. skiptið þann 19. maí næstkomandi. Verðlaun þessi hafa verið veitt tveimur einstaklingum, samtökum eða stofnunum árlega frá árinu 1995. Um er að ræða viðurkenningu fyrir baráttu fyrir vernd og eflingu mannréttinda, lýðræðis og réttarríkis, og fyrir eflingu samstarfs og samstöðu milli menningarheima norðurs og suðurs. Í tilkynningunni segir að Bragi Guðbrandsson sé virtur baráttumaður fyrir réttindum barna en starf hans hafi eflt barnavernd víðs vegar um Evrópu og víðar. Hann sé víða þekktur fyrir að hafa verið frumkvöðull að Barnahúsalíkaninu og fyrir forystu sína í alþjóðlegri hagsmunagæslu og eftirliti með mannréttindavernd. Framlag hans hafi bætt þverfagleg, barnvæn viðbrögð innan réttarkerfa við ofbeldi og kynferðisofbeld. Þá hafi hann starfi sínu hjá Evrópuráðinu og Semeinuðu þjóðunum, hjálpað til við að móta alþjóðlega barnaverndarstaðla. Stríðsfréttaritarinn Rami Abou Jamous,er heiðraður fyrir fréttaflutning af lífinu á átakasvæðum, fyrir að varpa ljósi á hættulegar aðstæður sem blaðamenn á Gaza búa við í dag og fyrir einstakt framlag til samtals norðurs og suðurs. Verðlaunin verða afhent í portúgalska þinginu í Lissabon 19. maí.
Nýr þáttur af Sirkabát er kominn út. Þú getur fylgst með öllum nýjum þáttum Gímaldsins á helstu hlaðvarpsveitum á samnefndri hlaðvarpsrás. |